Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Stund milli stríða
Nordur-Héraði.
KRAKKARNIR í unglingavinnunni á Norður-Héraði
fengu hvfld inilli þess sem þau voru að slá kringum
skólann í Brúarási og skruppu ásamt flokkstjóra sínum
Ingibjörgu Sigurðardóttur út að Galtastöðum og skoð-
uðu gamla bæinn þar undir leiðsögn Karls Jónssonar
bónda og staðarhaldara þar. Það var tilvalið að tylla
sér niður í bæjarrústinni og skoða blómaskrúðið áður
en gengið var til bæjar.
Flutning’ur í nýtt kerfí t<5k
lengri tíma en áætlað var
NOKKRIR viðskiptavina GSM-
frelsis, farsímaþjónustu Landssím-
ans, lentu í vandræðum með síma
sína í gær og munu hafa talið að þeir
væru búnir að glata áfyllingum sín-
um í kerfinu.
Talsmenn Landssímans segja
skýringu truflananna felast í því að í
gær var verið að færa GSM-frelsi yf-
ir í nýja símstöð, en það er liður í
stækkun símstöðvarhluta farsíma-
kerfanna.
Flutningur á gögnum úr gamla
kerfinu í það nýja tók hins vegar
lengri tíma en gert var ráð fyrir og
því kynnu einhverjir að hafa orðið
fyrir óþægindum.
Guðfinna Kristjánsdóttir, kynn-
ingarfulltrúi hjá Landssímanum,
sagði að nú væri unnið að miklum
endurbótum á GSM-kerfi Landssím-
ans og að verið væri að stækka sím-
stöðvarhluta þess. í fyrrinótt hefði
GSM-frelsi verið fært í nýja símstöð
og þegar shk færsla færi fram tæki
nýja símstöðin gögn úr þeirri gömlu
en öll væru þau hins vegar orðin tólf
tíma gömul. í kjölfarið þyrfti að spóla
inn sérstaka skipanaskrá til að upp-
færa það sem gerst hefði í millitíðinni
og átti því starfi að ljúka í gærkvöldi.
Guðfinna sagði að einhverjir
þeirra, sem sett hefðu áfyllingu á
GSM-frelsissíma sinn fyrri partinn í
gær og á miðvikudag, kynnu að hafá
lent í því að hún virkaði ekki. Hún
hefði þó átt að vera búin að skila sér í
gærkvöldi.
Hún tók hins vegar fram að á mið-
vikudag hefðu verið send SMS-skila-
boð til allra þeirra sem hafa GSM-
frelsi, þar sem þeim var greint frá því
að ekki væri hægt að fylla á símana
frá því kl. 10 á miðvikudagsmorgun
og til kl. 4 í fyrrinótt.
Atvinnuleysi í maí mældist 1,5%
362 hafa verið
atvinnulausir
í eitt ár
SAMKVÆMT tölum Vinnumála-
stofnunar eru 362 eða 16% þeirra
sem eru á atvinnuleysisskrá búnir
að vera atvinnulausir í meira en
eitt ár. 36,7% þeirra sem eru at-
vinnulausir eru konur á aldrinum
15-39 ára, en atvinnuleysi meðal
kvenna jókst í maímánuði. Atvinnu-
leysi meðal karla minnkaði hins
vegar.
Atvinnuleysisdagar í maí síðast-
liðnum jafngilda því að 2.061
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum, sam-
kvæmt yfirliti Vinnumálastofnunar.
Þar af eru 781 karl og 1.280 konur.
Þessar tölur jafngilda 1,5% af áætl-
uðum mannafla á vinnumarkaði
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar
eða 1% hjá körlum og 2,1% hjá
konum. Það eru að meðaltali 27
fleiri atvinnulausir en í síðasta
mánuði en um 604 færri en í maí í
fyrra.
Síðasta virkan dag maímánaðar
var 2.241 á atvinnuleysisskrá á
landinu öllu en það eru um 320
færri en í lok aprflmánaðar. Síðast-
liðna 12 mánuði voru um 2.279 að
meðaltali atvinnulausir eða um
1,6% en árið 1999 voru þeir um
2.602 eða um 1,9%.
