Morgunblaðið - 29.06.2000, Blaðsíða 74
74 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Aðdáendur
Britney Spears
fengu á bauk-
inn.
Aðdáendur
Britney í sárum
ÞAÐ sáust tár á kinn og skeifa á
vör fyrir utan útvarpsstöð nokkra
í Bandaríkjunum á dögunum. Ut-
Miðasala S. 555 2222
The Hammer of Thor
A mythological action-comedy
Sun. 2/7 kl. 20
Rm. 6/7 kl. 20 uppselt
Fös. 7/7 kl. 20
Sýningarb'mi 50 mínútur.
T .EIKFÉLAG ÍSLANDS
MaEnu 552 3000
Sjeikspír eins og hann leggur sig
fös. 30/6 kl. 20 nokkur sæti laus
Síðasta sýning í sumar
530 3O3O
Hádegisleikhús með stuðningi
Símans — BJÖRNINN
fös. 30/6 kl. 12 laus sæti
fim. 6/7 kl. 12 laus sæti
lau. 8/7 kl. 12 nokkur sæti laus
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 alla virka daga, kl.
14-18 laugardaga og fram að sýningu sýningar-
daga. Miðar úskast sóttir I viðkomandi leikhús
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
varpsmönnum tveim hafði dottið 1'
hug að plata aðdáendur Britney
Spears til að mæta fyrir utan stöð
sína en sennilega voru það aðeins
þeir sem hlógu að uppátækinu
þegar til kastanna kom.
Tilkynnt var í þætti á stöðinni
að söngkonan vinsæla myndi
mæta fyrir utan stöðina og heilsa
upp á aðdáendur. í einni svipan
þustu tæplega fimm hundruð börn
og foreldar þeirra að húsnæði
stöðvarinnar en aðdáendur Spears
eru flestir ófermdir enn. Vonir
barnanna voru að engu gerðar er
glæsikerru var ekið upp að húsinu
og út kom maður í kjólfötum með
Britney Spears-dúkku í fanginu.
„Ég sagði ykkur að hún væri al-
gjör dúkka," sagði plötusnúðurinn
Bill Fox yfir hópinn þegar hann sá
brostnar vonir í augum barnanna.
Viðstaddir lótu ekki bjóða sér
þetta og í gegnum tár barnanna
og blótsyrði foreldranna voru
flöskur og annað rusl látið fljúga í
átt að húsinu. Ekki vildi betur til
en svo að einn fimm ára aðdáandi
söngkonunnar fékk flösku í höfuð-
ið. En höfuðið var í lagi, það var
hjartað sem var brostið.
Fox sagði að fólk hefði átt að
geta séð í gegnum hrekkinn en út-
varpsstöðin er einmitt fræg fyrir
prakkarastrik af þessu tagi.
Sennilega gleymdu þeir að gera
ráð fyrir því að ungir aðdáendur
Britney eru ekki forhertir rann-
sóknarlögreglumenn sem geta
„lesið á milli linanna" eins og Fox
komst að orði.
Ui / HÐHL (Einar Orn) steikir skífur
HILITlflR ÞÓRÐflRSOn STVRIR TflLsímgjörningnum Telefóníunni
1000 kallinn 800 fyrir TflLsmenn
jÉgm gegnframuísunTflLsíma.
iat .Se?™ [JFRESCAl £ Forsala fl 2 TÓnulTI.
Óvæntir bólfélagar á Vegasi í kvöid
Teiknimyndir
og Brútalspuni
ENN TEKST aðstandendum Til-
raunaeldhússins að lokka saman í
bólið óvænta listamenn. Nú hefur
Hugleikur Dagsson fengist til að
smeygja sér undir sængina með heilli
hljómsveit og það hvorki meira né
minna en Big Band Brútal. Ekki nóg
með það heldur munu bólfarirnar að
þessu sinni fara fram á næturklúbbn-
um Vegas sem vitanlega er orðið
löngu tímabært.
