Morgunblaðið - 30.06.2000, Page 47

Morgunblaðið - 30.06.2000, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 47 jarðeldanna í Heimaey 23. jan. 1973. Þau áttu ekki afturkvæmt frekar en hundruð annarra. Alltaf var haldið traustu sambandi við Siggu og fjöl- skyldu eftir gos, en mikið breyttust hlutir með gosinu. Mér er til efs að það verði nokkum tíma rannsakað til hlítar hve gífurleg áhrif það hafði á sálarlíf fólks þegar heilt bæjarfélag var rifíð upp með rótum á einni nóttu og íbúum þess tvístrað út um allt land. Það breyttist allt og ekkert varð samt áeftir. Síðasta heimsókn Siggu til Eyja ef ég man rétt var þegar Hvanneyrar- fjölskyldan hélt ættarmót 23.-25. ágúst 1991. Þar var hún hrókur alls fagnaðar ásamt Möggu mágkonu sinni. Eg fer nú að láta staðar numið í þessum fátæklegu minningarorðum um Siggu á Faxastíg eins og hún var oft kölluð og loka myndabók fjöl- skyldunnar, því ég gæti haldið enda- laust áfram að minnast þessarai- kjarnakonu. Ég vil þó minnast 90 ára afmælis hennar sem haldið vai’ fyrir tæpu ári heima hjá henni í Kópavogi. Stórkostleg veisla sem aldrei gleym- ist. Mikið fjölmenni var þar saman komið til að fagna Siggu. Eg minnist þess þegar stillt var upp til mynda- töku. Hún sat í hásæti og öll börnin í kring. í hásætinu hélt hún á stórri mynd af Faxastíg 27, Blómsturvöll- um. Myndin segir mörg þúsund orð. Síðustu fundir okkar Siggu voru þ. 31. maí sl. Gísli bróðir sló upp afmælis- veislu á heimili sínu á Rekagranda. Hann bauð öllu Hvanneyrarfólkinu á Reykjavíkursvæðinu. Ég var tregur til að byrja með enda nýbúinn að vera á árgangsmóti árgerðar 1950. Ég ákvað svo að drífa mig um borð í Herjólf að morgni afmælisdagsins okkar, því þrátt fyrir veikindi ætlaði Sigga frænka að heiðra okkur tvíbur- ana með nærveru sinni á fimmtugsa- fmæli okkar. í afrnælinu var mikið fjölmenni og ég fór ekkert í grafgötur með það að aðalástæðan var ekki sú, að tvíburinn úr Eyjum hefði trekkt að fólkið sitt. Nei, nærvera Siggu frænku dró að fólkið eins og aUtaf þar sem hún var annars vegar. Ógleym- anleg stund. Sigga frænka var stór kona, þétt á velli, hreystin uppmáluð og fríð sýn- um. Hún var geysilega skapgóð, hnyttin í tilsvörum og talaði dásam- lega austfirsku. Skopskynið var ávallt í sérflokki og mætti skrifa þá sögu síð- ar. Þegar eitthvað fór úrskeiðis stóð hún eins og klettur sem hvorki eldgos né jarðskjálftar fengu haggað. Élsku Sigga mín. Þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér. Að bera virðingu fyrir öllu sem við höfum og að taka ekki allt sem gefið voru þau gildi sem ég hef haft að leiðarljósi frá þér síðan í bamæsku og reyni nú að miðla til næstu kynslóðar. Þakka þér allar ánægjustundimar sem þið Frændi veittuð okkur peyjunum á Faxastígnum, þakka þér þolinmæð- ina við okkur Hvanneyrarvillinga, og að hafa aldrei skeytt skapi þínu á okk- ur þótt oft hafi verið ástæða til. Sól er farin að lækka á lofti. Goð- sögnin Sigríður Kristjánsdóttfr er öll. Elsku frændsystkini, Guðbjörg, Kristján, Rannveig, Grétar og Guðný og fjölskyldur. Minningin um móður ykkar mun lifa. Megi góður Guð styrkja ykkur öll á þessari sorgar- stundu. Ég vil senda ykkur sérstakar samúðarkveðjur frá systkinum mín- um, Ingibjörgu, Sveini, Guðbjörgu og Gísla frá Hvanneyri. Þá era öllum öðram ættingjum og vinum Siggu sendar kveðjur á þessari saknaðar- stundu. Margo, Sóley og Andri þakka Siggu frænku fyrir allai’ ánægjustun- dimar sem þau áttu með henni. Hugsa um það helzt og fremst, semheiðurinnmánæra. Aldreisátilærukemst, sem ekkert gott vill læra. Foreldrum þínum þéna af dyggð, það mágæfuveita. Varast þeim að veita styggð, viljirðu gott bam heita. (Hallgr.Pét) Elsku Sigga, minning þín mun vara að eilífu. Hana mun ég geyma sem gull í hjarta mér. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Drottinn blessi minningu Sig- ríðar Kinstjánsdóttur. Runólfur Gíslason frá Hvanneyri. + Hólmfríður Elín Helgadóttir fæddist á Ánastöðum í Svartárdal hinn 14. janúar 1900. Hún lést á hjúkrunarheimili Heilbrigðisstofnun- arinnar á Sauðár- króki 22. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru þau Margrét Sigurðar- dóttir, f. 23. júlí 1867, d. 11 maí 1960, og Helgi Björnsson, f. 2. október 1854, d. 16 maí 1947. Systkini Hólmfríðar eru Marta Kristín, f. 1894, d. 1917, Siguijón, f. 1895, d. 1974, Magnús Helgi, f. 1896, d. 1979, ísfold, f. 1898, d. 1971, Mon- ika Sigurlaug, f. 1901, d. 1988, Ófeigur Egill, f. 1903, d. 1985, Sig- ríður Jónína, f. 1906, d. 1999, og Hjálmar Sigurður, f. 1909. Fóst- ursystir Hólmfríðar var Elín Sig- tryggsdóttir, f. 1923, d. 1995. Hálfsystkini Hólmfríðar samfeðra voru Erlendur, f. 1884, d. 1964, og Helga, f. 1889, d. 1970. Hólmfríður Elín giftist 1924 Magnúsi Halldórssyni, f. 30 maí Það kom mér ekki mjög á óvart þegar mamma hringdi í mig og sagði að amma hefði dáið í svefni nóttina áður. Fríða amma eins og við krakk- arnir voram vön að kalla hana náði þeim merka áfanga 14. janúar síð- astliðinn að verða 100 ára og vera með stórum hópi afkomenda sinna í glæsilegri afmælisveislu sem haldin var á hjúkranarheimilinu sama dag. Á þessum 100 árum sem amma náði að lifa hefur hún þurft að hafa tölu- vert mikið fyrir hlutunum og er erf- itt að ímynda sér hvernig þetta hef- ur verið hægt hvað þá að setja sig sjálfan í þessi spor. Ámma þurfti frá unga aldri að ganga við spýtu vegna afleiðingar þess að hún fékk bein- kröm á unga aldri. Enga bót fékk hún fyrr en á ellefta ári er Jónas Kristjánsson kom til Sauðárkróks sem læknir og gerði á henni aðgerð sem látin var duga til ársins 1960 er hún fór suður í aðra aðgerð og fótur- inn var gerður staur. Þrátt fyrir þessa fötlun var unnið, hún byrjaði í kaupamennsku hjá Jónasi lækni og Hansínu konu hans þrettán ára 1891, d. 13 des. 1932. Börn Hólmfríðar eru: 1) Sigríður, f. 20 júlí 1925, gift Frið- riki Ingólfssyni, bú- sett í Laugarhvammi og eiga þau fimm börn, fyrir átti Sig- ríður eitt barn. 2) Regína Margrét, f. 14 mars 1927, gift Jóni Kr. Ingólfssyni, búsett á Sauðár- króki og eiga þau íjögur böm. 3) Dóra Ingibjörg, f. 7. júní 1928, gpft Rögnvaldi Ólafssyni, búsett á Sauðárkróki, og eiga þau fimm börn. 4) Margrét Helena, f. 1 janúar 1930, gift Sig- fúsi Agnari Sveinssyni, búsett á Sauðárkróki og eiga þau fimm börn. 5) Jón Osmann, f. 28 júní 1931, kvæntur Mörtu Sigtryggs- dóttur, búsett á Sauðárkróki og eiga þau tvö böm. 6) Magnús, f. 6 nóv 1932, kvæntúr Sigríði Bjama- dóttur, búsett í Hafnarfirði og eiga þau fjögur böm. Útför Hólmfríðar fer fram frá Sauðárkrókskirkju i dag og hefst athöfnin klukkan 14. gömul og var þar í átta ár en þá lá leiðin suður til Reykjavíkur þar sem hún var í einn vetur til að læra fata- hönnun og fatasaum hjá Herdísi