Morgunblaðið - 29.06.2000, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, kom til þakkar- og bænar-
stundar í Oddakirkju á Rangárvöllum vegna jarðskjálftanna.
Biskup í Odda á Rangárvöllum
Þakkar- og bænastund
vegna j ar ðskj álftanna
Hellu - Síðastliðið sunnudagskvöld
fjölmenntu íbúar í Rangárþingi til
samverustundar í Odda með sókn-
arpresti sínum og biskupi íslands,
herra Karli Sigurbjörnssyni. Sr.
Sigurður Jónsson sóknarprestur
ávarpaði samkomuna í upphafi, en
biskup flutti hugleiðingu og bæn.
Sérstaklega var beðið fyrir þeim
sem um sárt eiga að binda vegna
heimilismissis og eignatjóns auk
þeirra sem í starfa í eldlínunni að
björgunar- og hjálparstörfum, en
hugir manna eru um þessar mund-
ir fullir þakklætis vegna þeirrar
staðreyndar að enginn týndi lífi í
þessum náttúruhamförum. Að lok-
inni athöfn áttu kirkjugestir stutta
stund með biskupi yfir kaffibolla í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Vínbúð opnuð í Kaup-
félaginu á Hvammstanga
Hvammstanga - Nú í júní
var opnuð áfengisverslun á
Hvammstanga. Versluninni
var valinn staður í bygging-
arvöruverslun Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga, en
fjórir aðilar höfðu boðið að-
stöðu fyrir verslunina.
Höskuldur Jónsson, for-
stjóri ÁTVR, bauð gesti
velkomna í hófi sem haldið
var af tilefni þessara tíma-
móta og sagði markmið iyr-
irtækisins að veita lands-
mönnum sem besta
þjónustu. Þessi sölustaður
væri einn af þremur sem
opnaður yrði á þessu ári.
Gunnar V. Sigurðsson
kaupfélagsstjóri bauð útibú ÁTVR
velkomið á Hvammstanga og sagði
þessa vínbúð vera í beinu framhaldi
af sameiningu sveitarfélaga í hérað-
inu. Minnti hann á að menn hefðu í
gegn um tíðina haft ýmis ráð til að ná
sér í sopann og heimilisiðnaður hefði
ekki verið minni hér en annars stað-
ar á landinu.
Útsölustjóri ÁTVR á Hvamms-
tanga er Hrólfur Egilsson, verslun-
arstjóri byggingarvörudeildar.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Hrólfur Egilsson við afgreiðslu í nýrri vín-
búð á Hvammstanga.
Krakkamir frá Sauðárkróki og Blönduósi áttu góða stund saman á golfvellinum við Blönduós.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Mikill golfáhugi hjá börnunum
Blönduósi - Á fiinmta tug bama frá Sauðárkróki
og Blönduósi ásamt leiðbeinendum og foreldmm
hittust fyrir skömmu á golfvelli Blöndósinga í
Vatnahverfi. Tilgangurinn var að efla kynni
barna á Norðurlandi vestra sem áhuga hafa á
golfíþróttinni og af því tilefni var komið á fót
litlu móti.
Keppt var í fjórum flokkum og var miðað við
aldur og getu. Sigurvegarar í þessu móti voru
krakkarnir allir því þau voru til fyrirmyndar
eins og veðrið sem lék við þau þessa samveru-
stund í Vatnahverfi við Blönduós.
Minnisvarði afhjúpað-
ur á Laugarbrekku
Hellissandi - Listaverk Ásmundai-
Sveinssonar, sem jafnframt er
minnisvarði, Fyrsta hvíta móðirin í
Ameríku, var afhjúpað við hátíðlega
athöfn af forseta íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni á Laugar-
brekku á Hellnum sl. sunnudag.
Listaverkið var sett upp sem
minnisvarði um Guðríði Þorbjam-
ardóttur og son hennar Snorra Þor-
finnsson og er því komið fyrir á
myndarlegum grágrýtissteini.
Lagður hefur verið verið vegur frá
þjóðveginum ofan Laugarbrekku að
bílastæði við enda vegarins og
gangstígur að tveimur grjótveggj-
um sem mynda umgjörð um minnis-
varðann. Við gangstíginn er skilti
sem skýrir frá ferðum og ættferli
Guðríðar í máli og myndum. Texti
er á íslensku og ensku.
Skúli Alexandersson bauð gesti
velkomna og var kynnir við athöfn-
ina og lýsti ánægju sinni yfir því hve
margir væru komnir til þessarar at-
hafnar. Hann sagði að hér væri um
fyrsta áfanga að ræða í íyrirhuguð-
um aðgerðum við umhverfi Laugar-
brekku. Vaknað hefði áhugi hér um
slóðir að vekja athygli á þessum
stað sem væri æsku- og fæðingar-
bær Guðríðar þorbjamardóttur auk
þess að vera margháttaður sögu-
staður. Næsti áfangi væri að gera
göngustíga heim að bæjar- og
kirkjustæðunum og að Þinghamri.
Athöfnin hófst með því að tvær
ungar frá Hellissandi, þær Guðríð-
ur Þorkelsdóttir og Lilja Dögg
Gunnarsdóttir, léku tónverk á flaut-
ur undir stjóm Key Wiggs. Þá flutti
Kristján Kristjánsson ljóðið „Vel-
komin heim Guðríður" sem hann
hafði gert í tilefni þessa atburðar.
Guðrún Bergmann fór í ávarpi sínu
yfir sögu Guðríðar Þorbjamardótt-
ur og nefndi til þá aðila sem staðið
hefðu að framkvæmdum á staðnum
og þakkaði öllum fyrir vel unnin
störf. í lok ávarps síns bað hún for-
seta íslands, Ólaf Ragnar Gríms-
son, að afhjúpa minnisvarðann.
Eftir þá athöfn ávarpaði forset-
inn samkomuna. Hann þakkaði fyr-
ir það framtak sem hér hefði verið
gert, að minnast Guðríðar Þor-
bjamardóttur á landafundaári hér á
fæðingarstað hennar á svo myndar-
legan hátt sem sjá mætti. Fjallaði
hann síðan um sögu Guðríðar, m.a.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Ólafur Ragnar Grímsson forseti flytur ávarp við afhjúpun
styttu Ásmundar Jónssonar.
hennar sérstaka hlut sem konu og
landkönnuðar. Guðríður Þorbjam-
ardóttir stæði ein kvenna sem víð-
förull landkönnuður í mjög fjöl-
mennum hópi karla.
Að lokinni ræðu forseta léku
flautuleikaramir „ísland ögmm
skorið“ og var síðan haldið til Hell-
issands í félagsheimilið Röst þar
sem öllum var boðið til kaffisamsæt-
is sem konur úr Kvenfélagi Hellis-
sands stóðu fyrir. Þar ávörpuðu
bæjarstjórinn, Kristinn Jónasson,
Finnbogi G. Lárusson og Friðjón
Þórðarson samsætið. Að loknum
þeim ávörpum þakkaði Skúli Alex-
andersson gestum fyrir komuna og
fyrir þá ánægjulega dagstund sem
þessi athöfri hefði verið.
I Guðríðar- og Laugarbrekku-
hópnum em: Guðrún Bergmann,
Kristinn Jónasson, Ragnhildur Sig-
urðardóttir, Reynir Bragason og
Skúli Alexandersson. Þessi hópur
sér um framkvæmdir við Laugar-
brekku.
Stressið
burtí
Nauðsynlegt í
nuddpottinní
Élh
leilsuhúsið
Skðlavöröustíg, Ktmglunni og Smáratorgi