Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hafmeyja
í norsk-
um firði
ísraelar hóta valdi lýsi
Palestínumenn sjálfstæði
Friðarráðstefna í Camp David sögð
tímasóun að svo komnu máli
Jerúsalem, Ramallah. AFP, AP.
NÁINN ráðgjafi Ehuds Baraks,
forsætisráðherra ísraels, gaf í skyn
í gær að Israelar myndu beita valdi
ef Palestínumenn lýstu einhliða yfir
stofnun sjálfstæðs ríkis, líkt og
Yasser Arafat, forseti heimastjórn-
ar þeirra, hefur sagst munu gera.
Ráðgjafinn, Danny Yatom, sagði í
útvarpsviðtali að ef Arafat lýsti yfir
sjálfstæði Palestínu yrðu Israelar
„að bregðast skjótt við. Þetta getur
farið úr böndunum. Israel mun bera
sigur úr býtum, á því er ekki vafi, en
það mun verða okkur dýrkeypt".
Arafat sagði á sunnudaginn að
einungis kynnu að vera nokkrar vik-
ur þangað til lýst yrði yfir stofnun
palestínsks ríkis. Landamæri Isra-
els og ríkis Palestínumanna eru
meðal þess sem rætt er á samn-
ingafundum er nú standa, en mikið
ber í milli um hvar landamærin
skuli liggja.
Að sögn palestínsks embættis-
manns í gær hefur Arafat hafnað til-
lögu Bandaríkjamanna um að mæta
til friðarráðstefnu í Bandaríkjunum
ásamt Ehud Barak, forsætisráð-
herra Israels, um miðjan næsta
mánuð. Arafat er þó ekki andvígur
því að slík ráðstefna verði haldin
undir forsæti Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur verið í
Mið-Austurlöndum og rætt við Bar-
ak og Arafat um möguleikana á að
halda friðarráðstefnu í Camp David
í Maryland í Bandaríkjunum, þar
sem er sumarbústaður Bandaríkja-
forseta. Þar komust leiðtogar ísra-
els og Egyptalands að sögulegu
friðarsamkomulagi 1979, sem var
fyrsta slíka samkomulagið sem
•Israelar gerðu við arabaríki.
Albrigt heldur aftur til Banda-
ríkjanna í dag og mun gefa Clinton
skýrslu um för sína og er þess
vænst að forsetinn tilkynni í dag
hvort og þá hvenær friðarráðstefn-
an verður haldin. Barak sagði eftir
fund með Albright í gær að það væri
nú undir Bandaríkjaforseta komið
hvort efnt yrði til friðarráðstefnu.
Nú standa yfir samningaviðræður
sem miða að því að leysa helstu
deiluefnin er standa í vegi fyrir svo-
nefndu „lokasamkomulagi“ fyrir
botni Miðjarðarhafs, þ.ám. um
stöðu Jerúsalem, örlög palestínskra
flóttamanna og landamæri.
Deiluaðilar hafa þegar ákveðið að
endanlegir samningar skuli hafa
náðst 13. september nk. Háttsettur
ráðgjafi Yassers Arafats, forseta
heimastjórnar Palestínumanna,
sagði að friðarráðstefna yrði tíma-
sóun ef ekki næðist fyrst árangur í
þeim viðræðum við Israela sem nú
standa yfir. Barak er aftur á móti
ósammála þessu, og telur að næsta
skref í friðarumleitunum eigi að
verða friðarráðstefna æðstu leið-
toga.
„Arafat forseti er ekki andvígur
því að ráðstefna verði haldin, en
hann vill að samningamenn nái íyrst
sáttum um sameiginlegan grundvöll
til þess að leiðtogarnir geti á ráð-
stefnunni brúað bilið og tekið
ákvarðanir," sagði ráðgjafinn, Nabil
Abu Rdainah. Arafat óttist að á ráð-
stefnu í Camp David myndu Banda-
ríkjamenn taka málstað Israela í
mikilvægum málum og að hann yrði
neyddur til tilslakana.
Danny Yatom, æðsti öryggisráð-
gjafi Baraks, sagði að ísraelar og
Palestínumenn stæðu nú á kross-
götum þar sem taka yrði erfiðar en
sögulegar ákvarðanir til þess að
binda enda á áratuga deilur.
Osló. Reuters.
LJÓSHÆRÐ, berbrjósta hafmeyja
sem tyllir sér á klett í Lyse-
firðinum í Vestur-Noregi hefur
vakið mikla athygli ferðamanna á
þessum slóðum.
