Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 52
Jí2 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Tækniframfarir eru lífs-
von iðnaðar í Danmörku
SVO sem kunnugt er hefur af-
koma dönsku þjóðarinnar byggst á
mannauði frekar en auðlindum
landsins þegar frá eru taldir góðir
möguleikar til fram-
leiðslu landbúnaðaraf-
urða og orkan úr
Norðursjó. Iðnþróun í
Danmörku hefur verið
ör á síðustu áratugum
og útflutningur hefur
verið mikill, m.a. til
landa eins og Banda-
ríkjanna og Pýska-
lands. A síðustu árum
hefur Dönum þó orðið
ljóst, að iðnaður í
landinu mun eiga und-
ir högg að sækja ef
hann mun ekki fylgja
þeirri þróun sem hef-
ur orðið við fram-
leiðslu almenns iðn-
varnings og hátækni-
iðnaðar annars staðar í heiminum.
Á seinastu áratugum hefur orðið
tæknibylting á sviði fjarskipta og á
gagnasviðinu, þar sem aðgengi að
upplýsingum hefur margfaldast.
" Pað hefur haft í för með sér ýmsa
kosti, m.a. að aðgengi að öðrum
markaðssvæðum hefur stóraukist
bæði fyrir fyrirtæki og neytendur.
Það hefur einnig þýtt að neytendur
eru ekki lengur bundnir við innan-
landsmarkað, heldur hafa nú tæki-
færi til að kaupa vöru eða þjónustu
á alheimsmarkaði í gegnum verald-
arvefinn. Heimurinn er því að
verða að einu markaðssvæði, þar
sem fyrirtæki keppa á ólíkum
grundvelli en á sömu markaðsfor-
BWendum. Danmörk er eitt af þeim
löndum þar sem framleiðslukostn-
aður er hár í samanburði við önnur
lönd. Helstu orsakir þess eru hár
launakostnaður og strangar um-
hverfisreglur sem eru þess vald-
andi að dönsk framleiðslufyrirtæki
eiga undir högg að sækja. Til þess
að tryggja að iðnaður vaxi og dafni
í Danmörku verður því að þróa
nýjar framleiðsluaðferðir svo að
dönsk fyrirtæki haldist samkeppn-
ishæf í framtíðinni. Til að ná því
markmiði hefur verið sett á stofn
iðnþróunarmiðstöð (Center for
Industriel Produktion) en hlutverk
hennar er að styrkja stöðu
danskra iðnfyrirtækja. Það verður
gert með því að tvinna saman
'v hagnýt vandamál úr heimi iðnaðar-
ins og þekkingu frá Háskólanum í
Álaborg á markvissari hátt en
þekkst hefur hingað til.
Forsaga miðstöðvarinnar í Ála-
borg er að samtök danskra iðnfyr-
irtækja og danska ríkið settu af
stað athugun á því hvernig þróa
mætti betur samhæfingu á fram-
leiðslukerfum, allt frá rannsóknar-
verkefnum í þóunardeildum fyrir-
tækja til hins endanlega
viðskiptavinar. Þeir sem stóðu að
verkefninu voru Statens Teknisk
Videnskabelige Forskningsrád,
Erhvervsfremme
Styrelsen, og Háskól-
inn í Álaborg auk
nokkurra öflugra iðn-
fyrirtækja. Samanlagt
lögðu þessir aðilar 1,3
milljarða íslenskra
króna í verkefnið.
Þeir sem stóðu að
verkefninu ákváðu að
bjóða það út til vís-
indastofnana. Háskól-
inn í Álaborg, DTU,
og Háskólinn í Óðins-
véum sóttu um að fá
miðstöðina til sín. Há-
skólinn í Álaborg
hreppti hnossið meðal
annars vegna þess að
hann hefur verið tal-
inn fremstur á sviði rannsókna og
vísinda af þessu tagi, um alllangt
skeið.
I miðstöðinni verður einmitt
lögð mikil áhersla á samstarf milli
iðnaðarins og stöðvarinnar. Dansk-
ur iðnaður verður að vera öruggur
Iðnaður
Tímamót urðu í
dönskum iðnaði, segir
Agnar Guðmundsson,
er stofnsett var miðstöð
á sviði iðntækni og
framleiðslu við Háskól-
ann í Alaborg.
með að það sé stöðug þróun á
framleiðslusviðinu heima fyrir, eigi
hann að lifa og vera sú lyftistöng í
dönsku atvinnulífi sem að hann
hefur verið. Það er því nauðsynlegt
að viðhalda þekkingu á almennum
iðnaði og framleiðslu í landinu. Það
skapar raunveruleg verðmæti fyrir
þjóðarbúið.
