Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 59

Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 59l. fljótlega í ljós að við áttum sameigin- leg áhugamál, aðallega hross, en einnig trésmíði, jámsmíði og fleira en í járninu var Doddi aðalmaðurinn. Það tengdi okkur enn betur að við gátum fengið lánuð verkfæri hjá hvor öðrum og kom það sér vel á þessum árum þegar við vorum á fullu að byggja sumarbústaði og síðar íbúð- arhús. Það kom raunar löngu síðar í ljós að leiðir okkar höfðu legið saman mörgum árum áður þegar ég var polli í vesturbænum og bjó í blokk á Hringbrautinni á móti Elliheimilinu Grund en Doddi var innanbúðar hjá Silla og Valda sem þá ráku verslun í vesturenda blokkarinnar. Ég man ekki hversu gamall ég var en þá voru tvö ár mikill aldursmunur þótt hann hafi jafnast út og horfið síðar á æv- inni. Ég man að mér fannst Doddi alla vega miklu eldri en ég. Það rifj- aðist upp fyrir mér að eitt sinn var ég á ferð um Brávallagötuna og mætti þá þessum búðarmanni hjá Silla og Valda. Hann var í dökkum fötum, hvítri skyrtu með fráhnepptan jakk- ann og bindið flaksandi aftm' fyrir öxlina. Ég man að hann hafði stungið endanum á bindinu inn undir skyrt- una. Mér fannst hann vera svaka töffari. Doddi átti góða hesta. Meðal ann- ars einn sem hann kallaði Storm. Þessi hestur var í miklum metum og féll í hárri elli - þá í eigu Kjartans sonar míns. Doddi lagði mikið upp úr gæðum hrossa, sérstaklega vilja og gangfimi, og vildi að þau hefðu mikla framfótalyftu. Mér er það minnisstætt þegar ég sat í stólnum hjá honum, skíthræddur um augun í mér, þegar hann með greiðuna í annarri hendi og skærin í hinni sýndi mér hvernig þessi eða hin bikkjan bæri framfæturna. Þá gengu hendurnar á honum eins og viftuspaðar hvor sínu megin við hausinn á mér. Lífið gekk sinn vanagang og reyndist okkur hagstætt að flestu. Ég flutti úr blokkinni, Doddi hætti með rakarastofuna og hvarf til ann- arra starfa. Afram blasti framtíðin við og raun- ar benti ekkert til annars en að við yrðum að minnsta kosti hundrað ára enda bollalögðum við oft hvemig við hygðumst haga komandi árum. Það veit enginn sína ævina og mað- urinn með ljáinn lætur ekki að sér hæða. Fyrir ári greindist Doddi með krabbamein eftir undanfarandi erfið veikindi. Hann gekkst undir aðgerð á Land- spítalanum og um tíma ólum við þá von í brjósti að tekist hefði að vinna bug á meininu - að minnsta kosti um tíma. Sú von brást og kvalimar urðu sár- ari og sífellt sterkari lyf þurfti til að lina þær. Að því kom að Doddi varð að leggjast inn á spítala að nýju. En hann var þó samur við sig og þegar ég skrapp til að heimsækja hann greip ég í tómt og hresstist nokkuð þegar ég frétti að Doddi hafði farið til að skoða vaska, enda að flytja í nýtt húsnæði. Ég heyrði síðast í honum um klukkan tíu föstudaginn 16. júní. Hann bar sig furðu vel en það var auðfundið að honum leið mjög illa. Fjórum klukkustundum síðar var hann allur og nú er skarð fyrir skildi sem ekki verður auðvelt að fylla. Sturla Þórðarson. Þórður Eiríksson hárskeri söng tenór í Skagfirsku söngsveitinni í Reykjavík frá 1993 til lokatónleika kórsins sl. vor. Hans er nú minnst sem góðs félaga og þakkað sjö vetra samstarf. Nokkrir kórfélagar heiðra minningu hans með söng við útförina í Arbæjarkirkju í dag. Að leiðarlok- um fylgir góður hugur söngfélaga til hins látna og biðja þeir þess að ókomnar andans leiðir liggi á vegum Guðs sem við biðjum að styðji og styrki eftirlifandi eiginkonu og fjöl- skyldu hins látna og sendum samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Þórðar Ei- ríkssonar. Fyrir hönd Skagfu-sku söngsveit- arinnar, Sveinn S. Pálmason. HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR + Hulda Guð- mundsdóttir fæddist í Hlíðarkoti í Fróðárhreppi á Snæ- fellsnesi 7. maí 1904. