Morgunblaðið - 29.06.2000, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 29.06.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 37 FERÐALÖG Draugarölt á Hólum HÓLAR í Hjaltadal, kirkjustaður og skólasetur í Skagafirði, býður nú fjölbreytta sumardagskrá. Kristín L. Bjarnadóttir, hótel- stjóri á Hólum, segir að fetað verði í fótspor Guðmundar góða sem var biskup á Hólum frá 1203 til 1237 en sagt er að Guðmundur hafi tíðum gengið berfættur í Gvendarskál til að biðjast fyrir. Að sögn hennar verður af og til í sumar svokallað Draugarölt, sem slegið hefur í gegn undanfarin sum- ur. „Sagðar eru sögur sem hafa átt sér stað á Hólum, m.a. sögur af Galdra-Lofti, Gottskálki grimma og minnt á morðið á Otta Sveinssyni. Gengið er um svæði þar sem sögurn- ar gerðust en ferðin hefur vakið bæði skelfingu og áhuga meðal ferðamanna." Fjölskyldudagur Hinn 1. júlí verður Fjölskyldudag- ur á Hólum. „Farið verður í leiki, börnum boðið að fara á hestbak og hægt er að renna fyrir silung í Hóla- tjöm. Gleðidúettinn Hundur í óskil- um frá Eyjafirði mun spila og syngja." Náttúrurölt verður nokkrum sinn- um í sumar um Hóla og nágrenni. Um er að ræða göngur þar sem sér- fróðir menn fræða fólk um lífverum- ar sem lifa í kringum okkur og lífríki þeirra. A Hólum em margar göngu- leiðir og eftir göngu er tilvalið að skella sér í sundlaugina sem er opin alla daga vikunnar frálOtiI 21. „Bleikjuhlaðborð sem getið hefur sér gott orð verður einnig nokkmm sinnum í sumar þar sem kokkar munu laða fram fjölda gómsætra bleikju- rétta. Siðast en ekki síst em Hólar sögufrægur staður og boðið er upp á leiðsögn í Hóla- dómkirkju og stað- arskoðun. Mikið verður um að vera í kirkjunni í sum- ar en fyrir utan reglulegar guðþjón- ustur, sem em á hverjum sunnudegi, verða í boði tónleikar, kymðastundir og fyrirlestrarröð þar sem spurning- unni „Hvar er Guð?“ verður varpað fram og hún rædd.“ Nánari upplýsingar um sumar- dagskrána er að finna hjá ferðaþjón- ustunni á Hólum í Hjaltadal. Ur skemmtiferðaskipi í Osvör Morgunblaðið/Bolungarvík Morgunblaðið/Hafþór Skemmtiferðaskipið Explorer. SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Ex- plorer kom í Ósvör í Bolungarvík nýlega og voru farþegar þess ferj- aðir með slöngubátum í land til að skoða þessa elstu verstöð íslands. Þess má geta að skemmtiferðaskip- ið heimsótti Ósvör einnig síðasta sumar. Um fimmtíu farþegar skipsins, flestir frá Bandaríkjunum, stigu á land þar sem Geir Guðmundsson safnvörður tók á móti þeim íklædd- ur skinnklæðum og flutti þeim fróðleik um safnið og útræði frá Ósvör fyrr á öldum. Geir spáir því að ferðamanna- straumurinn á Vestfjörðum verði mun meiri í ár en á síðasta ári. Astæðu þess segir hann meðal ann- ars vera jákvæði í forsvarsmönnum ferðaskrifstofa sem árlega koma með ferðamenn í Ósvör sem og að væntanleg eru fleiri skemmtiferða- skip til ísafjarðar. Byggðasafnið í Ósvör laðar til sín marga ferðamenn en þess má geta að á síðasta ári komu rúmlega sex þúsund manns, en þá eru bara tald- ir þeir sem skrifuðu sig í gestabók safnsins, eða sex sinnum íbúafjöldi Bolungarvíkurkaupstaðar. Að sögn Geirs er stöðugt verið að bæta við hlutum í safnið en nýlega gaf áhöfnin á Páli Pálssyni safninu hákarlsegg sem verða til sýnis í safninu í sumar. Þá hefur áhöfnin á Gunnbirni frá Bolungarvík verið ið- in við að hirða alls konar skeldýr og krabbadýr sem koma í vörpuna hjá þeim og koma til safnsins. