Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Flóð valda frekari skemmdum á vegum
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Um 30 metra skarð myndaðist í veginn fyrir Búlandshöfða á Snæfellsnesi í gær og munu um 4.000 rúmetr-
ar af möl hafa runnið úr honum.
4.000 rúmmetrar af möl úr
veginum fyrir Búlandshöfða
FLÓÐ ollu ófærð og skemmdum
á vegum víðsvegar um land í
gær. Hlýindi undanfarinna daga
hafa víða valdið miklum leysing-
um og urðu vegir við Búlan-
dshöfða á Snæfellsnesi, flugvöll-
inn á Sauðárkróki og við
Skógarholt í Mývatnssveit einna
verst úti í gær. 30 metra skarð
myndaðist í veginn fyrir Bú-
landshöfða á Snæfellsnesi í gær.
Stór fylla rann úr aðfaranótt
miðvikudags og að sögn Vega-
gerðarinnar er talið að um 4.000
rúmmetrar af möl hafi skolast
burt. Unnið er að viðgerð vegar-
ins en skemmdir eru það miklar
að reiknað er með að hann verði
áfram ófær í dag. Vegagerðin
telur ekki unnt að segja til
um hvenær hann verði
fær, fyrr en í kvöld.
Flóð í Skagafírði,
Mývatnssveit og
Húnavatnssýslu
Mikil flóð urðu í Skaga-
firði bæði á þriðjudag og í
gær vegna leysinga og um
klukkan 10 í gærmorgun
rufu starfsmenn Vega-
gerðarinnar veginn frá
Sauðárkróksbraut að
flugvellinum til að koma
vatni sem hafði flotið yfir
veginn út í sjó. Einnig
grófu þeir þrjá skurði í
kambinn norðan við Sauð-
árkróksbrautina til að
veita vatni út í sjó. Vegur-
inn að flugvellinum varð
því ófær og verður gert
við hann í dag. Sauðár-
króksbrautin sjálf var
hins vegar fær öllum bfl-
um þó að nokkurt vatn
hefði einnig flotið yfir
hana.
Þjóðleiðin til Austur-
lands rofnaði í gær við
Skógarholt í Mývatnssveit
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Vegurinn við Skógarholt í Mývatnssveit rofn-
aði einnig og var unnið að viðgerð í gær með
því að sturta möl í skarðið.
Morgunblaðið/Sveinn Hjartarson
Mikil flóð hafa verið í
Skagafirði og flæddi
vatn meðal annars yfir
Sauðárkróksbrautina.
vegna leysingavatns sem
flæddi yfir veginn. Hiti
var á bilinu 6 til 10 stig í
gær og þrátt fyrir að vet-
urinn hafi verið fremur
snjóléttur þar, olli skörp
þíðan talsverðum flóðum.
Unnið er að viðgerð á veg-
inum, möl verður sturtað í
skarðið og verður hann
væntanlega orðinn fær
fyrir hádegi í dag.
Flóð í Svartá í Húna-
vatnssýslu olli einnig
skemmdum en þar rofnaði
símastrengur og urðu níu
bæir símasambandslausir.
Flóðið tók með sér göngu-
brúarstólpa við bæinn
Leifsstaði, sem hefur stað-
ið af sér öll flóð í ánni frá
árinu 1962. Flóðið mun í
rénun nú en að sögn
heimamanna er þetta með
mestu flóðum sem menn
þar um slóðir muna.
Island ofarlega
á baugi vestan
hafs í apríllok
MÁLEFNI íslands verða ofarlega á
baugi í lok aprílmánaðar í Bandaríkj-
unum, en þá opnar Víkingasýningin í
Smjthsonian-safninu í Washington
og ísland verður sérstök heiðursþjóð
á árlegri Azalea-hátíð Atlantshafs-
bandalagsins í Norfolk. Þá er fyrir-
huguð heimsókn Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra til
Washingtonn og fundur með Madel-
ine Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í maíbyrjun.
Víkingasýningin verðm- formlega
opnuð fimmtudaginn 27. aprfl að við-
stöddum þjóðhöfðingjum Norður-
landanna og samkvæmt drögum að
dagskránni er ráðgert að íslenskt
klassískt tríó spili við opnunina og að
íslensk stúlka i þjóðbúningi afhendi
þjóðhöfðingjunum blóm við komu í
safnið. Forseti íslands, norsku kon-
ungshjónin, Viktoría, krónprinsessa
Svía, Jóakim, krónprins Dana, og
nýkjörinn forseti Finnlands, Tarja
Halonen, verða viðstödd athöfnina.
Á föstudagsmorgninum mun
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra ásamt Noregsdrottningu opna
tveggja daga málþing um víkinga-
tímabilið í National Museum of Nat-
ural History-safninu (NMNH). í há-
deginu er þjóðhöfðingjunum boðið til
hádegisverðar í Hvíta húsinu í boði
bandarísku/orsetahjónanna.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra verður sérstakm- gestur á Aza-
lea-hátíð Atlantshafsbandalagsins í
Norfolk, sem verður haldin síðustu
vikuna í aprfl, en ísland er sérstök
heiðursþjóð á hátíðinni í tilefni af því
að eitt þúsund ár eru frá fundi Vín-
lands og verða á hátíðinni margvís-
leg atriði sem tengjast Islandi.
