Morgunblaðið - 29.06.2000, Síða 49

Morgunblaðið - 29.06.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 49 LISTIR „Megnið af nútímatónlist miðast of mikið við höfuðiða Meðal gesta á menningar- og listahátíðinni sem haldin var í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið á dögunum var bandaríska tónskáldið William Harper. Margrét Svein- björnsdóttir hitti hann að máli að hátíðinni lokinni en hann var þá að leggja af stað í ferð á söguslóðir Eyrbyggju. Morgunblaðið/Jim Smart William Harper, t.h., ásamt Jóhanni Hjálmarssyni. Harper hefur samið tónlist við ljóð Jóhanns, Marlíðendur. „EYRBYGGJA er mögnuð saga,“ segir William Harper, sem hefur samið tónlist við Ijóðið Marlíðendur eftir Jóhann Hjálmarsson en ljóðið byggir Jóhann einmitt á Eyrbyggju. Tónverkið er hluti af stærra verkefni sem ber nafnið Námur en það er fjöllistaverk 36 innlendra og er- lendra listamanna unnið á árunum 1987-2000 að fimmkvæði Guðmund- ar Emilssonar í tilefni þúsaldar, kristnitöku á íslandi og landafunda í Vesturheimi. Harper lýkur lofsorði á framtak Grindvíkinga og menningarfulltrúa bæjarins, Guðmundar Emilssonar, sem hafði yfirumsjón með hátíðinni. Guðmund þekkir hann reyndar frá fornu fari eða frá því þeir voru báðir við nám í Eastman School of Music í New York fyrir 25 árum. „Guðmund- ur hringdi í mig og bað mig að skrifa tónlist við ljóð Jóhanns Hjálmars- sonar, Marlíðendur,“ segir Haiper, sem lét ekki segja sér það tvisvar, fór að kynna sér Eyrbyggju og Ijóð Jóhanns og semja. Verkið var frum- flutt í Bandaríkjunum í nóvember á síðasta ári og var hljóðritun af því með Kór lettneska ríkisútvarpsins, Kammersveit baltnesku fflharmón- íunnar, Drengjakór Rígu og söng- konunni Maggi-Meg Reed leikin á hátíðinni í Svartsengi 16. júní sl. Upptakan kemur svo út á geisladiski á næstunni. Sterkari taugar til íslands Þetta er í annað sinn sem Harper kemur hingað til lands en í fyjra skiptið var hann hér í tengslum við tónlistarhátíðina Erkitíð árið 1996. „Þá fékk ég mér bílaleigubíl, ók vestur á Snæfellsnes og var þar í þrjá daga einn míns liðs. Svaf í bíln- um milli þess sem ég gekk á jökulinn og fjöll í nágrenninu,“ segir hann og dregur fram bók með Ijósmyndum sem hann tók á Snæfellsnesi í þeirri ferð. „Þegar ég svo las Eyrbyggju skildi ég allt,“ segir hann og bætir við að þó að forfeður hans hafi komið frá Englandi finnist honum hann hafa sterkari taugar til Islands en Englands „Ég veit ekki hvers vegna en svona er það nú samt,“ segir Harper, sem sjálfur býr í Chicago. Ljósmyndari eða tónlistarmaður? Á yngri árum lagði hann jöfnum höndum stund á tónlist og ljósmynd- un og átti erfitt með að gera upp við sig hvort hann vildi verða ljósmynd- ari eða tónlistarmaður. „Svo ég gerði hvort tveggja, flutti til New York og fór að spila í klúbbum og leikhúsum, tók námskeið í tónlist og vann fyrir mér með því að taka myndir. Svo gerðist það að myndavélinni minni var stolið og þar sem ég hafði ekki efni á að kaupa nýja vél má segja að ákvörðunin hafi verið tekin fyrir mig,“ segir hann. Þannig að ef þjófur hefði gripið hljóðfærin hans í stað myndavélarinnar þá