Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 4
4 ÞRIÐ JUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sorphirðumál í Stykkis- hólmi inn á borð ESA EFTIRLITSSTOFNUN EFTA, ESA, hefur nú til umfjöllunar kæru á hendur Stykkishólmsbæ vegna samninga um sorphirðu í bænum en Samkeppnis- stofnun sendi ESA kæruna 17. júlí síðastliðinn. Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir málið storm í vatnsglasi, gerður hafl verið skamm- tímasamningur við tiltekinn verktaka, sem séð hef- ur um sorphirðu í Stykkishólmi undanfarin ár, á meðan verið sé að leiða til lykta viðræður um sam- eiginlegt útboð vegna sorphirðu á Snæfellsnesi öllu. Óli Jón sagði að ekki hefði tekist í tæka tíð að undirbúa sameiginlegt útboð sveitarfélaga á Snæ- fellsnesi vegna sorphirðu á svæðinu. Þeir í Styklds- hólmi hefðu því þurft að leysa sín mál þar sem samningar um sorphirðu hefðu verið að renna út hjá þeim. Sú lausn sem þeir hefðu valið, að semja um það við Sigurð Júlíusson verktaka að hann héldi áfram að sjá um sorphirðu, hefði verið sú ódýrasta. Meginregia að bjóða út verk sem þessi Það var Baldur Bergmann hjá fyrirtækinu Berg- lín sem kærði samningsgerðina við Sigurð Júlíusson en hann mun hafa haft áhuga á að bjóða í verkið. Óli Jón leggur hins vegar áherslu á að þessi lausn sé að- eins til bráðabirgða, í versta falli til eins árs, og að það sé sannarlega meginregla hjá Stykkishólmsbæ að verk sem þessi verði boðin út. Óli Jón sagði að þegar fram liðu stundir yrði væntanlega farið í stærra útboð vegna sorphirðu- mála á Snæfellsnesi, enda þyrfti ekki að velkjast í vafa um að það væri hagkvæmara fyrir sveitarfélög- in. Enn er reyndar ekki Ijóst hvort öll sveitarfélög á svæðinu verða með í samstarfinu, að sögn Óla. Davíð Oddsson til Noregs og Eistlands DAVÍÐ Oddsson heldur utan um næstu helgi til Noregs. Hann verð- ur í opinberri heimsókn í Ósló 7. og 8. ágúst en áður en hann heldur þangað verður hann gestur á Björnsson-hátíðinni sem er alþjóð- leg bókmenntahátíð sem kennd er við norska skáldið Björnstjerne Björnsson. Knut Ödegaard, fyrr- verandi forstjóri Norræna hússins, er framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, verður gestgjafí Davíðs Oddsonar í Molde. í Ósló á Davíð fund með Jens Stoltenberg forsætisráðherra Nor- egs. I lok mánaðarins heldur forsæt- isráðherra síðan til Eistlands á fund forsætisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna 28. ágúst. Síðan verður Davíð í opinberri heimsókn í landinu í boði Mart Laar forsætisráðherra landsins. Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins Þeir syntu Viðeyjarsund. F.v.: Fylkir Þ. Sævarsson, Kristinn Magnússon og Bjöm Ásgeir Guðmundsson. Ný þjónusta hjá mbl.is Fréttir með SMS FRÉTTAVEFUR Morgunblaðs- ins, mbl.is, býðiu- í dag upp á nýja þjónustu fyrir eigendur GSM síma. Nú er hægt að fá sendar fréttir af mbl.is með SMS skilaboð- um. Engin sérstök kort þarf í sím- ann. Notendur verða þó að vera í GSM áskrift hjá Landssímanum. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á slíka fréttaþjónustu með SMS skilaboðum á mbl.is. Kaup- endur geta skráð sig á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Á skrán- ingarsíðunni er hægt að velja milli fréttaflokka. Einnig er hægt að fá sendar svokallaðar stórfréttir sem berast öllum notendum GSM þjón- ustunnar. Stórfréttir eru yfirleitt sendar út sjaldan og margir dagar geta liðið á milli þeirra. Þá er hægt að ákveða tímamörk á SMS þjón- ustunni. Hver skilaboð kosta 6 kr. SMS þjónusta mbl.is er í sam- vinnu við Landssímann og Stefju. Lagstir til sunds í 12 gráðu heitum sjónum. Syntu frá Viðey til Reykjavíkur ÞRÍR sundmenn, Kristinn Magnús- son, Fylkir Þ. Sævarsson og Bjöni Ásgeir Guðmundsson, lögðust til sunds við bryggjuna í Viðey klukkan 16.25 síðastliðimi laugardag og þreyttu svokallað Viðeyjarsund inn til flotbryggjunnar við Ægisgarð. Mestalla leiðina, sem er á milli 2,7- 2,8 kílómetrar, syntu þeir ski’iðsund. Kristinn er sjúkraþjálfari að mennt og fyrrverandi