Morgunblaðið - 29.06.2000, Side 16

Morgunblaðið - 29.06.2000, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Skátafélagið Klakkur og Akureyrarbær Nýtt tjaldsvæði að Hömrum tekið í notkun NÝTT tjaldsvæði og útilífsmiðstöð í landi Hamra skammt norðan við Kjarnaskóg verður tekið í notkun í kvöld, fimmtudagskvöld, með því að skátamót Skátasambands Norður- lands verður sett þar, en um 300 manns taka þátt í því. Fyrsti áfangi svæðisins er nú til- búinn og er það um 10 þúsund fer- metra svæði. Gert er ráð fyrir að fyrstu almennu gestimir á hið nýja tjaldsvæði komi að loknu skátamóti í næstu viku, en að sögn Tryggva Mar- inóssonar umhverfisstjóra Akureyr- arbæjar er helgin þar á eftir, þegar yfir standa knattspymumót eklri og yngri spilara, yfirleitt sú stærsta á tjaldsvæðum á Akureyri. Tjaldsvæðið er samvinnuverkefni Skátafélagsins Klakks og Akureyrar- bæjar og rekur skátafélagið svæðið samkvæmt samningi við bæinn. Verið var að leggja lokahönd á framkvæmdir á svæðinu í gær og var mikill fjöldi fólks þar að störfum, en ærin verkefni. Meðal annars var verið að koma þjónustumiðstöð í gagnið, en þegar fram líða stundh- er áformað að það hús verði nýtt undir aðstöðu starfsmanna og sem fræðslustofa í umhverfismálum auk þess sem nýtt hús verði reist fyrir þjónustumiðstöð- ina. Þá sagði Tryggvi að síðar í sumar verði unnið við að útbúa allt að tíu flatir undir tjaldstæði en hver þeirra er 4-6 þúsund fermetrar að stærð. Þegar eru þrjár flatir tilbúnar og sagði Tryggvi að áformað væri að planta skógi á svæðið og skipta því þannig niður í h'til skógarrjóður. Gönguferðir á Súlur í boði Á svæðinu verður boðið upp á skipulagða dagskrá og ýmiss konar afþreyingu. I sumar hafa þannig verið skipulagðar tvær til þrjár gönguferð- ir á Súlur í viku hverri með leiðsögn og einnig verður boðið upp á göngu- ferðir um Akureyrarbæ með leið- sögumanni. Útilífsskóli Klakks hefur frá árinu 1997 verið starfandi á Hömnim og geta gestir tjaldstæðis- ins tekið þátt í dagskrá á vegum skól- ans að einhverju marki. Á svæðinu hefur verið útbúin tjörn en auk þess sem hægt er að busla í henni munu bátar verða til taks. Önn- ur stærri tjörn neðar á svæðinu verð- ur gerð síðar. Frábært útsýni af Krosskletti Hamrar eru undir hrikalegu kletta- belti sem aðskilur Eyrarlandsháls og Súlur frá láglendinu við botn Eyja- fjarðar, en það gengur undir nafiiinu Lönguklettar og Hamrahamrar og eru þeir síðamefndu beint upp af hinu nýja tjaldsvæði. Að sögn Tryggva er áformað að gera göngustíg þar upp að svonefndum Krosskletti sem er í um 200 metra hæð en þaðan er gott út- sýni yfir Eyjafjörðinn. Morgunblaðið/Rúnar Pór Helgi, Heiðar, Atli, Freyja, Jón Óskar og Gísli hafa verið að störfum við undirbúning hins nýja tjaldstæðis að Hömrum á vegum sumarvinnu fatl- aðra og hafa að sögn verið afar dugleg og vinnufús. Þarna sést yfir fyrsta áfanga svæðisins og heim að þjónustuhúsinu. Morgunblaðið/Rúnar Þór Þeim leiddist ekki krökkunum í unglingavinnunni að skella sér út í tjörnina sem útbúin hefur verið á tjaldstæðinu en þar eiga eflaust marg- ir gestanna eftir að busla sfðar í sumar. Ungnr maður dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra Veittist að sjúkra- flutninga- manni ÞRÍTUGUR karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í 40 daga fangelsi, skilorðs- bundið til tveggja ára, fyrir árás á sjúkraflutningamann á Akureyri. Þá var honum gert að greiða þeim sem hann réðst á um 111 þúsund krónur í bætur með vöxtum auk þess að greiða sakarkostnað. Maðurinn var kærður fyrir lík- amsárás, með því að hafa nótt eina í september á liðnu ári ráðist á sjúkra- flutningamann í aðkomu sjúkrabíla á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og slegið hann í andlitið fyrir utan húsið með þeim afleiðing- um að hann hlaut mikla blæðingu neðan við vinstra auga og brot í kinn- beinsboga vinstra megin og merki um sprungu í augnbotni. Lögmaður sjúkraflutningamanns- ins gerði bótakröfu fyrir hans hönd að upphæð tæplega 300 þúsund krónur. Málsatvik eru þau að óskað var eftir sjúkrabifreið að skemmtistaðn- um Sjallanum umrædda nótt vegna stúlku sem átti í öndunarerfiðleikum og var farið með hana á slysadeild FSA. Fór maðurinn, sem er unnusti stúlkunnar, með í sjúkrabifreiðinni. Skömmu síðar réðst maðurinn, sem var allölvaður, að sjúkraflutninga- manninum