Morgunblaðið - 29.06.2000, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 29.06.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 39 Hluti tónlistarmannanna sem koma við sögu á Dans stöðumælanna ásamt lagasmiðnum: F.v.: Ludvig Forberg víbrafónleikari, Ingvi Þór Kormáksson lagasmiður, Eðvarð Lárusson gítarleikari, Steingrímur Óli Sigurðsson trommuleikari, Kjartan Valdemarsson píanóleikari og Stefán Ingólfsson bassaleikari. Tónlist er oftast að fínna í ljóðum Dans stöðumælanna er heiti á nýjum geisladisk sem inniheldur tónlist eftir Ingva Þór Kormáksson sem hann hefur samið við ljóð íslenskra nútímaskálda sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið á Borgarbókasafni Reykjavíkur. HUGMYNDIN að geisla- disknum Dans stöðu- mælanna fæddist fyrir sjö árum á Borgarbóka- safninu. Lagasmiðurinn, Ingvi Þór Kor- máksson, sem er einnig bókasafns- fræðingur og starfar á safninu, fór að telja saman hve mörg skáld hefðu komið við sögu sem starfs- menn safnsins og glugga í ljóð þeirra. Nokkrar hugmyndir að lögum fæddust strax en önnur lög urðu ekki til fyrr en mörgum árum síð- ar, segir hann. „Lögin eru ekki val- in út frá öðru en því hvort kviknaði á perunni hjá lagasmiðnum og ég heyri það núna, eftir að efnið er til- búið frá minni hendi, að á þessum tíma hef ég verið að skoða ákveðnar aðferðir við lagasmíðar sem byggjast helst á að gera ekki einfalda hluti of flókna en nota samt dálítið flakk milli tóntegunda innbyggt í lögin,“ segir Ingvi Þór sem nú hefur sent frá sér áttunda geisladiskinn eða breiðskífuna á sínum ferli sem lagasmiður. Samið við íslensk ljóð Ferill Ingva Þórs sem tónlistar- manns hófst fyrir alvöru á sjöunda áratugnum og lék hann þá með ýmsum hljómsveitum, þ.á m. Gaddavír. Fyrsta hljómplatan und- ir eigin nafni kom út árið 1983 og hét Tíðindalaust. Það fór lítið fyrir henni á markaði og fjögur ár liðu þar til næsta hljómplata, Borgar- inn, kom út. A báðum þessum plötum samdi Ingvi Þór dægurlög við ljóð eftir nokkur kunn skáld auk þess að notast líka við eigin texta. Árið 1990 kom út geisladiskur sem kall- aðist Ljóðabrot og tveimur árum síðar annar sem nefndist Þegar þið eruð nálægt og enn sem fyrr var á þeim báðum að finna lög við ljóð eftir íslensk nútímaskáld. Kunnastur er hann líklega þó af starfi sínu með J.J. Soul Band en sú hljómsveit hefur sent frá sér tvo geisladiska með músík sem er með nokkrum blús- og djassáhrifum. Hafa fjögur lög af þessum diskum unnið til verðlauna og viðurkenn- inga á erlendri grund. „Ekki óskemmtilegt. Það segir manni að einhver glóra er í þessu hjá okk- ur.“ Ingvi Þór segir að oftast nær sé tónlist í ljóðum og hafa þau orðið honum uppspretta að mörgum lög- um. Hann segir að þessi aðferð hafi bæði sína kosti og annmarka. Þegar lögin voru öll tilbúin að þessu sinni fékk Ingvi Þór félaga sinn úr J.J. Soul Band, gítarleikar- ann Eðvarð Lárusson, til að út- setja tónlistina, og þeir tveir, ásamt Birgi Jóhanni Birgissyni upptökumanni, voru síðan allt í öllu við gerð disksins. Þeir fengu til liðs við sig valin- kunna tónlistarmenn til að flytja efnið. Eðvarð leikur á gítar, Kjart- an Valdimarsson á píanó, Ludvig Forberg á víbrafón, Steingrímur Óli Sigurðarson á trommur, Stefán Ingólfsson á rafbassa, Þórður Högnason á kontrabassa, Sigurður Flosason á conga-trommur og saxófón en einnig láta í sér heyra þeir Þorkell Jóelsson hornleikari, Helgi Sv. Helgason trommari og gítarleikarinn Hallvarður Valde- marsson. „AIls konar“ músík Margir af kunnustu söngvurum þjóðarinnar koma við sögu á diskn- um en þeir eru Bubbi Morthens, Berglind Björk Jónasdóttir, Guð- rún Gunnarsdóttir, Páll Óskar, Sif Ragnhildardóttir, Magga Stína, Guðmundur Hermannsson og Michael Pollock. „Við ákváðum fljótlega að nota ekki tölvur við sjálfa spilamennsk- una, hafa hljóðfæraleikinn „lifandi" ef svo má segja. Hins vegar er allt efnið tekið upp með stafrænum hætti beint inn á harðan disk með nýjustu upptökutækni. Undirleikurinn var að mestu leyti tekinn upp í Hljóðveri FÍH en söngur og viðbótarhljóðfæri í Stúd- íói Stöðinni. „Við unnum þetta fremur hratt og þetta var ákaflega skemmtileg vinna.