Morgunblaðið - 30.06.2000, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 30.06.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 31 ERLENT Bretland Upptöku evru ekki flýtt London. Reuters, The Daiiy Telegraph. ROBIN Cook, utanríkisráðherra Bretlands, neitaði því í gær að Helen Liddell aðstoðarráðherra hefði látið þau orð falla í viðtali við þýska dag- blaðið Berliner Zeitung að Bretar myndu taka upp evruna „fyrr en við öll búumst við“. Ummælin höfðu verið túlkuð sem vísbending um að Verkamannaflokk- urinn hygðist efna til þjóðaratkvæða- greiðslu um evruna nokkrum mánuð- um eftir næstu þingkosningar, sem búist er við í maí eða júní á næsta ári, ef flokkurinn færi með sigur af hólmi. Cook sagði hins vegar að Liddell hefði neitað því að hafa látið þessi orð falla og sagt að ummælin hefðu verið þýdd ranglega á þýsku. Utanríkis- ráðherrann neitaði því ennfremur að óeining væri um málið í stjóminni. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór til Berlínar í gær til að ræða við Gerhard Schröder, kansl- ara Þýskalands. Búist var við að Blair myndi láta í ljós áhyggjur af þeim ummælum Jacques Chiracs Frakklandsforseta um að kjarnahóp- ur ríkja Evrópusambandsins, undir forystu Frakklands og Þýskalands, ætti að ganga lengra í pólitískum og efnahagslegum samruna en önnur væru tilbúin að gera. ------*-H------- Auka olíu- framleiðslu Ósld. AFP. NORÐMENN ætla að hætta tak- mörkunum á olíuframleiðslu að því er Olav Akselsen, olíumálaráðherra Noregs, tilkynnti í gær. Gaf hann í skyn, að framleiðslan yrði aukin um 100.000 föt á dag. Akselsen sagði, að með þessu vildu Norðmenn stuðla að auknum stöðug- leika á markaðnum en þeir drógu úr framleiðslunni um 100.000 föt í maí 1998 og aftur um sama magn í apríl í fyrra. Þá fóru þeir að dæmi OPEC- ríkjanna, Samtaka olíuútflutnings- ríkja, og olli samdrátturinn því, að ol- íuverðið fór úr 10 dollurum á fat í um 30. Þeir juku síðan framleiðsluna um 100.000 föt 30. mars sl. og gáfu þá í skyn, að þeir myndu auka hana aftur á öðrum ársfjórðungi ef markaðs- aðstæður gæfu tilefni til. Mannskætt ferjuslys við Mólukkaeyjar í Indonesíu Óttast að 500 hafi farist Jakarta. AFP, AP, Reuters. ÓTTAST er að allt að 500 manns hafi farist er ferja sökk á leið sinni frá Mólukkaeyjum í austurhluta Indónesíu í gær. Fjöldi þeirra sem um borð voru í ferjunni er á reiki sem og ástæð- ur slyssins, en meirihluti farþeg- anna virðast hafa verið flóttamenn frá Halmara-eyju, þar sem kom til blóðugra átaka milli uppreisnar- manna múslima og kristinna manna nú fyrr í mánuðinum. Sendi frá sér neyðarkall í slæmu veðri Ferjan lagði af stað frá Tobelo- höfninni á Halmara á miðvikudag og var á leið til borgarinnar Man- ado í nágrannahéraðinu. Hún er sögð hafa sent frá sér neyðarkall í slæmu veðri áður en fjarskipta- samband rofnaði. Talið er að ferjan, sem var ófundin, hafí sokkið um 40 sjó- mílur norður af strönd eyjarinnar Sulawesi. AFP-fréttastofan sagði einnig fréttir hafa borist af vélarbilun í ferjunni. „Auðvitað óttumst við að margir hafi farist," sagði Ering Musa, starfsmaður hafnaryfir- valda. Ekki er vitað hve margir voru með ferjunni. AFP sagði far- þegana hafa verið um 400 talsins, þar af 270 flóttamenn, en AP- fréttastofan taldi um 500 hafa ver- ið um borð. „Fjöldi farþega er ekki öruggur né heldur örlög þeirra,“ sagði Bob Hlattu, hafnarstjóri í Tobelo. Ljóst virðist hins vegar að ferjan hafi verið ofhlaðin þar sem leyfilegur farþegafjöldi var 250 manns. Skipsskaðar eru algengir í Ind- ónesíu þar sem öryggisreglum er lítt fylgt eftir og skip, sem er illa viðhaldið, eru oft ofhlaðin farþeg- um og varningi. vetur haust Opið laugardag frá kl. 10-16 Mörkinni 6, s. 588 5518 Bílastæði við búðarvegginn. Eldur í SLÖKKVILIÐSMAÐUR í Antilópu- dal í Nevadaríki í Bandarfkjunum talar við starfsbræður sína í talstöð frá einum þeirra staða í dalnum þar sem skógareldar brunnu á miðviku- dag. Kviknuðu þeir út frá eldingu rúma þrjátíu kílómetra norður af borginni Reno. Bílslys kveikti skógarelda sem í AP Nevada gær breiddust hratt út í nágrenni Hanford-kjarnorkuversins í Wash- ingtonrfki á vesturströndinni. Höfðu að minnsta kosti 25 heimili eyðilagst og mörg þúsund manns orðið að flýja. Upplýsingafulltrúi bandarfska orkumálaráðuneytisins sagði að kjarnorkuverið væri ekki í yfirvofandi hættu. Föt og skór - allt að 90% afsláttur r Utsölumarkaðurinn að Skúlagötu 63 heldur áfram 0pið Mán. - Lau. 12:00 - 18:00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.