Morgunblaðið - 23.07.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.07.2000, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENDINGAR HÆDDIR í LOS ANGELES? MILLI manna ganga ljósrit af ræðu sem sagt er að forseti Is- lands hafi flutt á sam- komu íslensk-ameríska viðskiptaráðsins í Los Angeles 5. maí nú í vor. Ræðan er á ensku. Ræðan er og á Net- inu: strik.is: Silfur Eg- ils: Ræða um Islend- inga. Ræðutextinn er þar einnig á ensku. Það sem veldur því að ræða þessi hefur vakið athygli og um- ræðu er að hún er með þeim endemum að kvíða vekur um orðstír íslenskrar þjóðar í útlöndum. Yfirlætið og miklun Islendinga er 'þvílík í ræðunni að okkur heima- mönnum sem lesum hana hlýtur að finnast að verið sé að hæðast að okk- ur eftir þeirri fyrirsögn Snorra Sturlusonar að lof sem sé skrök og hégómi sé háð en ekki lof. Um hina erlendu áheyrendur má ætla að þeir hafi bak við kurteisis- bros sín hugsað með meðaumkun til þessarar fámennu þjóðar sem gerir sig að viðundri með því, í einfeldni sinni og bamaskap, að trúa skjalli einhverra útlendinga um að sköpun- arsnilli og framtaksmáttur Islend- inga sé þvílík veraldarafurða að þeir séu jafnokar 5 milljóna þjóðum í við- skiptum, menningarefnum og vís- indum. Meðaumkun er varla til mikils framdráttar í viðskiptum. Nauðsynlegt er að það komi fyrir augu og eyru íslendinga hvemig fulltrúar þeirra kynna þá fyrir um- heiminum. Þar sem það getur ekki verið neitt launungarmál heldur eðlilegt um- ræðuefni þjóðfélagsins hvemig emb- ættismenn ríkisins kynna land og þjóð í útlöndum þá er ræðan birt hér í íslenskri þýðingu: Ræðan Ræða forseta íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, á hádegis- verðarfundi íslensk-ameríska við- skiptaráðsins í Los Angeles 5. maí 2000: Virðulegu gestir. Þegar ég neyti þessara ljúffengu íslensku rétta, er frábærir mat- reiðslumenn hafa tilreitt úr hráefni sem hið hrjóstuga land okkar og ís- kalt Atlantshafið hafa gefið af sér, og breytt því í einstætt lostæti, og upplifi um leið þann árangur að koma með íslenska menningu, kvik- myndir, tónlist og leiklist til Los Angeles, miðstöðvar kvikmynda- gerðar í heiminum - þá undrast ég, eins og svo oft áður, þá miklu vel- ‘gengni sem hin litla þjóð mín hefur notið í nútímanum og spyr sjálfan mig hvað sé framundan hjá okkur í hinu nýja hagkerfi alþjóðavæðingar 21. aldarinnar. Island er þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa yfir að ráða gnægð þeirra lykilauðlinda sem munu ákvarða vel- gengni og framfarir á komandi tím- um. Ég veit að það kann að hljóma einfeldningslega, en ég spái því að nýja hnattræna hagkerfið geri okk- ur Islendingum kleift að blómstra sem aldrei fyrr, um leið og það gefur alþjóðlegum samstarfsaðilum okkar l&ðgang að mjög ábatasamri sam- vinnu. Sköpunarkraftur er meginuppi- staða íslenskrar arfleifðar. Þessi sköpunarkraftur sem gat af sér Is- lendingasögumar og Eddukvæðin, bókmenntaafrek sem eiga engan sinn líka í Evrópu miðaldanna. Það er sköpunarmáttur sem gefur þjóð- ínni forskot í samkeppni hins nýja hnattræna hagkerfis nútímans og jafnvel enn frekar í þekkingar- iðnaði og