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Eir 21. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Eggertsson, sjómað- ur, f. 30. október 1870, d. 30. júlí 1952, og Rósborg Friðriks- dóttir, húsmóðir, f. 18. október 1866, d. 7. apríl 1946. Bemsku- og æskuár Huldu voru á heimili foreldra hennar í Friðar- höfn í Ólafsvík, en þar ólst hún upp í systkinahópi, þeirra Theó- dóru Sigrúnar, Unnar og Egg- erts, sem öll eru látin. Hulda gekk að eiga Sigurpál Magnússon, verslunarmann, f. 22. júní 1895, d. 10. maí 1928. Dóttir þeirra er Erna S. Noel, f. 1. októ- ber 1923, búsett í Bandaríkjun- um. Maki hennar er Dana E. Noel. Börn þeirra eru: Diane Pallí, f. Frú Hulda Guðmundsdóttir er látin níutíu og sex ára að aldri. Elsku amma Hulda, yfir þér bjó ávallt glæsileiki og virðuleiki sem endurspeglaðist í þínu lífshlaupi. Nú í dag þegar við kveðjum þig streyma um hugann fallegar minningar, minningar um þau ár sem við áttum með þér á seinni hluta ævi þinnar. Þegar ég fæðist þá ert þú nærri sextugu og hefðir sam- kvæmt lögmálinu átt að eyða ævi- kvöldi þínu í rólegheitum eftir við- burðarík ár en því var ekki þannig farið í þínu lífi. Þrátt fyrir háan ald- ur horfðir þú ávallt fram á veginn og lifðir fyrir nútíð og framtíð. Amma Hulda var 60 ára þegar hún tók bíl- próf og keyrði tjónlaust um götur Reykjavíkur. En hún fékkst þó aldrei til að viðurkenna að hafa gert upp á staðnum smátjón er varð á Skúlagötunni. Fyrsta minning mín um ömmu var þegar ég var þriggja til fjögurra ára gamall á bamaheimilinu Bar- ónsborg. En þá rann amma á hljóðin í mér, hágrátandi, en hún var að fylgjast með því hvemig sonarsyni sínum reiddi af fyrsta daginn á bamaheimilinu. Amma taldi betra að fara með mig í ökuferð og kaupa handa mér lúxusskinku sem þá var ekki á hvers manns borði, en var uppáhald mitt á þessum tíma. Heimili þitt var ævintýraheimur út af fyrir sig, það er óhætt að segja að þar hafi listrænn hæfileiki þinn notið sín hvað best. Þar varst þú langt á undan þinni samtíð, gólf- teppið sem þú ófst á Stokkseyri á ár- unum í kringum stríð og fylgdi þér alla ævi, myndirnar sem þú málaðir og listaverkin sem þú bjóst til. Mér er það kært að þú gafst okkur hjón- um myndina „Dýr í skógi“ sem þú hannaðir upp úr gömlu veggteppi. Þú klipptir út úr slitnu teppi dýra- myndir og límdir á plötu og málaðir síðan á milli dýramyndanna þannig að úr varð sérkennilegt listaverk sem enn í dag vekur aðdáun fólks. Það voru ekki einungis innan- stokksmunirnir þínir sem vöktu eft- irtekt heldur hvernig þeim var hag- anlega fyrirkomið. Gulllistarnir sem þú negldir upp um öll loft á Bræðra- borgarstígnum, myndirnar sem héngu á veggjunum, ekki ein og ein á hverjum vegg heldur margar hlið við hlið. Litlu munirnir sem allir áttu sína sögu og voru æðimargir á svörtu handmáluðu kistunni þinni í stíl við stóra veggteppið „Trú, von og kærleikur" sem þú ófst og hékk fyrir ofan kistuna ásamt svörtu tré- kertastjökunum. Allt þetta myndaði eina heild, heimili ömmu Huldu. Frú Hulda skreytti heimili sitt um hver jól, kassa eftir kassa fullan af jólaskrauti dró hún fram úr geymsl- unni og umvafði heimilið ólýsanleg- um jólaanda. Amma skreytti ekki með músastigum eða strengdi jóla- seríur í glugga, nei, þessum fimmtán 25. janúar 1944, maki Marco Perella, og Dana Grove, f. 20. des. 1951, maki Patty Lombard. Barnabarnabömin eru fimm. Hulda giftist hinn 1. júní 1929 Páli Guðjóns- syni, sérleyfíshafa, f. 23. júlí 1904, d. 25. júní 1959. Þau skildu. Sonur þeirra er Hilmar Pálsson, f. 31. mars 1935, maki Lína L. Hannesdótt- ir. Börn þeirra eru Hannes, f. 25. des. 1955, maki Dóra Berglind Torfadóttir. Páll Jóhann, f. 10. mars, 1962, maki Kolbrún Jónsdóttir. Björn, f. 21. júlí, 1964, maki Guðrún Gunnars- dóttir. Barnabarnabörnin eru átta. Hulda giftist hinn 28. júlí 1961 Theodór Magnússyni, bak- arameistara, f. 5. nóv. 1893, d. 7. apríl, 1972. Útför Huldu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. til tuttugu jólaseríum sínum raðaði hún haganlega saman með englum, jólabjöllum, jólasveinum og fleiru. Það tók hana ömmu u.