Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 30. JUNI2000
I DAG
BRIDS
Uinsjón Guðmundur
Páll Arnarson
ÞAÐ ERU æði mörg ár síð-
an Theodore Lightner setti
fyrst fram hugmyndir sínar
um útspilsdobl gegn slemm-
um, en það var í grein í The
Bridge World árið 1929.
Lightner hugsaði dæmið
þannig: Andstæðingarnir
hafa sjálfviljugir farið í
slemmu, sem þeir búast við
að vinna. E>ví er fátítt að
uppskera mikið með sektar-
dobli og betra að nýta sögn-
ina til að benda makker á út-
spil. Flestir keppnisspilarar
nota einhvers konar
„Lightner-dobl“ í þeim
skilningi að slemmudobl bið-
ur makker um að hugsa sinn
gang vel og leita að ein-
hverju óeðlilegu útspili. En
hvað er „óeðlilegt útspil“?
Lightner setti fram nokkrar
meginreglur: Dobl bannar
tromp, bannar lit sem vörn-
in hefur sagt og biður fyrst
og fremst um útspil í hliðar-
lit blinds, eða hliðarlit sagn-
hafa, hafí blindur ekki sýnt
hliðarlit. Sumir fylgja þess-
um reglum Lightners um-
hugsunarlaust, en aðrir
leyfa frjálslegri túlkun og
ætlast til að makker „lesi“
spilið rétt. í reynd er sú
krafa ósanngjörn. Hér er
síðasta dæmið frá gömlum
Norðurlandamótum, en það
kom upp 1998 í Noregi. Við
sögu koma tveir af landsliðs-
spilurum opna flokksins,
sem nú eru að spila í Hvera-
gerði, Magnús Magnússon
og Anton Haraldsson, en
þeir spiluðu saman hluta af
síðasta Norðurlandamóti.
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
A Q
¥ AG10542
♦ Q75
* ADG
Austur
Vestur
*D52
¥86
♦ 92
*1098753
♦1097643
¥K97
♦ Á6
+42
Suður
+ÁK8
¥D3
♦ KD10843
+K6
Vestur Norður Austur Suður
Magnús Schaffer Anton Bruun
- lhjarta 2spaðar 3 tíglar
4 lauf 5 tíglar Pass 6 tíglar
Pass Pass Dobl Allirpass
Þetta var í leik gegn Dön-
um. Eins og sést við ná-
kvæma skoðun er hjarta
eina útspilið sem drepur
slemmuna. Ef sagnhafi
stingur upp ás og spilar laufi
þrisvar, trompar austur og
tryggir sér þannig slag á
hjartakónginn til hliðar við
tígulásinn.
Auðvitað hafði Anton
enga tryggingu fyrir því að
hjarta út myndi bana
slemmunni, en hann vildi
hvorki spaða né lauf. Sér-
staklega óttaðist hann að
makker myndi gefa slag
með því að koma út í spaðan-
um, til dæmis frá kóng. En
Lightner-doblin höfðu ekki
komist á dagskrá i skömm-
um undirbúningi og Magnús
ákvað að „lesa“ útspilið, eins
og títt er um spilara nútím-
ans, og valdi lauf í þeirri trú
að þar væri Anton með eyðu.
Sem gat auðvitað vel verið.
Það er svo merkilegt, að
þótt hugmyndir Lightners
séu komnar til ára sinna, þá
hefur enginn enn sem komið
er betrumbætt þær að ráði.
Árnað heilla
A ÁRA afmæli og ferming. í dag, fóstudaginn 30. júní
• V/ verður sjötugur Jón Jónsson, framkvæmdastjóri,
Melabraut 28, Seltjarnarnesi. Eiginkona hans er Ástríður
Gréta Pálsdóttir. Þau eru að heiman í dag. Sama dag verður
fermdur í Dómkirkjunni í Reykjavík dóttursonur Jóns, Jón
Reynir Gústafsson, Bauganesi 33, Reykjavfk.
f7A ÁRA afmæli. í dag,
I V/ fóstudaginn 30. júní,
er sjötugur Gunnar Val-
geirsson, flugvirki, Hraun-
braut 30, Kópavogi. Um
þessar mundir dvelur hann í
sumarhúsi sínu í Biskups-
tungum.
r A ÁRA afmæli. Þann
OU 21. júní sl. varð
fimmtugur Sævar B. Þórar-
insson, skipstjóri, Fornuvör
4, Grindavík. I tilefni þess
hefur hann opið hús fyrir
vini og vandamenn í dag,
föstudaginn 30. júní eftir kl.
20 í húsi Björgunarsveitar-
innar Þorbjörns, Seljabót
10, Grindavík.
