Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
147. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Aætlun lögð fram um afnám ESB-einangrunar Austurríkis
Schussei ekki hrif-
inn en samstarfsfús
Kohl í
ásökun-
arham
Berlín. Reuters, AP, Morgnnblaðið.
HELMUT Kohl, fyrrverandi kanzl-
ari Þýzkalands, var í ásökunarham
er hann bar vitni fyrir rannsóknar-
nefnd þýzka þingsins í gær, í fyrsta
sinn frá því hún hóf að rannsaka
hneykslismál þau
sem tengjast síð-
ustu stjómarár-
um hans og fjár-
málum Kristi-
iegra demókrata,
CDU.
Itrekaði hann
þá skoðun sína að
rannsóknin væri
Helmut Kohl samsæri póli-
tískra andstæðinga um að eyðileggja
orðstír sinn sem stjórnmálaleiðtoga.
Svör hans við spurningum nefndar-
innar bættu engu við vitneskju henn-
ar um þær ásakanir sem til rann-
sóknar era, þ.e. um að tengsl hafi
verið milli leynilegra greiðslna til
CDU og ákvarðana ríkisstjórnar
Kohls.
Yfirheyrsla gærdagsins, sem hófst
með klukkustundarlangri yfirlýs-
ingu Kohls en hélt síðan áfram í um
þrjá tíma, tók heldur snöggan endi
eftir að leitt hafði verið í ljós, að sam-
flokksmenn Kohls í nefndinni hefðu
reglulega upplýst hann um það sem
fram fór á fundum nefndarinnar frá
því hún hóf störf fyrir um hálfu ári.
„Það má vera að svona lagað sé
ekki bannað, en þetta er siðferðilega
á mjög gráu svæði,“ sagði nefndar-
formaðurinn Volker Neumann, en
hann er þingmaður jafnaðarmanna.
Yfirheyrslan yfir Kohl á að halda
áfram næstkomandi fimmtudag.
■ Ásakanir/30
Holland
úr leik
STUÐNINGSMENN hollenzka
knattspyrnulandsliðsins fylgjast
hér sem f losti með er Hollendingar
töpuðu fyrir ítölum í vítaspymu-
keppni eftir markalausan undan-
úrslitaleik í Evrópukeppninni í
knattspyrnu í Amsterdam í gær-
kvöld.
ítalai- og Frakkar leika til úrslita
um Evrópumeistaratitilinn á sunnu-
daginn.
Líssabon, Vín. Reuters, AP.
WOLFGANG Sehússel, kanzlari
Austurríkis, lýsti í gær ríkisstjórn
sína reiðubúna til að eiga samstarf
við sérskipaða „vitringanefnd",
sem ætlað er að taka að sér að gera
úttekt á stöðu mannréttindamála í
landinu. Skipun þessarar nefndar
er hluti áætlunar sem Portúgalar
hafa lagt fram um það hvernig
hægt sé að binda enda á pólitískar
einangrunaraðgerðir þær sem hin
Evrópusambandsríkin fjórtán hafa
beitt Austurríki frá því hinn um-
deildi Frelsisflokkur (FPÖ) fékk
aðild að ríkisstjórninni í Vín í byrj-
un febrúar sl.
En Schússel dró enga dul á það
að sér þætti áætlunin stórgölluð og
hann útilokaði ekki að staðið yrði
við að halda þjóðaratkvæðagreiðslu
í haust þar sem Austurríkismenn
yrðu beðnir að lýsa afstöðu sinni til
aðgerða ESB. „Hið rétta hefði ver-
ið að aflétta einangrunaraðgerðun-
um tafarlaust," sagði kanzlarinn.
Áætlunin, sem Portú-
galar leggja fram í nafni
allra hinna ESB-ríkjanna
14, vekti þó vonir um að
þess væri ekki langt að
bíða að aðgerðirnar yrðu
brátt úr sögunni en þær
felast fyrst og fremst í því
að ráðherrar ríkjanna 14
eiga engin tvíhliða sam-
skipti við austurríska ráð- Wolfgang
herra. Gert er ráð fyrir í SchUssel
áætluninni að Mannrétt-
indadómstól Evrópu í Strassborg
verði falið að skipa þijá menn í um-
rædda „vitringanefnd".
Vantar tímasetningar
„Samþykkt hinna 14 gengur ekki
nógu langt og er sannarlega ekki
fullnægjandi af hálfu Austurríkis.
Ekkert er nefnt um það hvenær út-
tektinni eigi að ljúka né hvenær af-
létta eigi aðgerðunum," sagði
Schússel á blaðamannafundi.
