Morgunblaðið - 23.07.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.07.2000, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞÓRA HAFSTEIN + Þóra Hafstein fæddist á Akur- eyri 12. júlí 1919. Hún lést á Landspíta- lanum í Possvogi hinn 9. júlí siðastlið- inn. Þóra var dóttir hjónanna Júh'usar Havsteen, sýslu- manns á Húsavfk og Þórunnar Jónsdótt- ur. Systkini Þóru eru: Ragnheiður Lára, látin; Jakob Valdemar, látinn; Jó- hann Henning, lát- inn; Jón Kristinn; Soffía Guðrún; Þórunn Kristjana, Iátin og Hannes Þórður, látinn. Hinn 31. desember 1939 giftist Þóra Bárði Jakobs- syni hrl. og eignuð- ust þau tvo syni, Ja- kob Jóhann, lögfræðing, f. 26. ap- ril 1941, kvæntur Ragnheiði Eggerts- dóttur og Július, skipstjóra, f. 15. september 1942, sem er látinn. Þóra og Bárður skildu. Síðar giftist Þóra Gunnari Þorsteinssyni hrl. Þau skildu. Þóra giftist Sigurði Jóns- syni framkvæmda- stjóra og skildu þau. Útför Þóru Hafstein hefur farið fram í kyrrþey. Faðir okkar lagði alla tíð áherslu á þá dyggð að rækta samband við sína nánustu. Foreldrar hans kenndu honum að þar væri að vænta bestu gjafa sem lífið hefði að gefa. En þær gjafir kæmu ekki af sjálfu sér heldur yrði maður að gefa af sjálfum sér líka. Við syst- kinin verðum víst seint talin föður- betrungar hvað varðar frænd- rækni. En við höfum alla tíð notið OSWALDS simi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AOAI S I RITI -ÍB • 101 RIA KJAVÍK Davið Inger Ólafur Utfiirarstj. Utfrtrarstj. Utfararstj. L.J IvKi STUVÍNNIJST OFA EYVINDAR ÁRNASONAR þess að eiga að góðan frændgarð. Föðursystir okkar sem við kveðjum nú var skírð Thora Ema- lie Marie í höfuðið á föðurömmu sinni. Hún var dóttir Júlíusar sýslumanns á Húsavík og Þórunn- ar, ein úr stórum hópi litríkra systkina. Þau voru Ragnheiður Lára, Jakob Valdemar, Jóhann Henning, Jón Kristinn, Soffía Guð- rún, Þórunn Kristjana og Hannes Þórður faðir okkar. Nú eru eftir- lifandi Jón frændi og Soffa. Þóra, „systir hans pabba“ eins og við kölluðum hana jafnan, var um margt sérstök kona og ógleym- anleg þeim sem henni kynntust. Hún var stórbrotinn persónuleiki sem gustaði af, glæsileg, stórlát og tilfinningarík. Ur bernsku okkar minnumst við þess að hún hafði yf- ir sér ævintýraljóma. Þóra var fall- eg kona og glæsileg í klæðaburði þannig að eftirtekt vakti. Hún hafði ríka kímnigáfu og sagði skemmtilega frá. Við systkinin nut- um væntumþykju hennar og áttum Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Vesturhlíð 2 Fossvogi SfmiSSI 1266 www.utfor.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Utfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarír á allrí landsbyggðinni. Sverrir Einarssoti útfararstjóri, sími 896 8242 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is V_______________________________ i Sverrir Olscn útfararstjóri. I Baldur I Frcderikseti mx a útfararstjóri, II Æsími 895 9199 með henni margar góðar stundir. En það fór ekki heldur fram hjá okkur að hún sigldi fráleitt lygnan sjó. Þá átti til að hvína í rá og reiða. Þóra fór oft sínar eigin leiðir og voru ekki alltaf allir sammála um að það væru réttar leiðir. Þóra var engin venjuleg kona. Slík eftirmæli hefðu henni líkað vel enda nægilegt svigrúm til túlkunar fyrir hvern og einn. Okkur „börn- unum hans Hannesar og Sigrúnar" þykir vænt um minningu Þóru, því ekki