þjónustu 21. aldarinnar. Fólki sem kemur frá stærri samfélögum finnst það nánast óskijjanlegt að hægt sé að finna jafn fjölbreytt- an vitnisburð um sköp- unarmátt og raun ber vitni hjá 280 þúsund manna þjóð: Á Stór-Reykjavík- ursvæðinu er hægt að velja á milli 20 og 30 mismunandi leiksýn- inga í viku hverri frá september- mánuði til júnímánaðar, sem margar hverjar eru á heimsmælikvarða. Sin- fóníuhljómsveit Islands mun fara í tónleikaferð um Bandaríkin í haust, og bera vitni um þá tónlistarhæfi- leika Islendinga sem leiða til fjölda tónleika í landinu í hverjum mánuði. Um hverja helgi opna listmálarar og aðrir listamenn sýningar á verkum sínum í hinum fjölmörgu listasöfn- um og galleríum á Stór-Reykjavík- ursvæðinu. I smærri bæjarfélögum og þorpum úti um allt land halda kórar tónleika og leikfélög setja upp sýningar allt árið um kring. Fleiri bækur eru gefnar út á ís- landi miðað við höfðatölu en í nokkru öðru landi í heiminum. Meistaraverk eftir íslenska nútímarithöfunda hafa gefið íslenskum kvikmyndagerðar- mönnum efnivið í nýja bylgju ís- lensks kvikmyndaiðnaðar; á þessu ári verða fleiri frumsýningar á nýj- um íslenskum kvikmyndum en nokkru sinni fyrr. En vitnisburð um íslenska sköp- unargleði er ekki einungis að finna í bókmenntum og listum. Þúsundir fyrirtækja úti um allt land færa sönnur á hið heillandi sambland af framkvæmdagleði og sköpunargleði sem er svo einstakt fyrir Islendinga: Fyrirtæki sem fást við fiskveiðar og fiskverkun, vöruflutninga, loftflutn- inga, viðskipti og verslun, upplýs- ingatækni og tölvuhugbúnað, erfða- fræðirannsóknir og heilbrigðisvís- indi, ferðaþjónustu og markaðs- setningu fjölmiðla. íslendingar nota orðið mest allra þjóða Netið og heimatölvur; tæplega 90% þjóðar- innar hafa aðgang að upplýsingum hvaðanæva úr heiminum með net- væðingu. Ég hef tekið á móti gestum á Bessastöðum sem hafa haldið því fram að opinberar tölur um mann- fjölda á íslandi hljóti að vera með stórkostlegri almannatengslabrögð- um sem fyrirfinnast, vegna þess að það ætti að þurfa a.m.k. 5 milljónir manna til þess að koma öllu því í verk sem gert er þar í viðskiptum, menningarmálum og vísindum. Einn af háttsettari embættismönnum Sameinuðu þjóðanna, sem heimsótti ísland nýlega í fyrsta skipti, hafði orð á því að hann hefði aldrei áður komið til evrópsks lands sem byggi í grundvallaratriðum yfir þeim sama frumherjaanda og hefði ríkt við stofnun Bandaríkja Norður-Amer- íku. Hann sagði að íslendingar væru „amerískir" þegar horft væri til frumkvæðis í atvinnurekstri og áræðis en „evrópskir" í menningar- legu tilliti og sjálfsmynd þeirra væri evrópsk - greinilegt væri að þeir sameinuðu hið besta úr báðum heim- um. íslendingar hafa vissulega orðið fyrir miklum áhrifum frá fordæmi landnámsmannanna sem, fyrir meira en þúsund árum, leituðu nýrra landa til þess að geta verið sínir eigin herrar. Þeir ákváðu síðan af fúsum og frjálsum vilja að stofna Ef íslenzk þjóð er þann- ig kynnt í útlöndum, segir Steingrfmur Páls- son um ræðu, sem for- * seti Islands flutti, er við því að búast, að út- lendingum muni fínnast, að þar sé um að ræða