Morgunblaðið - 02.04.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2000 25
Viddi hittir Dísu, ástina sína frá því hann var fræg sjónvarpstjarna,
Bósi Ijósár hittir fríóa Mackintosh-mey.
áhyggjur af því. „Ég held að há-
tækni í framtíðinni og upplýsinga-
tækni til dæmis verði í sjálfu sér
minna fólgin í að kunna forritunina
sem slíka. Það verði í raun meira um
að þurfa vísinda- og stærðfræði-
þekkingu. Þetta verði einfaldlega
þannig að almennt læri fólk forrit-
unarmál og tölvan virkar. Eftir er
þá að skilja undirliggjandi vanda-
málið á abstrakt hátt og til þess að
geta það þarf náttúrlega þekkingu á
vandamálinu sem slíku - ekki tölv-
unni. Það er vandamálið sem þarf að
leysa og til þess þarf viðeigandi
bakgrunn, sem getur verið misjafn.
Þá kemur stærðfræði að góðum not-
um, því hún auðveldar manni að
gera abstraksjónir á vandamálinu.
Ég held að hlutirnir eigi eftir að
þróast þannig að tölvunarfræðingar
munu færast meira í þá átt að læra
stærðfræði eða einhverja vísinda-
grein til þess að geta fengist við
vandamálin sem slík.
En ekki að vera alltaf að vasast í
tölvunni. Til að láta tölvuna vinna á
ekki að þurfa að vita alltof mikið um
innviði hennar. Þetta á að vera nán-
ast eins og svart box, sem þú spyrð
á forritunarmálinu og hún svarar
einfaldlega. I grundvallaratriðum
er þetta sú stefna sem þarf að taka
til að ná góðum árangri í upplýs-
ingatækni." Um raungreinamennt-
unina svaraði Skeggi einfaldlega að
fyrst og fremst þyrfti að hafa
áhyggjur af henni. Fyrsta skrefið sé
auðvitað að bæði einstaklingarnir
og þjóðfélagið í heild sinni sé með-
vitað um þetta. Geri sér líka grein
fyrir hve menntun hefur mikið
mannbætandi gildi, sem kannski
skiptir mestu máli þegar upp er
staðið. Þó fram hjá því sé litið þá
verði þjóðfélagið að gera sér grein
fyrir því að menntunin á unga fólk-
inu er það sem mun standa undir
hagkerfunum.
„í sjálfu sér held ég að það hafi
verið alveg þokkalegt ástand hér.
Við höfum náð því að mennta fólk
ágætlega og að senda það út í góða
háskóla erlendis, sem ég held að sé
mjög snjallt að gera. Síðan er auð-
vitað málið að fá nægilega margt af
þessu fólki heim og blanda því aftur
í hópinn. Það þarf að leggja kapp á
að viðhalda þessu. Við höfum merki-
lega uppbyggingu á menntun, sem
kemur mjög víða að. En í tölvunar-
fræði mun í framtíðinni ekki duga
nein skemmri skírn, að ætla sér að
fara í stutt nám og svo í hálaunað
starf. Ég held að við verðum að
koma því hugarfari inn hjá ungu
fólki að það er mikils virði að vera í
skóla og læra aðra hluti. Þegar
kemur raunverulega að því að
byggja upp upplýsingatækni þá er
það ekki að kunna á tölvuna, heldur
að kunna að leysa undirliggjandi
vandamál. Þetta eru ekki allt pen-
ingar. Ég held að verði líka að ýta
undir það hugarfar að menntun sé
mannbætandi. Ekki eingöngu til að
fá einhvers staðar há laun um leið
og maður er útskrifaður úr skóla.
Þetta er langtímamarkmið, lang-
tímafjárfesting." Við ræðum áfram
um þá gífurlegu þróun sem er í for-
ritun og upplýsingatækni. Því skipti
meiru að kunna að leysa vandamálin
á abstrakt hátt en að kunna á tölv-
urnar. Tölvur séu í sjálfu sér mjög
ófullkomnar í dag og ekkert merki-
leg tæki. Bæði þær og alla aðferða-
fræðina eigi eftir að endurbæta
mikið.
400 MHz PowerPC G3 örgjörvi Airport hæf Staðfært MacOS 9.0 stýrikerfi
15,1" skjár USB tengi Apple Works á íslensku, „með
64 Mb vinnsluminni Innbyggðir Harman Kardon öllu“, ritvinnsla, töflureiknir,
10 Gb harðdiskur stereo hátalarar teikniforrit, málun og
2 Firewire tengi DVD drif gagnagrunnsforrit. FaxSTF,
512 L2 flýtiminni ATi RAGG 128 VR 2D/3D 8 Mb skjáfax, Bugdom leikur, Acrobat
56 K mótald grafískt hröðunarkort með Reader, alfræðiorðabók, vafri,
10/100 Ethernettengi SDRAM minni AGP 2X stuðning tölvupóstur o.fl.
Ekkert mál að kiippa heimamyndböndin með iMac DV
ACO • Skipholti 21 • Simi 530 1800 ■ Fax 530 1801
www.apple.is