þ.b. tvær vik- ur að koma heimilinu í jólabúning sem náði hámarki með nýársboði hennar þar sem dekkað var upp með gullmáluðum diskum og silfurborð- búnaði. Það kom í minn hlut að annast fjármálin ömmu er hún dvaldist eitt sinn sumarlangt hjá dóttur sinni í Akron í Bandaríkjunum. Ég fór samviskusamlega um hver mánaða- mót og sótti eftirlaunin og ellilífeyr- inn, greiddi reikningana og lagði af- ganginn inn á sparisjóðsbók. í þá daga var þetta nokkuð flókið ferli, þurfti að fara á eina þrjá staði áður en ég gat farið með afganginn og lagt inn á bók. Það var því stoltur sonarsonur sem afhenti ömmu sinni dágóða upphæð í lok sumars þegar hún kom aftur heim. Mér, unglingn- um, fannst amma ansi fljót að eyða sumarsparnaðinum í einhverja kín- verska kommóðu sem í hennar huga var fjárfesting í listmun. Konuefni mitt kynnti ég fyrst fyr- ir þér en þú reyndist okkur hjónum afar vel. Það voru ófá skipti sem við sátum við eldhúsborðið á Bræðra- borgarstígnum, gæddum okkur á nýbökuðum pönnukökum eða öðru góðmeti og ræddum málefni líðandi stundai’. Pönnukökumar þínar nefndust „slörpönnukökur" því þær voru svo þunnar og gegnsæjar. Langömmubömin þín kölluðu þig aldrei annað en ömmu Huldu en þér var ekkert um það gefið að láta uppi um aldur þinn með því að láta ung- mennin kalla þig langömmu. Eins fannst þér óþarfí að láta uppi um aldurinn þegar þú ferðaðist með al- menningsvögnum borgarinnar með því að greiða með svokölluðum blá- um miðum en með þeim njóta eldri borgarar sérkjara í SVR. Nei amma Hulda greiddi fullt fargjald og móðgaðist ef bent var á að henni væri heimilt að kaupa bláa miða. Viðburðaríkri ævi ömmu Huldu er nú lokið en minningin um hana lifir áfram því amma var lífsglaður heimsborgari sem markaði spor í samfélagið hvar sem hún bjó, hvort sem það var á Stokkseyri eða hjá dóttur sinni í Ameríku. Við sem nut- um þess að vera samferðamenn þín- ir þökkum þér þær góðu og skemmtilegu stundir sem við áttum með þér, elsku amma Hulda. Páll Hilmarsson. Við ömmubörnin í Ameríku, bróð- ir minn og ég, áttum þess ekki kost að eiga mikinn tíma með ömmu okk- ar, en áhrif hennar á líf okkar voru samt mikil. Við glöddumst alltaf mikið þegar von var á henni í heim- sókn. Móðir okkar stuðlaði ávallt að því að halda vakandi ættartengslum okkar við ísland og skapa mynd af þeirri einstöku og frjóu konu sem amma okkar var. Og amma Hulda olli okkur ekki vonbrigðum. Hún var full af lífi og skemmtilegheitum. Hún geislaði af glæsibrag og fegurð. Það var ævintýri líkast að fá hana í heimsókn. Þegar ég var að alast upp gaf hún mér ávallt silfurhnífapör í afmælis- og jólagjafir. Þá saknaði ég þess að fá ekki frekar dúkku eða einhver leikföng. En í meira en þrjátíu ár hef ég ekki lagt á borð án þess að hugsa til hennar og þakka þá hugul- semi sem fylgdi þessari gjöf. Amma Hulda var full af eldmóði. Hún flutti með sér heim til íslands tæki til að koma á fót karftöfluflögu- fyrirtæki. Hún óf sjálf gólfteppið á íbúðina sína. Hún efaðist aldrei um að hún gæti það sem hún ætlaði sér. Og hún gerði alla hluti framúrskar- andi vel. Blóm og skraut urðu að listmunum í höndunum á henni. Hún var heillandi, virðuleg, gáskafull, nýmóðins og mjög hugmyndarík. Eins og lífið er, þá veit ég að hún þurfti stundum að takast á við erfið- leika. En samt var hún alltaf jafn lífsglöð og áhugasöm um lífið. Hún átti sína trú, var hugrökk og sterk. Við