Morgunblaðið - 01.08.2000, Page 4
4 ÞRIÐ JUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sorphirðumál í Stykkis-
hólmi inn á borð ESA
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA, ESA, hefur nú til
umfjöllunar kæru á hendur Stykkishólmsbæ vegna
samninga um sorphirðu í bænum en Samkeppnis-
stofnun sendi ESA kæruna 17. júlí síðastliðinn. Óli
Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir
málið storm í vatnsglasi, gerður hafl verið skamm-
tímasamningur við tiltekinn verktaka, sem séð hef-
ur um sorphirðu í Stykkishólmi undanfarin ár, á
meðan verið sé að leiða til lykta viðræður um sam-
eiginlegt útboð vegna sorphirðu á Snæfellsnesi öllu.
Óli Jón sagði að ekki hefði tekist í tæka tíð að
undirbúa sameiginlegt útboð sveitarfélaga á Snæ-
fellsnesi vegna sorphirðu á svæðinu. Þeir í Styklds-
hólmi hefðu því þurft að leysa sín mál þar sem
samningar um sorphirðu hefðu verið að renna út hjá
þeim. Sú lausn sem þeir hefðu valið, að semja um
það við Sigurð Júlíusson verktaka að hann héldi
áfram að sjá um sorphirðu, hefði verið sú ódýrasta.
Meginregia að bjóða út verk sem þessi
Það var Baldur Bergmann hjá fyrirtækinu Berg-
lín sem kærði samningsgerðina við Sigurð Júlíusson
en hann mun hafa haft áhuga á að bjóða í verkið. Óli
Jón leggur hins vegar áherslu á að þessi lausn sé að-
eins til bráðabirgða, í versta falli til eins árs, og að
það sé sannarlega meginregla hjá Stykkishólmsbæ
að verk sem þessi verði boðin út.
Óli Jón sagði að þegar fram liðu stundir yrði
væntanlega farið í stærra útboð vegna sorphirðu-
mála á Snæfellsnesi, enda þyrfti ekki að velkjast í
vafa um að það væri hagkvæmara fyrir sveitarfélög-
in. Enn er reyndar ekki Ijóst hvort öll sveitarfélög á
svæðinu verða með í samstarfinu, að sögn Óla.
Davíð
Oddsson til
Noregs og
Eistlands
DAVÍÐ Oddsson heldur utan um
næstu helgi til Noregs. Hann verð-
ur í opinberri heimsókn í Ósló 7. og
8. ágúst en áður en hann heldur
þangað verður hann gestur á
Björnsson-hátíðinni sem er alþjóð-
leg bókmenntahátíð sem kennd er
við norska skáldið Björnstjerne
Björnsson. Knut Ödegaard, fyrr-
verandi forstjóri Norræna hússins,
er framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi
forsætisráðherra Noregs, verður
gestgjafí Davíðs Oddsonar í Molde.
í Ósló á Davíð fund með Jens
Stoltenberg forsætisráðherra Nor-
egs.
I lok mánaðarins heldur forsæt-
isráðherra síðan til Eistlands á
fund forsætisráðherra Norðurlanda
og Eystrasaltsríkjanna 28. ágúst.
Síðan verður Davíð í opinberri
heimsókn í landinu í boði Mart
Laar forsætisráðherra landsins.
Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins
Þeir syntu Viðeyjarsund. F.v.: Fylkir Þ. Sævarsson, Kristinn Magnússon og Bjöm Ásgeir Guðmundsson.
Ný þjónusta hjá mbl.is
Fréttir með SMS
FRÉTTAVEFUR Morgunblaðs-
ins, mbl.is, býðiu- í dag upp á nýja
þjónustu fyrir eigendur GSM
síma. Nú er hægt að fá sendar
fréttir af mbl.is með SMS skilaboð-
um. Engin sérstök kort þarf í sím-
ann. Notendur verða þó að vera í
GSM áskrift hjá Landssímanum.
Þetta er í fyrsta skipti sem boðið
er upp á slíka fréttaþjónustu með
SMS skilaboðum á mbl.is. Kaup-
endur geta skráð sig á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is. Á skrán-
ingarsíðunni er hægt að velja milli
fréttaflokka. Einnig er hægt að fá
sendar svokallaðar stórfréttir sem
berast öllum notendum GSM þjón-
ustunnar. Stórfréttir eru yfirleitt
sendar út sjaldan og margir dagar
geta liðið á milli þeirra. Þá er hægt
að ákveða tímamörk á SMS þjón-
ustunni. Hver skilaboð kosta 6 kr.
SMS þjónusta mbl.is er í sam-
vinnu við Landssímann og Stefju.
Lagstir til sunds í 12 gráðu heitum sjónum.
Syntu frá
Viðey til
Reykjavíkur
ÞRÍR sundmenn, Kristinn Magnús-
son, Fylkir Þ. Sævarsson og Bjöni
Ásgeir Guðmundsson, lögðust til
sunds við bryggjuna í Viðey klukkan
16.25 síðastliðimi laugardag og
þreyttu svokallað Viðeyjarsund inn
til flotbryggjunnar við Ægisgarð.
Mestalla leiðina, sem er á milli 2,7-
2,8 kílómetrar, syntu þeir ski’iðsund.
