Morgunblaðið - 02.04.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.04.2000, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Bósi Ijósár og hin leikföngin leggja í björgunarleióangur til að frelsa Vidda. Fýlu-Pésa túlkar dr. Frasier Crane og Harald G. Haralds á íslensku. að verða stofnanalegt." Þetta kallar á spurningu: Ætli til- koma íslenskrar erfðagreiningar hafi orðið til þess að hann og fjöl- skyldan skiluðu sér heim núna eftir 17 ár í Bandaríkjunum? Skeggi hik- ar aðeins og segir svo: Já, ég held að ég megi segja að það hafi ráðið úr- slitum. Þó held ég að varla hafi liðið sá dagur að maður hafi ekki hugsað heim. En það var ekkert grín að yf- irgefa Pixar, sem er upprennandi fyrirtæki og algerlega veröld út af fyrir sig, eins og öll góð fyrirtæki eiga að vera. Þar er mjög gott um- hverfi og afbragðsfólk að vinna með. Kannski maður eigi að segja að það- sé heimþráin eða þjóðarrembingur- inn sem réð þvi að maður vildi koma heim,“ svarar hann og bætir við að bömin hafi líka haft sitt að segja. Böm þeirra Skeggja og Elvu konu hans em þrjú, elst Patricia Anna 13 ára, Hanna Soffía og Ivar Þormar. Dóttir hans er Fríður Skeggjadótt- ir, 18 ára menntaskólanemi. Þetta hljóta samt að vera mikil umskipti, að fara úr því að vinna brúðumyndir yfir í genarýni. Ekki tekur Skeggi undir það. Þetta sé ekki svo ólíkt, sömu aðferðum beitt. Allt séu það útreikningar. Hjá ís- lenskri erfðagreiningu vinnur hann við hugbúnað og segir að hugbúnað- argerð sé alltaf hugbúnaðargerð. Vandamálin svipuð. Hann kveðst núna vera að vinna í gagnagrunns- deildinni, að hugsa um tæknilega uppbyggingu og úrvinnslutækni og ekki síst öryggið. Það sé gegnum- gangandi þráður þar á bæ. Þetta Söguhetjan Viddi lendir í hættum og huglægum vanda í Leikfangasögu. kann að líta ólíkt út, en þegar upp er staðið þá er það spurning um að- ferðir, segir hann. Að baki liggur stærðfræði. Við- fangsefnið skipti auðvitað máli, en hann er að byggja upp gagnagrunna og verklýsingatækni og aðferðir til úrvinnslu. „Islensk erfðagreining er upplýsingafyrirtæki á líftæknisviði. Þetta er mjög spennandi fyrirtæki og ég lít á tilkomu þess sem atvinnu- byltingu á íslandi. Að við séum núna að gera eitthvað úr allri þess- ari menntun, öllu þessu fólki sem hefur verið vel menntað og farið út um allan heim í góða háskóla og mynda úr því verðmæti. Og í þessu tilfelli vonandi veru- lega fjármuni. Það skiptir sköpum fyrir íslenskt þjóðfélag að eiga fyr- irtæki, sem eru á allan hátt alþjóð- legt afl sem fyrirtæki, bæði í starf- semi sinni og fjárhagslega. Það er mjög spennandi og mjög mikilvægt að vel takist til.“ Skeggi talar um að við séum nú að uppskera ílagða menntun.Veiki hlekkurinn hjá okkur virðist þó vera lítil stærðfræði gegn um allt skóla- kerfið og skortur á stærðfræðikenn- urum á öllum stigum. Eftir þann formála er borið undir hann að varla verði unnið við alla þessa nýju tækni án stærðfræði, eða hvað? Skeggi tekur undir það. Kveðst sjá á dætr- um sínum að í raungreinum séu skólarnir hér a.m.k. tveimur árum á eftir miðað við þar sem þau voru. Bandaríkjamenn líti samt ekki á sig sem forustusauði í raungreina- menntun og hafi sjálfir miklar EFTIR að altölvumyndin Toy Story 1 hlaut lof, verðlaun og mctvinsældir víðs vegar um heim sendir framleiðandinn, Pix- ar- og Walt Disney-fyrirtækið, nú frá sér mynd númer 2 með sömu tækni og sömu persónum. Nú er kúrekinn Viddi skilinn eftir heima vegna slitins hand- leggs þegar drengurinn Andy, eigandi hans, fer í sumarbúðir. Lcikföng eru lcikföng þar til eigandinn er víðs fjarri, þá lifna persúnurnar. Atburðarásin tekur að æsast þegar Alli ieikfangasali nemur Vidda á brott, í leik- fangafyrirtæki sitt. Þar upp- götvar hann að hann er frægur safngripur frá því hann var sjónvarpsstjarna um 1950 og þarna hittir hann fyrir vini sína og samstarfsfólk