Morgunblaðið - 02.04.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2000 51
ÍDAG
BRIDS
Umsjón (iuðniunilur Páll
Arnarson
HÉR er enn eitt glæsispil-
ið hjá þeim Zia og Robson
frá Cap Gemini-mótinu í
Hollandi:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
* D752
» ÁDG75
* 3
* KG2
Vestur Austur
+ 986 * AKG10
»62 »1043
♦ A86542 ♦ KDG7
+ 93 * D4
Norður
+ 43
» K98
* 109
* Á108765
Vestur Norður Austur Suður
Bertens Robson Nab Zia
- _ lgrand Pass
2grönd* Pass 3lauf** Dobl
3 tíglar Dobl Pass 3 hjörtu
Pass Pass 4 lyörtu Pass Pass
Tveggja granda svar
vesturs er yfirfærsla í tíg-
ul og austur sýnir góðan
stuðning við tígulinn með
því að „holumelda" þrjú
lauf. Þá vaknar Zia til lífs-
ins með dobli, einfaldlega
til að sýna lauf. Vestur fer
í tígulinn sinn og nú doblar
Robson. Er það sekt eða
úttekt? í ljósi þess að aust-
ur hefur lofað stuðningi
við tígulinn hlýtur doblið
að vera til úttektar og Zia
valdi þá betri hálitinn sinn.
Það var svarið sem Rob-
son var að vonast eftir og
hann hækkaði í geimið.
Vestur tók á tíglásinn í
upphafi og skipti yfir í
spaða. Þar fékk austur tvo
slagi, en um leið og Zia
komst að, tók hann tromp-
in og var ekki í vandræð-
um með að finna lauf-
drottninguna: 620 og 12
IMPar til Zia og Robsons,
enda náði ekkert annað
par þessu fallega geimi.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
pT /VÁRA afmæli. Á
Ov/morgun, mánudag-
inn 3. april, verður fimm-
tugur Þórarinn Böðvars-
son, offsetprentari,
Hjallabraut 68, Hafnar-
firði. Eiginkona hans er
Sigrún Ögmundsdóttir.
Hann verður að heiman.
Ljósm.: Ljósmyndast. R.víkur.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 4. mars sl. í Viðeyjar-
kirkju af sr. Þóri Stephen-
sen Sigríður Þorgrímsdótt-
ir og Þór Hjaltalín. Með
þeim á myndinni eru Val-
gerður og Hákon. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Arnað heilla
SKÁK
Umsjón lle.lgi Áss
Grétarsson
Garry Kasparov og Anat-
oly Karpov tefldu samtals
fimm einvígi um heims-
meistaratitilinn í skák á ár-
unum 1984-1990. Aldrei
beið sá fyrrnefndi ósigur í
þeim þó að stundum hafi
hurð skollið nærri hælum.
Þessi staða kom upp í elleftu
skák einvígis þeirra 1985 og
Karpov lék síðast
22...Hcd8?? með svörtu en
eftir 22...Hd6 hefði staðan
verið u.þ.b. í jafnvægi.
UOÐABROT
MÓÐURÁST
Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel.
í fjallinu dunar, en komið er él.
Snjóskýin þjóta svo ótt og svo ótt.
Auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.
Hver er in grátna, sem gengur um hjam,
götunnar leitar - og sofandi barn
hylur í faðmi og frostinu ver,
fogur í tárum? En mátturinn þver.
Hún orkar ei áfram að halda.
Hvítur á leik
23.Dxd7! Hxd7 24.He8+
Kh7 25.Be4+ og svartur
gafst upp þar sem eftir
25...g6 26.Hxd7 er mannfall
óhjákvæmilegt hjá svörtum.
„Sonur minn góði, þú sefur í værð,
sérð ei né skilur þá hörmunga stærð,
sem að þér ógnar og á dynja fer.
Eilífi guðssonur, hjálpaðu mér
saklausa barninu að bjarga.
Sonur minn blíðasti, sofðu nú rótt.
Sofa vil ég líka þá skelfingarnótt.
Sofðu. Ég hjúkra og hlífi þér vel.
Hjúkrar þér móðir, svo grimmasta él
má ekki fjörinu farga.“
Jónas Hallgrímsson.
ORÐABÓKIN
Kleift - kleyft
Að undanförnu hef ég
tekið eftir því í dagblöð-
um, að menn átta sig
ekki á, hvenær skal hafa
i og svo aftur y í ofan-
greindum orðum. Virðist
tilhneiging helzt vera sú
að hafa einvörðungu y,
en ekki i.
Talað er um að gera
mönnum eitthvað kleyft
eða honum var kleyft að
framkvæma þetta eða
hitt. Stafsetningarreglur
okkar gera hér skýran
mun á, og nemendum í
barna- og framhaldsskól-
um hlýtur að vera bent á
þetta. Regla sú, sem
greinir hér á milli, er í
reynd sáraeinföld og um
leið auðlærð. Hér liggja
að baki tvö sagnorð, þ.e.
klífa og kljúfa. Bæði
heyra þau til svonefndri
sterkri beygingu, en
hvort sínum hljóðskipta-
flokki. Hið fyrra fyrsta
flokki: klífa - kleif - klif-
um - klifið, sbr. lika bíta
- beit - bitum - bitið, rífa
- reif - rifum - rifið. So.
eftir þessum flokki skal
aldrei rita með y og eins
orð, sem leidd eru af
honum. Síðara so. fer
eftir öðrum flokki: kljúfa -
klauf - klufum - klofið, sbr.
líka rjúfa - rauf - rufum -
rofið, fljúga - flaug - flug-
um - flogið.
