Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Foreldrakönnun Leikskóla Reykjavíkur
Foreldrar ánægð-
ir með leikskólana
KÖNNUN á viðhorfum foreldra
sem eiga börn á leikskólum til leik-
skólanna í Reykjavík, sýnir að for-
eldrar eru yfirleitt ánægðir með
starf leikskólanna og telja að börn-
um sínum líði þar vel. Bergur Fel-
ixson, framkvæmdastjóri Leik-
skóla Reykjavíkur, segir greinilegt
að þeir foreldrar, sem eigi börn á
leikskólum, séu mjög ánægðir með
það starf sem þar fer fram.
Illa staðið að uppsögnum á
dvalarsamningum
Kristín Blöndal, formaður Leik-
skóla Reykjavíkur, telur að sú
mikla óánægja sem blossaði upp í
vetur þegar dvalarsamningum leik-
skólabarna var sagt upp, sé að
mestu að baki enda hafi ekki þurft
að loka jafnmörgum leikskólapláss-
um og óttast var í fyrstu. Hún við-
urkennir að klúðurslega hafi verið
staðið að málum við kynningar á
uppsögnum á dvalarsamingunum
en í vetur var þeim breytt á þann
veg að nú geta leikskólayfirvöld
rift dvalarsamningum með litlum
fyrirvara og stytt vistunartíma
barna, verði mannekla á leikskól-
unum.
Foreldrar ánægðir
með leikskólana
Meðal þess sem athugað var í
könnuninni var hvort foreldrar
teldu leikskóladvöl þroskandi og
lærdómsríka fyrir barn sitt en 97%
foreldra voru ýmist sammála eða
mjög sammála þeirri fullyrðingu.
Meirihluti foreldra taldi ennfremur
að vel væri tekið á móti börnum
sínum þegar þau færu fyrst á leik-
skóla og langflestir foreldrar telja
að börnum sínum líði vel í leik-
skóla. Þá eru foreldrar yfirleitt
ánægðir með starfsfólk leikskól-
anna. Starfsfólki hvers leikskóla
verða kynntar niðurstöður könnun-
arinnar og þeiira ábendinga sem
Morgunblaðið/Golli
Börnin í Múlaborg héldu í gær upp á 25 ára afmæli leikskólans.
Kristín Blöndal og Bergur Felixson kynntu í gær niðurstöður foreldra-
könnunar Leikskóla Reykjavikur.
Úr könnun
Leikskóla Reykjavíkur
meðal foreldra barna
á leikskólunum
] Sammála
] Frekar sammála
] Hlutlaus
J Frekar ósammála
9 Ósammála
Mér finnst barnið mitt eiga ánægjuleg
samskipti við starfsfólk leikskóians
og að því líði vel í leikskólanum.
Ég tel að leikskóladvölin sé þroskandi
og lærdómsrík fyrir barnið.
Ég tel að starfsfólk leikskólans hafi Mér finnst staðið vel að kynningu
kunnáttu og hæfni til að sinna vel sínu starfi. á nýju starfsfólki í leikskólanum.
foreldrar komu á framfæri í könn-
uninni.
40% starfsfólks ófaglærð
Mest var óánægjan með kynn-
ingu á nýju starfsfólki en Kristín
Blöndal telur óánægjuna m.a. stafa
af þeirri óvissu um starfsfólk sem
leikskólarnir hafi búið við, en dæmi
séu um að starfsfólk staldri aðeins
við í eina viku. Kristín segir útlit
fyrir að starfsmannamál verði í
betra horfi á þessu ári. Reykjavík-
urborg samþykkti nýlega aukafjár-
veitingu til leikskólanna upp á 150
milljónir sem m.a. eiga að fara til
eflingar á innra starfi leikskólanna.
Um 40% af starfsfólki á leikskólum
eru menntaðir leikskólakennarar
en lög gera ráð fyrir að allir þeir
sem starfa við leikskólakennslu séu
fagmenntaðir. Bergur segir
ómögulegt að uppfylla ákvæði lag-
anna. Leikskólakennarar séu ein-
faldlega ekki nægilega margir. Til
þess anna eftirspurn þyrfti að út-
skrifa 2.000-4.000 leikskólakenn-
ara á næstu árum en nú séu aðeins
um 100 útskrifaðir á hverju ári.
