Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 33
Sjö manna tak
TONLIST
F r í k i r k j a n
KAMMERTÓNLEIKAR
Blanc: Septett í E Op. 401; Beet-
hoven: Septett í Es Op. 202. Kamm-
erhópurinn Octo (Margrét Krist-
jánsdóttir, fiðla 1; Sigurlaug
Eðvaldsdóttir, fiðla 2; Herdís Jóns-
dóttir, víóla; Lovísa Fjeldsted, selló;
Hávarður Tryggvason, kontra-
bassi; Kjartan Oskarsson, klarinett;
Emil Friðfinnsson, horn; Rúnar Vil-
bergsson, fagott). Þriðjudaginn 27.
júm' kl. 20:30.
í FLJÓTU bragði skyldi maður
ætla að ekki væri auðfundið annað
kammerverk á móti Septetti Beet-
hovens með sömu áhöfh (klarínett,
hom, fagott og strengjatríó með
kontrabassa), og þaðan af síður af
sömu gæðum. Svo maður tali ekki um
vinsældir. Því meðan Beethoven lifði
komst ekkert annað verk frá hendi
hans í hálfkvisti við Septettinn að al-
þýðuhylli, og hefur hún enzt fram á
þennan dag. En við nánari skoðun
kemur í Ijós glettilegur fjöldi slíkra
verka frá „heimilismúsík“-öldinni ní-
tjándu, þónokkur m.a.s. í sömu tón-
tegund, og við blasir, að vinsældir Es-
dúr-septettsins frá 1800, sem fóru í
taugamar á Beethoven á efri ámm
þegar þær skyggðu á seinni og merk-
ari verk hans, hafa hvatt marga tón-
höfunda til að freista þess að endur-
taka sjömannaleikinn.
Harla h'tið fer þó enn íyrir Adolphe
Blanc (1828-85) á hljómplötuvörulist-
um, og gæti flutningur Octo-kammer-
hópsins í Fríkirkjunni á þriðjudaginn
sem hægast verið írumflutningur
septettsins á í slandi, þótt ekkert væri
fullyrt um það í annars vel skrifaðri
tónleikaskránni. Verkið var samið um
1860, og þó í fjórþættu sinfónísku
stórformi sé eimdi margt eftir af fyr-
irmyndinni frá Beethoven, sem
strangt til tekið var þá þegar orðin
hálfúrelt arfleifð „Tafel“-tónlistar
(„dinnermúsík" eins og menn kalla í
dag) og dívertímentóa 18. aldar. Sem
kammertónsmíð verkaði septett
Blancs raunar meira sannfærandi en
septett Beethovens að því leyti að
verkefnum var jafnar niður skipt milli
hljóðfæra en hjá Beethoven, þar sem
fiðlan leikur það stórt hlutverk að
stappar stundum nærri einleiksfiðlu í
fiðlukonsert, þótt minna bæri á því að
vísu í hlutfallslega hlédrægum leik
Sigurlaugar Eðvaldsdóttur miðað við
sígaunasprellikarla eins og Willi
Boskovsky.
Furðuh'tið kvað að síðrómantískum
tilþrifum í kammerstykki Blancs, sem
ef nokkuð er hljómaði enn íhaldssam-
ara fyrir sinn tíma en jöfurinn suður í
Vínarborg meðan allt lék í lyndi, áður
en andhverf örlög knúðu dyra og
gerðu hann að byltingarmanni í tón-
list. Verkið var engu að síður vel og
oft allþétt skrifað; skemmtilegast í
miðþáttunum, hinum söngræna And-
ante og í Scherzóinu, þar sem falda-
feykjandi ítölsk tarantella þyrlaðist
um loft í snörpum samleik hópsins.
Fínalinn var þróttmikill en spilltist
svolítið af tveim eða þrem hálfbanöl-
um mótívum sem kunna að hafa
hljómað ferskar á tilurðartíma en
seinna varð.
Samleikur Octo-hópsins var víða
góður í þessu að mörgu leyti óþarf-
lega gleymda verki, þó að gruna
mætti endrum og eins, kannski sér-
staklega í strengjum, að hópurinn
hefði ekki komið ýkja oft fram á
seinni misserum, og kom það enn bet-
ur fram í alkunnu verki Beethovens.
Það getur oft verið gaman að músík-
ölsku hljómlistarfólki sem teflir á
tvær hættur þegar tíminn er naumur
í tvennum skilningi (þ.e. fjörugt
tempó og lítill samæfingartími), enda
bætti spilagleðin fyrir ýmsar örður í
samstillingu. En það er meira en að
segja það, ekki sízt fyrir túttí-
strengjaleikara í sinfóníuhljómsveit,
að ná pottþéttum samleik í gegnsæj-
um kammerverkum sem þessum eftir
kannski áralangt hlé. í því ljósi var
mesta furða hvað margt náði þrátt
fyrir allt að smella saman.
í heild má segja að raddjafnvægið
hafi oftast verið nokkuð gott, þó að
miðstrengimir - víóla og selló - virt-
ust almennt full aftarlega, auk þess
sem klarínettið og einkum hornið
uggðu stöku sinni minna að sér en
skyldi í hljómfyllingarhlutverki. Hvað
styrkjafnvægi snertir má valdhornið
sem kunnugt er vera sérstaklega á
varðbergi í htlum samleikshóp, enda
fyllir tónn þess hvem krók og kima,
að örfáum yfirgnæfingum slepptum
var gaman að liprum leik Emils Frið-
finnssonar í báðum verkum.