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Dyrholaey opnuð fyrir ferðamenn Fagradal - Bændurnir í Dyrhóla- hverfi, Guðjón Þorsteinsson frá Litlu-Hólum og Þorsteinn Gunnars- son frá Vatnsgarðshólum, stóðu fyr- ir skoðunarferð um Dyrhólaey í til- efni af opnun hennar nú í lok júní og sögðu frá því starfi sem hefur verið unnið þar síðan eyjan var friðlýst árið 1978. Þá var eyjan orðin í bágbornu ástandi eftir áralangan átroðning og ofbeit. Eyjunni er lokað á vorin og hefur það verið gert frá árinu 1983 til að hlífa fuglalífi og gróðri á við- kvæmasta vaxtartímanum. Við Dyr- hólaey er eina umtalsverða æðar- varpið við suðurströndina. Töluverður fjöldi fólks mætti í gönguna enda er fugla- og plöntulíf mjög fjölbreytt á eyjunni svo ekki sé talað um náttúrufegurðina. Gunnar Agúst Gunnarsson, sem er fæddur og uppalinn á Vatnsgarðshólum, var leiðsögumaður um eyjuna og sagði hann frá merkilegri sögu jarðmynd- unar og mannvistar á eyjunni. Á Dyrhólaey er náttúrufar firna- fjölbreytt og ágætt útsýni til stór- brotinna jökla, fjalla og grósku- mikilla sveita Mýrdals og Eyja- fjalla. Aðalsmerki eyjunnar er þó fjölbreytt lífríki hennar, sjávar- hamrar og Tóin með gatinu heims- kunna. I lok göngu var boðið uppá létta hressingu, kaffi, kakó og ástar- punga. Nýjar vörur Verðdæmi:_________________ Jakkar frá kr. 4.900 Pils frá kr. 2.900 Buxur frá kr. 1.690 Bolir frá kr. 1.500 Kvartbuxur kr. 2.500 Stuttbuxur og bermudabuxur frá kr. 1.900 Alltaf sama góða verðið! Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hótel Blönduós. Rekstur Hótels Blönduóss hefst aftur Blönduósi - Rekstur hótels á Blönduósi hefur ekki verið sam- felldur undanfarna mánuði en að sögn Sæmundar Gunnarssonar hótelstjóra hefur hótelið starfað af og til síðan í apríl, allt eftir því hvernig pantanir hafa verið. Sæ- mundur sagði að þessa dagana væri að koma kokkur og frá og með 3. júlí mundi hótelið starfa af fullum krafti, bæði hvað veitingar og gistingu varðar. Það eru Dal- fjárfestingar sf. sem reka hótelið og sagði Sæmundur að stefna eig- enda væri sú að starfrækja hótelið af fullum krafti að minnsta kosti út september og í framhaldi af því að halda úti þeim rekstri að bókanir fyrir næsta sumar yrðu tryggðar. Hótel Laugar- hóll opnað Drangsnesi - Hótel Laugarhóll í Bjarnarfirði var opnað með kaffi- hlaðborði hinn 17. júní sl. Það er árvisst að Laugarhóll bjóði upp á kaffihlaðborð 17. júní en í ár var tilefnið ekki bara að sumarstarfið er hafið. Var gestum boðið að skoða hótelið en unnið hefur verið dag og nótt undanfarið við að breyta húsnæðinu, m.a bæta við snyrtingum og sturtum. Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir Hafdís Baldursdóttir, hótelhald- ara á Laugarhóli í Bjarnarfirði, við opnunina. Húsnæðið, sem áður var heima- vistarskóli, svaraði ekki lengur kröfum tímans um aðbúnað fyrir gesti og starfsfólk. Breytingarnar hafa tekist vel og varla að þeir sem áður gjörþekktu húsið rati þar um. Þar eru nú tólf tveggja manna herbergi og þar af þrjú með baði auk svefnpokagistingar. Einnig er eitt herbergi sérstaklega hannað með aðgengi hjólastóla í huga. Þar eru dyrnar breiðari og eins er það allt rýmra en önnur herbergi hót- elsins og baðherbergið þannig gert að það henti fólki í hjólastólum. Áætluð er töluverð stækkun á húsnæðinu og á að byggja ofan á gistiálmu hótelsins. Hefjast þær framkvæmdir strax í haust. Það er Hafdís Baldursdóttir sem rekur Laugarhól í sumar en hún leigir reksturinn af Laugarhóli ehf. Utanhússmálning Frábær verö Hjá okkur færðu allt sem heitir málning OPIÐÖLLKVÖUTILKL. 21 METRO Skeifan 7 • Simi 525 0800
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.