samfélag á gelgjuskeiði, sem af gagnrýnislausu sjálfsáliti telji sig orðið fullþroska, öllum fremri, kallað og útvalið til fyr- irmyndar öðrum. fyrsta lýðræðislega þjóðveldið í heiminum sem laut lagalegri stjórn með hið forna þing, Alþingi, sem miðstöð. Þetta hugarfar landsfeðranna og -mæðranna, hugarfar landkönnuða og uppfinningamanna, hefur mótað uppeldi þeirrar nýju kynslóðar sem nú skapar eitt af athyglisverðustu nútímasamfélögum í heiminum, samfélag sem notar tækni til þess að ná einu hæsta mögulega lífsgæða- stigi sem hægt er. Leyfið mér að geta nokkurra helstu áfanganna í sögu hins góða árangurs Islendinga: Nýting íslendinga á auðlindum sjávar í hagnaðarskyni, án þess þó að gengið sé of nærri þeim, er með því besta sem gerist að áliti Samein- uðu þjóðanna - og þá bæði Matvæla- og landbúnaðarstofnunarinnar (FAO) og aðalstöðva Sameinuðu þjóðanna í New York. Helstu sjávar- útvegsfyrirtæki á Islandi eiga dótt- urfyrirtæki eða aðild að fyrirtækjum í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk- landi, Þýskalandi, Spáni, Mexíkó, Chile, Japan og mörgum fleiri lönd- um. Islenskur fiskiðnaður framleiðir sannarlega fyrir alþjóðlegan mark- að. Með því að hagnýta sér nálægð- ina við fiskiðnaðinn hafa mörg ís- lensk tækni- og hugbúnaðar- fyrirtæki tryggt sér góða sam- keppnisstöðu fyrir afurðir sínar á alþjóðlegum markaði, og hafa nú yf- ir að ráða yfirgripsmiklum sölunet- um í Evrópu, Norður-Ameríku, Suð- ur-Ameríku, Asíu, Afríku og Ástralíu. Samvinna á milli þeirra mjög svo hæfu vísindamanna, verk- fræðinga og tæknimanna sem Is- lendingar eiga og fiskiðnaðargeirans hefur getið af sér nýja tækni og gnægð hugbúnaðarafurða. Þannig hefur hið gamla lífsviðurværi okkar íslendinga ýtt undir nútímahá- tækniiðnað sem hefur náð glæsileg- um árangri á heimsmarkaði. Annað svið þar sem Islendingar hafa skarað fram úr er flugsam- göngur, aðalsamgöngumáti 20. ald- arinnar. Mun fleiri flugferðir eru á degi hveijum frá íslandi til Banda- ríkjanna heldur en t.d. frá Noregi, Svíþjóð eða Finnlandi. Flugleiðir fljúga daglega til New York, Balti- more, Boston, Minneapolis og einnig til annarra ákvörðunarstaða í Norð- ur-Ameríku. Annað íslenskt flugfé- lag, Flugfélagið Atlanta, sem var stofnað fyrir áratug, er nú stærsta flugfélag í heiminum á sínu sviði í al- þjóðlegum viðskiptum, og íslending- ar léku lykilhlutverk í stofnun Cargolux, stærsta evrópska fyrir- tækisins í vöruflutningum í lofti. Á síðustu árum hefur nýrri kyn- slóð vísindamanna, viðskiptafröm- uða og tæknimanna tekist að gera ísland að mikilvægum þátttakanda í mörgum nýsköpunarverkefnum í hinu nýja hnattræna hagkerfi. Tvö eftirtektarverð fyrirtæki, Is- lensk erfðagreining og Urður, Verð- andi, Skuld, hafa gert ísland að ein- stöku svæði fyrir erfðafræðirann- sóknir og vísindalegar tilraunir til að finna lækningu á sumum af algeng- ustu sjúkdómum nútímans: krabba- meini, hjartasjúkdómum, alzheimer- sjúkdómnum, MS-sjúkdómnum og öðrum sjúkdómum. Islensk erfða- greining er fyrsta íslenska fyrirtæk- ið til að sækja um skráningu á NAS- DAQ, og Urði, Verðandi, Skuld hefur tekist að fá mikilsmetna