væri hann sennilega ljósmyndari núna, ályktar blaðamaður. „Já, ætli það ekki,“ samsinnir tónskáldið og brosir að ör- lögunum. Fyrstu kynni Harpers af atvinnumennsku í tónlist voru þegar hann söng í drengjakór í kirkju, sem hann segii’ að hafi verið afar góður skóli. Síðar varð orgelið hans aðal- hljóðfæri, auk gítars og hljóðgervils. Hann segir að popptónlistin hafi ver- ið sér mjög mikilvæg og sé reyndar enn. Hann hlusti þó ekki á vinsælda- listapopp, sem hann segir innantómt og heimskulegt, stjórnað af skemmt- anaiðnaðinum og eigi lítið skylt við tónlist. Mjög líkamleg tónlist í dómi í Morgunblaðinu 20. júní sl. skrifar Vemharður Linnet tónlistar- gagnrýnandi m.a. um Harper og tónlist hans: „Wfilam Harper af- sannaði þá firru á þessari tónskálda- kynningu að öll nútímatónlist sé erf- ið og torskilin. Tónlist hans vai’ aðgengileg, melódísk og ryþmísk og fyrst og fremst skemmtileg áheyrn- ar...“ Þessi ummæli eru borin undir tónskáldið. „Það þykir mér gott að. heyra, því þetta hefur einmitt alltaf verið mitt markmið," segii- Harper. Hann er beðinn um að lýsa tónlist- inni sem hann semur. „Álmennt má segja að þetta sé mjög líkamleg tón- list. Megnið af nútímatónlist miðast allt of mikið við þennan líkams- hluta,“ segir hann og bendir á höfuð- ið, „en áheyrendur verða að finna fyrir tónlistinni líkamlega. Svo finnst mér húmorinn líka mjög mikilvæg- ur.“ Tónskáldunum að kenna Harper hefur kynnst nokkrum ís- lenskum tónskáldum gegnum Guð-"' mund Emilsson og lætur vel af þeim kynnum. Hann nefnir feðginin Þor- kel Sigurbjörnsson ogMisti Þorkels- dóttur, Atla Heimi Sveinsson, Kjart- an Ólafsson, Hilmar Þórðarson o.fl. „En ég skal segja þér það að íslensk tónskáld hafa tilhneigingu til að vera of akademísk og semja of mikið með höfðinu. Þau verða að komast yfh’ það - og kannski gera þau það,“ seg- ir hann og hlær. „Fyrir mörgum ár- um vann ég í plötubúð í hverfi þar sem bjuggu aðallega læknar og lög- fræðingar og annað háskólamenntað fólk. Þetta fólk keypti mikið af klass- ískri tónlist en enga tónlist frá 20. öldinni - það hafði enginn áhuga á nútímatónlistinni. Það er auðvitað tónskáldunum að kenna - tónskáld- unum sem sögðu „Til fjandans með áheyrendur!“ Ég held að þetta sé að breytast - og ég hlakka mikið til,“ segir hann. BÆKUR Kristiii trú LÍTIÐ KVER UM KRISTNA TRtí eftir Karl Sigurbjörnsson. 76 bls. títg. Skálholtsútgáfan. Prentun: Gutenberg ehf. 2000. KÁPUMYND bókar þessarar er eftir Karólínu Lárusdóttur, dálítið kómísk að vanda. Myndefnið er hversdagslegt. Tvær konur eru komnar að dyrum verslunar. I baksýn eru bændabýli og sveitasæla. Önnur konan vill doka við þar sem hún sér engil á gangi þar á túninu. Engillinn er í þann veginn að hverfa fyrir húshornið. Konan vill fyrir hvern mun fylgjast með ferðum eng- ilsins. Jafn eindregið streitist vin- konan við að toga hana inn í búðina. Út af þessu leggur höfundurinn, herra Karl Sigurbjörnsson, í upphafi máls síns: »Svona er þetta gjarna. Hið mikil- vægasta í lífinu gerir sjaldnast boð á undan sér. Við skynjum það jafnvel ekki fyrr en eftir á. Við missum af því vegna þess að við höfum ekki augun hjá okkur, lítum ekki í kringum okk- ur, erum með hugann við annað. Til- boð dagsins laða. Við höldum að þau séu lífið, en Lífið fer hjá.