Morgunblaðið - 29.06.2000, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Ábætisréttir
úr rabarbara
RABARBARI telst til grænmet-
is, þótt hann sé yfirleitt notaður
á sama hátt og ávextir, þ.e. í
grauta, sultu, bökur og vín. Am-
eríkanar kalla rabarbara pie-
plant (bökuplöntu) af því að rab-
arbarabökur eru algengar þar
vestra. Rabarbarinn er upp-
runninn í fjalllendi Tíbet og
Kína. I Kína voru hinar brún-
leitu rætur jurtarinnar notaðar
til lyfjagerðar í aldaraðir og eru
fystu sagnir um það frá 2.700 f.
Kr. Það var ekki fyrr en á 18.
og 19. öld að farið var að nota
leggina til matar. Fyrst var rab-
arbarafræ skráð á frælista í
Ameríku árið 1828. Rabarbari
þrífst ekki í heitu loftslagi
vegna þess að hann þarf góða
vetrarhvíld til þess að hann geti
sprottið á ný. Við hagstæð skil-
yrði geta sum afbrigði myndað
geysistóra plöntu með 90 sm
langa blaðleggi, eins svera og
barnshandlegg, og blöðin geta
orðið hátt í metra í þvermál. Nú
er sá tími sem rabarbarinn er
hvað bestur, leggirnir mjúkir og
safaríkir og ekki eins súrir og
þeir verða þegar líður á sumar-
ið. Við þurfum því ekki eins
mikinn sykur í rabarbara núna.
Þess vegna skulum við gera
okkur dagamun og búa til góm-
sæta ábætisrétti úr rabarbaran-
um. Hann svíkur engan.
Rabarbarafroða
með rjóma
______500 g robarbari______
_________3 dl sykur________
_________4 dl vatn_________
blöð matarlím
______1 peli þeyttur rjómi_
1. Þvoið leggina og skerið
smátt. Setjið í pott ásamt sykri
og vatni (notið ekki álpott) og
sjóðið við hægan hita í 30 mín-
útur. Sigtið síðan gegnum sigti.
2. Leggið matarlímið í bleyti í
kalt vatn í 5 mínútur. Hitið saf-
ann á ný, takið matarlímið upp
úr vatninu og kreistið örlítið og
bræðið í heitum leginum. Kælið
síðan þar til safinn er við að
hlaupa saman.
3. Setjið þá í hrærivélarskál
og þeytið þar til þetta er orðið
að þykkri froðu.
4. Hellið í smáskálar eða
stóra skál og geymið í kæliskáp
í minnst 5 klst.
5. Þeytið rjómann og setjið
ofan á.
Þegar við búum til rabarbara-
sultu ættum við að nota hnúðinn
neðan af leggjunum í ....
Rabarbara-
hnúðar með
marengs
500 g rabarbarahnúðar
_________216 dl sykur_______
rifinn börkur af 'h sítrónu
'A tsk. kanill
_________3 eggjahvítur______
_________216 dl sykur_______
50 g saxaðar möndlur eða
hnetur
1. Skerið hnúðinn neðan af
rabarbaraleggjunum, snyrtið og
setjið í pott ásamt sykri, sítr-
ónuberki og kanil. Sjóðið við
hægan hita í 10 mínútur. Setjið
síðan í eldfasta skál.
2. Stífþeytið eggjahvíturnar,
bætið sykrinum smám saman út
í og þeytið vel á milli. Smyrjið
síðan yfir rabarbarann í skál-
inni. Stráið söxuðum möndlum
eða hnetum yfir.
3. Hitið bakarofninn í 150°C,
blástursofn í 140°C. Setjið neð-
arlega í ofninn og bakið í um 30
mínútur. Fylgist með svo að
ekki brenni.
Meðlæti: ís eða þeyttur
rjómi.
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þekkir einhver
þessa konu?
ÞESSI kona var í námi í
Munchen 1953 og bjó í
kastala sem er innréttaður
sem íbúðir. Þetta var málað
1954 af konu sem heitir
Anna Marie Tripps í
Munster Eifel. Baróninn
þar hefur áhuga á að frétta
af henni og hafa samband
við hana.
