Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 67

Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 67 Yfirlýsing frá LÍA MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Landsam- bandi íslenskra akstursfélaga: „Fimmtudaginn 22. júní hélt Jeppaklúbbur Reykjavíkur, ásamt Torfærusambandi íslands og ISAK.IS, blaðamannafund í Reykjavík, þar sem kynning á tor- færuakstri fylgdi í kjölfarið. Stillt var upp sýningaratriði með tveimur af almestu keppnisbílum landsins, þar sem þeim var stillt upp fyrir keppni. Undir stýri voru nokkrir þátttakendur keppni um fegurðar- drottningu Islands, unglingsstúlk- ur, algjörlega reynslulausar af akstri aflmikilla bíla svo ekki sé tal- að um firnaöfluga bíla sem þarna um ræðir. Samkvæmt frétt í Morg- unblaðinu laugardaginn 24. júní virðist sem efnt hafi verið til keppni milli stúlknanna, þar sem bílum var stillt upp í samhliða brautir. Svo sem sjá mátti fyrir réðu stúlkurnar alls ekki við bílana og misstu tvær þeirra stjórn á þeim með þeim afleiðingum að bílamir ultu og endastungust samkvæmt fréttum DV. Auk þess voru nokkur grundvallar-öryggistæki í torfæru- akstri ekki til staðar. Engir háls- kragar, engir eldvarnargallar og engir handleggjahaldarar svo nokk- uð sé nefnt. Ekki fer sögum af hve mikii meiðsli stúlknanna voru, en bflarnir eru stórskemmdir eftir. Þarna sýndu forsvarsmenn áður- nefndra félaga af sér vítavert dóm- greindarleysi og kæruleysi sem á sér enga hliðstæðu í gjörvallri sögu íslenskra akstursíþrótta. Öll grund- vallaratriði öryggis voru þverbrot- in. Eftir að reglugerð um aksturs- íþróttir var breytt í aprflmánuði síð- astliðnum er þess ekki lengur kraf- ist að keppnishaldarar séu innan vébanda LIA. Það hefur haft í för með sér að klúbbar og samtök hafa getað fengið leyfi til að keppa án þess að sýnt sé fram á að fylgt sé viðunandi öryggiskröfum. Dóms- málaráðuneytið hefur sjálft viður- kennt í bréfi til LÍA að með þessari breytingu sé dregið úr öryggi í akstursíþróttum. LIA varaði ein- dregið við þessari reglugerðar- breytingu og þeirri hættu sem hún hefði í för með sér. LÍA er aðili að Alþjóðasambandi akstursíþrótta, Féderala Inter- nationale de PAutomobile, FIA, sem meðal annars stendur fyrir For- mula 1 kappakstrinum. Með þessari aðild skuldbindur LÍA sig til að fara eftir ströngum öryggiskröfum FIA sem varða bæði ökutæki í keppni sem og allt skipulag og framkvæmd keppna. Ennfremur felst í þessari aðild að aðildarfélög LÍA eru skuld- bundin til að fara að sömu reglum þegar þau halda keppni undir lög- sögu LIA. Þetta fyrirkomulag er al- þjóðlegt og viðurkennt meðal ann- ars af Sameinuðu þjóðunum og Alþjóða ólympíunefndinni. Félög sem standa utan LÍA og halda keppni utan lögsögu LÍA hafa engar viðurkenndar öryggiskröfur að fara eftir. í sumum tilfellum hafa þau alls engar öryggisreglur. Félög þau sem stóðu fyrir um- ræddi hrakfallasýningu hafa kosið að starfa utan LÍA og án allra af- skipta sambandsins á þessu ári. Umræddur atburður er algjöriega á þeirra ábyrgð og LIA óviðkomandi. Margsinnis á liðnum árum hefur óreyndum og/eða glæfrafengnum mönnum dottið í hug að efna til hliðstæðra glæfraatriða. Ávallt hafa þær íyrirætlanir strandað á að LÍA hefur ekki heimilað slíkt af öryggis- ástæðum. Nú hefur LÍA ekki leng- ur eftirlit með öllum akstursíþrótt- um í landinu, sökum fyrrnefndrar breytingar á reglugerð um aksturs- íþróttir. Rekja má til þeirrar breyt- ingar að ábyrgðarlausir menn kom- ast upp með að stofna lífi og heilsu fjölda manna í hættu með svo full- komlega óábyrgu skeytingarleysi sem raun ber vitni. LIA hefur í 22 ár skipulagt akst- urskeppnir og haft eftirlit með ör- yggismálum þeirra. Á þessum tíma hafa engin alvarleg slys á fólki orðið í akstursíþróttum á vegum sam- bandsins. Það ber að