Morgunblaðið - 30.06.2000, Síða 56

Morgunblaðið - 30.06.2000, Síða 56
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Sómi Islands ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR íslend- inga var sólríkur og fagur í Berlín og naut fjöldi íslendinga gestrisni sendiherrahjónanna, Ingimundar Sigfússon- ar og Valgerðar Vals- dóttur, sem hafa aukið hróður íslands á síð- ustu árum með per- sónutöfrum sínum og vingjamlegheitum. Meðal gesta á glæsi- legu heimili hjónanna _ yoru nemendur í 7. og 8. bekk í Hafralækjar- skóla í Aðaldal og voru þeir kurteisin uppmál- uð og ungu kynslóðinni til sóma. Degi áður höfðu krakkamir verið fulltrúar íslands á ráð- stefnu um tóbaksvarnir meðal 14 Evrópuþjóða sem tóku þátt í Evrópusamkeppni meðal reyk- lausra bekkja. Alls tóku 324 reyk- lausir bekkir þátt í samkeppninni á íslandi og þurftu þeir að staðfesta reykleysi nemenda reglulega og senda inn tillögur eða framlag til tóbaksvama til að eiga möguleika á að komast á ráðstefnuna í Berlín. Fjöldi góðra tillagna barst og var -*Wregið úr þeim sem þóttu skara fram út. Aðeins 8% brottfall varð á ís- landi, lægra en í nokkru öðru Evr- ópulandi, en bekkir duttu úr keppn- inni ef einn nemandi byrjaði að reykja. Það tók ferðalangana tæpan sólar- hring að ferðast frá Aðaldal til Ber- línar með viðkomu í Keflavík og Kaupmannahöfn. Pútín, forseti Rússlands, átti erindi til Berlínar á sama tíma og krakkamir en það gerði það að verkum að rútan frá -oÉlugvellinum í Berlín var um 100 mínútur að aka leið sem tekur alla jafna 20 mínútur. í Berlín var strax boðið upp á skemmtisiglingu með hátíðarkvöldverði en að svo búnu skriðu börnin með lúin bein í rúmið. Því miður áttu frönskumælandi krakkar margt ósagt langt fram eftir nóttu og sumir þeirra kusu að skipt- ast á skoðunum og hlaupaskóm á göngum hótelsins við lítinn fögnuð gesta. Aðeins fjórir krakk- ar úr Aðaldalnum höfðu áður farið til út- landa og sum aldrei stigið upp í leigubíl og vora því mörg fram- andi og spennandi skref stigin á hveijum degi. Gist var á einu glæsilegasta hóteli Berlínar og var ánægjulegt að sjá hversu vel 300 nemend- ur frá 14 ólíkum þjóð- löndum náðu saman - að litlu næturbrölti undanskildu. Að lok- inni fjögurra daga dvöl höfðu ýmsir án efa lært nytsamlegar setningar á ólíkum tungumálum! Og skipst á heimilisföngum. Hver þjóð þurfti að kynna framlag sitt tii tóbaksvama á ráðstefnunni og var mismikið lagt í þá kynningu. Öll- um bar þó saman um að framlag ís- lensku ló’akkanna hefði verið landi og þjóð til sóma, hnitmiðað, vel orðað og áhugavert. Samhliða stuttri kynn- ingu á landi og þjóð sýndu krakkarn- ir stakar slides-myndir á breiðtjaldi þar sem eldur og ís nutu sín vel. Eins og mörgum er kunnugt er mikil gróska í tónlistarlífi í Hafralækjar- skóla og kom það glöggt í ljós í Berlín þegar krakkarnir léku á hljóðfæri og sungu framsamið lag og texta gegn tóbaksnotkun. Það er síð- ur en svo hlutdrægt að segja að að- eins framlag tveggja annarra þjóða var jafn gott og okkar. Að ráðstefnunni lokinni gafst krökkunum kostur á að læra kín- verskan dans, funk eróbikk, líkams- málun, líkamstjáningu og fleira áhugavert. Um kvöldið var svo stiginn dans en sumir kusu að horfa á fóta- fima knattspymumenn í sjónvarpinu. Þorgrímur Þráinsson Tóbaksvarnir Vinningshafar í Evrópu- samkeppni meðal reyk- lausra bekkja, 7. og 8. bekkur Hafralækjar- skóla í Aðaldal, segir Þorgrímur Þráinsson, komu, sáu og sigruðu á ráðstefnu um tóbaks- varnir í Berlín. Á meðan Suðurlandsskjálfti skók Island brostu íslensku krakkamir framan í misfögur dýr í dýragarði sem var heill heimur út af fyrir sig. Að kvöldi þess dags fóra fulltrúar þjóðanna saman í skemmtigarð þar sem boðið var upp á fjölbreytta leiki og gott nesti. Þess má geta að strák- amir frá Wales skoraðu á íslensku strákana í fótbolta og svitnuðu kapp- arnir vel í kvöldsólinni. Færa þurfti fótboltavöllinn í tvígang þar sem ástfangin pör tóku sér bólfestu skammt frá marki íslenska liðsins en það háði strákunum ekki því þeir rúlluðu yfir Walesveija, 5:0. Og sýndu sumir snilldartakta. Á brottfarardaginn fór íslenski hópurinn í stutta skoðunarferð enda margt merkilegra bygginga í Berlín. Sumir keyptu sér hermannahúfur, aðrir babúskur og enn aðrir skemmtilega minjagripi. Að svo búnu tók við tæplega sólar- hringsferð norður í Aðaldal með við- komu í Köben og Keflavík. Þessi Berlínarferð mun tæplega líða krökkunum úr minni en svo mikið er víst að þeir vora glæsilegir fulltrúar íslands á öllum sviðum. Framtíðin er þeirra. Þess má geta að Evrópusam- keppnin verður haldin öðra sinni á íslandi á næsta skólaári. Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri tóbaksvarnanefndar. Krakkarnir úr Hafralækjarskóla spölkorn frá ráðstefnusalnum í Berlín. Anna Harðardóttir kennari (t.v.) og Robert Faulkner tónlistarkennari stóðu sig frábærlega sem fararstjórar og færðu fulltrúum allra landa 1000 ára gamla hraunmola á tréplatta. Með Robert í för var eiginkona hans, Juliet Faulkner. Að lokinni vel heppnaðri ráðstefnu var öllum smalað á sviðið og tók hóp- urinn undir með Tom Jones í laginu „Sex bomb“. íslensku krakkarnir eru fremst á myndinni. F0RMULAN A COTT FÓLK McCANN-ERICKSON SlA 9648

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.