Morgunblaðið - 02.04.2000, Síða 29

Morgunblaðið - 02.04.2000, Síða 29
# NÝSKÖPUNARSJÓÐUR ATVINNULlFSINS Verkefni fyrir frumkvöðla og fyrirtæki Nýsköpunarsjóður stendur að stuðningsverkefnum fyrir frum- kvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki með það að markmiði að efla nýsköpun I íslensku atvinnulífi. Frumkvöðlastuðningur Tilgangur þjónustunnar er að styðja við nýsköpunarhugmyndir ein- staklinga og smærri fyrirtækja með því að veita styrki og áhættulán til nýnæmisathugana, einkaleyfisumsókna, hönnunarverndar, við- skiptaáætlana, hagkvæmniathugana, þróunar og prófana. Veittir eru styrkir og áhættulán. Upphæð áhættulána er metin hveiju sinni út frá verkefni og heildarfjármögnun. Stjóm Nýsköpunarsjóðs tekur ákvarðanir um áhættulán að fengnum tillögum verkefhisstjómar. Styrkir geta numið allt að 50% af heildarkostnaði eða að hámarki 300.000 kr. Netslóð verkefnisins er: www.lmpra.is/frumkvodlastudningur Þjónusta Nýsköpunarsjóðs við frumkvöðla og uppfinningamenn Tilgangur þjónustunnar er að veita frumkvöðlum og uppfinninga- mönnum víðtæka handleiðslu í þróun viðskipta- og vöruhugmynda þannig að þær leiði til markaðshæfrar vöm, þjónustu eða stofnunar fyrirtækis. Verkefnið felst m.a. í eftirfarandi: Frummati á hugmyndum, bæði uppfinningum og viðskiptahugmynd- um, leiðbeiningu við gerð viðskiptaáætlana og aðstoð við leit að samstarfsaðiium, innlendum og erlendum. Ásamt þessu er veitt leiðsögn um stofnun fyrirtækja, vemd hugmynda og framsal þeirra og aðstoð við að leita fjármögnunar. Skrefi framar Tilgangur verkefnisins er: • Að auðvelda stjórnendum minni fyrirtækja (ör- og sprotafyrir- tækja) að'bæta rekstur þeirra með utanaðkomandi aðstoð. • Að aðstoða stjórnendur við val á ráðgjöf og ráðgjöfum. • Að veita forsvarsmönnum fyrirtækjanna og ráðgjöfum aðhald meðan á ráðgjöf stendur til þess að hún skili tilætluðum árangri. Skrefi framar er opið öllum starfsgreinum. Um er að ræða 30 verk- efni á ári. Hvert verkefni getur staðið yfir í allt að 10 daga. Hverju verkefni er skipt upp í tvo hluta. í fyrri hluta er gerð forathugun og stöðumat á fyrirtækinu. I síðari hluta verkefnisins er um að ræða ráðgjöf á afmörkuðu sviði. Netslóð verkefnisins er: www.impra.is/skrefiframar ímpra ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ trumkvððla ofl fyrlrUakja Netslóð verkefnisins er: www.impra.is/frumkvodull Framkvæmd þessara verkefna Nýsköpunarsjóðs er í höndum Impru - þjónustumiðstöövar frumkvöðla og fyrirtækja á Iðntækni- stofnun. Verkefnin eru ætluð öllum greinum atvinnulífsins. Ipmra, þjónustumiöstöö frumkvööla og fyrírtækja veitir nánari upplýsingar um einstök verkefni í símum 570 7100 og 570 7267 Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð hjá Nýsköpunarsjóði og Impru. Þau er einnig að finna á veraldarvefnum, www.nsa.is eða www.impra.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.