Guðmundsdóttur. Að því námi loknu fór hún aftur til Sauðárkróks og vann við sauma og hannyrðir alla tíð. Árið sem amma giftist Magnúsi Halldórssyni beyki og skósmið frá Ystu-Grund í Blönduhlíð flutti hún á Suðurgötu 12 eða „Grund“ eins og það hét þá. Þar sem Magnús afi bjó einn með föður sínum Halldóri Þor- leifssyni járnsmið. Samvera ömmu og afa varð ekki löng því afi lést af völdum veikinda í desember 1932 og var þá yngsti sonurinn rúmlega mánaðargamall og sjötta bam þeirra á sjö áram. Fráfall afa hafði mikil áhrif á alla því ekki var mögu- legt fyrir ömmu að hafa öll bömin hjá sér og kom hún þeim fyrir hjá systkinum sínum í sveitinni til lengri og skemmri tíma. Sjálf þurfti hún að vinna miklu meira og framfieytti sér á saumaskap sem unninn var á nótt- unni meðan börnin vora ung. í þá daga var fjós bakatil á lóðinni og seldi amma mjólk til að afla fjár og hey fékk hún í vinnuskiptum. Á Suð- urgötunni var hún allt sitt líf. Þai- vann hún við sauma, ræktaði græn- meti, rifsber, rabarbara og ekki síst jarðarber sem maður fékk stundum að launum þegar búið var að slá garðinn. Garðurinn var ömmu mik- ils virði og lagði hún mikinn metnað í viðhald hans. Það var alltaf skemmtilegt að koma til ömmu hvort heldur komið væri til að rétta hjálparhönd eða bara til að spjalla og fá kaffi og konfekt seinni árin. Vinnusemin var henni í blóð borin því alltaf þegar komið var í heim- sókn til hennar var hún að vinna eitthvað í höndum. Þegar draga tók úr saumaskapnum tók hún til við út- saum og heklun á dúkum og eru þeir margir sem leystir hafa verið út með dúk eftir heimsókn til ömmu gegn- um árin. Amma hafði alveg einstakt auga fyrir samsetningu lita og frágangi á saumaskap. Og alveg fram á síðustu daga lét hún í ljós skoðun sína ef henni þótti fólk vera illa klætt eða litasamsetning ekki passaði saman. Veran á Suðurgötunni var henni allt, því strax frá þeim tíma er heils- an leyfði ekki að hún væri ein og þurfti að vera á sjúkrahúsi eða á hjúkrunarheimilinu, var hún á leið- inni heim. Þar var hugurinn og verkefnin sem þurfti að vinna að hennar áliti. Amma og hennar fjöl- skyldur hafa verið lánsamar gegn- um árin ef frá er talinn maka- og föðurmissir í upphafi, hún hefur engan afkomanda misst og era af- komendur hennar eitt hundrað fjörutíu og tveir þegar þetta er skrifað. Elsku amma, þó að við kveðjum þig í dag þá lifir minningin um þig og allar skemmtilegu stundirnar sem við systkinin á Hólaveginum og fjölskyldur okkar áttum með þér í gegnum árin. Guð geymi þig. Magnús Sigfússon. Elsku amma sem varð 100 og hálfs árs gömul eignaðist sex böm og missti eiginmanninn þegar yngsta barnið var nokkurra vikna gamalt, það hlýtur að hafa verið erf- ið lífsbarátta. Það voru nú ófá skipt- in sem ég kom á Suðurgötuna. Þar biðu mín rúsínur í skál sem þú svo síðar gafst mér. Þú sagðir líka við mig rétt áður en þú kvaddir: „Mundu eftir því þegar þú varst að skottast í kringum mig,“ svo minnið þitt var í góðu lagi allt til enda. Þú varst svo dugleg og mikil saumakona. Það vora nú ófá skiptin sem þú saumaðir föt á okkur systk- inin, jóladressin og fermingarfötin. Handaverk þín voru alveg einstök og svo falleg . Svo dugleg kona en ákveðin og hörð. Ég man að þegar ég var lítil þá var ég hálfóttaslegin við þessa hörðu konu en það rjátlað- ist nú fljótt af mér við góð kynni af þér. Við áttum