aðeins fundum við væntum- þykju hennar heldur er hún ein af þeim sem er ómetanlegt að hafa kynnst. Á lífsleiðinni hittir maður ólíkt fólk sem á þátt í að móta við- horf manns og viðmið. Þóra frænka lagði þar skerf til mála með sínum litríka hætti. Þóra átti tvo syni, Júlíus sem dó fyrir mörgum árum, og Jakob Jó- hann. Þóra bjó ekki við góða heilsu síðustu æviár sín. Hún naut um- hyggju Jakobs sonar síns og konu hans Ragnheiðar sem reyndust henni afskaplega vel. Við minn- umst Þóru föðursystur okkar með hlýhug og biðjum henni Guðs blessunar. Stefán Jón, Þórunn Júní- ana, Sigrún Soffía, Hildur Björg og Hannes Július. Elsku Þóra mín. Mér brá mikið þegar mér var sagt að þú værir búin að kveðja þennan heim þrátt fyrir að innst inni vissi ég að bráð- um kæmi að því, en þegar stundin kom, fann ég fyrir miklum söknuði, því nú hafði ég misst góða vinkonu. Eg man ég hugsaði þá, æ nei nú á ég aldrei eftir að heyra frá eða sjá Þóru aftur. Elsku Þóra mín, mig langar til að þakka þér fyrir okkar ánægjulegu samverustundir. Alltaf tókst þú á móti mér með bros á vör og lést mig alltaf finna það að þú værir ánægð að sjá mig og hvað mér fannst notalegt að finna þann hlýhug sem streymdi frá þér í minn garð. Þessum samverustund- um okkar mun ég aldrei gleyma, heldur geyma í hjarta mínu. Ég kveð þig með söknuði, en eitt er ég alveg viss um; nú ert þú hjá Guði og hefur hitt þitt fólk. Ég sé þig fyrir mér alveg fríska, sátta og geislandi af gleði. Þín vinkona, Áslaug Borg. Það er tæplega hægt að segja að andlátsfregn Þóru vinkonu minnar kæmi á óvart, og þó. Einhvern veg- inn er það svo að dauðinn kveður ætíð dyra óvænt, jafnvel þó búist hafi verið við því. Skóhljóð dauðans heyrist ekki, en það má finna þyt- inn af færð hans í fjarlægð. Lífsganga minnar góðu vinkonu er á enda. Frá því ég fyrst man eftir mér var Þóra hluti af æviferli mínum, að vísu með ofurlitlum hléum inn á milli í dagsins önnum, en svo þegar um hægðist nú á seinni árum voru samverustundir okkar hjóna með henni margar og góðar hér heima og einnig á henn- ar huggulega heimili, einnig hjá börnum okkar á þeirra heimilum. Á milli Þóru, barna okkar og barnabarna var mjög gott og hlýtt samband sem allir aðilar mátu mikils. Ég ætla ekki að rekja ævi- feril vinkonu minnar, það gera þeir sem henni voru nánari. Þetta eiga aðeins að vera nokkur kveðjuorð og brot úr minningasjóði. Þóra var ung kona afskaplega glæsileg með einstaklega bjart og glaðlegt yfirbragð, sem hún hélt vel alveg fram á efri ár. Vinkona mín var fljót til að rétta hönd til hjálpar, ef hún vissi að þörf væri fyrir, og afskaplega gjafmild. Það var henni ekki síður ánægja og gleði að gefa, heldur en þeim sem gjöfina þáði. Hún var ákaflega hamingjusöm ef hún gat glatt aðra. Já, öll erum við á lífsins leið að leita hamingjunnar hver og einn með sínum hætti, og hvað veitir mesta hamingju er afstætt og mat hvers og eins. Eitt sinn lærði ég vísu og þar stóð að Hamingjan býr í hjarta manns, höpp eru ytri gæði. Trúlega er það satt og rétt, að sá sem sæll er í hjarta sínu er ham- ingjusamur. Ánægjustundir átti Þóra margar á lífsleiðinni, þótt hún færi heldur ekki varhluta af mót- lætinu, eins og annað fólk. Það skiptast á skin og skúrir á langri leið, en glaða brosið hennar var sjaldan langt undan. Stundum brugðum við okkur í leikhús, á tón- leika, eða farnir