og veitti honum áður- nefnda áverka. Fjöldi manns var við opnun Flugsafnsins. Morgunblaðið/Kristján Flugsafnið á Akureyri opnað um síðastliðna helgi Heitur fímmtu- dagur í Deiglunni Blúsmenn Andreu HLJÓMSVEITIN Blúsmenn Andreu mun sjá um sveifluhitann á fyrsta Tuborgdjassi á fyrsta heita fimmtudeginum á Listasumri á Akureyri og hefjast tónleikarnir kl. 21.30. í Deiglunni. Það er Jazz- klúbbur Akureyrar sem stendur á bak við þessa tónleika, sem fyrr. Hljómsveitin Bluesmenn Ándreu hefur glatt sveifluvini síðan árið 1990. Sveitina skipar einvalalið, sem auk Andreu hafa lengst af verið þeir: Guðmundur Pétursson á gítar, Einar Rúnarsson á hamm- ondorgel, Jóhann Hjörleifsson á trommur og Haraldur Þorsteins- son á bassa. Hljómsveitin hefur gefið út einn hljómdisk sem kom út árið 1998 og er þar að finna þverskurð af þeirri tónlist sem hljómsveitin býður upp á sem er sambland af blues, soul og jazzi. Aðgangur verður ókeypis á tón- leikana, sem þakka ber þeim fyrir- tækjum sem styrkja og kosta þessa starfsemi. Þau eru: Ölgerð Egils Skallagrímssonar, Karolína- restaurant, Akureyrarbær, KEA, Sparisjóður Norðlendinga, VSÓ- ráðgjöf á Akureyri og Kristján Víkingsson. DansWjómsveítín SÍN Föstudags- og laugardagskvöld FLUGSAFNIÐ á Akureyri var opn- að við hátíðlega athöfn um helgina. Það var forseti Alþingis, Halldór Blöndal, sem opnaði safnið, sem er staðsett í flugskýli á Akureyrarflug- velli til bráðabirgða. Að sögn Krist- jáns Víkingssonar, eins af meðlimum Flugklúbbs Akureyrar, þá er stefnan að finna í framtíðinni varanlegt hús- næði undir safnið. Flugminjar á ísl- andi hafa verið á hrakhólum lengi, að sögn Kristjáns, og því mikilvægt að halda þeim til haga, en á Akureyri er til stór hluti hinna gömlu og uppruna- legu flugvéla. Minjar á hrakhólum „Safnið hefur mikla þýðingu fyrir flugsögu á íslandi, því að flugminjar hafa verið á hrakhólum í gegnum tíð- Mikið til af flugminjum á Akureyri ina og mikið af þeim skemmst. Reyndar er flugsafn á Hnjóti sem hefur einbeitt sér að munum tengd- um flugi, en við erum aftur á móti með mikið af flugvélum til sýningar, sagði Kristján. Hann sagði að slík söfn væru vanalega sett upp þar sem húsnæði væri fyrir hendi, því að það væri afar dýrt að geyma flugvélar. Flugsafninu hefði áskotnast flugskýli á Akureyrarflugvelli og því hefði sú ákvörðun verið tekin að fara út í stofnun safnsins. Það eru flugklúbb- arnir á Akureyri sem standa að safn- inu en einnig hafa komið að því Flug- sögufélagið í Reykjavík og fulltrúar flugfélaganna á landinu. Stefnt að varanlegu safni Kristján sagði að á Akureyri hefði verið samfellt flug síðan á tímum seinna stríðs. Áhugamannaflug hefði líka staðið hér föstum fótum og nefndi Kristján meðal annars Svif- flugufélagið en margir af þeim sem væru framarlegu í flugheiminum í dag hefðu fengið sína fyrstu flug- reynslu hjá Svifflugufélaginu. „Það er einnig gaman að geta þess að gamla svifflugan sem við erum með á sýn- ingunni er eitt elsta flugtæki hér á landinu sem er til í sýningarhæfu ást- andi,“ sagði Kristján. Morgunblaðið/Kristján Ilalldór Blöndal, forseti Alþing- is, opnar formlega nýtt Flugsafn á Akureyri. Kristján sagði mikinn áhuga á því að koma upp stærra og varanlegra safni undir þá muni sem til eru. „í dag er verið að gera upp nokkrar gamlar flugvélar hér á Ákureyri sem hægt verður að sýna seinna. Einnig er til mikið af gömlum ljósmyndum sem Eðvarð Sigurgeirsson tók hér á árum áður. Við erum með nokkrar á sýn- ingunni núna en gaman væri að geta gert þeim betri skil því að þær eru með bestu myndum flugsögunnar hér á landi,“ sagði Kristján. Færanlegt safn Ætlunin er að hafa safnið opið á laugardögum ogsunnudögum en ekki hefur verið tekin ákvörðun hver opn- unartíminn verður. Að sögn Kristjáns verður það auglýst betur síður. Einn- ig nefndi hann að hugmyndir væru uppi um að Flugklúbbur Akureyrar byði gestum safnsins upp á útsýnis- flug; að safnið yrði lifandi. Aðspurður hvort að til greina kæmi að fá muni annars staðar af landinu, sagði Krist- ján að allt kæmi til greina í þeim efn- um. „Þess má geta að allar vélamar á sýningunni eru í flughæfu ástandi, þannig að hægt væri að hafa þetta færanlegt safn. Það mætti þá fljúga þeim til annarra staða og skiptast á munum,“ sagði Kristján.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.