Morgunblaðið - 02.04.2000, Side 36

Morgunblaðið - 02.04.2000, Side 36
36 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + k Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, HINRIK RAGNARSSON vörubílstjóri, Kleppsvegi 62, Reykjavík, lést á Landspítalanum að morgni föstu- dagsins 31. mars. Edda Hinriksdóttir, Bragi Ásgeirsson, Ragnar Hinriksson, Helga Claessen, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR SIGURÐSSON, Kópavogsbraut 1A, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum, Fossvogi, miðvikudaginn 29. mars sl., verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 7. apríl kl. 13.30. Kveðjuathöfn fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 4. apríl kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landssamtök hjartasjúklinga. JÚLÍUS BJARNI GUÐMUNDSSON + Júlíus Bjarni Guðmundsson fæddist í Hnífsdal 27. febrúar 1938. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans 23. mars síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðmundur Maríasson, mats- veinn, f. 11.5 1912, d. 22.12 1979, og Sig- ríður Kristmunda Jónsdóttir, húsmóð- ir, fædd 29.12 1917, d. 25.3 1956. Systkini Júlíusar eru: Ásdís Guðmundsdóttir, f. 6.5. 1941, d. 20.2. 1992; Jón G. Guðmundsson, f. 5.1. 1944, sambýliskona, Guð- rún Aðalsteinsdóttir; Jens Guð- mundsson, f. 26.6. 1945, maki, Sigurlaug Marinósdóttir, Birgir Guðmundsson, f. 29.6. 1951, sam- býliskona, Jensína Óskarsdóttir; °g„ Örn Guðmundsson, f. 27.7 1952, maki Hafdís Valdimars- dóttir. Júlíus stundaði sjómennsku á sínum yngri árum á „fossum“ Eimskipa- félagsins. Eftir að í land var komið helgaði hann sig teppalögnum, vann hjá Álafossi, Axm- inster, Málaranum í Bankastræti, A-J- Bertelsen o.fl. En síðustu 20 árin vann hann á vegum Lita- vers við Grens- ásveg. Júlíus var í sam- búð með Brynhildi Sigurðardóttur, f. 30.11 1940, og eignuðustþau eina dóttur, Sigríði Magnúsdóttur, f. 25.9 1958, maki Grettir Gíslason. Seinna var Júlíus í sambúð með Málfríði Guðjónu Jörgensen, f. 25.5. 1934, d. 4.12. 1989, og eign- uðust þau einn son, Hafþór Jú- líusson, f. 28.6. 1961, sambýlis- kona Regína Vilhjálmsdóttir. Útför Júlíusar fer fram frá Háteigskirkju á morgun, mánu- daginn 3. apríl, og hefst athöfnin klukkan 15. Mikael Ragnarsson, Emil Ragnarsson, Birna Bergsdóttir, Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir, Gísli Guðjónsson, Brynja Ragnarsdóttir, Ragna Kristín Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, JÚLÍUS BJARNI GUÐMUNDSSON teppalagningarmaður, Vallarási 4, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánu- daginn 3. apríl nk. kl. 15.00. Hafþór Júlíusson, Regína Vilhjálmsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Grettir Gíslason, barnabörn og barnabarnabarn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA HREFNA JÓHANNESDÓTTIR, Selvogsgötu 21, Hafnarfirði, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi, sunnu- daginn 26. mars sl. Jarðarförin ferfram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðju- daginn 4. april kl. 15.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti líknarfélög njóta þess. Erling Rafn Ormsson, Jóhanna Björnsdóttir, Ingveldur Erla Ormsdóttir, Marteinn Gíslason, Hrafnhildur Ester Ormsdóttir, Kristján Þórarinsson, Ormur Njáll ættl. Torfason, Kristín Ársælsdóttir, Jóhannes Tómas Sigursveinsson, Þóra Þorvaldsdóttir, Jóna Guðlaug Sigursveinsdóttir, Þórhallur Óskarsson, barnabörn og langömmubörn. Ég sendi þér kæra kveðju, núkominerlífsinsnótL Ng umve^i blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótL Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, éghittiekkiumhríð þín minning er fjós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Elsku afi, við þökkum þér fyrir stundimar sem þú áttir með okkur og ástina sem þú gafst okkur. Minningar okkar um þig, munu ávallt vekja hlýju í hjörtum okkar. Við munum sakna þín af öllu hjarta og sál. Megi góður Guð vera með þér. Benedikt Axel og Rebekka. Elsku Júlli. Við bjuggumst ekki við því að missa þig svona fljótt. Við héld- um að áhyggjur þínar af aðgerðinni væru ástæðulausar. Við eigum eftir að sakna þín sárt í afmælisveislum dætra okkar, þar sem þú varst ávallt fyrstur á staðinn og skemmtir þér vel. Ekki síst eigum við