Atvinnulausum hefur fjölgað í
heild að meðaltali um 1,5% frá
aprílmánuði en fækkað um 22,6%
miðað við maí í fyrra. Undanfarin
10 ár hefur atvinnuleysi minnkað
um 9,2% að meðaltali frá apríl til
maí. Arstíðasveiflan milli aprfl og
maí nú er því með öðrum formerkj-
um en árstíðasveiflan undanfarin
ár. Á þessu eru ýmsar skýringar,
að sögn Vinnumálastofnunar, m.a.
ýmsar breytingar á vinnumarkaði í
maí sem vega þyngra í litlu at-
vinnuleysi.
Atvinnuleysi eykst
á höfuðborgarsvæðinu
Atvinnuástandið breytist mis-
jafnlega á landinu. Atvinnuleysið
minnkar hlutfallslega mest á Aust-
urlandi, Norðurlandi vestra og
Suðurnesjum. Hins vegar eykst at-
vinnuleysið á Vesturlandi, höfuð-
borgarsvæðinu og á Vestfjörðum.
Atvinnuleysi er nú hlutfallslega
mest á Norðurlandi vestra en
minnst á Suðurnesjum. Atvinnu-
leysið er nú almennt minna en í
maí í fyrra á flestum atvinnusvæð-
um nema á Vestfjörðum þar sem
það er verulega meira og lítið eitt
meira á Vesturlandi.
Samtals voru 290 í hlutastörfum í
lok maí eða 12,9% þeirra sem voru
skráðir atvinnulausir í lok maí.
Samtals voru veitt 349 atvinnuleyfi
í maí. í lok maí voru um 414 laus
störf skráð hjá vinnumiðlunum.
Búast má við að atvinnuleysið í
júní geti orðið á bilinu 1,2% til
1,5%.
Af þeim 2.241 sem voru á at-
vinnuleysisskrá í lok maí höfðu
1.534 aðeins lokið grunnnámi.
Áberandi er að ungar konur eru til-
tölulega fjölmennar í hópi atvinnu-
lausra, en 822 konur á aldrinum 15-
39 eru á atvinnuleysisskrá. 81 karl
er skráður atvinnulaus í sama ald-
urshópi.
Harðar umræður um stjdrnarkjör í Línu-Neti á aukafundi í borgarstjórn
Vill fá menn úr
atvinnulífinu til
stj órnarsetu
SEX af sjö borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins tóku til máls á auka-
fundi í borgarstjóm Reykjavíkur í
gærkvöld, sem boðað var til að ósk
sjálfstæðismanna, og var einkum
rætt um stjómarkjör í Línu-Neti,
fjarskiptafyrirtæki Orkuveitu
Reykjavíkur. Sjálfstæðismenn gagn-
rýndu málsmeðferð við stjómarkjör-
ið í síðustu viku og töldu borgarstjóra
hafa útilokað fulltrúa sinn þar. Meiri-
hlutinn taldi boðað til fundarins af
litlu tilefni og sögu það vera vegna
þess sem þeir nefndu klúður hjá sjálf-
stæðismönnum við undirbúning
stjómarkjörsins í Línu-Neti.
Borgarfulltrúar sem sátu í stjóm-
inni voru Alfreð Þorsteinsson og
Helgi Hjörvar af hálfu Reykjavíkur-
listans og Inga Jóna Þórðardóttir af
hálfu Sjálfstæðisflokksins. Á síðasta
fundi fyrir aðalfund stakk Inga Jóna
upp á Þóri Kjartanssyni fram-
kvæmdastjóra sem fulltrúa sjálf-
stæðismanna í stjómina. Alfreð Þor-
steinsson formaður féllst ekki á það
og á aðalfundi í síðustu viku tilnefndi
fulltrúi borgarstjóra þrjá borgarfull-
trúa Reykjavíkurlistans í stjómina,
auk Alfreðs og Helga var Steinunn
Valdís Óskarsdóttir kjörin en það er
hlutverk borgarstjóra að bera fram
tillögu um stjómarkjör á aðalfundin-
um þar sem hann fer með hlut borg-
arinnar. Sjálfstæðismenn gagnrýndu
þessa málsmeðferð á borgarráðs-
iúndi sl. þriðjudag.