Kristinn er sjúkraþjálfari að
mennt og fyrrverandi landsliðsmað-
ur í sundi. Fylkir kom alla leið frá
Danmörku til að þreyta sundið en
hann er í námi í rafmagnsiðnfræði í
Sönderborg. Bjöm er yfír-
matreiðslumaður hjá Radisson SAS
Hótel íslandi. Það var norðvestan
gjóla og talsverður sjór þegar sund-
ið hófst og sögðu sundmennimir að
fyrsti áfanginn hefði reynst erfiðast-
ur vegna sjógangs. Sautján menn
höfðu þreytt Viðeyjarsund frá upp-
hafi vega áður en þremenningamir
bættust í hópinn og hafa því nú 20
manns, svo vitað sé, unnið þetta af-
rek. Kristinn hefur reyndar áður
synt Viðeyjarsund árið 1998 og
sama ár þreytti hann jafnframt
Drangeyjarsund. Bjöm hefur áður
þreytt Bessastaðasund, þ.e. frá Æg-
issíðu að Bessastöðum.
Björgpnarsveitarmenn fylgdu
sundgörpunum eftir á tveimur
björgunarbátum alla leiðina og sáu
um að gefa þeim næringu á sundi.
Sundmennimir komu í land um
kl. 17.30 og höfðu þá verið á sundi í
tæpar tvær klukkustundir í um 12
gráðu heitum sjónum. Að sundi
loknu sagði Fylkir að fyrsti áfang-
inn hefði verið erfiður vegna brims
en sjólagið hefði skánað strax þegar
þeir komu inn fyrir Laugamesið.
„Það var ekki kuldinn sem var að
kvelja okkur heldur öldurnar."
Þeir félagar sögðu að mikil við-
brigði hefði verið að synda úr opnu
hafinu inn í Reykjavíkurhöfn. Það
hefði verið eins og að lenda inni í
hitavegg.
----------------
Fundað í
Sleipnisdeil-
unni í dag
FUNDUR verður í dag í deilu Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis og
Samtaka atvinnulífsins. Verkfalli
var sem kunnugt er frestað til 12.
ágúst og skellur því á ef ekki semst
fyrir þann tíma.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, segir að í sjálfu sér sé
engin sérstök ástæða til að ætla að
árangur náist á fundinum í dag.
Staðan sé hin sama og þegar síð-
asta fundi lauk. „Við höfum eina og
hálfa viku til að semja,“ segir hann.
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Pajero sport
2500 diesel. 5 dyra, 5 gíra, ný-
skráður 26.08.1999, ekinn 34 þ.
km, leðurinnrétting, sóllúga, álf-
elgur, spoiler. Ásett verð
2.890.000. Ath skipti á ódýrari.
Nánari uppl. hjá Bílaþingi
Heklu, sími 569 5500.
Opnunartimi: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16
BÍLAÞING HEKLU
Nvrmr e-'rtf í nofv?vm
Laugavegi 174,105 Reykjavlk, slmi 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
Tíð umferðarslys við Akureyri
9 bíiar skemmdir
ejFtir árekstra
FRÁ föstudegi til sunnudags urðu 5
harðtr árekstrar í umdæmi lög-
reglunnar á Akureyri. Ekki urðu al-
varleg slys á fólki en alls skemmdust
9 bifi-eiðar í þessum árekstrum.
Árekstrahrinan hófst á fóstudaginn
þegar jeppi og fólksbifreið skullu
saman við Bægisá í Öxnadal. Jeppinn
hafnaði utan vegar og báðir bílamir
skemmdust talsvert. Þrennt var flutt
á slysadeild en enginn slasaðist alvar-
lega.
Um kl. 13 á laugardaginn varð ann-
ar árekstur jeppa og fólksbifreiðar, að
þessu sinni við Sigluvík á Svalbarðs-
strönd. Ökumaður fólksbifreiðarinn-
ar, sem var á leið til Akureyrar, var að
taka fram úr öðrum bíl þegar hann ók
á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt.
Við áreksturinn brotnaði aftari hjóla-
búnaður fólksbifreiðarinnar af og hún
stöðvaðist utan vegar. Báðar bifreið-
amar voru dregnar með kranabíl af
slysstað. Ökumaður jeppans og dóttir
hans voru flutt á slysadeild ásamt
ökumanni fólksbifreiðarinnar.
Á laugardagskvöldið var fólksbif-
reið ekið á lágan vegg við bifreiða-
stæði fjölbýlishúss. Ökumaðurinn
sagði að líklega hefði hann blindast af
sólskini. Hann fann fyrir eymslum í
handlegg og báðir farþegamir voru
aumir í bringu eftir bílbelti. Bíllinn er
mikið skemmdur. Skömmu eftir há-
degi á sunnudaginn lentu kranabif-
reið og fólksbifreið í ársekstri í Öxna-
dal. Framúrakstur endaði með því að
fólksbifreiðin lenti íraman á krana-
bílnum. Slysið varð með þeim hætti
að ökumaður fólksbifreiðarinnar tók
fram úr kranabílnum en hefur að öll-
um líkindum beygt of snemma og
lenti því á framhomi kranbifreiðar-
innar. Við áreksturinn snerist fólks-
bíllinn og lenti framan á kranabílnum.