Reuters
Tveir palestínskir sjómenn róa frá strönd Gazasvæðisins í gær. Úti fyrir ströndinni sést bandarískt herskip sem
-------------- mun hafa verið á æfíngu þar síðan á miðvikudag, ásamt öðrum herskipum.
fsraelar bregðast hart við ummælum Arafats um sjálfstæðisyfírlýsingu
Hóta tafarlausri innlimun
Jerúsalcm, Washington. AFP, Reuters.
EHUD Barak, forsætisráðherra
Israels, tjáði Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, að
ísraelar myndu tafarlaust innlima
allt það land sem þeir ráða nú, ef
Yasser Arafat, forseti heimastjórnar
Palestínumanna, lýsti einhliða yfir
stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis.
Israelska dagblaðið Yediot Aharon-
ot greindi frá þessu í gær.
Israelar hafa enn með höndum
alla öryggisgæslu á um 60% Vestur-
bakkans og 35% Gazasvæðisins, auk
þess að ráða Austur-Jerúsalem, sem
Palestínumenn vilja að verði höfuð-
borg ríkis síns.
Arafat sagði á fundi á Vestur-
bakkanum fyrr í vikunni að líkur
væru á að lýst yrði einhliða yfir
stofnun Paiestínu „innan nokkurra
vikna“. Hann hefur áður sagt að yfir-
lýsing myndi koma fyrir 13. septem-
ber, en deiluaðilar hafa sjálfir sett
sér frest til þess dags til að ná end-
anlegu friðarsamkomulagi.
ísraelar reiða sig á Clinton
Albright var á ferð um Mið-Aust-
urlönd í vikunni, en kom til Banda-
ríkjanna aftur í gær. Hún átti fundi
með Arafat og Barak. Var markmið
farar Albright að kanna möguleika á
því að fá leiðtoga deiluaðila til friðar-
Strax varð vart ólíkrar
afstöðu stjórnarflokkanna
tveggja til tillagna Portú-
gala, sem láta af for-
mennsku í ESB um mán-
aðamótin. Frakkar, einir
hörðustu gagnrýnendur
stjórnarsamstarfsins í
Vín, gegna formennsk-
unni næsta hálfa árið.
Búizt er við að þessi af-
stöðumunur komi skýrt í
ljós er frammámenn
stjórnarflokkanna, hins íhaldssama
Þjóðarflokks Schússels og „lýð-
skrumshægriflokksins“ FPÖ, koma
saman til fundar nk. þriðjudag.
Jörg Haider, sem lét af for-
mennsku í Frelsisflokknum í vor,
fullyrti í gær að áformum um þjóð-
aratkvæðagreiðslu yrði hikiaust
hrint í framkvæmd, en í öðrum
ESB-löndum er óttazt að slíkt muni
ýfa upp neikvæða afstöðu til ESB
meðal almennings í Austurríki.
ráðstefnu í Bandaríkjunum þar sem
Bill Clinton forseti hefði milligöngu.
Barak tjáði Aibright að slík friðar-
ráðstefna væri eina leiðin til að
tryggja árangur í friðarumleitunum
áður en fresturinn rynni út. Aftur á
móti sagði Arafat að tilgangslaust
væri að halda friðarráðstefnu um
miðjan næsta mánuð, því að fyrst
yrði að nást árangur í þeim samn-
ingaviðræðum er nú standa.
Lífsgæðalisti SÞ
Island
í 5. sæti
ÁRLEGUR lífsgæðalisti Þró-
unaráætlunar Sameinuðu þjóð-
anna var birtur í gær og hafa
Islendingar, ein 174 þjóða sem
bornar era saman á listanum,
hækkað sig um fjögur sæti frá
því í fyrra, úr níunda sæti í það
fimmta. Efstir eru Kanada-
menn, sjöunda árið í röð, en
lífsgæði mældust minnst meðal
stríðshijáðra Síerra Leone-
búa.
íslendingar eru í öðru sæti
hvað lífslíkur varðar eða 79,1 ár
að meðaltali og standa Japanar
okkur einir framar með 80 ár.
Þá ber skýrslan saman neyslu
fullorðinna á sígarettum og
kemur þar fram að árleg sígar-
ettuneysla fullorðins íslend-
ings á árunum 1993-97 hafi að
jafnaði verið 2.234 sígarettur,
borið saman við Norðmenn
með 759, Svía með 1.185, Finna
með 1.222 og Dani með 1.843
vindlinga á ári. Fullorðinn
Grikki reykti að meðaltali 3.923
sígarettur á ári á sama tímabili.
Samkvæmt upplýsingum
Hagstofu Islands eru þessar
tölur ættaðar frá Alþjóðaheil-
brigðismálastofnuninni (WHO)
og ekki réttar. Samkvæmt töl-
um Hagstofunnar neyttu ís-
lendingar (15 ára og eldri) að
meðaltali 1.846 sígarettna á ári,
á árunum 1993-97.
■ Mannréttindi/32
MORGUNBLAÐK) 30. JÚNÍ 2000
5 690900 090000