úr sjónvarps- þáttunum. Gróðapungurinn Alli ætlar að selja þau öll á safn í Japan. En leikFóngin hans And- ys, líka vinir hans, leggja í hættulegan leiðangur til að frelsa hann. Og þarna kemur fram hin heimspekilega siðfræði, sem er undirliggjandi þáttur í þessari lymskulega samofnu sögu. Hún er um tryggðina. Á Viddi að vera glaður að vera kominn í sinn eigin gamla hóp? Hvort er betra að vera frægur sýningargripur í glerbúri á fínu safni eða gleðja drenginn Andy, þótt Viddi viti að hann muni vaxa upp úr leikföngum sinum og hann þá „settur á hilluna“. Þetta er margslungin saga og fyrir alla Ijölskylduna, upplögð til að fara að sjá með börnunum, enda ekkert ofbeldi eða skothríð Leikföng fyrir alla Sagan af leikföng- unum Toy Story 2 er víðfræg altölvu- mynd, í sumum bíósýningum ítúlk- un íslenskra leik- ara. Frá sérstööu hennar segirí með- fylgjandi grein. Hvísli kemur að gagni. Þórhallur Sigurðsson Ijær honum íslenska rodd hjá þessum kúreka. í þessar myndir hefur verið mikið lagt, bæði við gerð þeirra eins og sjá má á viðtali við Skeggja Þormar hér á siðunni, svo og við túlkun- ina yfir á íslensku hér heima. I ensku talútgáfunni eru margir frægir leikarar og söngvarar svo sem Tom Hanks, sem er Viddi. Líklega er okkur hér kunnastur dr. Frasier Crane, sem talar fyrir munn nöldur- seggsins Fýlu Pésa. Allir sömu leikarar túlka sína brúðu frá fyrri myndinni. Á fslenskunni er Felix Bergs- son í hlutverki Vidda og við Grami tekur þar Harald G. Har- alds. Þarna lesa inn 19 íslenskir leikarar fyrir utan aukaraddir undir stjórn Júlíusar Agnarsson- ar og söngstjóni Vilhjálms Guð- jónssonar, en þýðinguna á texta og lögum gerði Ágúst Guð- mundsson. í öðrum íslenskum hlutverkum eru Magnús Jónsson sem Bósi Ljósár, Ragnheiður El- ín Gunnarsdóttir sem Dísa kær- asta Vidda, Arnar Jónsson er Kartöfluhausinn, Steinn Ármann Magnússon Slinkur, Hjálmar Hjálmarsson Rex-Rex, Karl Ágúst Úlfsson Hammi og Sigrún Edda Björnsdóttir Bóthildur. Þá ljær Grímur Gíslason Adda rödd sína og Inga María Valdimars- dóttir Mömmu Adda, en Ragn- heiður Steindórsdóttir er Frú Kartöfluhaus, Björn Ingi Hilm- arsson Liðþjálfinn, Ester Talía Casey er Barbf, Róbert Arn- finnsson Hreinsarinn, Þórhallur Sigurðsson Hvísla og Zugur. Þarna cr inikið leikaraval eins og í upprunamyndinni cnsku. En Stuðkórinn, Selrna Björnsdóttir, Ragnar Bjarnason og Felix Bergsson, flytja hugljúfu söng- lögin, sem mörg eru þekkt úr ensku útgáfunni. Islensk talsetn- ing vann íslenska talið. En Disn- ey-fyrirtækið er með puttana í þessu og gerir strangar kröfur. Vísast er það ástæða þess að myndin er auglýst undir upp- runalega nafninu á ensku, Toy Story 2. Leikstjóri þessara mynda og jafnframt varaforseti Pixars er John Lasseter, sem hlaut fyrir þetta sérstaka framlag Academy Award. Hann hefur leikstýrt öll- um Pixar-tölvumyndunum og verið bæði tækileg og stjórnun- arleg drifQöður þeirra, eins og Skeggi Þormar stærðfræðingur orðar það. „Jolin hefur það líka í sér að hafa lag á fólki og ná þvf besta út úr því, sem er gffurlega mik- ilvægt þegar verið er að púsla sainan svona smíði,“ segir Skeggi og talar af eigin reynslu. „Til þess þarf mikið af ffnum græjum og margvfslegan mann- skap. Myndin tók íjögur ár, sem er a;ði langur tími, jafnlangur og maður var í mcnntaskóla. Þetta er því ekki sprctthlaup hcldur langhlaup og þarf að gæta þess að enginn gefíst upp á leiðinni og heltist úr lestinni. Það hefur John tekist með af- brigðum, auk þess að hafa góð- an skilning á því hvernig sögur eiga að vera, hvernig að setja þær fram og góðan listrænan skilning á því hvað fólk vill sjá. Ekki hefur John síður skilning á pcrsónum, sem er auðvitað núm- er eitt. Að geta tekið leikföng og búið til úr þeim persónur, sem eru svo manneskjulegar. Það er snilli."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.