mörg símtöl og sam- töl um lífið og tilveruna og ég þakka þér fyrir það. Þú liffr í minningunni. Guð blessi börnin þín og þeirra fjölskyldur. Þín dótturdóttir, Helena Sigfúsdóttir. Elsku langamma. Það er ólýsan- leg tilfinning að vita til þess að þú sért farin og að þú komir aldrei aft- ur. Ég fylltist svo miklum söknuði þegar mér var sagt að þú værir dáin. Og það fyrsta sem kom upp í huga minn voru allar stundirnar sem við áttum saman á Suðurgötunni og á dvalarheimilinu. Allar óteljandi sög- urnar sem þú sagðir mér og hvað þú varst alltaf góð við mig. Þú meira að segja kenndir mér að hekla. Elsku langamma, ég á eftir að sakna þín mikið og mig langar til að enda þessi orð með visu sem þú kenndir mér um þig, sem þú sagðir mér svo oft: Hefur í sér bjarta brá blessuð glaða drósin. Hólmfríður Elín agnarsmá Ánastaðarósin. ' Þín Gunnhildur. Elsku langamma. Þar sem ég verð ekki á Sauðárkróki þegar jarð- arför þín verður langar mig að kveðja þig svona. Ég vildi að ég hefði einhvern tímann sagt þér hvað ég var glaður þegar þú kallaðir mig nafna, ég var nefnilega svo ánægður með að vera skírður eftir þér. Það voru alltaf allir að tala um hvað þú værir einstök, dugleg og hefðir verið svo góð saumakona. Það var líka alltaf svo gaman að heimsækja þig á elliheimilið þegar ég kom á Sauðár- krók, alltaf áttir þú fullt af nammi, þótt þú borðaðir aldrei neitt svoleið- is sjálf. Mér fannst svo gaman að segja frá því þegar ég var að fara í hundrað ára afmælið þitt og sagði öllum að ég væri nafni þinn. Ég mun alltaf stoltur í framtíðinni segja frá langömmu minni sem var alltaf svo glöð og sem söng með í hundrað ára afmælinu sínu. Þinn nafni, Hólmar Freyr. HÓLMFRÍÐUR ELÍN HELGADÓTTIR + Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og barnabarn, ELVAR HILMARSSON, lést aðfararnótt sunnudagsins 25. júní. Jarðsett verður frá Glerárkirkju mánudaginn 3. júlíkl. 14.00. Hilmar Antonsson, Bjarki Hilmarsson, Ása Hilmarsdóttir, Aldís Hilmarsdóttir, Ása Vilhjálmsdóttir. Helga Guðnadóttir, Rut Sverrisdóttir, t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, tengdadóttur og systur, SIGRÚNAR HULDU LEIFSDÓTTUR. Hólmgeir Guðmundsson, Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Steingrímur Hólmgeirsson, Leifur Steinarsson, Ingibjörg Brynjólfsdóttir, Arndís Bjarnadóttir, Dagný Hildur Leifsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir amma og langamma SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Vogatungu 69, Kópavogi, áður Faxastíg 27, Vestmannaeyjum, sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn 22. júní, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 30. júní kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Egill Ingvi Ragnarsson, Kristján Sigurður Guðmundsson, Ólöf Bárðardóttir, Grétar Guðni Guðmundsson, Anna Guðrún Hafsteinsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir Freni, Joseph Louis Freni jr., Guðný Helga Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU STEINDÓRSDÓTTUR, Víðilundi 20, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Þórhildur Valdemarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Sigfríður Þorsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Ágúst Bjarnason, Anna Soffía Þorsteinsdóttir, Sturla Jónsson, barnabörn og langömmubarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.