Hins vegar verður að skoða
framleiðsluhugtakið í víðara sam-
hengi en gert hefur verið til þessa.
Nú á tímum er iðnaður einnig
tengdur háþróaðri framleiðslu þar
sem nýjasta tækni, skipulag og
stjórnunaraðferðir geta aukið til
muna samkeppnishæfni fyrirtækja,
sem geti gert þeim kleift að búa
við háan framleiðslukostnað. Jafn-
vel þó að náðst hafi góður árangur
í uppbygginu hátæknifyrirtækja
hér á Norður-Jótlandi, sem stunda
einungis rannsóknir og þróun á
fjarskiptasviði, þá dugir það ekki
til. Það er nauðsynlegt að hafa
háþróaða framleiðslu í landinu.
Rannsóknir, þróun og framleiðsla
hafa fleiri samnefnara sem þarf að
samstilla til þess að skapa hag-
kvæmni í rekstri og þar með aukna
samkeppnishæfni hjá fyrirtækjum.
Þar sem meginmarkmið mið-
stöðvarinnar er að styrkja styrkja
stöðu fyrirtækja, mun hún eiga
nána samvinnu við iðnaðinn. Sam_-
vinnan verður á þremur stigum. Á
fyrsta stigi koma svokölluð sam-
starfsfyrirtæki, sem eru um 25
talsins til með að vinna mjög náið
með miðstöðinni. Má þar nefna
fyrirtæki eins og Bang & Olufsen,
Chr. Hansen, Danfoss, Grundfos,
Lego og Martin Gruppen. Hjá
þessum fyrirtækjum hafa verið
sett af stað doktorsverkefni þar
sem miðstöðin og fyrirtækin vinna
sameiginlega að því að leysa stærri
vandamál. Á öðru stigi samvinn-
unnar eru svokölluð stuðningsfyr-
irtæki sem vinna ekki eins náið
með miðstöðinni og eiga ekki sam-
starf um doktorsverkefni. Þessi
fyrirtæki taka þátt í fyrirlestrum
og málstofum á vegum stofnunar-
innar. Á þriðja stigi er um að ræða
fyrirtæki sem eru í óbeinum
tengslum við miðstöðina og fá sent
fréttabréf um rannsóknaniðurstöð-
ur og ýmislegt annað efni sem á að
verða þeim til gagns.
Á alþjóðavettvangi er miðstöð á
sviði iðnaðar og framleiðslu ekkert
einsdæmi. Samt sem áður hefur
miðstöðin mikla þýðingu fyrir
danskan iðnað vegna þess að með
stofnun hennar, gefst dönskum
vísindamönnum á sviði iðnaðar, og
iðnfyrirtækjum tækifæri til að
vera með á alþjóðavettvangi og
láta meira í té á sviði iðnaðar og
framleiðslu. Meðal annars leiðir
það til að auðveldara verður að fá
aðgang að og nýta erlendar rann-
sóknir til framdráttar iðnaði í Dan-
mörku.
Þetta framtak Dana er umhugs-
unarefni fyrir Islendinga og það
leikur ekki neinn vafi á, að öflugur
iðnaður er hverju landi nauðsyn-
legur. I hinum vestræna heimi hef-
ur iðnaðurinn átt undir högg að
sækja í seinni tíð, m.a. vegna sífellt
hækkandi framleiðslukostnaðar og
aukinnar samkeppni. Til þess að
snúa þessari þróun við er mikil-
vægt að þróa og útfæra nýjar
framleiðsluaðferðir sem gera iðn-
aðinn samkeppnishæfari. Til þess
hefur danska ríkið lagt grunninn
að samvinnu milli háskólans og
iðnaðarins, sem í framtíðinni á að
viðhalda og efla þekkingu á iðn-
tækni og framleiðslu í landinu.
Höfundur er iðnaðarverkfræðingur
við Háskólann íÁlaborg (M.Sc).
Agnar
Guðmundsson
Göngum saman
(Hamba nathi!)
Föstudaginn 30. júní
býður Kjalarnesspró-
fastsdæmi ungu fólki á
öllum aldri að ganga til
Þingvalla. Gangan er
farin í tilefni af kristni-
hátíðinni til að minnast
kristnitökunnar og
þúsund ára kristni í
landinu. Þátttakendur
leggja af stað frá sókn-
arkirkjum sínum og
slást í för með öðru
göngufólki við Hafra-
vatn að rótum Mos-
fellsheiðar. Þaðan
verður gömlu þjóðleið-
inni yfir Mosfellsheiði
fylgt langleiðina að
Þingvöllum en vegur var lagður á
þessum slóðum fyrir komu Dana-
konungs til íslands árið 1907.