Beethoven-septettinn er afbragð-
svel samið skemmtiverk innan síns
mið-vínarklassíska stílramma; rit-
hátturinn tær, yfirbragðið ljúft og
formið skýrt og einfalt. Fiðlan er þar
sem fyrr sagði í hálfgerðu forystu-
hlutverki, og Sigurlaug naut skynjan-
lega góðs af töluvert meiri kammer-
músíkalskri reynslu en stalla hennar í
Blanc, þótt oft hefði mátt slaka aðeins
á fáguninni og spila meira út.
Einna fallegastur þáttanna sex var
efalítið Adagio cantabile (II.), sem
skartaði löngum og líðandi blásara-
hendingum af dapurri reisn, þrátt
fyrir hæga yfirferð. Tempóvalið var
annars yfirleitt gott, nema hvað Men-
úettinn (III.) var í það hraðasta og
vantaði Schwung - e.t.v. líka vegna
bassans sem lék ekki upptaktsnót-
urnar nógu veikt (eina misfellan í
annars öruggum leik Hávarðs
Tryggvasonar, sem ávallt var á hár-
réttum styrk) - fyrir utan Scherzóið
(V.) og loka-Prestóið, sem miðað við
takmarkaðan samæfingartíma voru í
djarfara lagi, með tilheyrandi straffi í
formi subbulegs strengjasamleiks á
köflum.
Adrenalínflæði kann að hafa valdið
flýtingaróróleika strengja í byrjun til-
brigðaþáttarins (IV.), en hann náði
betur saman þegar á leið. Hrynskerp-
an hefði sömuleiðis mátt vera meiri
hér og þar, ekki sízt þegar Beet-
hovenlegar synkópu-áherzlur voru á
ferð, en víðast hvar náðist þó viðeig-
andi léttleiki yfir þessari hugljúfu af-
þreyingarperlu frá andarslitrum hár-
kollualdar. Hefði þó sennilega skipt
sköpum, miðað við aðstæður, ef spil-
endur hefðu haft vaðið örlítið meira
fyrir neðan sig í hraðavali. E.t.v. á
kostnað einhverrar spennu - en ör-
ugglega til ágóða fyrir nákvæmnina.
Ríkarður Ö. Pálsson
Kvartett Friðriks
Theódórssonar
á Jómfrúnni
FIMMTU sumartónleikar veitinga-
hússins Jómfrúarinnar við Lækjar-
götu fara fram á morgun kl. 16-18.
Að þessu sinni kemur fram kvartett
básúnuleikarans og söngvarans
Friðriks Theódórssonar.
Aðrir meðlimir kvartettsins eru
píanóleikarinn Ámi ísleifsson,
bassaleikarinn Leifur Benediktsson
og trommuleikarinn Guðmundur R.
Einarsson.
Kvartettinn leikur létta og að-
gengilega djasstónlist. Tónleikarnir
fara fram utandyra á Jómfrúartorg-
inu ef veður leyfir, en annars inni.
Aðgangur er ókeypis.
hr nafli allneimsins í Kópavogi?
Við erum þar...
... viltu far?
Plúsferðir opna í dag nýja söluskrifstofu
, að Hlíðasmára 15 - í hjarta Kópavogs.
FRABÆR
0PNUNAR-
TILB0Ð
29. júlí 5. og 16. ágúst
19.900
kr.
flugsæti á mann.
m/flugvallarskatti
Portúaal
4. júlí í 1 viku
kr.
29.600
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn
2ja-11 ára ferðist saman.
Innifalið: Flug gisting á Garden Choro.
Ef 2 ferðast saman 35.600 kr. á mann.
Flugvallaskattar, 2.990 kr. fyrir fullorðinn
og 2.240 kr. fyrir börn, ekki innifaldir.
Alicante
Benidorm
14. júlí og 25. ágúst
19.950
flugsæti á mann.
Innifalið: Flug til Alicante 2 vikur.
Flugvallarskattar 2.650 kr. ekki innifaldir.
kr.
Mallorca
26. júlí og 30. ágúst í 1 viku
41.400
á mann miðað við að 2 ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting á Pil Lari Playa
í stúdíói.
Flugvallarskattar 2.650 kr. ekki innifaldir.
kr.
Manclnester
13. og 20. október
19.950
flugsæti á mann.
Innifalið: Flug til Manchester.
Flugvallarskattar 4.425 kr. ekki innifaldir.
kr.
Krít
7. ágúst í 1 viku
43.300
á mann miðað við að 2 ferðist saman.
Innifalið: Flug. gisting á Ariadni
í tveggja manna herbergi.
Flugvallarskattar 3.995 kr. ekki innifaldir.
kr.
ísafjörður • S: 456 5111 Höfn • S: 478 1000 Vestmannaeyjar • S: 481 1450
Akranes-S:431 4884 Borgames»S: 437 1040 Sauðárkrókur• S: 4536262/8968477 EgilsstaBir • S: 471 2000 Keflavik'S:m 1353
Blönduós’ S: 452 4168 Dalvík‘S: 466 1405 Akureyri-S: 462 5000 Selfoss>S: 4821666 Grindavík-S: 426 8060
Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavík og Hlíðasmára 15 • 200 Kópavogur
Sími 535 2100 • Fax 535 2110 •Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
FERÐIR