bandaríska kaupsýslumenn og vís- indamenn til starfa í ráðgefandi nefnd á vegum fyrirtækisins. Enn einu sinni hefur fortíðin lagt grunninn að framtíðinni: Þeir þættir sem gera ísland að ákjósanlegu svæði fyrir árangursríkar erfða- fræðirannsóknir eru m.a. aldagamall áhugi á ættfræði og tilvist fullkom- inna heilbrigðisskýrslna fyrir hvern einasta Islending síðan á fyrstu ára- tugum 20. aldar, ásamt vilja þjóðar- innar til að taka þátt í læknisfræði- legum rannsóknum. íslensk hugbúnaðarfyrirtæki, net- fyrirtæki og fyrirtæki á sviði upp- lýsingatækni hafa tekið upp skipu- legt samband við fyrirtæki í fremstu röð í Bandaríkjunum og Evrópu, t.d. INTEL, CISCO og Ericsson. ís- lensk fyrirtæki á sviði heilbrigðis- tækni hafa sýnt framúrskarandi ár- angur á síðustu árum. Fyrir aðeins tveimur mánuðum keypti eitt þeirra, Össur, bandaríska fyrirtækið Flex- Foot, sem gerði hið sameinaða fyrir- tæki að næststærsta fyrirtæki á þessu sviði í heiminum. íslensk upplýsingatæknifyrirtæki á sviði upplýsingakerfa, samskipta- lausna, kerfa í þráðlausum sam- skiptum, lófatölvum og tölvuleikjum hafa orðið alþjóðleg og vel sam- keppnisfær á alþjóðamælikvarða og hafa, annaðhvort upp á eigin spýtur eða í samvinnu við bandarísk og evrópsk fyrirtæki, náð umtalsverð- um hluta af heimsmarkaðnum fyrir afurðir sínar. Ég geri mér fulla grein fyiir því að með því að setja velgengni ís- lendinga fram á þennan hátt er ég að búa til bjartsýna, jafnvel upphafna mynd af þjóðinni, en staðreyndin er sú að þau tækifæri sem hið nýja hnattræna hagkerfi hefur opnað fell- ur afar vel að íslenskum skilningi á sköpunarmætti og framkvæmda- gleði. Ennfremur erum við núna, í fyrsta skipti í meira en þúsund ára sögu okkar, að athafna okkur í heimshagkerfi sem leggur engar hömlur á okkur, heldur býður okkur ótakmörkuð tækifæri og ögrandi viðfangsefni. Gamla hagkerfið, hag- kerfi fiskveiða á íslandi og landbún- aðar og verksmiðjuiðnaðar í Banda- ríkjunum, takmarkaðist af alls kyns hindrunum og ófullkomleika, það var háð því að auðlindir á landi og sjó væru fyrir hendi, getu fram- leiðsluvéla, takmörkunum viðskipta og þörfum verkafólks. Nútíma-hagkerfi, með nýtísku upplýsingatækni, hátækniiðnaði, hugbúnaðarframleiðslu, heilbrigðis- og erfðafræðiiðnaði, samgöngufyrir- tækjum og fjölmiðlum, hefur að stórum hluta losað sig undan þess- um hefðbundnu hömlum. Nú opnast þeim sem búa yfir sköpunarmætti og framkvæmda- gleði leiðir til að leggja allan heim- inn að fótum sér. Lítil fyrirtæki sem unglingar stofna í bílskúrum for- Steingrímur Pálsson eldra sinna, hvort sem er í Seattle eða Reykjavík, og fyrirtæki sem stofnuð eru af fólki með frumkvöð- ulshæfileika, hvort sem við tökum sem dæmi America Online í Banda- ríkjunum eða Islenska erfðagrein- ingu á Islandi, sýna að vaxtarmögu- leikar eru ekki lengur takmarkaðir með hefðbundnum hætti. Þannig eiga fyrirtæki sem voru stofnuð á síðasta áratug á Islandi möguleika á að sitja við sama borð og stærstu fyrirtæki heimsins á nýrri öld. I fyrsta skipti í sögu sinni hefur sköp- unarkraftur íslendinga, með hjálp íítonskrafts hins alþjóðlega hagkerf- is, fært