Markmiðið með Þingvallagöng-
unni er að upplifa skemmtilega og
holla útivist í samhengi við okkar
eigið trúarlíf í ljósi kristnitökunnar
á Þingvöllum fyrir þúsund árum.
Þannig er Þingvallagangan ekki ein-
göngu líkamleg hreyfing í fallegri
náttúru heldur ferð eftir innra
landslagi þar sem þátttakendur hafa
tækifæri til að upplifa trú sína og
hugsa um hana við sérstakar að-
stæður.
Ferðir sem eru farnar til að minn-
ast ákveðinna atburða og styrkja um
leið trúarlíf þeiiTa sem ganga eiga
sér langa sögu í kristinni hefð. Fólk
sem fór þannig ferðir var kallað pí-
lagrímar. Frá fyrstu tíð hafa kristn-
ir karlar og konur lagt leið sína á
staði sem skiptu miklu máli í sögu og
lífi kirkjunnar, til að mynda staði
sem Jesús heimsótti eða dvaldist á.
Aðrir vinsælir áfangastaðir krist-
inna pílagríma tengjast gjarnan at-
burðum sem skiptu sköpum fyrir
vöxt og viðgang kristinnar trúar í
viðkomandi löndum. Á íslandi eru
Þingvellir þannig staður og þangað
göngum við í tilefni af því að þúsund
ár eru liðin frá kristnitökunni og til
að minnast og þakka fyrir allt það
fólk sem hefur í gegnum tíðina lagt
fagnaðarerindinu um Jesú frá Nas-
aret lið á kalda landinu okkar.
Á vissan hátt eru allir kristnir
menn pílagrímar því það að vera
kristinn er að ganga með Jesú í
gegnum lífið. Við göngum með Jesú
frá dauðanum til lífsins, frá óreiðu til
einingar og frá lífi sem er þjakað af
tilgangsleysi til vonarríks lífs. Við
göngum gegn óréttlæti og rangind-
um hvar sem þau líðast í heiminum
og viljum bera kærleika Guðs og
miskunnsemi vitni með lífi okkar.
Kirkjuárið, sem markast af lífi og
starfi Jesú frá Nasaret meðan hann
lifði á jörðinni, er einnig ferðalag í
þessum skilningi. Við ferðumst á
milli atburða í lífi Jesú
frá fæðingu til dauða
og upprisu í textum
ritningarinnar sem
fluttir eru við guðs-
þjónustur á hverjum
einasta sunnudegi árið
um kring.
Um langa hríð hafa
helgigöngur ekki tíðk-
ast í íslensku kirkj-
unni. Eftir siðaskiptin
á 16. öld vildu menn
endurskoða stöðu
helgigöngunnar innan
guðfræði miðaldanna,
þar sem hún hafði
þróast í óheppilega átt
að mati Marteins Lút-
hers og annarra siðbótarmanna. En
hver tími þarfnast sinnar guðfræði
og nýrra leiða til að móta og tjá
Helgiganga
Gangan er farin í
tilefni af kristnihátíð-
inni, segir Kristín
Þórunn Tómasdóttir,
til að minnast kristni-
tökunnar og þúsund
ára kristni í landinu.
hvernig við upplifum okkur sjálf í
tengslum við Guð. Þess vegna viljum
við með helgigöngunni á Þingvelli
hvort tveggja leita í smiðju fomra
hefða og horfa til nýrrar aldar með
Jesú Krist að leiðarljósi.
Þótt helgigangan sé okkur að
mörgu leyti framandi er mikilvægt
að líta á hana sem hluta af helgihaldi
kirkjunnar okkar og trúarlífi okkai-
sjálfra. Á meðan göngunni stendur á
sá eða sú sem tekur þátt í henni
margháttað stefnumót. Sem píla-
grímar stöndum við frammi fyrir
sköpun Guðs í náttúrunni sem við
ferðumst um. Við erum hluti af
sköpun Guðs og okkur er falið að
vera ráðsmenn Guðs og vemda og
þjóna umhverfi okkar.
Sem pílagrímar stöndum við
frammi fyrir náunga okkar í sögu og
samtíð. Við göngum með öðru fólki
og upplifum návistina sem íylgir því
að ferðast saman. Á sama hátt göng-
um við í spor genginna kynslóða sem
í gegnum aldirnar fóru þessa leið í
margvíslegum erindagjörðum.