« Lítið kver um kristna trú er stærra að inntaki en heitið gefur til kynna. Ekki er þetta nein Summa theologica eða guðfræðin öll, fjarri því. Eigi að síður er þai’na drepið á flest sem telja má undirstöðu kristinnar trúar og venjubundins helgihalds. Áhersla er einkum lögð á tvennt. Annars vegar kær- leiksboðskap kristinn- ar trúar, hins vegar á táknmál trúarinnar, hið óræða, það sem ekki verður útlistað með skírskotun til hlutlægs veruleika. Svo er um englana að dæmi sé tekið: »Þegar englar eru sýndir með vængi í myndlistinni þá er það tákn. Vængimir tákna að englarnir eru fljótir í förum að framkvæma vilja Guðs.« Höfundur leggur áherslu á að trúin sé ekki vís- indum háð heldur beri hún styrk sinn í sjálfri sér. Vísindin krefjist rannsóknar og sannana. Hinn trúaði tilbiður og treystir. Spurningum eins og hvað er Guð og hvar er Guð verð- ur því ekki svarað staðfræðilega. Sama máli gegnir um föðurímynd guðdómsins. »Að Guð er nefndur faðir er myndmál sem leggur áherslu á að Guð er frumorsök, upp- haf alls.« Og »kristin trú er að treysta Jesú Kristi.« Erfiðara getur reynst að útskýra trúfræðileg hugtök eins og synd og náð, að ekki sé talað um heilaga þrenning. Þá kemur til kasta trúar- heimspekinnar. »...syndin er leynd- ardómur sem ekki verður skýrður,« segir höfundur. Náðina kveður hann eitt þessara litlu orða sem geymi þó djúpa merkingu. »Guðs orð, bænin, skírnin og kvöldmáltíðin kallast náð- armeðul.« Sakramentin eru hins vegar tvö, skírn og kvöldmáltíð. »Skírnin er tákn og sakramenti náðarinn- ar.« Helgi Hálfdánar- son sagði um heilaga þrenning að hana fengjum vér eigi skilið í þessu lífi. Þegar Helgi kvað svo að orði var þróunarkenningin ný- lega fram komin og kirkjan og trúin í varn- arstöðu. Herra biskup- inn skoðar hugtakið frá öðru sjónarhorni: »Að Jesús er einkasonur Guðs, eingetinn sonur Guðs, er ekki líffræði- leg skilgreining heldur undirstrikun þess að hann er samur föðumum.« Meðal eldri hugtaka - sum þeirra eru ævafom, allt að for- söguleg - má t.d. telja Guðslambið. En það skýrir höfundur svo: »Fórn- arlambið í Gamla testamentinu er fyrirmynd lambsins sem Guð lagði tál, son sinn, Jesú, svo allar fórnir yrðu ónauðsynlegar og skuldabréf syndarinnar uppgreitt að fullu.« Sennilega veitist hinum dæmigerða leikmanni erfiðast að skilja tilgang- inn með þessari friðþægingu, það er hvers vegna þurfti að fórna svona miklu. Lögð er áhersla á félagslegt hlut- verk kirkjunnar - það er að segja hlutverk safnaðarins - jafnframt hinu trúarlega. »Samfélag, sam- staða, samhugur, það eru einkenni þeirrar trúar sem Kristur gefur.« Því er hins vegar vísað á bug að guðsþjónustan eigi að vera fræðslu- stund með menningarlegu ívafi. »Hún er atburður þar sem þjóð Guðs, kirkja hans, safnast saman til að tjá trú sína og víðfrægja dáðir drottins.