„Einu sinni hoppaði maður fyr-
ir borð og synti yfir til mín,“
sagði Line Oxnevad, tveggja
barna móðir, í viðt.ali við Reut-
ers-fréttastofuna í gær um sitt
óhefðbundna starf sem atvinnu
sírena. „Flestir horfa þó bara og
klappa."
Þegar hún er í hlutverki haf-
meyjunnar situr Öxnevad nakin á
klettinum ef frá er skilin ljós hár-
kolla og sérútbúinn sporður. Boð-
ið hefur verið upp á fimm slíkar
uppákomur í Lyse-firði sl. þrjú
sumur fyrir ferðamenn sem leið
eiga um þessar slóðir. Að sögn
Öxnevad getur hún þó ekki sung-
ið líkt og hinar sögufrægu síren-
ur sem tældu sjómenn með söng
sfnum. Henni fannst þó ekki frá-
leitt að kippa með sér segul-
bandstækinu fyrir næstu setu.
Bandarískir háskólanemar
Söguþekkingu
ábötavant
Washington. AP.
SÖGUÞEKKINGU Bandaríkja-
manna virðist vera nokkuð ábóta-
vant samkvæmt nýlegri könnun sem
gerð var meðal nema í framhalds-
námi við virta bandaríska háskóla.
Hátt í 80% aðspurðra hlutu D eða F í
einkunn á prófi um bandaríska sögu
sem fyrir þá var lagt.
Könnunin, sem var framkvæmd af
Conneeticut-háskóla, leiddi í ljós að
þekking nemenda á samtíma afþrey-
ingarefni virtist mun meiri en sögu-
þekking þeirra. Til að mynda virtust
99% vita að Beavis og Butthead
væru teiknimyndapersónur á meðan
einungis 23% vissu að James Madi-
son hefði verið einn aðal frumkvöðull
bandarísku stjórnarskrárinnar.
„Þessu fólki er leyft að útskrifast án
nokkurrar þekkingar á fortíðinni,"
sagði Jerry Martin, einn forsvars-
manna könnunarinnar.
Martin hefur, ásamt hópi manna,
undanfarið unnið að því að reyna að
fá bandaríska háskóla til að leggja
aukna áherslu á sögukennslu. Svo
virðist sem honum muni nú verða
eitthvað ágengt því hópur þing-
manna greindi frá því á þriðjudag að
þeir hefðu hug á að kynna nú síðar í
vikunni þingsályktunartillögu þar
sem yfirvöld í hverju ríki, stjórnir
háskóla og stuðningsmenn þeirra
eru hvattir til að gera auknar kröfur
um söguþekkingu á öllum stigum
menntakerfisins.
Urtak þeirra sem þátt tóku í könn-
uninni var valið af handahófi meðal
nemenda 55 virtra bandarískra há-
skóla, m.a. Hai-vard og Princeton.
Prófið, sem fyrir þá var lagt símleið-
is, samanstóð af 34 söguspurningun-
um á borð við þær sem lagðar eru
fyrir menntaskólanema.
Reuters
Vantrauststillaga borin upp á rikisstjórn Berties Ahern á írlandi
Líklegft að stj órnin
haldi naumlega velli
Irska þingið átti að fara í sumarfrí næstkomandi
föstudag. Nú gæti hins vegar svo farið að ríkis-
stjórn Berties Ahern yrði send í varanlegt frí,
Davíð Logi Sigurðsson rýnir í sviptingar sem átt
hafa sér stað í írskum stjórnmálum.
VANTRAUSTSTILLAGA á írsku
ríkisstjórnina var í gær borin upp í
írska þinginu og verður hún tekin
til atkvæðagreiðslu í dag eða á
föstudag en þá hafði verið gert ráð
fyrir að þingið færi í sumarfrí.
Tveir stærstu stjórnarandstöðu-
flokkarnir hyggjast greiða atkvæði
með tillögunni en stjómmálaskýr-
endur sögðu í gær líklegt að stjóm-
in myndi standa áhlaupið naumlega
af sér fyrir tilstilli nokkurra óháðra
þingmanna sem varið hafa hana
falli.