A efnisskrá bólfaranna er lifandi
spunaleikur Big Band Brútal við
teiknimyndir Hugleiks, þ.e. sveitin
ætlar sér að spinna af fingrum fram
nokkurs konar kvikmyndatónlist
undir sýningu á teiknimyndum Hug-
leiks. Hugleikur þessi er mikill fjöl-
tæknifír sem m.a. hefur unnið sér
það til frægðar að vera sérlegur kvik-
myndagúni Tvíhöfða þar sem hann
hefur reglulega gagnrýnt vel valdai’
myndir bíóhúsa borgarinnar á einkar
kaldhæðinn og eftirtektarverðan
máta. Hann hefur um nokkurt skeið
fengist við gerð teiknimynda upp-
fullra af skemmtilegum húmor en
þetta mun vera í fyrsta sinn sem
myndir hans fara á hreyfingu.
Big Band Brútal hefur verið starf-
andi í tæp tvö ár eða allt frá því Til-
raunaeldhúsið stóð fyrir sinni fyrstu
syrpu athyglisverðra listviðburða í
Reykjavík. Sveitin er samtíningur úr
þremur öðrum mætum sveitum því
auk Böðvar Brútals skipa hana Obó,
trommari frá Kanada, Adda sampl-
erhljómborðsleikari og Kristín
Björk, sampler- og gítarleikari,
koma úr Spúnk og Daði Birgisson
hljómborðsleikari er með annan fót-
inn í Jagúar. BBBrútal, eins og sveit-
in er jafnan kölluð í símskeytum, er
spuninn kær en í yfirlýstri skilgi’ein-
ingu segir að hún sé „vítamínsprauta
fyllt raftilraunum, feitum fönkgrúv-
um, leikglöðum töktum og óvæntum
hljóðum.“
Auk aðalbólfélaga kvöldsins munu
þeir skella sér upp í Kalli, Brútalhá-
karlinn vingjarnlegi og dularfull,
brasilísk kanína sem mun eflaust
einnig nota tækifærið og hringa sig
um einhverja af súlum Vegas.
Fastir liðir kvöldstunda bólfélag-
anna óvæntu hafa verið skífusteik-
ingar og TALsímagjörningurinn sí-
breytilegi. Að þessu sinni hefur Aðal
(Einar Örn Benediktsson) verið
fenginn í steikingamar og Hilmar
Þórðarson stýrir TALsímagjörn-
ingnum Telefóníunni sem að vanda
eru tónverk fyrir GSM síma sköpuð
af sjálfum áheyrendum.
Morgunblaðið/Kjartan Már Magnússon
Big Band Brútal íþægilegum stellingum á Vegas.
Slappakexið ekki
hrifíð af Creed
HLJÓMSVEITIRNAR Limp Bizkit
og Creed eru ekki í uppáhaldi hjá
hvor annarri. A tónleikum sem sveit-
imar spiluðu saman á um daginn
lýsti Fred Durst söngvari Limp
Bizkit því yfir að söngvari Creed,
Scott Stapp, væri ekkert nema al-
ræmdur egóisti auk þess sem hann
kallaði hann nokkmm óprenthæfum
nöfnum.
Liðsmenn Creed svömðu svo með
fréttatilkynningu fimm dögum síðar
þar sem þeir sögðu að þeim þætti
leiðinlegt að Fred hafi séð ástæðu til
þess að gera persónulega skoðun
sína opinbera, sérstaklega í ljósi
þess að þeir félagar hafi aldrei hist.
Þeir fullyrða að Fred hafi verið reið-
ur yfir því að hljómsveit hans hafi
verið látin leika á undan Creed í röð-
inni.
Á umræddum tónleikum léku
Limp Bizkit klukkustund á eftir
áætlun og biðu tónleikagestir
svekktir í steikjandi hita eftir því að
sveitin léti sjá sig. Þegar þeir svo
stigu á sviðið tilkynnti söngvarinn að
hann hefði verið fastur í umferða-
hnút.