íslensk fyrirtæki í fremstu víglínu, þar sem hinir fremstu í heiminum starfa. Þetta eru sannarlega spennandi tímar, og það er einstök blessun að þau sérkenni sem gerðu íslending- um kleift að lifa af öldum saman í einangrun í Norður-Atlantshafi gera nú nýrri kynslóð frumkvöðla, vís- indamanna og tæknimanna kleift að skara fram úr í hinu nýja hagkerfi 21. aldarinnar. Sumir hafa haldið því fram að ís- land sé nú þegar orðið smækkuð mynd af hinu nýja upplýsingasamfé- lagi, þar sem hægt er að reyna að þróa afurðir sem ætlaðar eru alþjóð- legum markaði framtíðarinnar. Mörg alþjóðleg fyrirtæki hafa geng- ið til samstarfs við íslensk fyrirtæki í þessu skyni. Margir af þeim sem sækja land okkar heim hafa lýst undrun sinni á þeirri blöndu af heimsborgaralegu samfélagi og umhverfisvænni draumaveröld sem einkennir landið. Hér eru fallegir dalir og firðir, hraunbreiður og kristaltærar ár, hreint og ferskt loft og friður og ör- yggi einkennir borgir og bæi - Is- land er tilvalinn staður til að upplifa hið besta í nútímasiðvæðingu og njóta gómsætra máltíða á frábærum veitingahúsum sem fjölgar með hverju árinu sem líður. Sumir af gestum okkar hafa hald- ið því fram að ísland sé best varð- veitta leyndarmál í heiminum, og þeir vona, eins og John Kennedy yngri heitinn, sem heimsótti landið fyrir nokkrum árum, að þeir geti átt vitneskjuna um þessa einstöku reynslu út af fyrir sig þegar heim er komið. Við íslendingar vorum aldir upp á sögnum úr íslendingasögunum, sögnum af landkönnuðum sem þorðu að sigla yfir óþekkt höf til að uppgötva nýjan heim. Á einhvern hátt hafa ömmur okkar innrætt okk- ur að við skyldum skara fram úr eins og forfeður okkar, skáld og frum- kvöðlar, draumóramenn og land- könnuðir, og nota frumkvöðuls- andann til að kanna heiminn. Það er með þessu hugarfari sem við komum til Los Angeles til að gera ykkur að þátttakendum í eftir- væntingu okkar eftir framtíðinni. Gelgjuskeið Það hvað ræðan hefur spurst víða milli manna og vakið eftirtekt og umræðu er til vitnis um það hve mörgum sárnaði hvernig íslending- um er þar lýst með bamalegum auglýsingastofubrag. Ef íslensk þjóð er þannig kynnt í útlöndum er við því að búast að út- lendingum muni finnast að þar sé um að ræða samfélag á gelgjuskeiði sem af gagnrýnislausu sjálfsáliti telji sig orðið fullþroska, öllum fremri, kallað og útvalið til fyrir- myndar öðrum. Samfélag sem ímyndi sér að það hafi mikið forskot í samkeppni hins hnattræna hag- kerfis nútímans í krafti sköpunar- krafts sem blundað hafi í erfðavísum þjóðarinnar í 700-1000 ár en sé nú uppvakinn, reiðubúinn til stórræða. Varla verður þetta traustvekjandi mynd í hugum útlendinga. Væri nú ekki æskilegt að nokkur umræða yrði í þjóðfélaginu og fjöl- miðlum þess um málflutning af því tagi sem í ræðunni birtist, embættis- mönnum til leiðbeiningar um hversu langt megi ganga í skruminu, þannig að íslendingar geti hlustað á það kinnroðalaust eða að minnsta kosti án þess að þeim finnist að verið sé að hæðast að þeim? Höfundur er fyrrverandi starfsmað- ur fjármálaráðuneytisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.