Halldór mun eiga viðræður við yf-
irmann flota Atlantshafsbandalags-
ins, en stöðin í Keflavík heyrir undir
hann. Hann mun síðan eiga fund með
Madeline Albright, utamíkisráð-
herra Bandaríkjanna, í Washington
og er sá fundur ráðgerður 1. maí.
Erfðavísir sem
tengist heilablóð
falli staðfestur
ÍSLENSKUM vísindamönnum hef-
ur tekist að staðsetja erfðavísi á
litningi sem tengist heilablóðfalli.
Greindi svissneska lyfjafyrirtækið
F. Hoffmann-La Roche frá þessu í
gær með fréttatilkynningu.
Þar kemur fram að rannsókn Is-
lenskrar erfðagreiningar, sem hófst
í febrúar 1998 og er liður í fimm ára
samstarfssamningi fyrirtækisins og
Roche, sé sú fyrsta sinnar gerðar
sem leiði til þess að erfðavísir sé
kortlagður. Hafi það verið gert með
því að skima allt erfðamengið í leit
að breyttum erfðavísum sem tengj-
ast algengustu afbrigðum sjúk-
dómsins.
I samstarfsverkefni fyrirtækj-
Uppsögn
ólögmæt
FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Geir H.
Haarde, úrskurðaði í gær að upp-
sögn Hrafns Sigurðssonar, fjármála-
stjóra Þjóðminjasafns, hefði verið
ólögmæt. Leggur hann fyrir þjóð-
minjavörð að semja við Hrafn um
bætur vegna starfslokanna.
Björn Bjamason, menntamála-
ráðherra, vék sæti í málinu er Hrafn
kærði 7. mars sl. þá ákvörðun þjóð-
minjavarðar að segja upp ráðningu
hans sem fjármálastjóra Þjóðminja-
safns íslands. Fjármálaráðherra
kemst að þeirri niðurstöðu að upp-
sögn Hrafns hafi verið ólögmæt; til
grundvallar hennar hafi ekki legið
áminning sem fullnægt hafi skilyi’ð-
um laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins.
anna tveggja er gert ráð fyrir rann-
sóknum á erfðaþáttum 12 sjúkdóma
og voru tæplega tólf hundruð sjúkl-
ingar sem orðið höfðu fyrir heila-
blóðfalli rannsakaðir í því skyni.
í tilkynningu Hoffman-La Roche
segir að með þvi að staðsetja
breytta erfðavísa sem auka hættu á
heilablóðfalli sé gert ráð fyrir að
þekking á orsökum sjúkdómsins
aukist og það geti síðan orðið til
þess að unnt verði að spá fyrir um
hann og grípa fyrr inn með for-
vörnum og meðferð.
Rannsókn Islenskrar erfðagrein-
ingar á erfðaþáttum heilablóðfalls
var gerð í samstarfi við lækna
Landspítalans, Sjúkrahúss Reykja-
víkur og Hjartaverndar, skv. upp-
lýsingum frá ÍE í gær. Þar kom
einnig fram að Roehe-lyfjafyrir-
tækið hafi þegar reitt af hendi áfan-
gagreiðslu vegna þess árangurs
sem náðst hefði í rannsóknum á
sjúkdómnum.
Sólveig Grétarsdóttir hefur
stjórnað rannsókninni hjá ÍE, en
samstarfslæknar hennar eru Einar
Valdimarsson, Finnbogi Jakobsson,
Gísli Einarsson, Guðmundur Þor-
geirsson, Sigurlaug Sveinbjörns-
dóttir, Uggi Agnarsson og Vil-
mundur Guðnason.
Ræktar þú garðinn þinn?
Sameinaðu kosti Heimilislínu og Heimilisbanka
Með því að vera í Heimilislínu og Heimilisbankanum á Netinu tryggir
þú þér mun hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti og sparar kostnað af
færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
HEIMILISLÍNAN
@BÚNAÐARBANKINN
Tmústur banki
Staður og
stund á
mbl.is
OPNAÐUR hefur verið nýr
vefur á mbl.is sem nefnist Stað-
ur og stund. Þar er hægt að
fylgjast með því sem er að ger-
ast á sviði menningar, afþrey-
ingar og skemmtunar.
Þeir sem vilja koma upplýs-
ingum um atburði á framfæri
geta skráð þá inn á vefinn án
endurgjalds. Þá er einnig boðið
upp á þá þjónustu að fá sendan
tölvupóst með upplýsingum um
viðburði sem tengjast áhuga-
sviðum. Einnig er hægt að fá
sendan tölvupóst til að minna á
áðurvaldaatburði.