Hér kemur aftur fram y
í ýmsum hljóðvarpsmynd;
um, svo sem alkunna er. I
mínu ungdæmi var okkur
kennd sú regla, að y kæmi
einungis fyrir í lo. kleyfur,
sbr. kleyfur viður, þ.e.
hann er kljúfanlegur. í
öðrum dæmum væri alltaf
i. Þetta er einföld regla og
auðveld í notkun.
- J.A.J
STJÖRIVUSPÁ
eftir Frances Urake
M
HRUTUR
Þú lítur fyrst og fremst á
björtu hliðar tilverunnar og
það er þessi eiginleiki þinn
sem reynist þérgott vega-
nesti út í lífið.
Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú átt þína stuðningsmenn og veist að þú mátt ekki bregðast þeim í neinu hvað sem á dynur. En gleymdu því aldrei að þeir eru líka þín framtíð.
Naut (20. apríl - 20. maí) Láttu það sem vind um eyru þjóta þótt einhveijir reyni að æsa þig upp útaf máli sem þér er kært. Það mun leysast fyrir þinn atbeina en ekki þeirra orð.
Tvíburar ^ (21. maí - 20. júní) “AA Það er hreint og beint nauð- synlegt að eiga stund með sjálfum sér og nú þarft þú svo sannarlega á slíkri stund að halda. Þú verður að láta það eftir þér.
Krabbi ^ (21. júní -22. júlí) Reyndu að halda tilfinningum frá allri ákvarðanatöku í dag og umfi-am allt skaltu ekki láta mál ná tilfinningalegu taki á þér. Vertu raunsær.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Slí Allir kalla eftir áliti þínu. Varastu að ofmetnast undir þessum kringumstæðum heldur vertu ljúfúr og lítillát- ur þegar þú setur fram skoð- anir þínar.
Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <D$L Það er nauðsynlegt að fara að öllum öryggisreglum þegar lífið er teygt út úr hversdags- leikanum. Kynntu þér því all- ar aðstæður og vertu við öllu búinn.
Fog 'jrrv (23. sept. - 22. október) 4* Það hefur ekkert upp á sig að troða illsakir við vini sína svo þú skalt bara brjóta odd af of- læti þínu og rétta fram sátt- arhönd. Það mun gera þér gott eitt.
Sporðdreki ™ (23. okt. - 21. nóv.) Breytingar breytinganna vegna hafa sjaldnast nokkuð upp á sig. Gerðu þér grein fyrir því hversvegna það sækir á þig að breyta lífi þínu.
Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) fl{C/ Maður verður aldrei of gam- all til þess að læra nýja hluti. En afneitir þú þessu þá munt þú einangrast og ná þér hvergi á strik.
Steingeit ^ (22. des. -19. janúar) Það er merkilegt hvað litlu hlutirnir geta skipt miklu máli í lífinu enda segir mál- tækið að oft velti lítil þúfa þungu hlassi.
Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) Lí® Þú þarft á öllum þínum hæfi- leikum að halda til þess að koma máli þínu þannig á framfæri að allir megi skiija hvað fyrir þér vaki. Vandaðu því orðaval þitt.
Fiskar ,mt (19. feb. - 20. mars) Þú hefur lagt mjög hart af þér að undanfórnu og átt því alveg skilið að sinna sjálfum þér í dag.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Til leigu hús á Skáni, Svíþjóð
Til leigu stórt hús (5—6 svefnherb.) úti á landi, frá 1/7 —1/8. Stutt til
Málmeyjar, Lundar, Þýskalands, Kaupmannah., Póllands og Austurléns.
Leigjum einnig út herb. allt árið. Tölum íslensku, sænsku, spænsku og
ensku, dönsku og þýsku.
Upplýsingar veitir Helen: 46-416-34150, 46-70-3978078,
helenisiandia@hotmail.com.
Fermingargjafir fyrir stúlkur og drengi
Skartgripaskrfn
Seðlaveski
Bakpokar
Nælontöskur
íþróttatöskur
Mikið úrval
■ 9°ffver&
©raögey
Laugavegi 58
sími 5513311
/X tJ-'f ■ __''Y
Antik er fjárfesting * Antik er lífsstíll
Ertu aö breyta? - Ertu aö flytja?
Ertu að breyta um stfl?
Antikhúsgögn - Ljósakrónur - Lampar
Persnesk teppi - Mottur - Gömul dönsk postulínsstell
Þú finnur ýmsa valkosti hjá okkur.
Opiö mán.-fös. frá kl. 12-18, lau. kl. 11-17 og sun. kl. 13-17.
Grensásvegi 14 ♦ sími 568 6076 Raðgreiðsiur
Sn
Ferming 2000
Andlitsmót af
ferminsarbarninu
Sérstök og varanleg gjöf.
Olíumálverk, grafík,
vatnslitamyndir, styttur og
lágmyndir, andlitsmót o.fl.-.
Listaverk eftir pöntun fyrir
öll tækifæri.
Muniö gjafakortin.
GALLERY RIKEY Hverfisgötu 59, sími 893 9233.
Reiki-y heilunar- og sjálfityrkingarnámskeið
Hvaifá pátttakendur út
úr siíkum námsketðum.
^j^Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfmningalegt jafnvægi.
^Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
^Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Ndmskeið i Reykjavík
8.- 9. april ...................1. stig belgamámskeið.
11.-13. apríl 17.-19. april
Sáttmálinn minn
Lausir einkatímar 1 Hugrtektamámskeið
í heilun og ráðgjöf 25,-28. aprtl.
Skráning á námskeið í sima 553 3934 kl. 10-12 virka daga. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. Á.