Leikskólinn Múlaborg 25 ára
Niðurstöður könnunarinnar voru
kynntar í leikskólanum Múlaborg
sem hélt upp á 25 ára afmæli sitt í
gær. Börnin á leikskólanum sungu
afmælissöng skólans og fóru í
skrúðgöngu til að fagna þessum
merka áfanga. í Múlaborg er sér-
staklega tekið mið af þörfum fatl-
aðra barna, t.d. er leiksvæði við
leikskólann sérlega vel búið.
Borgarráð
Guðný Gerð-
ur ráðin
borgar-
minjavörður
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu menningarmála-
nefndar um að Guðný Gerður
Gunnarsdóttir, safnstjóri við
Þjóðminjasafnið, verði ráðin
borgarminjavörður og for-
stöðumaður Árbæjarsafns -
Minjasafns Reykjavíkur. Átta
umsóknir bárust um stöðuna.
Við atkvæðagreiðslu í menn-
ingarmálanefnd hlaut Guðný
Gerður þrjú atkvæði meirihluta
en Nikulás Úlfur Másspn,
deildarstjóri húsadeildar Ár-
bæjai-safns, hlaut tvö atkvæði
minnihluta.
*
Ragnar Stefánsson forstöðumaður Jarðeðlissviðs Veðurstofu Islands
Ekki einhlítt hvað
átt er við með
stærð jarðskjálfta
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Ragnari Stefánssyni,
forstöðumanni Jarðeðlilssviðs Veð-
urstofu Islands: „Nokkur umræða
hefur farið fram um stærðarákvarð-
anir jarðskjálfta undanfarið, og þá
stærð á svokölluðum Richterkvarða.
Því miður er það ekkert einhlítt hvað
meint er með stærð jarðskjálfta á
Richterkvarða.
Mb eða Ms
Til að gera langa sögu stutta nota
starfsmenn Jarðeðlissviðs Veður-
stofunnar stærðarkvarða um jarð-
skjálfta á íslandi sem er byggður á
alþjóðlegum stærðarkvarða og nefn-
ist hann Mb. Stærð jarðskjálftans
17. júní sl. mældist 5,7 á þeim
kvarða, og var gefin upp sem stærð
skjálftans í byrjun.
Þetta var ekki fjarri þeirri stærð
sem margar erlendar jarðskjálfta-
miðstöðvar gáfu upp um stærðina 17.
júní, algengast frá 5,4 og upp í 5,8.
NEIC (National Earthquake In-
formation Center) í Bandaríkjunum
sem reiknar Mb út frá upplýsingum
frá hvað flestum stöðvum í heimin-
um, gaf upp 5,7 sem sína Mb-stærð.
Eftir endurreikninga og endurskoð-
un gefur NEIC enn þá út Mb-stærð-
ina sem 5,7 á stóra skjálftanum 17.
júní. Þeir fengu sem sagt út ná-
kvæmlega sama gildi og starfsmenn
Veðurstofunnar.
Annar kvarði sem er notaður
nefnist Ms og er grundvallaður á
bylgjum sem hafa lengri sveiflutíma
en bylgjumar sem notaðar eru til að
reikna Mb, svokallaðar yfirborðs-
bylgjur. Þessi kvarði sýnir oft hærra
gildi fyrir mjög stóra og grunna
skjálfta heldur en Mb. Stórt Ms-gildi
miðað við Mb táknar því að sprung-
an sem myndaðist í jarðskjálftanum
sé tiltölulega löng.
Alltaf erfítt að meta stærð
stórra skjálfta í námunda við þá
Það er alltaf erfitt að meta stærð
mjög stórra jarðskjálfta í námunda
við þá. Maður er svo að segja inni í
nærsviði skjálftanna. Því er miklu
auðveldara að meta þetta úr mikilli
fjarlægð og með notkun margra
mælistöðva víða um heim. Þess
vegna reyna jarðskjálftafræðingar
að byggja stærðarmat á slíkum
skjálftum á alþjóðlegum niður-
stöðum jarðskjálftamælistöðva um
allan heim. Það var útilokað eftir
jarðskjálftann 17. júní að meta Ms-
stærð jarðskjálftans út frá jarð-
skjálftamælum hér á landi.