K /\ÁRA afmæli. Á morg-
OU un, laugardaginn 1.
júlí, verður fimmtugur Níels
Árni Lund, deildarstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu.
Eiginkona Níelsar Árna er
Kristjana Benediktsdóttir,
skjalavörður nefndasviðs
Alþingis. I tilefni afmælisins
bjóða hjónin öllum ættingj-
um og vinum til fagnaðar í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni
14, á afmælisdaginn 1. júlí
kl. 17-20.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fýrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavik
UOÐABROT
LANDSLAG
Heyrið vella á heiðum hveri,
heyrið álftir syngja í veri.
Islands er það lag.
Heyrið fljót á flúðum duna,
foss í klettaskorum bruna.
íslands er það lag.
Eða fugl í eyjum kvaka,
undir klöpp og skútar taka.
íslands er það lag.
Heyrið brim á björgum svarra,
bylja þjóta svipi snarra.
Islands er það lag.
Og í sjálfs þín brjósti bundnar
blunda raddir náttúrunnar,
Islands eigið lag.
Innst í þínum eigin barmi
eins í gleði og eins í harmi
ymur íslands lag.
Grímur Thomsen.
STJÖRNUSPA
eftir Franees Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert forvitinn ogfram-
takssamur og átt auðvelt
með aðganga í augun á
öðrum með glensi og
gamansemi.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú munt eiga rólegan dag
og gætir fengið óvænta
heimsókn sem gleður þig.
Ekki hvað síst hversu góðar
fréttir þú færð.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefðir gott af því að
breyta til á einhver hátt
hvort sem er heima fyi'ir
eða í vinnunni. Gefðu þér
tíma til að hugsa málið.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní)
Þú átt bágt með að einbeita
þér að starfinu þar sem
áhyggjur af einkamálum
dreifa athyglinni. Láttu
einkamálin hafa forgang.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að taka þig saman
í andlitinu og einbeita þér
að því sem fyrir liggur.
Kapp er best með forsjá.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Þér er nauðsyn að hafa allt
á hreinu varðandi eignir
þínar og fjárhag enda
ágætt að hafa í huga að
hver er sinnar gæfu smiður.
Meyja **
(23. ágúst - 22. sept.)
Með sama áframhaldi mun
vinna þín skila þér arði og
ánægju. Farðu samt var-
lega því einhver reynir vilj-
andi að villa þér sýn.
Vog rn
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft að gæta þess að að
hnýta alla enda þess máls
sem þú ert að glíma við á
vinnustað þínum. Án þess
gæti allt farið úr böndun-
um.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt ekki sjá árangur
erfiðis þíns strax en varastu
óþolinmæði því þitt starf
eins og allt annað, hefur
sinn tíma.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) KSr
Það eru oft einföldustu
hlutir sem vefjast mest fyr-
ir manni. Vertu þolinmóður
og leystu hvern hnút fyrir
sig.
Steingeit —
(22. des. -19. janúar)
Mundu að virða skoðanir
annarra þótt þær komi ekki
alveg heim og saman við
það sem þér finnst. Vertu
víðsýnn og jákvæður.
Vatnsberi «
(20. jan. -18. febr.) Cán!
Þú ert í skapi til að vera
kærulaus og það er allt í
lagi. Þú þarft virkilega á
góðri hvíld að halda til að
ná góðu jafnvægi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er ekki allt gull sem
glóir og margt reynist eftir-
sókn eftir vindi. Vertu
raunsær í peningamálun-
um.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaiegra staðreynda.
flugustangir
...með
lífstíðarábyrgð
Utsölustaðir:
Útilíf
Veiðibúð Lalla
Vesturröst
Einkatímar/námskeið, sími 694 5494
Ný námskeið hefst 11. og 19. júlí
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójaínvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Hringdu núna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur,
m
Eignamiðlun Suðurnesja hefur fengið í einkasölu
3000 fermetra verslunar- og
þjónustubyggingu
á tveimur hæðum á Njarðarbraut 11 í Njarðvík. Framkvæmdir við
bygginguna eru að hefjast um þessar mundir og eru verklok áætluð
þann Lapríl 2001. Staðsetning byggingarinnar er mjög góð, hún er
staðsett við Reykjanesbraut nálaegt helstu íbúðarkjörnum á Suður-
nesjum í hverfi sem nú byggist hratt upp.
Byggingin verður seld í stærri eða smærri einingum eftir því sem við á.
Endanlegar teikningar hússins verða fullfrágengnar á næstu vikum og
því er mögulegt fyrir hugsanlega kaupendur af stórum hlut í bygging-
unni að hafa áhrif á endanlegt útlit þeirra.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar hjá:
Eignamiðlun Suðurnesja í síma 421-1700.