Bertie Ahern, forsætisráðherra
írlands og leiðtogi Fianna Fáil, sem
fer með forystu í ríkisstjórninni,
sagðist í gær hvergi banginn og
taldi víst að vantrauststillagan sem
lögð var fram í gær af Ruairí Qu-
inn, leiðtoga Verkamannaflokksins,
yrði felld. Stjórnin stendur þó afar
höllum fæti eftir að hafa undan-
fama daga orðið fyrir enn frekari
áíbllum í tengslum við fjármála-
hneyksli sem skekið hafa stjórn-
málalífið á Irlandi, auk þess sem
Fianna Fáil galt afhroð í aukakosn-
ingum í Tipperary í síðustu viku.
Quinn lét hafa eftir sér að stjóm-
in hefði glatað öllu trausti og John
Bmton, leiðtogi Fine Gael, stærsta
stjórnarandstöðuflokksins, tók
undir þegar hann hvatti bæði
Ahern og Mary Harney, varafor-
sætisráðherra og leiðtoga framsæk-
inna demókrata (PD), til að segja af
sér. vÉg tel að það þjóni hagsmun-
um Irlands best að efnt verði til
kosninga á þessum tímapunkti,“
sagði Bmton í þinginu. „Ég segi
þetta vegna þess að svona getur
þetta einfaldlega ekki gengið til
lengdar. Þjóðin getur ekki horft
upp á meira. Við þurfum að hreinsa
upp þá bletti sem fallið hafa á írsk
stjórnmál vegna hneykslismála og
tryggja að hægt sé að stjórna þessu
landi með eðlilegum hætti. Aðeins
með nýja ríkisstjóm við stjórnvöl-
inn getum við gert þetta. Bertie
Ahern og Mary Harney hafa ekki
upp á meira að bjóða, þau ættu að
segja af sér og það strax.“
Tvö óskyld hneykslismál sem
nú valda stjórninni vandræð-
um
Stjórnarkreppan á írlandi á ræt-
ur að rekja til tveggja óskyldra
hneykslismála. Það fyrra tengist
afar umdeildri skipan Hughs
O’Flahertys, fyrrverandi hæsta-
réttardómara, í stjórn Fjárfesting-
arbanka Evrópu. O’Flaherty þessi
neyddist í fyrra til að láta af sæti í
hæstarétti vegna gagnrýni sem
komið hafði fram á þá ákvörðun
hans að leysa úr haldi vel þekktan
arkítekt, sem fangelsaður var 1997
fyrir að hafa valdið dauða konu er
hann var drukkinn undir stýri.
Skipan O’Flahertys hefur verið
mótmælt harðlega en stjórnin stað-
ið fast á sínu, þrátt fyrir að nokkrir
þingmanna Fianna Fáil hafi lýst því
yfir að þeir vildu gjarnan heyra
hæstaréttardómarann fyrrverandi
útskýra betur þátt sinn í því að
arkítektinn var leystur úr haldi áð-
ur en hann hafði afplánað dóm sinn.
Er því ljóst að brestir eru komnir í
stjórnarliðið sem eykur enn vand-
kvæði Aherns og Harneys.
Hitt hneykslismálið sem veldur
stjórninni erfiðleikum tengist rétt-
arhöldum yfir Charles Haughey,
fyrrverandi forsætisráðherra og
leiðtoga Fianna Fáil. Hann hefur
verið sakaður um að þiggja fé af
fjármálajöfmm á meðan hann
gegndi embætti forsætisráðherra
og fyrir að standa í vegi réttvísinn-
ar þegar hafist var handa við að
rannsaka mál hans.
Ahern nú sjálfur verið beðinn
um að koma fyrir dómstóla
Varaforsætisráðherrann Mary
Harney lét hafa eftir sér í dag-
blaðsviðtali íyrir skemmstu að hún
teldi að fangelsa ætti Haughey og á
þriðjudag frestaði dómarinn í máli
Haugheys réttarhöldunum með
þeim rökum að orð Harney hefðu
skaðað málareksturinn gegn
Haughey og valdið því að hann gæti
ekki vænst þess að hljóta sann-
gjarna málsumfjöllun.
Var haft eftir Harney í gær að
hún væri undrandi á þessum úr-
skurði en ekki myndi koma til þess
að hún segði af sér. Sjálfur hefur
forsætisráðherrann, Bertie Ahern,
nú verið beðinn um að koma fyrir
einn þeirra dómstóla sem skipaðir
voru til að rannsaka greiðslur til
stjórnmálamanna síðar í vikunni en
Ahern var á sínum tíma mikill sam-
starfsmaður Haugheys.