óskum henni til hamingju með þá sigra sem hún vann í þessu lífi og óskum henni guðs blessunar og frið- ar í því næsta. Diane P. Noel Perella, Dana G. Noel. Hulda ólst upp í Ólafsvík en flutt- ist til Stokkseyrar árið 1935 og reisti þar bú með eiginmanni sínum, Páli Guðjónssyni sérleyfishafa. Hún fluttist síðan til Reykjavíkur árið 1944 og bjó þar til dauðadags. Við systurnar kynntumst Huldu er einkasonur hennar, Hilmar Páls- son, kvæntist systur okkar, Línu Lilju. Hófust þá fljótlega góð kynni milli hennar og fjölskyldu okkar og var hún ávallt aufúsugestur á heim- ili foreldra okkar. Jafnframt stóð hennar eigið heimili okkar fjöl- skyldu ætíð opið. Hulda var einkar skemmtileg kona, ræðin og glað- lynd, opinská og einörð í skoðunum. Hún var mikil húsmóðir með næmt fegurðarskyn og bar heimili hennar þess órækt vitni. Yfir jólin breyttist heimili hennar í listrænan ævintýra- heim sem seint mun mönnum úr minni líða. Dagsdaglega rak hún heimili sitt af stakri prúðmennsku og festu og skilaði dagsverki sínu^ með sóma og bar ávallt mikla um- hyggju fyrir sínum nánustu. Hún hafði unun af heimilisstörfum, mat- argerð og handavinnu, allt lék í höndum hennar, útsaumur, sauma- skapur, veggteppagerð og ófáar út- prjónaðar lopapeysur liggja eftir hana innan fjölskyldunnar og meðal vina. Nánast allt handverk hennar var sannkallað listaverk. Hulda hafði einnig unun af því að bjóða gestum á heimili sitt og elda góðan mat. Hún var sannkallaður höfðingi heim að sækja og ávallt var glatt á hjalla í návist hennar. Hulda hélt nánu sambandi við fjölskyldu sína, börn, tengdabörn og barnabörn og aðra venslamenn enda félagslynd að eðlisfari. Erna, dóttir Huldu, kynntist hér á landi á stríðs- árunum bandarískum flugmanni og giftist honum og hefur verið búsett sl. rúm 50 ár í Bandaríkjunum. Hulda fór oft til hennar og dvaldi hjá henni í lengri eða skemmri tíma. Kærleiksríkt samband var milli Huldu og eiginmanna hennar en fyrsta eiginmann missti hún eftir stutt dauðastríð og frá kornungri dóttur. Með Páli Guðjónssyni átti Hulda skemmtileg en erilsöm ár á Stokkkseyri. Þriðji eiginmaður Huldu var Theódór Magnússon bak- arameistari. Þau áttu einnig samarr^ ánægjurík ár og myndaðist kær- leiksríkt samband við alla hans stóru fjölskyldu en Theódór átti tíu börn af fyrra hjónabandi. Með Huldu er gengin óvenjuleg merkiskona sem margir í fjölskyld- unni munu sakna og minnast með þakklátum huga. Síðustu æviárin var Hulda mikill sjúklingur og naut hún frábærar umönnunar starfs- fólksins á hjúkrunarheimilinu Eir. Þótt söknuðurinn sé sár við andlát hennai' öllum ættingjum hennar o0t? vinum er hann sárastur Hilmari og Línu sem síðustu árin önnuðust Huldu af einstakri gætni og hugul- semi og heimsóttu hana nær dag- lega á Eir til að hlúa að henni og annast hana. Blessuð sé minning hennar. Valgerður og Helga Hannesdætur. + Föðurbróðir okkar, HARALDUR ÁGÚSTSSON fyrrverandi yfirkennari, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 26. júní sl. Ágúst I. Sigurðsson, Ragnar J. Henriksson, Þórður Ág. Henriksson. + Útför JAKOBÍNU MATHIESEN, fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstu- daginn 30. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim, sem vilju minnast hennar, er bent á líknarfélög. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðfinna Mathiesen Bevans. + Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför, MAGNÚSARJÓNSSONAR, Eyrarvegi 6, Akureyri. Sigríður Loftsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Teitur Jónsson, Jón Magnússon, Selma Tómasdóttir, Haukur Magnússon, Hulda Sigurborg Sigtryggsdóttir, Hildur Magnúsdóttir, Sigurður H. Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. r’

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.