Morgunblaðið - 29.06.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 1 5
Örkinni hans
Nóa lokað
Vesturbær
EIGENDUR Arkarinnar
hans Nóa, einkarekins leik-
skóla í Vesturbænum, hafa
tekið þá ákvörðun að loka
skólanum frá og með 1. sept-
ember.
Foreldrum barna við leik-
skólann barst tilkynning þess
efnis hinn 29. maí síðastliðinn.
Foreldrafélag Arkarinnar
hans Nóa brást skjótt við og
ritaði Leikskólum Reykjavík-
ur bréf fyrir hönd áhyggju-
fullra foreldra dagsett 30.
maí.
I bréfínu er spurt hvað gera
eigi við þennan fjölda barna.
Óttast foreldrar að Leikskól-
ar Reykjavíkur geti ekki vist-
að hann strax í haust.
Hulda Steingrímsdóttir
formaður foreldrafélags leik-
skólans segir foreldra ekki
hafa grunað að loka ætti skól-
anum þegar tilkynningin
barst. Fólk brást þó skjótt við
og sóttu margir um á öðrum
leikskólum. Fyrirvarinn var
skammur því hjá Leikskólum
Reykjavíkur var búið að stað-
festa vistir fyrir næsta vetur.
Foreldrar barna á Örkinni
hans Nóa sem ekki hafa feng-
ið leikskólapláss eru því í
mjög erfiðri aðstöðu að sögn
Huldu.
Fundur var haldinn með
foreldrum og fulltrúum Leik-
skóla Reykjavíkur þar sem
áhyggjur forelch-a voru rædd-
ar. Þar kom fram að flestum
bömunum mun verða fundið
pláss annars staðar.
Að sögn Bergs Felixsonar,
framkvæmdastjóra Leikskóla
Reykjavíkur, hefur einhverj-
um foreldrum nú þegar borist
staðfesting um leikskólapláss
og telur hann sennilegt að
hægt verði að fínna flestum
bömunum pláss hjó Leikskól-
um Reykjavíkur.
1,7% hækkun raf-
magnsreiknings
Reykjavík
Borgarráð samþykkti í fyrra-
dag að hækka gjaldskrá raf-
magns frá Orkuveitu Reykja-
víkur um 1,7% frá 1. júlí en
gjaldskráin hækkaði um 2,9%
um síðustu mánaðamót.
Hækkunin síðasta mánuð
nemur því samtals 4,8%.
Hækkunin nú kemur í
framhaldi af tilkynningu
Landsvirkjunar frá 9. júní um
2,9% hækkun gjaldskrár fyrii-
heildsöluverð á raforku frá og
með 1. júlí.
Borgin samþykkti 2,9%
hækkun orkugjalda vegna frá
1. júní sl. vegna ýmissa kostn-
aðarhækkana sem fyrirtækið
hafði þá orðið fyrir frá 3%
hækkun rafmagns og 4,6%
hækkun hitaveitu þann 1. júlí
1999.
Þegar borgarráð ákvað
2,9% hækkun um síðustu
mánaðamót lá ákvörðun
Landsvirkjunar um hærra
heildsöluverð raforku ekki
fyrir en hún var tilkynnt þann
9. þessa mánaðar.
Morgunblaðið/Sverrir
Verið er að vinna við að koma upp umferðarljdsum á horni
Hagamels og Hofsvallagötu.
Umferðarljós í
Vesturbænum
Vesturbær
NÚ standa yfir framkvæmdir
við gatnamót Hofsvallagötu
og Hagamels. Verið er að
setja upp umferðarljós, sem
tekin verða í notkun í septem-
ber.
Astæða þess að ljósunum
var valinn staður þama er að
þeim fylgir aukið umferðar-
öryggi.
Götuljós voru við gatna-
mótin. Nú stendur til að taka
niður þau gönguljós sem eru
of nálægt hornum, að sögn
Dagbjarts Sigurbrandssonar
hjá gatnamálstjóra. Þegar
ökumenn koma að slíkum
stöðum eiga þeir til að taka
beygju án þess að átta sig á að
einhver kynni að vera að
ganga yfir götuna. Þeir sjá
gjarnan illa á ljósin. Slys hafa
orðið við slíkar aðstæður.
