Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Fjögurra daga fundur samtaka múslimaríkja í Malasíu Múslímar tileinki sér nútímatækni Elian Gonzalez veifar til skólafélaga sinna við komuna til Kúbu í gær. Elian, sem forræðisdeila hefur staðið um sl. sjö mánuði, mun næstu vik- ur aðlagast kúbversku þjóðfélagi á ný áður en hann sest á skólabekk. Forræðisdeilunni lokið Látlausar móttök- ur við komu Elians Kuala Lumpur. AP, Reuters, AFP. MAHATHIR Mohamad, forsætis- ráðherra Malasíu, sagði á fundi samtaka múslímaríkja (OIC), sem lýkur í dag, að múslímar yrðu að til- einka sér nútímatækni, ella yrðu þeir aftur undir í samkeppninni við Vesturlönd. Hann gagnrýndi hins vegar alþjóðavæðingu og varaði við því að hún gæti breytt múslímaríkj- unum í „bananalýðveldi". Mahathir lét þessi orð falla þegar hann setti fjögurra daga fund OIC í Kuala Lumpur. Fundinn sitja um þúsund fulltrúar 56 ríkja, þeirra á meðal utanríkisráðherrar og fleiri hátt settir embættismenn. Forsætisráðherrann hvatti músl- ímaríkin til að taka höndum saman og sagði að ella væri hætta á að þau heltust úr lestinni á ný nú þegar „upplýsingabyltingin" tæki við af „iðnaðaröldinni" á Vesturlöndum. Mahathir sagði að helsta fyrir- staða þess að múslímaríki tileink- uðu sér nútímatækni væri að trúar- legir og pólitískir leiðtogar múslíma óttuðust að hún yrði til þess að völd þeirra minnkuðu. „Við erum orðnir eftirbátar annarra ríkja heims. Margir okkar fordæma þekkingu, aðra en íslamska, sem veraldlega og hvetja okkur til að hafna henni. Af þeim sökum getum við ekki þróað ríki okkar, við getum ekki iðnvæðst, getum jafnvel ekki keppt við öflugustu þróunarríkin.“ Forsætisráðherrann sagði að múslímar hefðu verið í fararbroddi og notið virðingar fyrir mörgum öldum, stofnað bókasöfn og háskóla og stuðlað að framförum í vísindum og stærðfræði. Kristnir menn í Evrópu hefðu hins vegar tekið for- ystuna þegar múslímar hefðu tekið að þræta sín á milli og reyna „að skara fram úr í trúarofsa". Mahathir sagði að Vesturlönd hefðu notfært sér þessa óeiningu múslíma. „í þeirra augum erum við Mahathir Mohamad allir múslímar, óvinir þeirra og hugsanlegir hermdarverkamenn, og þau munu gera allt sem á valdi þeirra stendur til að veikja okkur og í mörgum tilvikum tortíma okk- ur.“ Hvatt til sameiginlegs markaðar í ræðunni gagnrýndi forsætis- ráðherrann einnig alþjóðavæðing- una og hvatti múslímaríkin til að treysta ekki fyrirheitum um að all- ar þjóðir högnuðust á óheftu við- skiptafrelsi. Hann beindi einkum spjótum sínum að Heimsviðskipta- stofnuninni (WTO), sem hann sagði taka þátt í ráðabruggi auðugra ríkja um „að gleypa alla litlu bank- ana og fyrirtækin okkar“. „Að lok- um verða ríki okkar eins og ban- analýðveldin þar sem plantekru- stjórarnir eru voldugri en forsetar landanna." Ezeddine Laraki, framkvæmda- stjóri OIC, hvatti aðildarríki sam- takanna til að auka viðskiptin sín á milli og koma upp sameiginlegum markaði til að auðvelda þeim að takast á við hætturnar sem þeim stafaði af alþjóðavæðingunni. Havana. AFP, AP. ELIAN Gonzalez, sex ára kúbverski drengurinn sem forræðisdeila hef- ur staðið um sl. sjö mánuði, kom ásamt íjölskyldu sinni til Kúbu seint á miðvikudagskvöldið eftir að hæstiréttur Bandaríkjanna heimil- aði föður hans, Juan Miguel Gonz- alez, að taka drenginn með sér til Kúbu. Móttökumar sem Elian fékk á Kúbu voru látlausar í samanburði við það fjölmiðlafár sem einkenndi dvöl hans í Bandaríkjunum og sögðu erlendar fréttastofur, að með þeim hefði verið sleginn tónninn fyrir aðlögun hans að kúbversku þjóðfélagi. Hundruð fyrrverandi skólafélaga Elians frá heimabæ hans Cardenas veifuðu kúbverska fánanum og köll- uðu „Elian, Elian, Elian,“ er flug- vélin lenti á Jose Marti-flugvellin- um á Kúbu. Kúbverjar sáu síðan í beinni útsendingu ríkissjónvarpsins þegar ættingjar drengsins föðmuðu hann