Morgunblaðið - 29.06.2000, Side 24

Morgunblaðið - 29.06.2000, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Hættu- legir sund- hringir í EVRÓPU hafa orðið bana- siys af völdum sundhringja. Markaðsgæsiudeild löggild- ingarstofu vill vara við mögulegri hættu á notkun slíkra sundhringja sem eru með götum fyrir fætur barna. „Eftirlitsstjórnvöld á Evrópska efnahagssvæðinu hafa sent frá sér viðvaranir um notkun þeirra til foreldra og forráðamanna barna“, segir Fjóla Guðjónsdóttir hjá markaðsgæsludeild Löggild- ingarstofu. „Hættueiginleikar þessar- ar vöru felast í því að ef böm sem nota sundhringi með gati fyrir fætur ná niður á botn og geta spymt sér í og mnnið til þá geta afleiðing- amar orðið að sundhringur- inn hvolfist og höfuðið fer undir yfírborð vatnsins," seg- ir hún. „Þau ná ekki að snúa sér við þar sem fætur þeirra snúa upp og em fastir í göt- unum.“ Fjóla vill sérstaklega vara við sundhringjum með gati fyrir fætur sem em í formi til dæmis dýra eða bfla. „Þessir sundhringir em leikföng en ekki búnaður til þess að kenna sund og i engum til- fellum er um öryggisbúnað að ræða. Það er því afar brýnt að foreldrar og for- ráðamenn, sem setja böm sín í slíkan búnað til þess að venja þau við dýpra vatn, hafi þau undir stöðugu eftir- liti. Það er afar mikilvægt að hafa í huga að böm verða ávallt að vera undir stöðugu eftirliti þegar þau em í vatni. Sundhringir sem böm geta setið í og halda þeim stöðug- um á yfirborði vatnsins mega aldrei koma í staðinn fyrir eftirlit foreldra og for- ráðamanna," segir Fjóla. Markaðskönnun í gangi hérlendis Að sögn Fjólu er unnið að gerð markaðskönnunar á sundhringjum með götum hérlendis og verða nánari að- gerðir ákveðnar með hliðsjón af niðurstöðum hennar. Hún segir að markaðskönnun hafi verið gerð í Svíþjóð og í framhaldi af henni hafi ákveðnar tegundir af sund- hringjum með götum verið teknar af sænskum markaði. „Vara sem tekin er af mark- aði innan Evrópska efna- hagssvæðisins fer í svokallað Rapex-tilkynningarferli en það þýðir að ef hættuleg vara finnst I einu landi innan EES þá er hún tilkynnt til allra landa svæðisins sem ber skylda til að leita að henniog taka af markaði. Þar sem Is- land er aðili að EES á þetta einnig við hérlendis. Þess má einnig geta að evrópsku staðlasamtökin CEN vinna nú að gerð staðals sem kem- ur til með að auka kröfumar til þessarar vörutegundar." Sérstaklega er varað við sundkútum sem eru í formi t.d. dýra eða bfla með götum fyrir fætur bama. Nýlega tilkynnti verslunarkeðjan Iceland að hún myndi skipta yfir í lífrænt ræktað grænmeti án nokkurs aukakostnaðar fyrir neytendur. Morgunblaðið/Sigríður Dögg Algengast er að fólk kaupi lífrænt ræktað grænmeti og ávexti. Urval lífrænt ræktaðra matvæla eykst stöðugt í breskum stórmörkuðum Lífræn bylgja í Bretlandi Undanfarna mánuði hafa lífrænt ræktaðar matvörur náð fótfestu á breska matvöru- markaðnum og taka þær undir sig æ meira pláss í hillum stórmarkaðanna. Sigrfður Dögg Auðunsdóttir komst að því að það sem áður þóttu dyntir sárviskufullra kaup- enda er nú orðið að útbreiddum lífsstíl. Verslanir keppast um að auka úrval Iífrænt ræktaðra vörategunda. STÓRVERSLANIR keppast nú um að auka úrval lífrænt ræktaðs grænmetis og ávaxta og varla fyrir- finnst sú grænmetistegund sem ekki má finna í lífrænt ræktaðri út- gáfu. Að sama skapi eykst sífellt úrval annarra lífrænt ræktaða matvara á borð við drykkjarvöru, brauðmeti, barnamat og gæludýramat enda eru 70% allrar lífrænt ræktaðrar vöru í Bretlandi seld í stórmörkuð- um. Stórmarkaðskeðjan Waitrose, sem kjörin var „lífræni stórmark- aður ársins" af samtökum framleið- enda lífrænt ræktaðar matvöru á síðasta ári og hefur verið sæmd þeim titli nokkrum sinnum áður, hefur upp á að bjóða 600 vöruteg- undir af lífrænum toga í verslunum sínum. Auk grænmetis og ávaxta má þar meðal annars finna lífrænt ræktað kjöt og fisk, bjór og vín, brauð og bamamat. Nú eru 12% alls grænmetis og ávaxta sem selt er í verslunum Waitrose lífrænt ræktuð vara, sam- anborið við 7% á síðasta ári. „Algjörlega h'fræn“ Sainsbury’s-verslun Stórverslanakeðjan Sainsbury’s hefur endurinnréttað fjölda versl- ana sinna meðal annars með það að markmiði að auka pláss fyrir líf- rænt ræktaðar matvörur og auglýsir ákveðnar verslanir sínar sem „lífrænar" þar sem hluti líf- rænt ræktaðs grænmetis og ávaxta, meðal annars, er sérstak- lega stór. Þeir geta jafnframt státað af því að vera fyrstir stórmarkaða í Bret- landi til að bjóða upp á „algjörlega lífræna" verslun, sem finna má í