Morgunblaðið - 29.06.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 29.06.2000, Blaðsíða 57
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 57_ HANNESINGVI KRISTJÁNSSON + Hannes Ingvi Kristjánsson fæddist að Grund á Vatnsleysuströnd 26. júlí 1919. Hann lést 21. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þórdís Símonardótt- ir, f. 23. september 1894, d. 23. mars 1991 og Kristján Hannesson, f. 10. júlí 1882, d. 10. nóvem- ber 1961 frá Suður- koti á Vatnsleysust- rönd. Systkini Hannes- ar: Inga, f. 8. janúar 1913, d. 7. júlí 1994, Guðmundur Skarphéðinn, f. 26. júlí 1914, d. 30. júlí 1983, Símon Georg, f. 18. september 1916, Sig- ríður Guðmunda Margrét, f. 18. október 1921, MagneaHulda, f. 24. janúar 1925, Grétar Ingibergur, f. 6. maf 1926, d. 5. mars 1947, Hrefna Stein- unn, f. 8. febrúar 1934. Hannes giftist Önnu Scheving Kristmunds- dóttur, f. 12. maí 1924, frá Stakkavík í Sel- vogi en fluttist að Efri-Brunnastöðum 1943. Þau bjuggu fyrst í Suðurkoti en árið 1960 byggðu þau Sætún Sem er skammt frá. Börn þeirra: 1) Gréta Þórarinsdóttir, f. 29. september 1945, d. 11. febrúar 1973, fósturdóttir Hannesar. Hennar maður var Eng- ilbert Kolbeinsson, f. 7. september 1938, d. 11. febrúar 1973. Þeirra dóttir og fósturdóttir Hannesar og Önnu er Anna Kapitola, f. 15. febr- úar 1972, 2) Grétar Ingibergur, f. Heilbrigði, hjartans kæti, hér með samviskan góð, ástvina eftirlæti. Frómt líf og farsæll dauði fylgjastmeðréttuað, af hverjum heimsins auði, helst vildi ég kjósa það. (höf.ók.) Þessar línur eru mjög lýsandi fyr- ir pabba sem snögglega kvaddi þetta líf fyrir rúmri viku. Pabbi var alla ævi afskaplega heilsuhraustur mað- ur og er ekki langt síðan að heilsunni fór aðeins að hraka sem varð til þess að hann fór inn á sjúkrahús í tvo daga í fyrsta sinn síðan hann var rétt liðlega tvítugur. Það var samt tæp- lega á honum að sjá að svo væri og lét hann það hafa sem minnst áhrif á sitt daglega líf. Þarna var hann úti í garði, í sól og blíðu, að slá garðinn sem honum þótti svo vænt um og það var hans síðasta verk í þessu lífi. Ef- laust er þetta nákvæmlega eins og hann hefði kosið. Pabbi var mjög skemmtilegur maður og alltaf stutt í grínið og kímnislegt brosið hjá honum. Hann var af þeirri kynslóð sem þurfti að hafa fyrir lífinu og hann vann mikið um ævina, bæði á sjó og landi. Frá því ég man eftir mér var hann vöru- bílstjóri hjá Vogum hf. og fyrir mig sem krakka var afskaplega spenn- andi að fá að sitja í með honum í vörubílnum. Alltaf tók pabbi sitt sumarfrí í júlí og stórum hluta þess eyddi hann í heyskap og hin ýmsu verk er tilheyrðu sumrinu en ávallt hefur verið búskapur á heimilinu. Á næsta bæ, Suðurkoti, sem er á samliggjandi jörð, bjó móðir hans, Þórdís Símonardóttir fram að níræð- isaldri. Það voru afar sterk bönd á milli þeirra og þar af leiðandi einnig milli mín og ömmu Dísu en þær voru ófáar ferðirnar á degi hverjum sem ég kíkti til hennar. Fjölskylda pabba hefur ætíð verið mín fjölskylda og aldrei fann ég fyrir því að við værum ekki skyld. Svo skemmtilega vildi til að eitt sinn fóru ég og vinkona mín og kíktum á Ströndina til að fara í fjörugöngu með Láru og Beggu. Eft- ir gönguna settumst við inn í kaffi og spjölluðum við mömmu og pabba. Á leiðinni í bæinn sagði hún svo við mig: „Anna, það er svo merkilegt, en mér finnst þú vera líkust honum pabba þínum.“ Þetta þótti mér gam- an að heyra. Pabbi fæddist að Grund sem nú er komin í eyði. Hann ólst upp í Suður- koti og byggði síðar fjölskyldu sinni heimili er þau nefndu Sætún. Á þess- um slóðum hefur í gegnum árin búið stór hluti fjölskyldunnar og vinanna allt í kring. Það er afskaplega endur- nærandi að koma í kyrrðina og fugla- sönginn á Ströndinni eftir að hafa verið í ys og þys malbiksins alla vik- una. Alltaf spurði pabbi mig þegar ég kom heim um helgar - „Jæja, hvað er að frétta úr Reykjavíkinni?