Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 76

Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 76
76 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sonic boom-hljóðlistarsprengingin Eyrnakonfekt fyrir augað Hayward galleríið í London hýsti á dögunum Sonic Boom, eina stærstu hljóðlistarsýningu sem haldin hefur verið á Englandi. Tónlistarmaðurinn og rithöf- undurinn David Toop valdi hóp myndlistar-og tónlist- armanna sem vinna með samband hljóðs og rýmis eða þess sjáanlega til að taka þátt. Darri Lorenzen heim- sótti galleríið og varð margs vísari. HLJÓÐ verður til við titring eða hreyfingu hlutar. Þessi hreyfing er umlukin umhverfinu, þá oftast lofti, sem áhrif hefur á hljóðið vegna þrýstingsins. Titringur (hreyfing) hlutaains gefur frá sér hljóðbylgju sem svo dofnar með fjarlægðinni. Það er nær útilokað að einangi-a hljóð því það beygir fyrir horn, endurkastast og fer í gegnum hluti í föstu formi. Það er hvergi þögn í þessum heimi, alls staðar er hljóð. Hver og einn staður hefur eigið hljóð sem skapað er af umhverfinu. Hljóð getur ver- ið sterkt „karaktereinkenni" staðar, alveg eins og það sjáanlega. Að hljóðrita staði Arið 1916 gerði Dziga Vertov nokkur til- raunir með að hljóðrita staði, líkt og ljósmynd- arar ljósmynda staði. Menning og skilningur okkar á umhverfinu heíúr alltaf haft sterk tengsl við það sjáanlega og það var ekki fyrr en upp úr 1920 að almenningur heyrði hljóð- upptökur. Hljóðupptakan kom eins og hvellur og fékk hún ekki þá kynningu sem hún átti skilið ef hún er borin saman við Ijósmyndina, sem gjörbreytti hugsun í myndlist. Menn höfðu málað og teiknað alveg frá upphafi mannkyns, en hljóðupptakan kom skyndÚega, án þeirrar kynningar sem ljósmyndin fékk, með málverkum og teikningum. Þess vegna brást fólk við hljóðupptökunni allt öðruvísi en ljósmyndinni. Þetta olli því að hljóð í myndlist hefur einungis á síðustu tveimur áratugum verið viðurkennt sem sjálfstæður miðill. Við höfum engin eyrna-lok, eins og við höfum augnalok. Við erum miklu þjálfaðari í því að sjá en að hlusta. Þetta stafar að hluta til af öll- um þeim gífurlega fjölda hljóða í umhverfi okkar sem við stöðugt heyrum en höfum lært að útiloka að mestu. En þessi hljóð, sem við ' heyrum ekki, aðeins skynjum, til þess að hjálpa okkur að upplifa umhverfi okkar, voru oft í aðalhlutverki á hljóðlistarsýningunni í Hayward galleríinu og þar með er upphafin vanrækt skynjun mannsins á hljóði. Á tímum farsíma, fartölva, stafrænna upptökutækja á stærð við sígarettupakka og víðfrægra plötu- snúða spilar tæknin æ meiri hlutverk í okkar daglega lífi. Fermingarbörnin kjósa „sampler" í stað gítars áður. Ný kynslóð hljóðlistar- manna er „hi-tech“. Hún er afkvæmi rafrænn- ar tónlistar. Þessir listamenn, eins og margir listamenn í dag, eru mjög tengdir þeirri hröðu tækniþróun sem á sér stað í nútíma þjóðfélagi. Þarna er komin sérstök stefna sem er erfitt að setja í tengsl við eldri listamenn eða stefnur, nema kannski helst mínimalistana. Flestir eiu þessir listamenn viðriðnir tilraunatónsmíðar. Rafhljóð og borgarumhverfið Þegar gengið er inn á Sonic Boom sýning- una er fyrst farið í gegnum smá göng þar sem tónlist eftir John Zorn, Rob Swift, Michael