Úr 214 milljónum ítvo miHjarða
Helgi Hjörvar, forseti borgar-
stjómar, hóf umræðuna í gærkvöld
og rifjaði upp að síðast hefði verið
kallaður saman aukafundur í borgar-
stjórn í ágúst 1993 þegar fjallað var
um hvort breyta skyldi Strætisvögn-
um Reykjavíkur í hlutafélag. Sagði
hann ekki ástæðu til að kalla saman
fund þótt Inga Jóna Þórðardóttir,
oddviti sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn, fengi ekki tiltekinn mann
kjörinn í stjóm Línu-Nets. Forseti
sagði sjálfstæðismann alltaf hafa haft
uppi gífuryrði um Línu-Net og talið
stofnun þess fjárhagslegt glapræði
fyrir borgina. Einnig hefði Júh'us Víf-
ifl Ingvarsson gagnrýnt á sínum tíma
að starfsmönnum Orkuveitu Reykja-
víkur var gefinn kostur á að kaupa
hlut í fyrirtækinu á genginu 3. Helgi
Hjörvar sagði að þær 214 milljónir
sem Orkuveitan hefði lagt í fyrirtæk-
ið væm nú orðnar að tveimur millj-
örðum og gengi bréfanna væri 12.
Inga Jóna Þórðardóttir sagði for-
seta hafa forðast að tala um kjama
málsins og hún gagnrýndi þá ákvörð-
un Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra að útiloka sjálfstæðis-
menn frá stjóm Línu-Nets. Hún
kvaðst hafa látið í ljós það álit sitt að
fengnir yrðu menn út atvinnulífnu til
stjómarsetu í fyrirtækinu en ekki
kjömir fulltrúa borgarinnar. Eðlflegt
hefði verið að borgarfulltrúar sætu í
stjórninni fyrsta árið meðan fyrir-
tækið væri að komast af stað en síðan
ætti að sækja menn með reynslu og
þekkingu úr atvinnulífinu tfl stjóm-
arsetunnar. Sagði hún það hafa verið
álit borgarstjóra að þetta myndi
koma tfl endurskoðunar eftir fyrsta
starfsár fyrirtækisins. Inga Jóna
sagði Alfreð Þorsteinsson hafa
bragðist ókvæða við tfllögu sinni um
Þóri Kjartansson í stjómina. Hún
sagði það ekki vera í hlutverki meiri-
hlutans að hafa skoðanir á því hverjir
sætu í stjóminni af hálfú minnihlut-
ans.
Segir vinnubrögðin
gerræðisleg
Oddviti sjálfstæðismanna gagn-
rýndi tilnefningu borgarstjóra á aðal-
fundinum og sagði vinnubrögð henn-
ar gerræðisleg og sýna lítflsvirðingu
við lýðræðislegt stjómkerfi. Hún
sagði borgarstjóra hafa með ákvörð-
un sinni útflokað fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins og tflnefnt þrjá fulltrúa
Reykjavíkurlistans í stjómina sem
samþykkt var á aðalfundinum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir rifjaði
upp að við stofnun Granda hf. árið
1986 hefði þáverandi borgarstjóri til-
nefnt fulltrúa í stjómina án samráðs
við minnihlutann og það hefði heldur
ekki verið gert við skipan stjórnar
SVR. Hún sagði núverandi meirihuta
hins vegar hafa tekið upp þau vinnu-
brögð að hafa samráð við minnihlut-
ann um skipan í stjómir Félagsbú-
staða hf., Malbikunarstöðvarinnar
Höfða hf. og Línu-Nets hf.
