Morgunblaðið - 02.04.2000, Side 16
16 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýtt listahorn
í Gullsmára
LISTAHORNIÐ í Gullsmára
heitir listahom sem formlega
verður opnað í Félagsheimili
Gullsmára, Gullsmára 3 í Kópa-
vogi, á morgun, mánudag, kl. 14.
Birna Matthíasdóttir listmeðferð-
arfræðingur ríður á vaðið og opnar
sýningu á nokkrum mynda sinna
og mun sýningin standa til 7. apríl.
Þann dag mun hún flytja fyrirlest-
ur um starf sitt meðal eldra fólks.
Listahominu er ætlað það hlut-
verk að vera vettvangur fyrir þá
sem vinna að listsköpun og ekki
gefst kostur á að sýna verk sín á
listasöfnum, t.d. grunnskóla- og
myndlistarnemum og eldra fólki
og öllum almenningi.
Að sýningu Bimu lokinni tekur
við sýning grunnskólanema, en
hverri sýningu er ætlað að standa í
einaviku.
Verk eftir Koggu skreyta verslunarglugga Linsunnar.
S
Islensk list í Linsunni
í LJÓSI þess að Reykjavík er ein af
menningarborgum á þessu ári hef-
ur Linsan gengið til samstarfs við
listafólk úr ýmsum greinum og
munu verk ýmissa listamanna
prýða glugga verslunarinnar á
þessu ári. Fyrsta listakonan sem
þar sýnir er Kogga og skreyta
munir hennar verslunarglugga
Linsunnar í Aðalstræti 9 og á
Laugavegi 8.
Listafólkið sem kemur til með að
sýna í Linsunni næstu mánuði er
m.a. Inga Elín, Þóra Sigurþórsdótt-
ir, Ragnheiður Ágústsdóttir og nú í
apríl munu listakonur úr Kirsuberj-
artrénu sýna ýmiss konar hand-
verk, segir í fréttatilkynningu.
GLÆSIVERK TIL SÖLU
eftir Gunnlaug Blöndal
Einnig verk eftir:
► Kjarval
► Ásgrím Jónsson
► Þorvald Skúlason
► Svavar Guðnason
► Hafstein Austmann
► Valgarð Gunnarsson
► Sigurbjörn Jónsson
Erum að leita eftir
verkum gömlu
meistararma
SMIÐJAN
Innrömmun - Art Gallerý
Ármúla 36, sími 568 3890.
Opið í dag, sunnudag, kl. 14-17
Hágæða innrömmun
Morgunblaðið/Silli
Leikurum var vel fagnað að lokinni frumsýningu,
J msmm
\B ^r::.
wm .
Fullsetið á frumsýningu
Húsvík. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Húsavíkur frum-
sýndi á dögunum leikritið L tpspuni
frá rótum. Þetta er annað verkefnið
sem félagið sýnir í tilefni af 100 ára
afmæli félagsins. Húsið var fullsetið
á frumsýningunni og verkinu vel
tekið.
Leikritið er sérstaklega samið fyr-
ir félagið í tilefni afmælisins af Þing-
eyingunum Armanni Guðmunds-
syni, Sævari Sigurgeirssyni og
Þorgeiri Tryggvasyni, sem þekktir
eru orðnir sem leikritahöfundar.
Leikritið er fjölskyldusaga sem
rifjuð er upp í erfidrykkju ættföður-
ins. „Staldrað er við á hippatímanum
og við sjáum hvaða fjölskyldu-
meðlimir fylgdu blómabörnunum.
Stríðsárin og uppgangurinn í kjölfar
bretavinnunnar setti mark sitt á fjöl-
skylduna. Að endingu er upphafsins
leitað. Uppúr aldamótunum 1900
þegar fólk lagði á sig erfíða ferð til
Vesturheims í leit að betri lífsaf-
komu. Sumir komust aðrir ekki,“
eins og segir í leikskrá.
Þessu verki stjórnar svo Oddur
Bjarni Þorkelsson við erfiðar að-
stæður með marga leikara á litlu
sviði. Tónlist og söngvar eftir sömu
höfunda setja svip sinn á sýninguna
og stjómar henni Valmar Valjaots.
Fjölmargir leikarar taka þátt í
sýningunni og má þar nefna Sigurð
Hallmarsson, Sigurð Illugason,
Svavar Jónsson, Hrefnu Jónsdóttur,
Margréti Sverrisdóttur, Kristján
Halldórsson, Ara Pál Pálsson, Dóru
Armannsdóttur, Þorbjörgu Björns-
dóttur, Berglind Dagnýju Steins-
dóttur, Helgu Dóru Helgadóttur,
Hjálmar Boga Hafliðason, Þorstein
Pálmason, Þór Gíslason, Kristjönu
Maríu Kristjánsdóttur og feðgana
Gunnar Jóhannsson og syni hans Jó-
hann og Hilmar, svo nokkrir séu
nefndir af um 60 manns sem á ein-
hvern hátt taka þátt í sýningunni.
s
Attræður
mynd-
listarmað-
ur sýnir
Borgarnesi. Morgunblaðið.
ORMUR Guðjón Ormsson opnaði
málverkasýningu í Safnahúsinu i
Borgamesi 23. mars sl. Þar sýnir
hann 33 olíumálverk og 29 pastel-,
krítar- og tússmyndir. Þetta er önn-
ur sýning Orms Guðjóns en í maí í
fyrra hélt hann sýningu í Keflavík.
Hann sagðist hafa byrjað að fikta
með liti fyrir 60 árum. Þá átti hann
heima í Staðarsveit á Snæfellsnesi.
Tvö sumur í röð kom þangað list-
málari og sagðist hann hafa fylgst
með vinnubröðum hans.
Málarinn eftirlét Ormi Guðjóni
hálftómar túpur og hann sagðist
hafa byrjað að fikta við að mála.
Hann fór seinna til náms í Iðnskól-
ann í Reykjavík og tók nokkra tíma
hjá Eggert Guðmundssyni listmál-
ara. Sagðist hafa lært mikið af hon-
um. I fyrstu var aðeins um fikt að
ræða að sögn Orms Guðjóns. Hann
málaði aðallega myndir til að gefa
ættingjum og vinum. En að eigin
sögn byrjað hann að mála fyrir al-
vöru árið 1966. Allar myndirnar á
sýningunni eru náttúrulífsmyndir
en hann sagðist halda sig við það
mótíf. Sýningin verður í Safnahús-
inu alla virka daga til 13. apríl og
eru allar myndirnar til sölu. En
geta má þess að Ormur Guðjón
verður áttræður á þessu ári.
Eitt málverka Sjafnar Har.
Verk Sjafnar Har
í Kringlunni
NOKKUR verka Sjafnar Har eru iníu í Chrysler Museum í apríllok.
til sýnis í Kringlunni, við inngang En sú sýning er framhald af sýn-
ÁTVR. Verkin eru hluti sýningar ingu Sjafnar í New York í nóvem-
sem haldin verður í Norfolk í Virg- ber sl.
M-2000
Sunnudagur 2. apríl.
Smáranum Kópavogi.
Sjávarréttakeppni - Matur 2000.
Matreiðslumeistarar frá menning-
arborgunum etja kappi undir stjóm
Klúbbs matreiðslumeistara á sýn-
ingunni Matur 2000. Einnig verður
veitingahús marsmánaðar valið.
www.icelandic-chefs.is
www.reykjavik2000.is.