við komuna og stuttu síðar ók fjölskyldan á brott. Elian mun næstu vikur dvelja í bráðabirgðahúsnæði ásamt fjöl- skyldu sinni meðan hann aðlagast ættingjum sínum og kúbversku samfélagi og nær bekkjarfélögum sínum með aðstoð kennara. Lög- regla hindraði í gær aðgang ann- arra en íbúa að húsinu sem Gonz- alez-fjölskyldan býr nú í, en veija á Elian fyrir öllum ágangi fjölmiðla. Yfírvöld á Kúbu hafa lagt sig fram við að aðlögunin verði Elian sem auðveldust og hvöttu þau því landsmenn til að fagna heima hjá sér, ekki á götum úti. „Við höfum náð því takmarki okkar að flytja barnið aftur til heimalands síns,“ sagði í yfirlýsingu sem lesin var upp í sjónvarpi. „En þetta er ekki stund til að stæra sig, hreykja sér eða vera fullur sjálfshóls." Ricardo Alarcon, þingforseti Kúbu, var einn stjórnmálamanna til að taka á móti Gonzalez-fjölskyld- unni og litu íbúar Kúbu að sögn AFP-fréttastofunnar á heimkomu Elians sem sigur hans og fjölskyld- unnar, frekar en sem sigur stjóm- valda. „Þetta er sigur fyrir fjöl- skylduna,“ sagði Luis Manuel Viel leigubílastjóri. „Á meðan faðir hans er á lífi á Elian að vera hjá honum.“ Forræðisdeilan yfir Elian hófst í lok síðasta árs er drengurinn fannst á gúmmíslöngu undan strönd Flór- ída. Islendingar í fímmta sæti á lista SÞ þar sem lífsgæði þjóða eru borin saman Mannréttindi forsenda framþróunar ÍSLAND lendir í fimmta sæti á ár- legum samanburðarlista Þróunar- áætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) sem birtur var i gær og hafa íslendingar hækkað sig um fjögur sæti síðan í fyrra er þeir voru í níunda sæti. í listanum er hinum 174 ríkjum heims raðað eftir mælingum á heilsu og aðgangi að heilbrigðis- stofnunum, menntunarstigi og al- mennum lífsgæðum og sem fyrr raða Vesturlönd, auk Japans og Astralíu sér í efstu sæti. 24 neðstu ríki listans eru sunnan Sahara-eyðimerkurinnar og rekur Vestur-Afríkuríkið Síerra Leone lestina að þessu sinni. I efsta sæti er Kanada, annað árið í röð, og þar á eftir Noregur, Bandaríkin og í Ástralía. I tengslum við lífsgæðalistann er i ársskýrsla UNDP birt og er þar m.a. lögð áhersla á að mannréttindi séu ekki munaður sem aðeins vel stæð ríki hafa efni á heldur séu mannrétt- indi frumforsenda framþróunar og hagvaxtar. En á sama tíma séu mannréttindi ein og sér ekki nægileg ef hungur hrjái þjóðir og fólk hafi ekki kost á mennta- og sjúkrastofn- unum. „Samhliða því að fólk hefur rétt til þess að vera ekki pyntað, þá hefur það rétt til þess að verða ekki hungri að bráð,“ segir í skýrslunni sem beinir athyglinni að tengslum mannréttinda og þróunar og leggur til leiðir til að tryggja að mannrétt- indi og lýðræði séu virt. „Það er aðeins að gefnu pólitísku frelsi - rétti manna og kvenna til jafngildrar þátttöku í samfélaginu -að fólk getur fært sér efnahagslegt frelsi í nyt,“ sagði Mark Malloch- Brown, framkvæmdastjóri Þróunar- áætlunar SÞ, við birtingu skýrslunn- ar í gær. „Mannréttindi eru ekki, eins og stundum er haldið fram, laun framþróunar. Þau eru forsenda hennar [...]. Þegar fólki finnst það eiga hlut að máli og rödd sem hlustað er á, mun það beita sér af öllum mætti fyrir þróun. Réttindi gera ein- staklinga að betri þátttakendum í efnahagslífinu." Lífslfkur ungbarna aukist á 30 ára tímabili í skýrslu UNDP er greint frá því að í dag eru lífslíkur ungbams tíu ár- um meiri en þær voru árið 1970 og að dregið hefur úr dauða bama undir fimm ára aldri um 20% á undan- gengnum 30 ámm. Að sama skapi hefur aðgengi dreifbýlisfólks að hreinu vatni aukist úr 13% í 71% á sama tímabili og ólæsi minnkað um helming. En þótt margt hafi áunnist á und- anförnum áratugum er langt í land með að jarðarbúar njóti lífsgæða og á það sérstaklega við um íbúa Afr- íku. í skýrslu UNDP er sagt frá því að á hverjum degi látist 30.000 böm úr sjúkdómum sem auðveldlega má koma í veg fyrir og að 790 milljónir