Fred Durst, söngvari
Limp Bizkit.
Creed vilja þó meina að Fred hafi
setið sallarólegur baksviðs að snæð-
ingi og þó gæslan hafi margoft reynt
að fá hann á sviðið hafi hann sagt að
hann þyrfti að klára máltíð sína
fyrst. Þannig hafi söngvarinn komið
hljómsveit sinni aftar á dagskrána.
MYNPBOND
Afleit
endurkoma
Síöustu dagar
(End ofDays)
Spennumynil
'k
Leikstjóri: Peter Hyams. Handrit:
Andrew W. Marlowe. Aðalhlutverk:
Amold Schwarzenegger, Gabriel
Byrne og Robin Tunney. (121 mín.)
Bandaríkin, 1999. Sam myndbönd.
Bönnuð innan 16 ára.
í ÞESSARI mynd hugði Arnold
Schwarzenegger á tilkomumikla
endurreisn leikferils síns en hann
hefur ekki komið
fyrlr í almennilegu
aðalhlutverki frá
því árið 1996. Vit-
urlegra hefði verið
fyrir Schwarzen-
egger að leggja
traust sitt á færari
leikstjóra en þann
sem stýrir Síðustu
dögum. Leikstjórn Síðustu daga er
einstaklega kauðaleg og handritið
frámunalega lélegt. Svo illa skrifað
handrit verður jafnvel enn hjákát-
legra þegar fjallað er um svo há-
stemmt efni sem endurkomu djöf-
ulsins og spádóma Opinberunarbók-
arinnar. Gabriel Byrne Ieikur
hlutverk djöfulsins en það tekst
ekki einu sinni að gera Byrne að
áhugaverðri satan-persónu, djöful-
leiki hans rennur út í sandinn eins
og annað í þessari mynd. Um
Schwarzenegger er fátt annað að
segja en að hann hefur sjaldan verið
verri. Hann er hreinlega hlægilegur
í þessu fremur dramatíska hetju-
hlutverki sem hann leikur eins og
um gamansama spennumynd væri
að ræða. Síðustu dagar er tvímæla-
laust ein lélegasta spennumynd ár-
þúsundsins.
Heiða Jóhannsdóttir
Krækiber
í helvíti
Hvítingjar
(Whiteboy)
Gamanmyml
★★
Leikstjóri: Marc Levin. Handrit:
Marc Levin, Danny Hoch og
Garth Belcon. Aðalhlutverk:
Danny Hoch, Dash Mihok. (92 mín.)
Bandaríkin 1999. Bergvík.
Bönnuð innan 16 ára.
VIÐ FYRSTU sýn virkar þessi
eitthvað súr og ég bjóst við að skond-
inn brandari - ástir hvítra sveitalubba
í Iowa á bófarappi
þeldökkra ættuðmn
írá skuggahverfum
stórborganna - yrði
orðlengdur og blás-
inn út í hið óendan-
lega svo unnt yrði
að tala um mynd í
fullri lengd. Það
kom þægilega á
óvart að ég hafi um
margt rangt fyrir mér. Flig Dogg er
með ólæknandi hip hop dellu og telur
sig þeldökkan bófarappara innilokað-
an í líkama sveitalúða sem er hvítari
en allir hvítir. Æðsti draumur hans er
að flytja til Chicago og gerast alvöru
bófarappari. Það er margt bæði
skondið og beitt í þessari ádeilu á úr-
kynjaða og útblásna bófarappsmenn-
inguna. Hoch heldur henni uppi sem
hinn grátbroslegi, vonlausi og veru-
leikafirrti rappviðvaningur. Taktarn-
ir útpældir og rappslangrið vellur
hreint upp úr honum. Lopinn er þó
ansi teygður og áhuginn farinn að
dvína þegar vekjaraklukkan hringir
undir lokin og ádeilubroddurinn
stingur sem fastast. Þörf skilaboð og
ágætis skemmtun.
Skarphéðinn Guðmundsson