Nyman og fjörutíu aðra tónlistarmenn er smekklega hnoðað saman af „curator" sýning- arinnar, David Toop. Meðal þeirra sem eru með verk til sýnis er Brian Eno, best þekktur sem frumkvöðull „ambient" tónlistar. Hann hefur gert innsetningar þar sem hann reynir að einangra eða fanga stemmningu/andrúms- loft (blæ) staðar. Angela Bulloch breytir yfir- bragði umhverfisins í einhverskonar breytileg kerfi sem hún stýrir með tónlistarforritum. Einnig virkjar hún áhorfendur sem stjórnend- ur. Robin Rimbaud, betur þekktur undir við- umefninu Scanner, er tónlistarmaður og hljóðlistamaður sem varð frægur fyrir að taka upp („scanna") símtöl sem hann notaði síðan og gerði úr blækenndar tónsmíðar. Sumar urðu að danstónlist en aðrar að andrúms- loftskenndu flæði þar sem herbergishljóð (reverb) koma við sögu. I seinni verkum sínum hefur hann einbeitt sér í auknum mæli að borgarumhverfi og hljóðum þess. Snillingarn- ir Mika Vainio og Ilpo Vaisanen sem mynda dúettinn Pan sonic einbeita sér að tilraunum með efniskennd, tengsl, hönnun rafhljóða. Disinformation stilla gestum upp við vegg með „Artificial Lightning". Lj ósmyndir/Darri Paul Schutze túlkar minningar sínar um svissneskt baðhús í verki sínu Third Site. Þeir hafa mest fengist við einfaldar innsetn- ingar með hljóði. Á sýningunni setja þeir gamlan Leslie hátalara sem var hannaður fyr- ir Hammond orgel í nýtt hlutverk. Stephan von Huene hefur allt frá miðjum sjötta ára- tugnum unnið með mannsraddir og önnur hljóð. Hann sýnir vélmenni sem fer með ljóð eftir Kurt Schwitters. Tokyobúinn Ryoji Ik- eda gerir tónlist og innsetningar í vægast sagt mínimalískum dúr. Ikeda kemur gestum í trans með sterkum ljósum og sínusbylgjum. Rafael Toral og Paulo Feliciano hanna ein- hvers konar búðarglugga fullan af sérhönnuð- um leikföngum sem víxlvirka með áhorfandan- um. Max Estley lætur fínlegar vélar krafsa í pappír, Project dark spila kex- og glerhljóm- plöturnar sýnar, Christina Kubisch býður upp á frumskóg umhverfishljóða, Greyworld leyfa gestum að hljóðblanda með fótunum. Disin- formation (Joe Banks) tekst einna best að blanda saman hljóð og mynd. Fjöldi flass- hausa á þrífótum er tengdur saman í alls kon- ar græjur. Flössin hlaða sig með tilgerandi hljóði sem er magnað upp og endar í einhvers konar eintóna væli. Flössin smella á vegg og skilja eftir sig skugga áhorfenda, sem dofna svo hægt þar til næsta flass smellur. Þessi þróun sem orðið hefur í hljóðlist er eins og raun ber vitni háð þeirri hröðu tækni- legu þróun sem á sér stað í nútímaþjóðfélagi í dag. Hún mun án efa stuðla að nýjungum í list- rænni tjáningu hvað varðar uppákomur, inn- setningar, útbreiðslu o.fl. Þessir miðlar munu án efa fara langt út fyrir mörk þeirra mögu- leika sem þeir bjóða upp á í dag. Þetta er allt í bígerð og rétt að byrja. Tími og rúm munu fá aðra og nýja þýðingu sem mannfólkið getur ekki órað fyrir í dag. Ragnar Gestsson sýnir í Gallerí@Hlemmur.is Að horfa í stað þess að aðhafast Um þessar mundir sýnir Ragnar Gestsson í Gallerí@Hlemmur.is verk sem hann kallar „Vinnubelti og staðarkort“. Unnar Jónasson spurði hann ___nokkurra spurninga um sýninguna og lífíð í_ Þýskalandi þar sem hann býr, ÞÚ ert ínámi er það ekki, hvernig