“ Ingvi Þór er spurður að því hvers konar músík þetta sé sem hann semji og hverjir séu helstu áhrifavaldar? „Ætli músíkin sem ég bý til geti ekki bara kallast „alls konar“ músík og þótt maður vilji helst trúa því að það sem maður sé að bauka við sé einstakt og engu öðru líkt hefur maður vísast lapið upp ýmisleg áhrif héðan og þaðan, bæði meðvitað og ekki síður ómeð- vitað. Það var til dæmis dálítið sér- stakt að kynnast og starfa með J. J. Soul, breskum söngvara, laga- og textasmið sem í sínu horni (í Oxford) hafði hlustað á og spekúl- erað í sömu músík og ég. I raun byggist mín tónlist, og okkar J.J. þar með, á gamalli hefð eins og svo mörg önnur tónlist og líka á sam- runa ýmissa tónlistarstefna." Ingvi nefnir lagasmiðina banda- rísku Hoagy Carmichael og Mose Allison. „Annar svo gamall að hann er löngu látinn, hinn kominn á átt- ræðisaldur en er enn í fullu fjöri. Yngri maður og jafnaldri J.J., Georgie Fame, hefur ötullega kynnt músík þessara tveggja gömlu í gegnum tíðina. í J.J. Soul Band spiluðum við mikið af lögum þessara þriggja; blús, bræðing og smávegis djass. Ég hef líka ánægju af verkum brasilískra lagasmiða á borð við Ivan Lins, Djavan og fleiri. Þetta eru náungar nokkurn veginn af sömu kynslóð og ég sem blanda rokki og djassi saman við sína oft þjóðlegu músík. Frá þeim vill hugurinn reika til dúettsins frábæra, Steely Dan. Ekki má svo gleyma klassíkinni í dægurtónlist; Cole Porter, Jerome Kern og Richard Rogers en á síðasta diski J.J. Soul Band fluttum við einmitt lagið My Funny Valentine eftir þann síðastnefnda. Þrátt fyrir ald- ursmun og ólíkan uppruna hafa þessir lagasmiðir allir verið að glíma við svipaða hluti.“ Slekkur að mestu á bláu nótunum „Þegar ég er að fást við íslensk ljóð lætur trúlega hérlend söngva- og vísnatónlistarhefð á sér kræla. Það væri skrýtið ef það gerðist ekki. Svo má ekki vanmeta þá músík sem maður ólst upp við sem táningur; hljómsveitirnar Kinks og Animals, sem í raun kveiktu fyrir alvöru áhugann á að fást við tón- list. En á diski sem þessum, Dans stöðumælanna, slekkur maður að mestu á bláu nótunum og fönkinu, leggur áherslu á sterkar og ákveðnar laglínur og reynir að láta hið ljóðræna í tónlist og textum njóta sín.“ Látlausir tónleikar TðNLIST I i i st as u fn Sigurjóns Ólafssonar SAMLEIKUR Á FIÐLU OG PIANÓ Sigurbjörn Bemharðsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir fluttu verk eftir Mozart, Stravinskíj og Pál P. Pálsson. Þriðjudaginn 27. júní. TÓLFTA starfsár Sumartónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar hófst með samleik Sigurbjörns Bernharðssonar og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Fyrsta verkið á efnisskránni var e-moll-fiðlusón- atan, K 304, eftir Mozart. Það er haft fyrir satt, að Mozart hafi lagt fiðlusónötunni það til, er Haydn gerði fyrir strengjakvartettinn, og það sérstaklega að losa að nokkru þetta tónlistarform undan ofríki píanósins, en í slíkum samleiksverk- um fyrir daga Mozarts var fiðlan talin undirleikshljóðfærið. Samleik- ur Sigurbjörns og Önnu Guðnýjar var