Savacentre í Merton í Suður- London. Forsvarsmenn Sainsbury’s keðj- unnar segja að í verslunum þeirra séu seldar lífrænt ræktaðar vörur fyrir andvirði 340 milljóna ís- lenskra króna í viku hverri. Þeir hafa upp á að bjóða 500 vörutegundir og segjast jafnframt hafa verið fyrstir í heiminum til að bjóða til sölu lífrænt ræktað gin. Þriðji hver Breti kaupir lífrænt ræktað Samkvæmt könnun bresku neyt- endasamtakanna kaupir þriðji hver Breti nú að minnsta kosti einhverj- ar lífrænt ræktaðar vörutegundir og nam sala þeirra um 65 milljörð- um íslenskra króna á síðasta ári. Talið er að sú upphæð muni hafa þrefaldast í apríl 2003. Algengast er að fólk kaupi líf- rænt ræktað grænmeti og ávexti og sagðist meirihlutinn gera það af hollustuástæðum. Stór hluti sagðist velja lífrænt ræktað til þess að forðast matvörur þar sem notað hefði verið skordýraeitur. Enn fremur sagði þriðjungur að- spurðra að lífrænt ræktaðar mat- vörur brögðuðust betur. Einungis 2% sögðust eingöngu neyta lífrænt ræktaðs fæðis og gáfu hinir þá skýringu að lífrænt ræktaðar vörur væru einfaldlega of dýrar til þess að hægt væri að neyta þeirra ein- göngu. 70% lífrænt ræktaðrar matvöru flutt inn til Bretlands Þrátt fyrir að sala lífrænt rækt- aðrar matvöra aukist um 40% á milli ára í Bretlandi þykir neytend- um verðið enn of hátt. Bent hefur verið á að svo ört aukin eftirspum komi í veg fyrir nægjanlegt fram- boð og því haldist verð jafn hátt og raun ber vitni. Þó svo að samtökum framleið- enda lífrænt ræktaðrar matvöra berist um 100 umsóknir í hverjum mánuði frá bændum sem vilja færa sig yfir í lífræna ræktun era enn einungis 1,5% ræktaðs lands í Bret- landi lögð undir lífræna ræktun. Samkvæmt upplýsingum frá samtökunum era 70% lífrænt rækt- aðrar matvöra í Bretlandi innflutt og nær hlutfallið 80% þegar um er að ræða ávexti og grænmeti. Hins vegar er nær allt lífrænt ræktað kjöt og egg framleitt í Bretlandi. Lífrænt allt að tvöfalt dýrara Lífrænt ræktaðar vörur geta kostað allt að tvöfalt meira en sam- bærilegar vörar sem ræktaðar era með hefðbundnum hætti. Að með- altali er verðmunur þó um 62%. Segja niðurstöður kannanna að allt að 80% neytenda myndu velja lífrænt ræktað fram yfir hefðbund- ið ef verð væri það sama. Ein af ástæðum fyrir hærra verði lífrænt ræktaðrar vöra er sögð vera hærri framleiðslukostnaður. Talsmaður samtaka framleiðenda lífrænt ræktaðrar matvöra í Bret- landi segir að áætlað sé að fram- leiðslukostnaður sé í raun og veru allt að 30% hærri þegar aðferðir líf- rænnar ræktunar eru notaðar. Talsmaður Waitrose keðjunnar heldur því fram að í verslunum Waitrose séu lífrænt ræktaðar vör- ur einungis 20-30% dýrari en sam- bærilegar vörar ræktaðar með hefðbundnum hætti. A þessu séu þó að sjálfsögðu nokkrar undantekn- ingar þar sem hægt er að útvega vörana með ódýrari hætti. Iceland selur lífrænt á sama verði og hefðbundið Stórverslanakeðjan Iceland hafði þar til í síðustu viku ekki verið virkur þátttakandi í stríðinu um neytendur sem velja lífrænt rækt- aðar matvörar. Þá tilkynnti húnfyr- irætlardr sínar um að skipta algjör- lega yfir í lífrænt ræktað grænmeti í verslunum sínum án nokkurs aukakostnaðar fyrir neytendur. Keðjan selur, eins og nafnið ber til kynna, mestmegnis frystivöra og þar af er mikill meirihluti fram- leiddur undir nafni keðjunnar. Segjast forsvarsmenn Iceland hafa keypt upp nær 40% af heimsfram- boði lífrænt ræktaðs grænmetis til að mæta vaxandi eftirspum við- skiptavina sinna. Mest af framleiðslunni mun til að byrja með koma frá Evrópu, Bandaríkjunum og Mið-Ameríku en Iceland hefur reitt af hendi 120 milljónir íslenskra króna til þess að efla lífræna ræktun í Bretlandi. Sainsbury’s keðjan hefur einnig lagt fram umtalsverðar upphæðir til stuðnings sama málefnis. Opinber stuðningur frá breska ríkinu til stuðnings lífrænnar rækt- unar er sagður munu aukast úr tæpum 1,4 milljörðum íslenskra króna árlega í um 2,7 milljarða árið 2004. Bændasölumarkaðir spretta upp í London Það nýjasta í sölu á ferskri mat- vöra í Bretlandi er endurvakning beinnar sölu frá bændum til kaup- enda í bæjum og borgum á hefð- bundnum mörkuðum. Landbúnaðarráðherra Breta, Nick Brown, opnaði fjórða markað- inn í röð svokallaðra bændasölu- markaða í London fyrr í þessum mánuði. Markaðirnir fjórir í Lond- on era staðsettir í Islington, Swiss Cottage, Notting Hill og sá nýjasti í Camden Lock. Verið er að leita að hentugri staðsetningu íyrir að minnsta kosti fimm slíka markaði í viðbót í London.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.