landsliðsmað- ur í sundi. Fylkir kom alla leið frá Danmörku til að þreyta sundið en hann er í námi í rafmagnsiðnfræði í Sönderborg. Bjöm er yfír- matreiðslumaður hjá Radisson SAS Hótel íslandi. Það var norðvestan gjóla og talsverður sjór þegar sund- ið hófst og sögðu sundmennimir að fyrsti áfanginn hefði reynst erfiðast- ur vegna sjógangs. Sautján menn höfðu þreytt Viðeyjarsund frá upp- hafi vega áður en þremenningamir bættust í hópinn og hafa því nú 20 manns, svo vitað sé, unnið þetta af- rek. Kristinn hefur reyndar áður synt Viðeyjarsund árið 1998 og sama ár þreytti hann jafnframt Drangeyjarsund. Bjöm hefur áður þreytt Bessastaðasund, þ.e. frá Æg- issíðu að Bessastöðum. Björgpnarsveitarmenn fylgdu sundgörpunum eftir á tveimur björgunarbátum alla leiðina og sáu um að gefa þeim næringu á sundi. Sundmennimir komu í land um kl. 17.30 og höfðu þá verið á sundi í tæpar tvær klukkustundir í um 12 gráðu heitum sjónum. Að sundi loknu sagði Fylkir að fyrsti áfang- inn hefði verið erfiður vegna brims en sjólagið hefði skánað strax þegar þeir komu inn fyrir Laugamesið. „Það var ekki kuldinn sem var að kvelja okkur heldur öldurnar." Þeir félagar sögðu að mikil við- brigði hefði verið að synda úr opnu hafinu inn í Reykjavíkurhöfn. Það hefði verið eins og að lenda inni í hitavegg. ---------------- Fundað í Sleipnisdeil- unni í dag FUNDUR verður í dag í deilu Bif- reiðastjórafélagsins Sleipnis og Samtaka atvinnulífsins. Verkfalli var sem kunnugt er frestað til 12. ágúst og skellur því á ef ekki semst fyrir þann tíma. Óskar Stefánsson, formaður Sleipnis, segir að í sjálfu sér sé engin sérstök ástæða til að ætla að árangur náist á fundinum í dag. Staðan sé hin sama og þegar síð- asta fundi lauk. „Við höfum eina og hálfa viku til að semja,“ segir hann. Þjónusta númer eitt! Til sölu MMC Pajero sport 2500 diesel. 5 dyra, 5 gíra, ný- skráður 26.08.1999, ekinn 34 þ. km, leðurinnrétting, sóllúga, álf- elgur, spoiler. Ásett verð 2.890.000. Ath skipti á ódýrari. Nánari uppl. hjá Bílaþingi Heklu, sími 569 5500. Opnunartimi: Mánud. - föstud. kl. 9-18 laugardagar kl. 12-16 BÍLAÞING HEKLU Nvrmr e-'rtf í nofv?vm Laugavegi 174,105 Reykjavlk, slmi 569-5500 www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is Tíð umferðarslys við Akureyri 9 bíiar skemmdir ejFtir árekstra FRÁ föstudegi til sunnudags urðu 5 harðtr árekstrar í umdæmi lög- reglunnar á Akureyri. Ekki urðu al- varleg slys á fólki en alls skemmdust 9 bifi-eiðar í þessum árekstrum. Árekstrahrinan hófst á fóstudaginn þegar jeppi og fólksbifreið skullu saman við Bægisá í Öxnadal. Jeppinn hafnaði utan vegar og báðir bílamir skemmdust talsvert. Þrennt var flutt á slysadeild en enginn slasaðist alvar- lega. Um kl. 13 á laugardaginn varð ann- ar árekstur jeppa og fólksbifreiðar, að þessu sinni við Sigluvík á Svalbarðs- strönd. Ökumaður fólksbifreiðarinn- ar, sem var á leið til Akureyrar, var að taka fram úr öðrum bíl þegar hann ók á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Við áreksturinn brotnaði aftari hjóla- búnaður fólksbifreiðarinnar af og hún stöðvaðist utan vegar. Báðar bifreið- amar voru dregnar með kranabíl af slysstað. Ökumaður jeppans og dóttir hans voru flutt á slysadeild ásamt ökumanni fólksbifreiðarinnar. Á laugardagskvöldið var fólksbif- reið ekið á lágan vegg við bifreiða- stæði fjölbýlishúss. Ökumaðurinn sagði að líklega hefði hann blindast af sólskini. Hann fann fyrir eymslum í handlegg og báðir farþegamir voru aumir í bringu eftir bílbelti. Bíllinn er mikið skemmdur. Skömmu eftir há- degi á sunnudaginn lentu kranabif- reið og fólksbifreið í ársekstri í Öxna- dal. Framúrakstur endaði með því að fólksbifreiðin lenti íraman á krana- bílnum. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður fólksbifreiðarinnar tók fram úr kranabílnum en hefur að öll- um líkindum beygt of snemma og lenti því á framhomi kranbifreiðar- innar. Við áreksturinn snerist fólks- bíllinn og lenti framan á kranabílnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.