að mörgu leyti vel mótaður, með ýmsum fallegum „núönsum" en þó í heild svolítið beint af augum og án þeirrar syngjandi, sem liggur falin í ljóðrænum tónlínum þessa fallega verks eftir meistara Mozart. Þessa syngjandi mátti heyra sérstaklega fallega mótaða í eins konar tríó- þætti, miðhluta lokaþáttarins, þar sem fiðlan og píanóið fluttu stefið í áttundum og svo í skemmtilegum „coda“ verksins. Annað verk tónleikanna var Expromptu eftir Pál P. Pálsson og var það í fyrsta sinn sem þetta verk er flutt á íslandi. Þama gat að heyra sterk tilþrif hjá Sigurbirni, enda verkið um margt glæsilega gert. Páll segir að hvað form snertir sé skipan þess sótt í B-dúr-Impromptu Schuberts, sem er ABAC. í raun merkir það að verkið sé í ABA-formi með viðbót sem kalla mætti „Coda“. Öfugt við það sem oft á sér stað með „Coda“, að um er að ræða eins kon- ar „bravúra“-þátt, endar verk Páls án allra átaka, allt að því að verkið „gufi upp“, í andstæðu við mikil- Ferð á vit afkima heimsins GUÐBJÖRG Lind Jónsdóttir og Valgai'ð Gunnarsson opna samsýningu í Listasalnum Man, Skólavörðustíg 14, á laugardag. Þau hafa hvort um sig haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og utanlands. Á sýningunni, sem ber yfir- skriftina Kyrrð af kyrrð, sýna þau olíumálverk unnin á síð- asta ári og á þessu ári. Viðfangsefni þeirra hafa löngum snúist um hið kyrr- stæða og fjarlæga; veröld sem er e.t.v. handan og ofan þessa heims sem við búum i en er samt tengd honum órofa bönd- um. Málverk þeirra beggja eiga það sameiginlegt að hafa að viðfangsefni einveru manns- ins í eyjum eða á fjöllum. Að því leyti fela málverk þeirra Guðbjargar Lindar og Val- garðs í sér ferð á vit afkima heimsins þar sem maðurinn skynjar hið upphafna í einfald- leikanum sjálfum, segir í fréttatilkynningu. Sýningin er opin á verslun- artíma og stendur til 16. júlí. fenglegt upphaf þess, sem er mjög vel samið og var afburða vel flutt. Lokaverk tónleikanna var Duo Concertante eftir Stravinskíj, sem samið er 1932. Þetta er í raun svíta, sem að nokkru tekur mið af dans- svítu barokkmanna, enda var Strav- inskíj mjög upptekinn af „nýklass- ískum“ hugmyndum þar sem hann sótti sér jafnvel efnivið í og umritaði verk ítalskra barokkmanna. Verkið var fallega flutt, sérstaklega fyrsti þátturinn, Cantilene, og Egologue II, svo og lokaþátturinn Dithyr- ambe, sem var leikinn af töluverðri innlifun. Gikkurinn (gigue) var hins vegar einum of hægt fluttur, því það vantaði galsann og það „keyrða" áframhald, sem einnkennir sí-þylj- andi tónmál verksins. Sigurbjörn Bernharðsson er góð- ur fiðluleikari. Hann lék af öryggi og tókst best upp þar sem rými var til tilfinningalegrar túlkunar, eins og t.d. í upphafi verksins eftir Pál P. Pálsson. Anna Guðný átti og fallega mótaðar tónlínur, einkum í Mozart og saman í einföldum og sérkenni- legum „tríó“-þætti seinni kaflans í sónötu Mozarts, en þó best í sérlega vel sömdu upphafi Expromptu eftir Pál P. Pálsson, því þar bar fyrir eyru oft skemmtilega útfærðar tón- hugmyndir í samleik píanós og fiðlu. í heild voru þetta látlausir tónleikar og víst er að Sigurbjörn Bernharðs- son ætti sem best að geta sýnt sig í stærri og erfiðari viðfangsefnum en hér gat að heyra, en koma tímar og koma ráð. Jón Ásgeirsson T allt sumar 1 MÁLNINGARDAGÁR Vidurkennd vörumerki SKIN10 4 Ltr. V'ei ö frá kr. 1.990.- Utimálning: STEINTEX 4 Ltr. V erö frá kr. 2.850.- 10 Ltr. Yerð frá kr. 6.695.- Viðarvöm: KJÖRVARI 4 Ltr. Verð frá kr. 2.758.- ikningai nm emis Við reiknum efmsþörfina Grensásvegi 18 s: 581 2444
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.