voru bíltúrar, vítt og breitt um bæinn til að dást að fegurð umhverfisins, fjallasýn og litauðgi ljósa. Himinhvolfið með norðurljós og stjörnur og sól og mána, allt þetta fangaði augað. Öll þessi fegurð sem við blasti var Þóru mikið aðdáunarefni og kunni hún vel að njóta, því hún var mikill fagurkeri og listunnandi. Söfn og sýningar sótti hún þegar færi gafst og bar gott skynbragð þat á. Þóra ferðaðist mikið bæði innanlands og erlendis og einnig þar voru söfn og listviðburðir henni hugleikin. Nokkrum kvöldum áður en hún veiktist núna síðast, fór ég og son- ur minn í heimsókn til hennar á Dalbrautina. Þegar hún sá okkur varð andlitið eitt sólskinsbros sem minnti á geisla hinnar hnígandi kvöldsólar. Ekki datt mér þá í hug að þetta yrði okkar síðasta samverustund. Núna, þegar ævisólin hennar Þóru vinkonu minnar er hnígin, finnst mér þetta vera einkar táknræn mynd í minningunni. Þóra mín! Ég vil þakka þér sam- fylgdina allt frá bernskudögum, brosið þitt bjarta og hlýtt viðmót. Sérstaklega síðasta kvöldið sem við áttum saman, það verður lengi í minnum haft, þú varst svo glöð og ánægð og sæl í hjarta þínu. Að leiðarlokum eru þér færðar kveðjur og þakkir frá fjölskyldunni í Heiðargerði. Guðs friður fylgir þér. Samúðarkveðjur til aðstandenda. Guðrún Jóhannsdóttir (Stubba). GUÐFINNA G UÐMUNDSDÓTTIR + Guðfinna Guð- mundsdóttir fæddist í Túni í Hraungerðishreppi 3. september 1912. Hún lést á Ljósheim- um á Selfossi 8. júh' síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Gaulverjabæjar- kirkju 19. júlí. Okkur langar í fáum orðum að minnast ömmu okkar Guðfinnu eða ömmu í Vorsabæ eins og við ávallt kölluð- um hana. Amma var yndisleg kona. Aldrei kom maður svo að Vorsabæ að ekki biðu hlýjar mót- tökur. Amma og afi voru mjög gest- risin og gáfu sér góðan tíma til að spjalla við okkur krakkana. Borið var á borð heimabakaða brauðið hennar ömmu svo og hafrakex eða kleinur ásamt öðru góðgæti. Það var alltaf snyrtilegt í bænum hjá ömmu. Margt af þeim hlutum sem skreyttu heimili hennar og afa var það sem amma hafði sjálf búið til. Hún var sérstaklega snjöll að skera út í tré og prjóna. Vettlingamir frá ömmu hafa yljað okkur krökkunum margan veturinn. Amma var bóndakona af Guðs náð. Auk þess að sjá um heimilisstörfin fór hún í fjósið tvisvar á dag til að mjólka kýrn- ar. Amma hugsaði sér- staklega vel um hæn- umar sínar og verptu þær alla jafna mjög vel. Að auki eyddi amma miklum tíma í blómagarðinum og eigum við margar góðar minning- ar úr garðinum með ömmu. Það mikilvægasta sem amma gaf okkur var þó tvímælalaust léttleikinn. Amma virtist alltaf vera glöð og ánægð og sátt við Guð og menn. Hlát- urinn hennar var oftast skammt und- LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 an. Aldrei var hún með svartsýnistal eða að kvarta yfir hlutunum. Sama gilti allt fram á hennar síðustu stund þrátt fyrir hríðversnandi sjón svo og ómældar kvalir og vanlíðan sem hún mátti þola sökum veikinda sinna þessa síðustu mánuði og ár. Elsku amma, nú ertu komin til himna og laus við verki og veikindi. Við þökkum þér innilega íyrir allt sem þú varst okkur og biðjum Guð að blessa þig um alla framtíð. Elsku afi, Guð gefi þér styrk í sorginni. Eyrún, Stefán, Fanney og Guðmunda, Ólafsböm á Hurðarbaki. Frágangur afmælis- ogminning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.