gengur? „Jú, ég bý í Þýskalandi en tók fornámið hérna heima við MHÍ og fór svo fljótlega út til Hamborgar sem skiptinemi frá fjöltæknideild. Mér Mkaði svo vel að ég ákvað að sækja um í listaháskólanum þar og hef verið þar síðan. Þetta er 5-6 ára mastersnám sem ég er í og markmiðið er að klára það eftir svona eitt og hálft ár. Annars býður kerfið þama í Þýskalandi upp á að maður klári námið á tíu árum en það er -jiú einum of finnst mér. Svo erlíka „post graduate“-nám við skólann sem ég hef mikinn áhuga á og maður stefnir á það í framhaldi." Segðu mér frá sýningunni í Galleríi Hlemmi. „Sýningin samanstendur af vinnubeltum og vinnuvagni með alls kyns hlutum. Einnig eru staðarteikningar eða vinnuteikningar uppi á veggjum. Á opnuninni var ég svo með gjöm- ing. Hann gekk út á það að koma með vinnu- beltin inn í salinn og sýna fram á markvisst eða e.t.v. hæpið notkunargildi þeirra. Mér tókst að koma vagninun nokkum veginn óskemmdum inn í galleríið og festi þar upp hillu og snaga þar sem ég tók af mér vinnu- Morgunblaðið/Sverrir Ragnar Gestsson með borvél í hönd. belti og hengdi þau upp. Það var svona létt og þægileg stemmning yfir þessu þótt flestir hafi þagað.“ Hverjur eru áherslurnar hjá þér núna og á þessari sýningu? „Eg reyni bara að skoða sjálfan mig og sýna það sem ég finn. Það sem ég geri er alltaf á einhvem hátt löngun mín og ósk um að gera mér tilveruna auðveldari og á einhvern hátt hagkvæmari. En einhvem veginn flækist hag- kvæmnin og þetta auðvelda, tja... því hættir til að vera einhvern veginn allt annað en auðvelt. Ég bæði elst upp við og sé alls staðar í kring- um mig ákaflega duglegt fólk og ég dáist að því án þess að langa neitt óskaplega mikið að vera þannig sjálfur og kannski fjalla ég eilítið og öðrum þræði um þennan mun. Önnur hlið en þó ekki „hin hliðin" gæti verið heimur bringuhára og bísepa, bröndóttra binda, sýndarmennsku og sjálfdýrkunar. Fag- urfræði hins handlagna eða iðnaðarmannsins sem er náttúrulega blanda aðdáunar minnar og eigin löngunar eða löngunarleysis. Að horfa á í stað þess að aðhafast, að skoða í stað þess að taka til hendinni. Litir og form, lögun og hvernig glampar á stálið sem ég slípa úti í sól- inni, þetta heillar mig allt á sama máta og önn- ur rómantík." Hefurðu veríð að vinna með þetta lengi? „Þegar ég lít til baka hef ég náttúrulega verið að vinna með þetta allar götur síðan ég byrjaði að fitla við sköpun en markvisst er það nú varla nema í tvö ár. Var reyndar í byrjun miklu harðari og frústreraðri, með stein- hjarta. En síðan er svo sem ekkert merkilegt við það að maður vinni með sjálfan sig, þetta gera allir, kannski mismarkvisst og meðvitað." Ertu ánægður í Þýskalandi? „Já, mjög ánægður. Það er alltaf gaman að koma heim og kíkja á ísland, en Iíka frábært að fára út aftur. Annars er alveg ótrúlegt hvað það er mikið að gerast hér, ég var mjög ánægður að sjá það hversu alþjóðlegur list- heimurinn er orðinn hérna, ætli það sé ekki líka að einhveiju leyti út af Menningarborg- inni og öllu því sem henni fylgir?“ Gallerí@Hlemmur.is er í Þverholti 5 og er opið fimmtudaga til sunnudaga frá frá 14-18. Heimasíða gallerísins er http://www.hle.mm- ur.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.