eftir að sakna þess að hafa þig ekki hjá okkur enn eitt aðfangadagskvöldið, þar sem við vorum farin að hlakka til næstu jóla í nýju íbúðinni okkar. Þú varst mjög spenntur vegna brúðkaups okkar sem haldið verður 27. maí næstkom- andi. Anægður varstu yfir því að hafa teppalagt veislusalinn í Skipholti þar sem veislan verður haldin. Þú varst Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 Þegar andldt ber að höndum Útfararstofan annast meginhluta allra útfara á höfuðborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns viS útfararþjónustu og kistuframleiðslu. Alúileg þjónusta sem byggir á langri reynslu Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266 + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, BRYNDÍS (STELLA) MATTHÍASDÓTTIR, Álfaskeiði 101, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnu- daginn 26. mars, verður jarðsungin frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði þriðjudaginn 4. apríl kl. 13.30. Tryggvi Sigurgeirsson, Sigrún Jóna Marelsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Þóranna Tryggvadóttir, Ingi Óskarsson, Jón Ásgeir Tryggvason, Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, Líney Tryggvadóttir, Jónatan S. Svavarsson, Sigurgeir Tryggvason, Ásta Sigríður Ólafsdóttir og barnabörn. c UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. 896 8242 l 895 f 199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is ávallt með húmoiinn í góðu lagi og til- búinn að rétta öðrum hjálparhönd ef eitthvað amaði að. Við kveðjum þig á þinn hátt, elsku Júlli: Bæjó. Inga og Guðmundur. Júlíus Bjami er dáinn. Það hljómar dálítið fjai'stæðukennt því hann stendur mér svo Ijóslifandi fyrir hug- skotssjónum þar sem hann situr við eldhúsborðið hjá mér fyrir örstuttu síðan. Ásta konan mín réttii- fram kúf- aðan disk af nýlöguðum pönnukökum með öllu tilheyrandi, sultu, ijóma og sykri. Daddi reynir í örvæntingu sinni að senda henni augnaráð hins stað- fasta manns en veit jafnvel og hún að allar vamir eru brostnar. Slíkar stundir voni algengar hjá okkur í Laufenginu. Ég hafði það fyr- ir reglu að í hvert sinn er ég hugðist framkvæma eitthvað meiriháttar á heimilinu, flísaleggja, dúka eða smíða þá hringdi ég í Dadda og það brást ekld að hann var mættur korteri síðar og tók að sér yftrumsjón verksins og nýtti mig í snúninga og snatt. Ég á frábært brot á myndbandi þar sem hann myndar mig standandi uppi á eldhúsborði sokkalausan, sagandi parketfjöl og notandi tæmar sem extra par af höndum. Þá heyrist sá gamli segja: „Ég hef einu sinni séð svipaða sjón en það var í dýragarði, nánar tiltekið í apabúr- inu.“ Bömin mín vora hænd að Dadda, þó sérstaklega Mollý. Þau sáust oft rabbandi saman í hálíúm hljóðum, þar vom líklega á ferðinni einhver samningamál því afraksturinn var yf- irleitt nammipoki af stærri gerðinni. A mínum yngri áram fómm við Haffi bróðir eins oft í heimsókn til hans og við gátum. Þá fengum við kók í gleri úr litla ísskápnum. Við höfðum komið okkur upp sérstakri tækni til þess að liðka um málbeinið í þeim gamla. Við fengum ævintýralegar lýsingar af köfunarferðum í Þingvallavatni og víðar, spennandi veiðisögur með til- heyrandi aflalýsingum og fangbrögð- um við sjálfskipaða veiðiverði. Eitt fannst mér alltaf heillandi. í gegnum öll þessi ár virtist það vera sami hóp- urinn sem stóð saman. Nánustu vinnufélagar og bræðumir. Sam- heldni þeirra fannst mér alltaf frá- bær. Rétt áður en Daddi lagðist inn á spítalann kom hann við hjá mér á stofunni. Við sátum inni á kaffistofu og létum þögnina tala og andrúms- loftið var notalegt. Ég spurði hvort hann vildi ekki fá heimsókn eftir að- gerðina en hann gaf ekki mikið út á það, lét mig skilja að við myndum frekar sjást hressir þegar allt þetta spítalavesen væri afstaðið. Hann kvaddi mig með handabandi og á leiðinni út stoppaði hann í dyran- um, leit til baka og augu okkar mætt- ust eitt augnablik í eilífðinni, og ég fékk hnút í magann. En er degi hallar kemur kvöld og síðan nótt. Og nú er hann farinn blessaður. Eitt er víst að í þessu lífi hafa allir sinn vitjunartíma. Elsku Daddi minn, þakka þér allt. Jökull Jörgensen. Blómasiofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til ki. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.