þakka ströng- um öryggisreglum sem byggðar eru á grunni alþjóðlegra reglna FIA. Aðrir aðilar hér á landi hafa ekki aðgang að þeim reglum." Styðja kröfu um opinbera rannsókn MIÐSTJÓRNARFUNDUR Frjálslynda flokksins, sem haldinn var í Reykjavík 27. júní, sam- þykkti eftirfarandi ályktun: „Miðstjórn Frjálslynda flokksins þakkar þingmönnum sínum fyrir að halda uppi baráttu gegn hinu óréttláta kvótakverfi fiskveiða og Guðjóni A. Kristjánssyni sérstak- lega fyrir forgöngu hans við að upplýsa og fá staðfestan einn hrapalegasta agnúann á fiskveiði- stjórnarkerfinu sem brottkast afla er, þar sem milljóna verðmæti er varpað á glæ árlega. Jafnframt lýsir fundurinn andúð sinni á þeirri aðferð forystumanna ríkisstjórnarflokkanna og klíku út- gerðarmanna að kenna sjómönnum um þessi afbrot, sem eru bein og ótvíræð afleiðing hinna óhæfu fisk- veiðistjórnarlaga og ítrekar flokk- urinn þá afstöðu sína, að alls ekki er við sjómenn að sakast í þeim efnum. Miðstjórnin styður eindregið þá kröfu framkvæmdastjórnar flokks- ins að fram fari þegar í stað opin- ber rannsókn á málinu, enda þótt við blasi að bót verði ekki ráðin á þessu ófremdarástandi og öðrum fylgikvillum kerfisins nema með gerbreyttum lögum.“ Sigurrós Þorgrúnsdóttir, fráfarandi forseti bæjarstjórnar, óskar Ármanni Kr. Ólafssyni til hamingju með for- setaembættið, til hægri er Guðrún Pálsdóttir, staðgengill bæjarritara. Ármann kosinn forseti bæjar- stjórnar Kópavogs Á SÍÐASTA fundi bæjarstjórnar Kópavogs voru árlegar kosningar bæjarstjórnar í embætti forseta bæjarstjórnar og í bæjarráð. Armann Kr. Olafsson, Sjálfstæð- isflokki, var kosinn forseti bæjar- stjórnar og tekur hann við em- bættinu af Sigurrósu Þorgríms- dóttur, sem nú tekur sæti í bæjarráði. Bragi Michaelsson var kosinn fyrsti varaforseti og Halla Halldórsdóttir annar varaforseti. I bæjarráð voru kosin Gunnar I. Birgisson og Sigurrós Þorgríms- dóttir, Sjálfstæðisflokki, Sigurður Geirdal, Framsóknarflokki, og Flosi Eiríksson og Sigrún Jóns- dóttir, Kópavogslistanum. Vitni óskast LÖGREGLAN í Reykjavík lýs- ir eftir vitnum að umferðar- óhappi sem varð á Hofsvalla- götu við apótekið Lyf og heilsu 22.6. kl. 13:36. Þarna varð árekstur tveggja bifreiða, rauðri Nissan Sunny og grænni Alfa Romeo. Þeir sem upplýsingar kynnu að geta veitt um mál þetta eru beðnir að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík. Afmælis- kaffí í Lónkoti FERÐAÞJÓNUSTAN í Lónkoti í Skagafirði hefur opinn dag laugar- daginn 1. júlí nk. Veitingahús staðar- ins verður þá fimm ára, en árið 1995 var það opnað undir nafninu Sölva- bar. Af sama tilefni var afhjúpaður minnisvarði á aldatíð Sölva Helga- sonar, þess sem veitingahúsið heitir eftir. Sama dag opnar myndlistarmað- urinn Tolli sýningu í Galleríi Sölva Helgasonar, sem er hluti af Sölva- bar. Boðið verður upp á ókeypis sigl- ingar og sjóstangveiðar frá kl. 10 til 15 ef veður leyfir. Hver túr tekur um eina klukkustund. Daglegar sigling- ar eru frá Lónkotshöfn tímabilið 20. júní til 20. ágúst. í þeim er siglt hjá Þórðarhöfða, farið í land í Drangey og á heimleiðinni siglt umhverfis Málmey. man NÆRFÖT 2 FYRIR1 ODYRflSTI PAKKINIU í KAUPBÆTI DRESS MANN ) LAUGAVEGI - KRINGLUNNI Tekur þú - ámótigestum ■ sumarfríinu? Auð hús eru auðfengið fé í augum innbrotsþjófa. Ekki spilla sumarleyfinu með óþarfa áhyggjum. Öryggismiðstöð íslands er starfrækt allan sólarhringinn. Þar fylgjast sérþjálfaðir öryggisverðir með boðum frá öryggiskerfum, brunaviðvörunarkerfum, neyðarkallskerfum og öðrum viðvörunarkerfum. Farandgæsla okkar til eftirlits með húsnæði og tækjabúnaði er sérsniðin að óskum hvers viðskiptavinar. Hafðu samband við öryggisráðgjafa okkar. Síminn er 533 2400 ÖryfiBlikeril wmm Knarrarvogi 2,104 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.