manna búi við hungur og óömgga fæðuöflun. Jafnvel í OECD-ríkjun- um era átta milljónir manna sem búa við slíkar aðstæður. Þá er þess getið að í heiminum era um 1,2 milljarðar manna sem hafa minna en 77 ísl. kr. í daglaun og að á hverjum degi þurfi 100 milljónir barna að afla sér viður- væris á götum stórborga. Jafnvel þótt Bandaríkin séu í þriðja sæti lífsgæðalistans segir í skýrslunni að þar í landi sé „mannleg fátækt" mest meðal iðnríkja heims, hvað varðar lífslíkur, ólæsi og at- vinnuleysi og eru írland og Bretland þar skammt undan. í þessum ríkjum er einn af hveijum fimm fullorðnum nánast ólæs og í Bandaríkjunum falla 17% íbúa undir skilgreiningu á fátækt. Lífslíkur á íslandi rúm 79 ár I skýrslunni er sagt að lífslíkur Is- lendings við fæðingu séu 79,1 ár og standa aðeins Japanar okkur framar með áttatíu ára lífslíkur. Danir hafa minnstar lífslíkur Norðurlandaþjóð- anna með 75,7 ár. Þá er talið að að- eins 8,4% íslendinga muni deyja áð- ur en þeir ná 60 ára aldri, samanborið við 12,8% Dana og 29,7% Rússa. Um helmingur íbúa Síerra Leone, sem er í 174. sæti lífsgæða- listans, munu ekki ná 40 ára aldri. Þá era Islendingar í öðru sæti hvað varðar þátttöku kvenna í stjómmálum og efnahagslífi en að- eins Norðmenn standa framar. Og samkvæmt tölum frá árinu 1996 end- uðu 39% allra íslenskra hjónabanda með skilnaði, samanborið við 64% hlutfall í Svíþjóð. Ef miðað er við Norðurlandaþjóð- irnar er hlutfall meiðsla eða dauðs- falla vegna umferðarslysa á íslandi langhæst eða 552 á ári miðað við 100.000 íbúa, samanborið við 276 meiðsl eða dauðsföll vegna umferð- aróhappa í Noregi, 246 í Svíþjóð, 183 í Finnlandi og 1921 Danmörku. I „Drápsvél- in“ dæmd til dauða JAPANSKUR dómstóll dæmdi í gær Yasuo Hayashi, 42 ára félaga í dómsdagssöfn- uðinum Aum Shinri Kyo, til dauða fyrir að taka þátt í taugagasárás á neðanjarðar- lestir í Tókýó 1995 og fleiri glæpum. Japanskir fjölmiðlar hafa kallað Hayashi „drápsvél- ina“ vegna glæpa hans og hann var einn af fimm félögum safnaðarins sem losuðu tauga- gasið í lestargöngunum með þeim afleiðingum að 12 létu líf- ið og þúsundir manna veiktust. Fangelsis- dómar gagn- rýndir EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB) gagnrýndi í gær skil- orðsbundna fangelsisdóma yf- ir tveimur af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Hvíta- Rússlandi og skoraði á þar- lend yfirvöld að leyfa þeim að taka þátt í þingkosningum í nóvember. ESB krafðist þess að pólitískir fangar yi'ðu leyst- ir úr haldi og gerðar yrðu ýms- ar aðrar ráðstafanir til að tryggja að kosningarnar færu lýðræðislega fram. Sektir fyrir laumu- farþega FLUTNIN GABÍLST JÓRAR hafa þurft að greiða tæpar 2,4 milljónir punda, andvirði 280 milljóna króna, frá því í apríl fyrir að flytja flóttafólk með ólöglegum hætti til Bretlands. Bílstjórarnir voru staðnir að því að flytja 1.168 laumufar- þega til Bretlands. Reglur um reykinga- viðvaranir hertar Heilbrigðisráðherrar ríkja Evrópusambandsins hafa samþykkt strangari reglur um merkingar á sígarettupökkum og samkvæmt þeim eiga við- varanir um skaðsemi reykinga að ná yfir tæpan helming pakkanna. Ellefu ríki sam- þykktu reglurnar en Þjóðverj- ar voru andvígir þeim og Spánverjar, Lúxemborgarar og Austurríkismenn sátu hjá. Evrópuþingið þarf að sam- þykkja reglurnar áður en þær taka gildi. Pútín semji við Milosevic MILAN Panic, fyrrverandi forsætisráðherra Júgóslavíu, hvatti í gær Vladímír Pútín Rússlandsforseta til að hafa milligöngu um samning sem myndi gera Slobodan Milosev- ic Júgóslavíuforseta kleift að segja af sér án þess að eiga á hættu að verða sóttur til saka fyrir stríðsglæpi. Panic sagði á fundi um efnahagshorfurnar í Mið-Evrópu að afsögn Milos- evic væri mikilvægur þáttur í að tryggja efnahagslegan stöðugleika í þessum heims- hluta. STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.