« Höfundur leggur lítið upp úr stöðugleika; trúin skuli þvert á móti vera drifkraftur, hreyfiafl. Ekki eru þó tekin dæmi af hinu stríðandi lífi utan kii’kjunnar. Þetta er engin þjóðfélagsfræði. Höfundur sneiðir hjá því að blanda óskyldum málefn- um saman við fræði sín þótt hann bregði víða fyrir sig kunnuglegu lík- ingamáli. Sumar samlíkingar hans höfða til hins veraldlega, aðrar eru allt að því Ijóðrænar, til að mynda: »Bænin er andardráttur sálarinn- ar.« Farið er yfir stórhátíðir kirkjunn- ar, drepið á sögulegan uppruna þeirra og áhersla lögð á gildi þeirra fyrir trúariðkun kristinna manna. Helstu trúarjátningum eru enn fremur gerð viðhlítandi skil. Höf- undur harmar að landstjórinn Pílatus skuli nefndur á nafn í einni þeirra; kallar hann huglausan tæki- færissinna. En sú var raunar ófrá- víkjanleg venja fornra sagnaritara að miða stóratburði við valdatíð æðstu manna. Gilti þá einu hvort þeir voru góðir eða vondir. Ekki ber því heldur að neita að nafn Pílatusar er fyrirferðarmikið í píslarsögunni. Og hugleysi Pílatusar? Var hann ekki dæmigerður embættis- og stjórnmálamaður allra tíma, maður sem lét málefnin ráða svo stuðst sé við algengt orðalag frá nútímanum? Ekld lét hann heldur þvætta sér til að segja og skrifa hvað sem var. Herra biskupinn lætur sig ekki held- ur muna um að taka fræg orð hans upp í bók sína: Hvað er sannleikur? Tilsvar hans: Það sem ég hef skrifað það hef ég skrifað - er ekki síður í minnum haft. Líklega er Pílatus mesti nútímamaðurinn í helgum fræðum. Og loks er það lífið eftir dauðann sem kristnir menn hafa löngum horft til með von, sumir reyndar með óyggjandi vissu. Til eru þeir sem telja að einmitt sú spurningin hljóti að brenna hvað heitast á vörum. Margur hefur hugsað sér framhalds- lífið eins og vistaskipti. Einstakling- urinn hverfi héðan með endurminn- ingar sínar, lifi sínu persónulega lifi eftir sem áður, gefist ef til vill tæki- færi að fylgjast með vinum og ætt- ingjum héma megin grafar og hugs- anlega að hafa einhvers konar samband við þá. Þótt höfundur hafni ekki þessum skoðunum berum orð- um fer ekki á milli mála að þeim verður hvergi fundinn staður i fraað- um hans. Sama máli gegnir um dómsdag. »Á efsta degi reisir Guð okkur svo upp til eilífs lífs og endur- funda. Allt er þetta myndmál, til- raunir til að lýsa því ólýsanlega. í ei- lifðinni, í himni Guðs er enginn tími, allt ein andrá, þrungin gleði og friði.« Þessi efnismikla bók biskupsins tengist ekki - nema þá óbeint - þús- und ára kristni eða sjálfri kristnihá- tíðinni. Ekki er þetta trúboðsrit og þá ekki heldur barátturit. Enn síður sér þess stað að kirkjan sé að ganga í gegnum neins konai’ aldahvörf. Höf- undur stjakar við vaxandi veraldar- hyggju og fer þar að dæmi forvera. Að öðru leyti verður ekki annað ráð- ið af orðum hans en kirkjan standi traustum fótum um þessar mundir. Biskupsembættinu fylgja engin pólitísk völd eins og fyrr á tíð. Eigi. að síður er og verður biskupinn and- legur leiðtogi kirkju sinnar. Orð hans vega þungt að því er trúarefni varðar. Enda þótt bók þessi hljóti að teljast fræðileg fremur en alþýðleg þarf lesandinn hvergi að vera í vafa um trúarskoðanir höfundarins. Erlendur Jónsson Trúarheimspeki Karl Sigurbjörnsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.