Morgunblaðið - 30.06.2000, Page 19
f
í
,• ■ , 1
HDi
Samferða í 70 ár
1
j
1
t
Þann 1. júlt 1930 hóf Búnaðarbankinn starfsemi sína. Á þessum 70 árum hefur bankinn vaxið og
dafnað í takt við íslenskt þjóðfélag og er nú með starfsemi á 36 stöðum víðsvegar um landið. Á
mörgum sviðum hefur Búnaðarbankinn rutt brautina með nýjungum í bankaþjónustu, s.s. með
rafrænni þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, dreifingu útgjalda fyrir heimili og sérhæfðri
þjónustu fyrir námsmenn, börn, unglinga og síðast en ekki síst eldri borgara í landinu.
í tilefni afmælisins hefurverið opnaður listgluggi á Netinu þarsem sýnd eru listaverk í eigu bankans
og er þar einnig hægt að taka þátt í skemmtilegum afmælisleik með fróðleiksmolum úr sögu
bankans. í boði eru vegleg verðlaun.
Búnaðarbankinn er banki
menningarborgarinnar árið 2000
BÚNAÐARBANKINN
Traustur hanla í 70 ár
Þér er boðið í afmæli!
í tilefni afmælisins býður bankinn til veislu i
útibúum um allt land. Boðið verður upp á léttar
veitingar og skemmtiatriði af ýmsum toga. Þannig
munu söngvarar og tónlistarmenn heimsækja
útibúin og íbúar Latabæjar heimsækja nokkur útibú
bankans á höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar
og tímasetningar á skemmtiatriðum er að finna á
heimasiðu Búnaðarbankans www.bi.is. Öllum
viðskiptamönnum og velunnurum bankans er boðið
að líta inn og þiggja veitingar.
f
F I 0 0 0 4 6 6