Umferðaljósin verða hálf-
umferðarstýrð, segir Dag-
bjartur. Þau verða skipulögð
þannig að grænt ljós er alltaf
á Hofsvallargötunni þar til
bfll kemur að og kallar á ljós
eða gangandi vegfaranda ber
að. Aukið umferðaröryggi
felst einnig í því að fleiri
gönguleiðir verða yfir götuna,
en ekki einungis ein eins og
áður var.
Sambærileg ljós á að setja
upp á þremur öðrum stöðum í
borginni. Við Standveg-Halls-
veg, Bústaðaveg-Ósland og
Mýrargötu-Ægisgötu.
Ljósin em í pöntun og
koma til landsins í ágúst. Þau
ættu því að komast í gagnið í
september.
5 og 6 ára böm læra um umferðina í heimsókn í Umferðarskólann
Alexander Þórólfsson og Emilía Sara Ólafsdóttir höfðu lært ýmislegt í Umferðarskólanum og miðluðu af visku sinni.
Hjálmar og hjólreiðar
Vesturbær
SENN lýkur hinum árlegu
námskeiðum umferðarskóla
5 og 6 ára barna í Reykjavík.
I gær fór fram siðari hluti
námskeiðs í Hagaskóla.
Morgunblaðið leit inn og
fylgdist með áhugasömum
nemendunum.
Umferðarskólinn er sam-
starfsverkefni Umferðar-
ráðs, lögreglu og sveitarfé-
laga. Námskeiðin eru haldin
víða um land. Hvert nám-
skeið stendur klukkutíma í
senn, tvo daga í röð.
Markmið skólans er að
stuðla að auknu öryggi
barna og réttum viðbrögðum
í umferðinni. Athygli barna
er sérstaklega vakin á um-
ferðarreglunum. Með efnis-
vali og kennsluaðferðum
sem hæfa þroska barnanna
er lögð áhersla á reglur um
öryggisbúnað fyrir börn í
bflum, reglur fyrir gangandi
fólk, hjólreiðar og hjálma og
ýmislegt fleira sem aukið
getur færni og öryggi barna
í umferð. Foreldrar eru
einnig hvattir til að taka
þátt í Umferðarskólanum til
þess að námskeiðið skili sem
bestum árangri.
Þegar Morgunblaðið bar
að garði fóru fram líflegar
umræður um hjólreiðafólk
og umferð. Er krökkunum
var sýnd mynd af hjólreiðar-
manni án hjálms sem brun-
aði um á bflastæði ætlaði allt
um koll að keyra í Hagaskól-
anum. Börnin voru augljós-
lega með allt á hreinu og
áttu ekki erfitt með að rök-
Morgunblaðið/Ásdís
Nemendur Umferðarskólans fylgjast með kennslunni, full-
ir einbeitingar. I bakgrunni má sjá að fjöldi foreldra sótti
einnig námskeiðið.
styðja hvað var athugavert
við hegðan unga hjólreiða-
mannsins.
Alexander Þórólfsson og
Emilía Sara Ólafsdóttir,
nemendur Umferðarskól-
ans, fræddu blaðamann
Morgunblaðsins um hjól-
reiðar og hjálmanotkun.
Alltaf skal nota hjálm þegar
hjólað er, fullyrtu krakk-
arnir, en muna verður þó að
taka hann af sér áður en
haldið er á leikvöllinn. Al-
exander sagði frá vini sínum
sem hjólað hafði yfir götu,
hjálmlaus. Sá hefði sannar-
lega þurft á leiðbeiningum
Umferðarskólans að halda.
Þátttaka í Umferðarskól-
anum í ár hefur verið mjög
góð, að sögn Maríu Finns-
dóttur, fræðslufulltrúa Um-
ferðarráðs. Fyrri dag nám-
skeiðsins í Hagaskóla höfðu
105 börn tekið þátt í nám-
skeiðinu.
Umferðarskólinn hefur
verið starfræktur víða um
land í maí og júní. Á höfuð-
borgarsvæðinu eru einungis
eftir námskeið 29. og 30.
júní. í ágúst verður Umferð-
arskólinn hins vegar aftur á
ferðinni og þá verður komið
við bæði á Suður- og Norð-
urlandi.