Sem pílagrímar stöndum við
frammi fyrir Guði. Guð er allsstaðar
nálægur. Ekki bara í kirkjum og
bænahúsum heldur vitjar hann
mannsins í hverju hjarta og við
Kristín Þórunn
Tómasdóttir
Að hjálpa börnum að
komast í gegnum áfall
VIÐ íbúar Suðurlands erum flest
svolítið órólegir eftir jarðskjálftana í
síðustu viku. Börnin eru kannski
ólík því sem þau eru vön að vera.
Það er ekki óalgengt að börn (eða
fullorðnir) sýni merki kvíða eða
streitu í nokkrar vikur eftir áfall
eins og jarðskjálfta. Sumir sýna ekki
viðbrögð við áfalli fyrr en nokkrum
dögum eftir atburðinn.
Viðbrögð við áföllum eru m.a.:
( 1. Líkamleg (magaverkur, höfuð-
verkur)
2. Svefntruflarnir (martraðir,
mikil/lítil svefnþörf)
3. Börn sýna kannski hegðun sem
hæfir yngri aldri (vilja snuð, pissa
undir, háð fullorðnum)
4. Börn gráta kannski meira en
venjulega eða fá reiðiköst.
5. Einbeitingarskortur
Sem betur fer er ýmislegt sem
við, hinir fullorðnu,
getum gert til að
hjálpa börnum að kom-
ast í gegnum áfall.
Skilja þann ótta eða
kvíða sem bamið sýnir.
Ótti barnsins er
kannski ekki raun-
verulegur, en getur
verið það fyrir barn-
inu. í samtölum mínum
við börn undanfarna
daga á Suðurlandi hef-
ur komið fram að sum
börn óttast mjög ann-
an jarðskjálfta og að
hann verði enn stærri
en hinir fyrri og að
húsin þeirra muni
hrynja. Við verðum að taka mark á
þessum áhyggjum. Berum virðingu
fyrir líðan og tilfinningum bamanna.
Leyfum börnunum
að tjá tilfinningar sín-
ar. Sum börn vilja tala
(og tala og tala) um
jarðskjálftana. Önnur
þurfa kannski að fá að
tjá ótta sinn með teikn-
ingum eða á annan hátt
án orða. Að hlusta á
barnið er einföld leið til
að hjálpa þvi í gegnum
erfiðleika og vanlíðan,
hvetja það til að segja
frá líðan sinni og ekki
gera lítið úr tilfinning-
um þess né segja að
þetta gerist ekki aftur.
Fullvissaðu barnið þitt
um að þú gerir allt sem
í þínu valdi stendur til að gera um-
hverfi ykkar sem öraggast, t.d. festa
hillur, myndir og annað lauslegt.
Ágústa
Gunnarsdóttir
Áfallahjálp
Ef ykkur eða börnunum
líður illa í langan tíma
eftir jarðskjálftana,
segir Agústa Gunnars-
dóttir, gæti verið gott
að leita sér aðstoðar
fagmanna.
Svaraðu spurningum barnsins á
einfaldan hátt með réttum upplýs-
ingum (en þó án þess að fara í öll
smáatriði.) Þú getur þurft að svara
sömu spurningunni aftur og aftur og
getur það veitt barninu öryggistil-
finningu að fá sömu svörin aftur og
aftur, þar sem það er að reyna að
skilja aðstæðurnar.
Sýndu barninu meiri athygli og
snertingu ef þörf krefur. Snerting
og nálægð er styrkur fyrir barnið.
Dveldu aðeins lengur hjá barninu
þegar það fer að sofa.
Reynið að koma fyrri reglu á dag-
legt líf eins fljótt og hægt er.
Komið ykkur upp fjölskylduneyð-
aráætlun og ræðið hana við börnin
(t.d. hvað geram við ef þetta gerist
aftur, hvert förum við, hver tekur
hvaða barn með sér út, hvar era
sjúkragögn geymd).
Veitið þeim sem vilja tækifæri til
að hjálpa öðram. Okkur líður öllum
betur ef við getum gert smávegis
góðverk eftir áfall.
Verið börnunum góð fyrirmynd
varðandi það hvernig þið farið í
gegnum áfallið.
Ef ykkur eða börnunum líður illa í
langan tíma eftir jarðskjálftana gæti
verið gott að leita sér aðstoðar fag-
manna. Þar má nefna presta, heilsu-
gæsluna, sálfræðinga og einnig hef-
ur verið veitt sérfræðiaðstoð í
fjöldahjálparstöð Rauða kross ís-
lands í Grunnskólanum á Hellu og
Sólvallaskóla á Selfossi.
Höfundur er sUirfandi sdlfræðingur
á Selfossi og sinnir áfallahjálp fyrir
böm og unglinga á vegum Rauða
kross Islands.