Morgunblaðið - 02.04.2000, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 02.04.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2000 53 FOLKI FRETTUM Úrsiit í Gettu betur réðust á föstudagskvöldið Enn getur MR betur * B f ÞAÐ var rífandi stemmning í Vals- heimilinu á föstudagskvöldið þegar lið Menntaskólans í Reykjavík, skipað þeim Svani Péturssyni, Hjalta Snæ Ægissyni og Sverri Teitssyni lagði að velli lið Mennta- skólans við Hamrahlíð, sem sam- anstóð af Friðriki Jensen Pálssyni, Jóni Árna Helgasyni og Önnu Pálu Sverrisdóttur, í úrslitaorrustu spurningakeppni framhaldsskól- anna, Gettu betur. Allir í miklu keppnisskapi Keppnisandinn í íþróttahöllinni hafði augljóslega smitandi áhrif á nærstadda því menn voru í miklum vígahug, ekki einungis sjálfir liðs- menn heldur áhorfendur einnig. Áður en blásið var í herlúðra fyrir sjálfa aðalkeppni kvöldsins öttu skólarnir kappi hvor við annan í herópi og ekki var látið þar við sitja heldur var kynjunum einnig att saman í þeirri íþrótt. Vígalegir klappstjórar liðanna leiddu síðan hvatningaróp stuðningsmanna af svo miklum dug að röddinni var fórnað fyrir málstaðinn. Fljótlega eftir að Logi Berg- mann Eiðsson stjórnandi hóf keppnina varð ljóst hvert stefndi. Lið MR náði forystunni þegar í hraðaspurningunum og hélt henni allt til enda. Spennan sem ríkt hafði i&StíSSM. í salnum fjaraði því hægt og bítandi út og varð nokkuð endaslepp þegar sigur MR varð mönnum endanlega ljós nokkru áður en keppni lauk. Liðsmenn MH sýndu samt áfram mikið og drengilegt keppnisskap og héldu áfram að bjóða MR-ingum birginn með ágætis árangri. Lokastaðan varð 32-24 MR í vil og er þetta áttundi sigur skólans í röð. Björn Bjarnason menntamálaráð- herra afhenti þeim síðan farandgripinn Hljóðnemann að launum auk þess sem keppendur allir voru leystir út með veglegum verðlaun- um. « # M: ' ' VH NVHE, &ÍÉ m **• _ ■. , Morgunblaðið/Jón Svavarsson Klappliðsstjórarnir héldu uppi rífandi sttímrnningu. Bjuggumst við að sigra Strákarnir í sigur- liði MR voru vita- skuld alsælir með sigurinn en Hjalti fyrirliði sagðist þó hafa búist við honum: „Lið okkar er meira þjálfað en nokkurt annað lið sem skólinn hefur sent til keppninnar og vorum við því afar vel undir hana búnir. Við erum einfaldlega vel að sigrinum komnir.“ Þetta er í Morgunblaðið/Jón Svavarsson Björn Bjarnason menntamálaráðherra afhendir Hjalta Ægi, fyrirliða MR-liðsins, Hljóðnemann. annað skiptið sem Hjalti vinnur sigur, en hann var í sigurliðinu í fyrra. „Við þurftum satt að segja að berjast mun harðar fyrir sigrinum í fyrra en sigurinn í ár er alveg jafn sætur fyrir það.“ Þeir Sverrir og Svavar unnu hins vegar sigur nú í fyrsta skiptið en viðurkenna að þeir hafi jafnvel verið spenntari í fyrra þeg- ar þeir voru liðsstjór- ar. Drengirnir eru allir sammála um að hafa búist við meiri keppni frá MH og undir lokin þegar sig- urinn var í höfn hafi þeir verið full kærulausir enda einbeitingin horf- in. Þeir félagar segjast búast fast- lega við því að snúa allir aftur að ári liðnu og lofa því að vera þá jafn- vel enn sterkari. Spurðir um hvort þeir séu ekki smeykir við að of- metnast svara þeir neitandi því skólinn hafi unnið svo oft að búið sé að vinna bug á þeim vanda. Keppendur ótrúlega vel að sér Ólína Þorvarðardóttir, dómari og höfundur spurninga, sagði þetta bæði hafa verið gefandi og krefj- andi starf: „Það kom mér alveg í opna skjöldu hversu mikið keppnin reyndi á mann, bæði sem spurn- ingahöfund og dómara." Hún segir með ólíkindum hversu vel krakk- arnir sem lengst náðu hafi verið að sér og segist hafa fyllst tröllatrú á framtíðina við upplifunina. 7.-8. apríl 22.-25. maí 13:30-16:30 5.-6. maí 8:30-16:30 L-«Director2 29. maí-i. júní 13:00-16:30 ■ Dreamweawer 8.-11. maí 8:30-16:30 Dreamweawer 1 25.-28. apríl L-« Dreamweawer 1 15.-18. maí 13:00-16:30 Dreamweawer 2 8.-11. maí 13:00-16:30 ■ Macintosh grunnur L-iMacintosh 10.-13. apríl 13:00-16:30 Verð hvers námskeiðs er kr. 30.000,- nema Macintosh grunnur kr. 22.500,- ■ Grafísk hönnun L-« Grafísk hönnun 1 8.-11. maí 13:00-16:30 m * Prenttæknistofnun rafiðnaðarskólinn Margntiðluitarskólinit Faxafeni 10 • Sími 588 0420
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.