Ef einhver þekkir til
hennar eða getur gefið upp-
lýsingar, þá vinsamlega
hafið samband í síma 551-
8789 eða 845-3104, netfang:
kitta@li.is
Fréttafíkill
og fótboltabulla
ÉG var að lesa greinar sem
birtust í Bréfi til blaðsins í
Morgunblaðinu sunnu-
daginn 25. júní sl. Onnur
greinin hét RÚV - örygg-
istæki íþróttamanna? eft-
ir Ævar Rafn Kjartans-
son. Greinin var eins og
töluð út úr mínu hjarta.
Ég er algjörlega sammála
Ævari Rafni. Hin greinin
hét Fréttafíkn? eftir Sig-
urð Ola Sigurðsson. Ég er
mikill fréttafíkill og jafn-
framt er ég fótboltabulla.
Helst vildi ég geta haft
aðgang að fréttum á er-
lendum sjónvarpsstöðum.
Sigurður spyr hvort ein-
hver þekki fréttafíkil. Mig
langar að lýsa þvi yfir að ég
er yfirlýstur fréttafíkill og
fótboltabulla.
Bergþóra Árnadóttir.
Birkiaska góð
við heymæði
Þorgeir Þórarinsson, Mar-
argötu 1, Grindavík,
hringdi og vildi koma á
framfæri að birkiaska gæti
reynst fólki vel sem væri
með heymæði, auk þess
sem hann telur að hún
lækni marga aðra kvilla
sem og alvarlegri sjúk-
dóma.
Þakkir til Illuga
Jökulssonar
MIG langai' að þakka RÚV
fyrir þættina hans Illuga
Jökulssonar, Frjálsar
hendur, sem eru á dagskrá
Rásar 1 á sunnudagskvöld-
um. Sérstaklega íyrir þátt-
inn sem var á dagskrá
sunnudagskvöldið 18. júní
sl. Hann var alveg frábær,
helst hefði ég viljað eiga
hann á spólu. Ég hlusta alla
daga á Rás 1 og þar er mik-
ið af alls konar fræðandi og
skemmtilegu efni. Hafið
mínar bestu þakkir íyrir.
020521-2879.
Tapad/fundid
Gameboy Color-
leikjatölva tapaðist
BLEIK Gameboy Color-
leikjatölva í fjólublárri
Gameboy-tösku með gulum
stöfum tapaðist í flugi frá
Barcelona aðfaranótt laug-
ardagsins 24. júní sl. í tölv-
unni var strumpaleikur.
Hennar er sárt saknað af
eigandanum sem hafði
safnað sér fyrir henni og
keypt á leiðinni í fríið. Skil-
vís finnandi er beðinn að
hafa samband í síma 86 205
86.
Úlpa tekin
í misgripum
AÐ kvöldi 17. júní sl. er ég
kom með flugvél Flugfé-
lags íslands frá Akureyri,
gleymdi ég að taka úlpu úr
farangurshólfinu fyrir ofan
sætið mitt. Eftir árangurs-
lausa leit í óskilamunum
hjá F.I. kom þó í Ijós að
önnur samskonar úlpa
hafði fundist. Því lítur út
fyrir að einhver hafi týnt
sinni úlpu og fengið mína
úlpu i staðinn. Þette er
gi'æn úlpa frá 66°N. I vös-
unum á minni úlpu er svart
lyklaveski, sem ég sakna
sárt, ásamt hönskum og
hárbandi. Ef einhver kann-
ast við að hafa fengið þessa
úlpu þætti mér vænt um að
viðkomandi hefði samband
við Guðlaugu hjá flugírakt
Flugfélags Islands.
Seiko-karlmannsúr
tapaðist
SEIKO-karlmannsúr tap-
aðist í miðbæ Reykjavikur í
kringum 6. maí sl. I skíf-
unni á úrinu er hvít og blá
rönd. Upplýsingar í síma
899-0777.
Dýrahald
Blár lítill páfagaukur
fannst
LÍTILL blár páfagaukur
fannst í Grafarvogi fyrir
um það bil tveimur vikum.
Upplýsingar í síma 699-
0414.
Morgunblaðið/Golli
Víkverji skrifar...