Það var hins vegar mjög mikil-
vægt að meta þessa Ms-stærð, sem
sagt að meta það hvert umfang
skjálftans var. Hversu harður hann
er, þar sem hann er harðastur, kem-
ur jafn vel fram í Mb-stærðinni.
Til þess að meta Ms varð að beita
öðrum aðferðum. I fyrsta lagi að
kanna hvað erlendar jarðskjálfta-
mælastöðvar gæfu upp um Ms. Það
var hins vegar mjög misvísandi,
margar niðurstöður. Líka var reynt
að beita óhefðbundnum aðferðum, út
frá svokölluðum þenslumælum og út
frá áhrifalýsingum fólks. Að lokum
var Ms-stærðin ákvörðuð 6.5, út frá
hinum óhefðbundnu aðferðum ann-
ars vegar og út frá Ms-ákvörðun frá
NEIC hins vegar, sem við treystum
best af hinum erlendu aðilum.
Um leið og við gerðum okkur
grein fyrir þessu höfðum við sam-
band við Almannavamir og ítrekuð-
um, sem þá þegar var reyndar orðið
sæmilega ljóst út frá mörgu öðru en
stærðinni, að N-S-sprungan í Holt-
unum væri afar löng, yfir 20 km og
næði m.a. norður fyrir Þjórsá, og
þýðingarmikið væri að kanna fljótt
áhrif á öllu þessu svæði.
Opinberlega kom stærðin 6,5 svo
fram í fréttatíma Sjónvarpsins um
kvöldið.
Ástæða þess að þessi stærð, sem
sagt Ms-stærðin, var sett fram, þeg-
ar hún var orðin vel þekkt, er að
gömlu sögulegu skjálftunum er lýst
með Ms-skalanum.
Þegar svona mikið ber á milli Ms
og Mb var nauðsynlegt að fólk fengi
Ms-upplýsingarnar.
Starfsmenn Veðurstofunnar
gerðu allt hárrétt í þessu máli. Þeir
settu fram stærð skjálftans, eins og
venja er til um stærð skjálfta hér á
landi, í Mb-kvarðanum, eins fljótt og
unnt var. Það var full ástæða til að
meta stærðina á Ms-kvarðanum sem
fyrst. Það var hins vegar fráleitt að
kasta fram mati á þessu fyrr en Ms-
stærðin var raunverulega þekkt. Það
hefði verið út í hött að taka fyrstu
Ms-ákvörðun erlendis frá og gera
hana að hinni „raunverulegu stærð“
fyrr en að vel athuguðu máli.
Starfsmenn Jarðeðlissviðs
V eðurstofunnar
Vegna ummæla manna um þessi
mál skal eftirfarandi tekið fram:
Starfsmennirnir brugðust afar vel
við þegar þeir voru kallaðir til vinnu
á þjóðhátíðardaginn, en vaktir eru
yfirleitt ekki á Jarðeðlissviði, ekki
einu sinni bakvaktir. Starfsmenn
voru meira að segja kallaðir úr sum-
arleyfum erlendis.
Starfsmennirnir, bæði náttúru-
fræðingar og tæknimenn, hafa unnið
hér frábært starf af mikilli faglegri
hæfni og dugnaði. Verkefnin voru og
eru frá því hinn 17. júní að átta sig á
hvað nákvæmlega er að gerast,
hvaða sprungur eru að hreyfast og
hversu mikið, og svo ekki síst, við
hveiju má búast. Þeir hafa unnið að
því að styrkja og lagfæra jarð-
skjálftastöðvarnar, og safna einstök-
um mæligögnum íyrir framtíðina og
heimsbyggðina, til þess hugsanlega
að gera okkur kleift að spá vel um
jarðskjálfta.
Allan tímann hefur verið mikið,
stöðugt og frábært samstarf við Al-
mannavarnir, bæði ríkisins og heima
í héraði. Einnig hefur verið afar gott
samstarf við almenning bæði gegn-
um fjölmiðla og á fundum víðsveg-
ar.“