Borgarstjóri benti á að til væri sími
sem virkaði í báðar áttir og sagði að
Inga Jóna hefði átt að ræða það fyrir
stjómarfúnd og aðalíúnd að hún gæfi
ekki kost á sér áfram en þar sem hún
hefði ekki gert það hefði hún ekki tal-
ið að hún vildi breytingar. Borinn
væri fram einn listi á aðalfundi og
samráð yrði að vera um hann en ekki
hægt að koma á síðustu stundu með
tfllögur um aðra skipan.
Alfreð Þorsteinsson kvaðst hafa
talið að Inga Jóna myndi sitja áfram í
stjóminni og tók undir með borgar-
stjóra að hún hefði átt að hafa samráð
um uppástungu sína. Því hefði hún
sjálf klúðrað því að sjálfstæðismenn
fengju skipaðan fulltrúa í stjóm
Línu-Nets.
Telja að leiðrétta eigi mistök
Aðrir borgaríúlltrúar sjálfstæðis-
manna tóku undir gagnrýni Ingu
Jónu og sögðu borgarstjóra hafa sýnt
valdníðslu og gengið á bak orða
sinna. Var nefnt að borgarstjóri ætti
að leiðrétta þessi mistök og verða
maður að meiri.
Borgarstjóri sagði þessari gjörð
ekki breytt en ræða mætti það fyrir
næsta aðalfund hvort gera ætti
breytingar á stjórn Línu-Nets. Hún
mótmælti þeim málflutningi sjálf-
stæðismanna að hún hefði lýst því yf-
ir við umræður í borgarstjórn á liðn-
um vetri að breyta ætti skipan
borgarfulltrúa í stjómina eftir fyrsta
árið, hún hefði sagst vilja endurskoða
skipanina en í því hefði ekki falist að
henni yrði endilega breytt. Hún sagði
sjálfstæðismenn eingöngu hafa óskað
eftir aukafundi vegna klúðurs þeirra
sem orðið hafi til þess að þeir hafi
glutrað sæti sínu í stjóm Línu-Nets.
Hún kvaðst vera þeirrar skoðunar að
Inga Jóna hefði ekki ætlað sér að eiga
samráð heldur búa til pólitískt leikrit.
í lok umræðunnar sagði Inga Jóna
að meirhlutinn vildi greinilega ráða
því hver væri fulltrúi sjálfstæðis-
manna í stjóm Línu-Nets og kynnti
hún bókun þeirra vegna málsins. Þar
segir meðal annars: „Það vekur því
sérstaka athygli að nú þegar fyrsta
starfsár fyrirtækisins er liðið að póli-
tískt kjömir fulltrúar R-listans sitja
sem fastast og gengið er fram hjá
þeim aðila sem tilnefndur var af hálfu
minnihlutans og kemur út atvinnu-
lífinu. I sæti minnihlutans í stjórninni
kýs borgarstjóri hins vegar að setja
borgaríúfltrúa R-listans. Af ummæl-
um fulltrúa meirihlutans hefur mátt
ráða að þeir sættu sig ekki við hver
væri fulltrúi minnihlutans. Slík af-
staða er með ólfldndum og sýnir í
raun mikla lítilsvirðingu gagnvart
lýðræðislegum stjómarháttum.“
Borgarstjóri las bókun Reykjavík-
urlistans og þar segir m.a. að sú al-
menna regla gildi um hlutafélög í
eigu borgarinnar að borgarstjóri til-
nefni fulltrúa borgarinnar. Einnig
segir: „Fyrir aðalíúnd Línu-Nets hf.
lá ekkert fyrir um að sjálfstæðismenn
vfldu gera breytingu á stjórninni og
Inga Jóna Þórðardóttir hafði hvorki
samráð við borgarstjóra né formann
stjómar um breytingu á stjóminni.
Stjóm hlutafélagsins ber ábyrgð á
því að á aðalfundi liggi fyrir tfllaga
um stjórn og hefði Inga Jóna mátt
taka það hlutverk sitt alvarlega og
ræða málið við meðstjómarmenn
sína.“