STJÓRNVÖLD eru farin að nota
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu
talsvert fyrir fundi og móttökur,
m.a. eru þar gjarnan boðaðir blaða-
mannafundir. Þetta hús hentar hins
vegar ekkert sérstaklega vel til
fundarhalda því að hljómur í því er
einstaklega slæmur og talað orð skil-
ar sér illa til áheyrenda. Vikverji
hefur alla tíð haft miklar efasemdir
um að sú ákvörðun hafi verið rétt að
setja á stofn sérstakt hús sem kennt
er við þjóðmenningu, ekki síst þar
sem söfn á íslandi búa almennt við
mikinn fjárskort. T.d. hefur Þjóð-
skjalasafnið mátt búa við það í fjölda
ára að geta ekki gengið sómasam-
lega frá skjölum þar sem það hefur
ekki fengið næga fjárveitingu til að
kaupa hillur. Skjöl liggja þar á vöru-
brettum óflokkuð og óskráð. Sama
má raunar segja um Náttúrufræði-
stofnun sem í áratugi hefur búið við
algjörlega óviðunandi ástand í hús-
næðismálum. Þess vegna vegna vek-
ur það nokkra furðu að stjómvöld
skuli allt í einu eiga næga peninga til
að byggja upp nýja stofnun, sem er
þar að auki að vissu leyti í sam-
keppni við Þjóðminjasafnið og Þjóð-
skjalasafnið, a.m.k. hvað varðar sýn-
ingarhald.
FYLKIR náði í vikunni efsta
sæti í úrvalsdeild knatt-
spyrnu. Þetta er sögulegur árang-
ur fyrir liðið, en það hefur á síð-
ustu árum og áratugum barist við
að halda sér í efstu deild. Liðið
kom úr fyrstu deild í fyrra enn eitt
árið og hefur blómstrað í sumar.
Þetta er sannarlega ánægjulegt
fyrir Árbæinga, sem án efa eru
staðráðnir í að halda sér í toppbar-
áttunni í deildinni það sem eftir
lifir sumars.
XXX
MIÐLUN hefur undanfarin ár
gefið út netfangaskrá, sem
hefur að geyma upplýsingar um
mikinn fjölda netfanga og heima-
síðna á Islandi. Þessi bók hefur vax-
ið hratt á seinustu árum þótt mikið
vanti enn á að hún hafi náð síma-
skránni að stærð og þyngd. Víkverji
er farinn að nota þessa bók talsvert
mikið enda hefur hún að geyma
mikið af gagnlegum upplýsingum.
A.m.k. hefur Víkverji vanið sig á að
leita í netfangaskránni þegar hann
er að leita að nafni á heimasíðu. Það
er hans reynsla að það sé fljótlegra
heldur en að nota leitarvélar á Net-
inu.
VÍKVERJI brá sér í vikunni í
Bónus að versla. Þegar hann
kom að afgreiðslukassa var erlend
kona þar í stökustu vandræðum.
Hún var aðeins með kreditkort, en
sem kunnugt er tekur Bónus að-
eins seðla og debetkort. Við versl-
unina er kortasjálfsali, en konan
gat ekki notað hann heldur þurfti
að komast í banka til að geta tekið
út peninga. Starfsfólkið reyndi að
ráðleggja konunni hvert best væri
fyrir hana að fara, en hún var ekki
á bíl og ókunnug á þessum slóðum.
Þar að auki var grenjandi rigning
úti. Islensk kona, sem hlustaði á
vandræði konunnar, bauðst til að
greiða vörurnar fyrir konuna og
skutla henni í banka. Erlenda kon-
an var að vonum þakklát fyrir
hjálpina.
Svona hjálpsemi er sjálfsagt of
fátíð hér á landi, en enginn vafi
leikur á að svona jákvæð fram-
koma felur í sér góðan stuðning
við ferðaþjónustuna í landinu.
Ferðamenn fara ánægðari heim ef
þeir fá þá mynd af þjóðinni að hér
búi hjálpsamt og kurteist fólk sem
sé reiðubúið að leggja ýmislegt á
sig til að rétta náunganum hjálp-
arhönd.