Hagsmunaaðilar í miðborg ekki á einu máli um bfllausa laugardaga
Þróunarfélag miðborgarinn-
ar jákvætt gagnvart málinu
aðgerð af þessu tagi gæti
þjónað hagsmunum rekstrar-
aðila en kvaðst þó hafa þann
íyrirvara á að hann hefði ekki
upplýsingar um hvemig borg-
in hygðist útfæra hugmynd-
ina. „I sjálfu sér getur það
verið ágætt einhvem laugai’-
dag að loka Laugavegi fyrir
bflum og hafa hann sem
göngugötu, ég hef ekkert á
móti því, en frumkvæðið á að
koma frá beinum hagsmuna-
aðilum en ekki borgarkerf-
inu,“ sagði hann
„Mér list afskaplega vel á
þetta,“ sagði Edda Sverris-
dóttir, kaupmaður í Flex.
„Það hefur gefist afskaplega
vel að hafa þennan hátt á
löngum laugardögum; bæði
viðskiptavinir og kaupmenn
hafa verið ánægðir. Það gef-
ur allt annan svip á miðborg-
ina að vera bfllaus á laugar-
dögum.“
Miðborgin
JAKOB H. Magnússon, for-
maður Þróunarfélags mið-
borgarinnar, segir félagið já-
kvætt gagnvart tillögum um
bíllausa laugardaga í mið-
borg Reykjavíkur í júlí og
ágúst en miðborgarstjóm
hefur óskað eftfr heimild
borgarráðs til þeirrar að-
gerðar í samvinnu við hags-
munaaðila. Edda Sverris-
dóttir, kaupmaður í Flex við
Bankastræti, kveðst fylgj-
andi hugmyndinni. Gunnar
Guðjónsson, sem rekur Gler-
augnamiðstöðina við Lauga-
veg, segir að ekki hafi nægi-
legt samráð verið haft við
hagsmunaaðila og eðlilegt
hefði verið að frumkvæði að
aðgerð sem þessari kæmi frá
þeim en ekki borginni.
Jakob sagði að Þróunarfé-
lag miðborgarinnar hefði
rætt þessa tillögu á fundum
og væri jákvætt gagnvart því
að láta reyna á þessa hug-
mynd. „Þetta virðist vera
þróunin í miðborgum borga
af svipaðri stærð og Reykja-
vík. Við sjáum ekkert því til
fyrirstöðu að prófa þetta; ef
maður prófar ekkert og reyn-
ir ekkert þá gerist ekkert."
Jakob sagði að verið væri
að kanna viðbrögð verslunar-
eigenda og annarra rekstrar-
aðila við hugmyndinni. „Okk-
ur heyrist að flestir séu á
jákvæðum nótum gagnvart
þessu en eins og gengur eru
einhverjir á móti,“ sagði
hann.
Undrandi á
vinnubrögðum
Gunnai’ Guðjónsson sagðist
undrandi á vinnubrögðum
borgarinnar að taka fyrst
ákvarðanir af þessu tagi og
ræða síðan við hagsmunaaðila
í stað þess að láta málin ganga
á hinn veginn fyrir sig. „En ég
yil ekki útiloka eitt eða neitt.
Eg get séð þetta fyrir mér á
góðum sumardegi ef búið er
að undirbúa þetta vel,“ sagði
hann. Gunnar sagði að versl-
unarmenn við Laugaveg
legðu þó áherslu á að fólk
kæmist til þeirra til að eiga
viðskipti. Hann kvaðst hafa
efasemdir um þá „ftigurgala-
stefnu borgarinnar að gera
miðbæinn bíllausan“ og hvetja
fólk til að taka strætisvagna
þangað en ekkert annað og
kvaðst skynja enduróm þeirr-
ar stefnu í þessum áformum
eins og þau bæri nú að; þau
kæmu fram að frumkvæði
borgarkerfisins og án teljandi
samráðs við hagsmunaaðila
væri heimildar aflað frá borg-
arráði. Gunnar sagðist því fyr-
h'fram hafa efasemdir um að