“ Pabbi vildi hvergi annars staðar vera, honum leið svo vel á Ströndinni sinni og bera þessar ljóðlínur sem hann eitt sinn orti þess merki. Minningarvaknahér ívinahúsaskjóli. Góðar stundir finnast mér áfeðraminna bóli. Þær eru nokkrar vísumar sem pabbi setti saman sér til gamans og man ég snemma eftir því að hann reyndi að kenna mér listina. „Botn- aðu þetta“ sagði hann og rétti mér fyrripart. Þá þýddi ekkert að vera með einhvern leirburð heldur skyldi notast við stuðla og höfuðstaði eins og almennilegum skáldum sæmdi. Pabbi var fróður og fylgdist ætíð vel með fréttum. Eftir að hann hætti að vinna, 76 ára að aldri, fór hann aftur að gefa sér tíma til að lesa bæk- ur, leysa krossgátur og fylgjast með hinum ýmsu þáttum í sjónvarpinu að ógleymdri knattspyi'nunni. Hann var ungur í anda og það sannaðist best með því að eitt sinn er ég lagði stund á amerískar nútímabókmenn- tir var kennarinn að ræða það hve bæði bækur og sjónvarpsþættir hafa breyst hratt með árunum og séu ekki fyrir hvem sem er að fylgjast með. „Reynið þið bara,“ sagði hann „að láta ömmu ykkar eða afa setjast fyrir framan þætti eins og Star Trek og spyrjið þau svo hvað þeim finnist". Eg gat strax bent honum á að pabba þætti mjög gaman að þessum þátt- um og fylgdist vel með þeim. Svona var pabbi. Pabba þótti vænt um fólkið sitt og vildi allt fyrir það gera. Hann var oft með ýmis verkefni í gangi, t.d. tók hann blómin min í endurhæfingu eins og við kölluðum það og lífgaði þau við þegar ég hafði gleymt að vökva þau og fékk ég þau stór og fal- leg til baka. Síðasta verkefnið hans var að mála krossana hjá foreldrum sínum, bróður og systursyni, einn og einn í einu og hafði hann farið í há- deginu þennan dag að sækja síðasta krossinn sem hann átti eftir að mála. Þessi umhyggja og athafnasemi var dæmigerð fyrir pabba. Það er margt sem glatast í tímans rás en minningamar hverfa seint. Ég lærði margt af pabba sem ég mun búa að alla ævi og er ég mjög þakklát fyrir þau ár sem ég átti með honum. Hvíl í friði pabbi minn. Anna Kapitola. Þá er Hannes bróðir minn búinn að kveðja þetta jarðneska líf. Marg- ar eru minningarnar sem koma upp í hugann þegar einhver okkur nákom- inn kveður. SÖLSTEINAR við Nýbýlaveg. Kópavogi Sími 564 4566 GARÐH EIMAR BLÓMABÚD • STHKKJAKBAKKA 6 V SÍMI 540 3320 ^ 23. desember 1948,3) Krisfján, f. 4. júlí 1954, kona hans er Guðríður Bachmann Júelsdóttir, f. 28. ágúst 1954 og eiga þau þrjú böm: a) Hanna María, f. 4. september 1979, unnusti hennar er Grímur Thor Bollason, f. 12. júní 1977, b) Guðni Þúr, f. 19. mars 1985, c) Berglind Gréta, f. 7. mars 1992, 4) Lára Elín Scheving, f. 16. júní 1956, 5) Þúrdís Bergljút, f. 28. febrúar 1959. Hannes gekk í Suðurkotsskúla sem seinna nefndist Brunnastaða- skúli. Fyrri hluta ævinnar stundaði hann sjúmennsku á vetrarvertíð- um og um árabil gerði hann út trillu í félagi með Símoni brúður sinum og frændum þeirra Rafni Símonarsyni og Guðbergi Aðal- steinssyni. Á sumrin stundaði hann vörubflaakstur á eigin bfl. Síðustu 33 starfsárin vann hann sem bfl- stjúri hjá Vogum hf. Samhliða því stundaði Hannes búskap eftir að faðir hans lést og fram til hins síð- asta. títför Hannesar Ingva fer fram frá Kálfaljarnarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég minnist bernskuáranna í Suð- urkoti, þá var margt brallað og ég, prakkarinn, var oft að gera usla í mínum eldri systkinum. Þegar prakkaraskapurinn beindist að Hannesi stoppaði hann mig af með því að segja: „Þetta þýðir ekkert fyr- ir þig, það var nefnilega ég sem þvoði af þér bleyjurnar og straujaði þær þegar þú varst litil“ Þegar Hannes kom í heimsókn eftir að mamma var komin til okkar, var ævinlega hlegið hressilega því bróðir minn var léttur í skapi og sagði ekki styggðaryrði við neinn. Trausti þakkar honum allar heimsóknirnar þegar hann var veik- ur. Hannes kom til hans til að vita hvernig hann hefði það og spjallaði við hann. Mánudaginn áður en hann kvaddi kom hann í heimsókn til mín og sagð- ist vera búinn að gera margar til- raunir til að ná mér heima. Ég er af- skaplega þakklát fyrir þessa heimsókn og fyrir allt sem við spjöll- uðum um. Eftir á finnst mér eins og hann hafi verið að kveðja mig. Ég minnist þess þegar á síðasta ári að hann sagði mér frá því þegar Diddi sonur hans bauð honum í út- sýnisflug yfir sveitina