Morgunblaðið - 29.06.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 11
FRÉTTIR
Starfsmaður félagsmiðstöðvar sem
ákærður var fyrir kynferðisafbrot
Dæmdur í níu
mánaða skilorðs-
bundið fangelsi
Lúðrasveit Hafnarfjarðar í Þýskalandi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur úrskurðað 27 ára gamlan mann í
níu mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
afbrot gagnvart fjórum heymarlaus-
um og heymarskertum stúlkum,
nemendum í Vesturhlíðarskóla í
Reykjavík. Fullnustu dómsins er hins
vegar frestað, skv. úrskurði dómsins,
og mun hún falla niður að þremur ár-
um liðnum haldi maðurinn almennt
skilorð skv. 57. gr. almennra hegn-
ingai-laga.
Maðurinn var starfsmaður í félags-
miðstöð Vesturhlíðarskóla frá árinu
1994 til ársins 1998. Var hann ákærð-
ur fyrir ýmis kynferðisafbrot gagn-
vart sex stúlkum sem áttu að hafa
gerst annars vegar á meðan maður-
inn starfaði í félagsmiðstöðinni og
hins vegar þegar hann var sjálíúr
nemandi í Vesturhlíðarskóla ái'in
1989 og 1990.
Maðurinn játaði hluta sakargifta
en neitaði hluta þeirra og taldi dóm-
urinn að framburður hans hefði verið
stöðugur um öll atriði sem máli
skiptu. Vísaði Héraðsdómur því írá
dómi skaða- og miskabótakröfum
tveggja stúlknanna, enda neitaði
maðurinn að hafa brotið gegn þeim
og þótti ósannað að hann hefði framið
þau brot sem honum voru gefin að
sök gagnvart þeim. Hinum fjórum
stúlkunum var maðurinn dæmdur til
að greiða á bilinu 150 til 250 þúsund
krónur, skv. úrskurði Héraðsdóms,
auk þess sem hann skal greiða helm-
ing alls sakarkostnaðar.
Fram kemur í úrskurðinum að rétt
þyki, með hliðsjón af því að maðurinn
Einn sækir um
Raufarhöfn
EIN umsókn barst um embætti
prests á Raufarhöfn, frá Örnu Ýri
Sigurðardóttur guðfræðingi. Um-
sóknarfrestur rann út um miðjan
mánuð og er búist við að valnefnd
komi saman í næstu viku til að fjalla
um umsókn hennar.
Nýverið var séra Stína Gísladóttir
skipuð sóknarprestur í Holtspresta-
kalli í Önundarfirði og séra Solveig
Lára Guðmundsdóttii' var skipuð
sóknarprestur í Möðruvallapresta-
kalli í Eyjafu'ði. Báðar eru skipaðar
frá næstu mánaðamótum til fimm
ára. Séra Stína þjónaði áður Bólstað-
arhlíðarprestakalli í Húnavatnspró-
fastsdæmi og séra Solveig Lára
Seltjarnarnesprestakalli. Gert er ráð
fyrir að þau verði auglýst laus til um-
sóknar á næstunni en dráttur getur
þó orðið með Bólstaðarhlíðarpresta-
kall þar sem hugmyndir eru uppi um
breytingar sem nú eru til athugunar
hjá heimamönnum.
Umsóknarfrestur um Digranes-
prestakall í Kópavogi rennur út um
næstu mánaðamót og höfðu í gær
þegar borist þrjár umsóknii- til Bisk-
upsstofu.
-----------------
Sex tilboð í
vegarkafla á
Vestfjörðum
SEX tilboð bárust Vegagerðinni í
verkefni á Vestfjarðavegi, kafla milli
Vattarness og Vaðalness á Barða-
strönd. Kostnaðaráætlun Vegagerð-
arinnar var 55,9 miHjónir króna og
voru tvö tilboðanna rétt undir áætl-
uninni en hin fjögur nokkru yfir.
Lægsta tilboð átti Berglín ehf. í
Stykkishólmi, 52,7 milljónir, og til-
boð Bergbrots ehf. í Kópavogi var
næstlægst, 55,5 milljónir króna. Tvö
hæstu tilboðin voru uppá 64 og 80
milljónir króna.
var sjálfur vart kominn af bai'nsaldri
þegar hann framdi fyrsta og alvarleg-
asta brotið, að ákveða að fresta fulln-
ustu níu mánaða fangelsisdóms, og að
refsingin falli niður að liðnum þremur
árum haldi hann almennt skilorð.
Með lög-
regluna á
hælunum
Lúðrasveit Hafnarfjarðar kom ný-
lega heim úr tónleikaferð til
tveggja borga í Þýskalandi. Hljóm-
sveitin lék meðal annars við opnun
á nýjum bjórgarði í Múnchen en
slíkar opnanir þykja mikið frétta-
efni að sögn Stefáns Ómars Jakobs-
sonar stjórnanda hljómsveitarinn-
ar. Að loknum tónleikum í
Stuttgart á vegum þýsk-íslenska
menningarfélagsins dró til tfðinda
þegar ákveðið var að leika íslensk
lög við styttu eftir Bertel Thor-
valdsen í miðborginni en bannað er
að leika án leyfis á götum borgar-
innar. „Lögreglan var fast á hælum
okkar og ætlaði að stöðva leikinn
en okkur tókst að leika þrjú lög áð-
ur en hún kom og vorum við að setj-
ast inn í rútuna þegar hana bar að,“
sagði Stefán Ómar.