Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Ljóska
/ERTU
Át) £LÁ LÓÖINA
SJALFUR?
AFHVERJU
KAUPIRÐU
EKtyE BARA
SLATTINN?
PETTA ER NU EKH
STÓR LÓt), ELMAR,
06SV0ER
"JVPETTABARA
ERTU EKÖ NÓ6U VEL STÆDUR TIL At>
B0R6A FYRIR PETTA ?
Ferdinand
I CAME ALL TME LUAY OUT
MERE TO MELP YOU 5ELL
50UVENIR5 AT TME OLYMPIC
6AME5..I CAME PECAU5E
YOU'RE MY BROTMER...
Ég kom alla þessa leið til að hjálpa
þér að selja minjagripi á Ólympíu-
leikunum. Ég kom vegna þess að
þú ert brúðir minn.
NOW YOU 5AY TMAT A
CACTU5 TOLP YOU TME
6AME5 MAVE BEEN MOVEP
FR0M5YPNEYT0 MEEPLE5 ?!
Og nú segjurðu mér af því að það hafí
verið kaktusinn sem sagði þér að
Ólympíuleikarnir hefðu verið fluttir
frá Sidney í Ástralíu til Nálaborgar?!
Ég get skilið það Ég verð
að tala við kaktus, stundum
en að hlusta einmana.
á hann?!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Súnbréf 569 1329
Vestiir-Islendingar frá
Spanish Fork og Seattle
leita ættingja sinna
Frá Kirkju Jesú Krists
hinna siðíiri daga heilögú:
NÆSTKOMANDI laugardag, 1.
júlí kemur hingað til lands um 100
manna hópur Vestur-íslendinga, af-
komendur íslendinga sem fluttust
vestur um haf og gerðust frum-
byggjar í Spanish Fork, Utah,
ásamt Vestur-íslendingum frá
Seattle. Þeir koma nú til þess að sjá
gömlu fósturjörðina sem þeir hafa
svo mikið heyrt talað um. Flestir
eru þeir að koma hingað í fyrsta
sinn. Hinir sem komið hafa áður
hafa hrifist mjög af landinu, hinni
margbreytilegu fegurð þess og ekki
var síðri gleði þeirra yfir gestrisni
íslendinga og ættingja sem þeir
náðu sambandi við.
Fararstjórinn, Lil Shepherd, seg-
ist hafa haft mikla ánægju af undir-
búningi fararinnar og náinni sam-
vinnu við þátttakendur. Hér er
nefnilega ekki um neitt venjulegt
ferðalag að ræða: Þetta er „heim-
koma“! Þetta fólk er að láta draum
rætast, Joann draum sem sérhvem
Vestur-Islending dreymir, að kom-
ast til gamla landsins. Þeim var
kennt frá bemsku að Island væri
dásamlegt og fagurt land og að eng-
inn staður á jörðu jafnaðist á við
það. Vestur-íslendingar í Spanish
Fork eru stoltir af íslenskri arfleifð
sinni og upprana.
Árið 1997 kom forseti Islands hr.
Ólafur Ragnar Grímsson og hin
fagra eiginkona hans, frú Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir, til Spanish
Fork í boði Islendingafélagsins þar
vegna aldarafmælis félagsins. Há-
tíðin stóð í viku. Forsetinn og Lil
Shepherd hittust nokkram sinnum á
þeim tíma. Hafði forsetinn á orði að
svona „heimferð" þyrfti að undirbúa
vel þannig að Vestur-íslendingamir
næðu sambandi við ættingja sína
heima á Islandi.
Ekkert er dýrmætara hér á jörðu
en fjölskyldan. Ekkert annað getur
tekið sæti hennar í hjörtum mann-
anna barna. Vestur-Islendingunum
frá Spanish Fork og Seattle er mjög
hugleikið að ná sambandi við ætt-
ingja sína hér á landi. Því vilja þeir
koma á framfæri hluta ættartölu
sinnar og vona að ættingjar þeirra
hér á landi hafi samband við þá.
Ættartöluágripin er að finna á nets-
lóðinni: www.kristur.net sem er
heimasíða Kirkju Jesú Krists hinna
síðari daga heilögu á íslandi.
SIGURJÓN ÞORBERGSSON,
almannafulltrúi kirkjunnar.
Sdkn gegn sjálfsvígum
Frá samtökunum
Sókn gegn sjálfsvígúm:
KÆRI lesandi.
Hinn 12. júli næstkomandi kl.
20:00 í íþróttasal Menntaskólans við
Sund munu samtökin Sókn gegn
sjálfsvígum standa fyrir minningar-
tónleikum í minningu um einstakl-
inga sem hafa fallið fyrir eigin
hendi.
Styrkur unga fólksins er nú hald-
ið í sjötta sinn hér á landi og er mót-
inu ætlað að vera vettvangur fyrir
ungt fólk, að það geti leitað hjálpar
og það sé ekki að þjást í þögninni.
Að ungt fólk hafi trú á lífinu.
Mótið í ár verður dagana 7.-16. jú-
lí og fer það fram í Menntaskólanum
við Sund.
Með bréfi þessu eram við að biðja
um leyfi frá aðstandendum einstakl-
inga sem misstu ástvini á þennan
sorglega hátt. Það yrði okkur mikil
hjálp að fá nafn og/eða myndabirt-
ingu ástvina ykkar til að berjast
gegn þessari vá sem sjálfsvíg era.
Atak þetta er liður í að beita þrýst-
ingi á alþjóð og stjórnvöld að vakna
af vondum draumi og snúa vörn í
sókn gegn sjálfsvígum. Við viljum
ekki að verðmætir einstaklingar
verði bara númer í tölulegum stað-
reyndum um sjálfsvíg, heldur liggja
nöfn og þjáningar ástvina á bak við
sorgarviðburði sem þessa.
Þeir sem vilja senda okkur upp-
lýsingar sendi þær til:
SÓKN GEGN SJÁLFSVÍGUM,
Héðinsgötu 2, Reykjavík
sími 533-1777 og 577-5777
fax: 533-1777
netfang: freedom@centrum.is
íþróttirnar silja fyrir öllu
Frá Ingibjörgu Þórarinsdóttur:
ÉG er ein af fjölmörgum íslending-
um sem er mjög óánægð með sífelld-
ar sjónvarpsútsendingar á íþróttum.
Allt er látið víkja þegar íþróttir era
annars vegar, meira að segja er
fréttatíminn færður til eins og henta
þykir.
Síðustu vikur hefur ekkert lát ver-
ið á þessum ófögnuði og útsending á
fótboltaleikjum ekki rofin þótt öflug-
ur jarðskjálfti skeki allt Suðurland.
Til hvers eram við með svona sjón-
varp? Ekki er að sjá að það hafi
menningarlegan metnað og engar
skyldur hefur það við okkur hin sem
ekki viljum né nennum að horfa á
fótbolta út í eitt.
Ég legg til að nú verði skrefið stig-
ið til fulls og sjónvarp allra lands-
manna gert að íþróttasjónvarpi. Þá
geta þeir sem áhuga hafa gerst
áskrifendur.
Útvarpið Rás 1 ætti að efla og
styrkja. Það hefur sannað gildi sitt
og ekid bragðist hlutverki sínu. Burt
með ríkisrekið sjónvarp. Með það er
ekkert að gera.
INGIBJÖRG ÞÓRARINSDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 65, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.