og Reykjan- esskagann, andlit hans ljómaði allt þegar hann talaði um þetta. Það var mikil sorg þegar Anna og Hannes misstu dóttur sína Grétu og tengdason þegar Sjöstjaman fórst á milli Færeyja og Islands. Þau skildu eftir hjá þeim lítinn sólargeisla, hana Varanleg minning er meitluð ístein. Íg S. HELGASONHF I STEINSMIDJA Skemmuvegi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@vortex.is Önnu Kapitolu, sem þau ólu upp og elskuðu sem eitt af sínum börnum. Bróðir minn, ekki efast ég um að það hefur verið vel tekið á móti þér, og ég trúi því að þú haldir áfram að vaka yfir allri þinni fjölskyldu með sama kærleik og áður. Ég sendi ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur, Anna mín, Grétar, Lára, Begga, Diddi, Gurra og börn og Anna Kapitola. Minnist þess að þið eruð rík af góðum minningum sem þið geymið í hjörtum ykkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Blessuð sé minning þín elsku bróðir. Hvíl í guðs friði. Þín systir og mágur, Ilrcfna og Trausti. Elskulegur afi okkar er dáinn. Afi var alltaf í góðu skapi, lífsglaður og hress. Það var alltaf svo gaman að fara í heimsókn til hans og ömmu á Ströndina. Það var eins og að koma út í sveit því þau áttu hunda, kindur og hænur. Á sumrin hjálpuðum við afa að slá og raka túnið og á vetuma renndum við okkur á sleða í hólunum. Á haust- in reyndum við svo að hjálpa honum að smala kindunum og fórum alltaf í réttir. Eftir það fórum við heim til ömmu og borðuðum yfir okkur af kökum og nammi og afi sótti kók út í skúr. Eftir að afi hætti að vinna fann hann sér ýmislegt að gera. Hann hafði mjög gaman af blómum og eyddi mörgum stundum niðri í gamla húsi við að gróðursetja og hlúa að plöntunum sínum. Hann var líka mikill knattspymuáhugamaður og fylgdist bæði með ensku og ítölsku deildinni. í desember lá hangikjöts- lyktin yfir hverfinu því þá var afi byrjaður að reykja jólahangikjötið sem var alltaf jafn gott hjá honum. Elsku afi, ég hélt að við fengjum að hafa þig lengur hjá okkur, þú barst það ekki með þér að vera orð- inn áttræður. En ég veit að þú vakir yfir okkur og vemdar þótt þú sért farinn frá okkur. Elsku amma, hug- ur okkar er hjá þér og megi góður guð styrkja þig í þessari miklu sorg. Legg ég nú bæði líf og önd, (júfiJesúsíþínahönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Hanna Marfa, Guðni Þúr ^ og Berglind Gréta. Að hryggjast og gleðjast, hér um fáa daga. Að heilsast og kveðjast, Það er lífsins saga. (P.J.B.) Þessar Ijóðlínur vora mér ofarlega í huga er ég upplifði það er hann Hannes frændi minn í Sætúni kvaddi þetta jarðlíf og það er búið að vera skrítið síðustu daga að átta sig á því að hann sé allur. En svona er nú einu i- sinni lífið, okkur sem eftir stöndum finnst skrítið hvað stutt er bilið á milli lífs og dauða, og fyrir þá sem kveðja þetta jarðlíf hlýtur það að vera gott að mega fara svona snögg- lega eins og hann frændi minn gerði, þar sem hann var úti á bletti að slá. Þetta hefur öragglega verið eins og hann hefði óskað sér, en fyrir okkur sem eftir stöndum, og þá sérstaklega hans nánustu, tekur það sinn tíma að átta sig á því sem gerst hefur. Ég ætla ekki að skrifa langt mál um lífshlaup hans en ég vil þakka honum samfylgdina í gegnum árin, hann var góður frændi og nágranni. Guð gefi honum góða heimkomu, ég veit að vel hefur verið tekið á mótfy_ honum. Kallið er komið, kominernústundm, vinaskilnaðarviðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, Friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt GekkstþúmeðGuði, Guð þérnúfylgi. Hans dýrðarhnoss þú hfjóta skalt (V. Briem.) Elsku Anna og fjölskylda og systkini hins látna, ég og fjölskylda mín sendum ykkur öllum okkar inni- legustu samúðarkveðjur með ósk um að Guð gefi ykkur öllum styrk í sorg- inni. Bryndís Rafnsdúttir. Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlfð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. I Sverrir I Einarsson I útfararstjóri, f fí 0sími 896 8242 Baldur Sverrir Frederiksen Olsen útfararstjóri, útfararstjóri. ^wK_ÆII sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.