Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR l. ÁGÚST 2000 27
ERLENT
Fjögurra daga flokksþing repúblikana sett 1 Ffladelfíu
Reynt að milda ásýnd
repúblikanaflokksins
Fíladelfíu. Reuters.
BANDARÍSKIR repúblikanar hófu
landsþing sitt í Fíladelfíu í gær og
lögðu áherslu á að mýkja ásýnd
flokksins með það að markmiði að
auka sigurlíkur George W. Bush,
ríkisstjóra í Texas, í forsetakosning-
unum í nóvember.
Jim Nicholson, formaður repúbli-
kanaflokksins, setti þingið sem
stendur í fjóra daga og nær hámarki
þegar Bush samþykkir fonnlega að
verða forsetaefni flokksins. Bush var
á kosningaferðalagi í Ohio og hyggst
mæta á þingið á morgun en kona
hans, Laura, átti að flytja ávarp
fyrsta kvöld þingsins fyrir hönd
hans.
Þingið er þaulskipulagt og hefur
verið undirbúið í marga mánuði með
það að markmiði að sýna að eining
ríki í flokknum. Stærstu sjónvarps-
stöðvarnar hafa ákveðið að draga
stórlega úr umfjöllun sinni um þing-
ið þar sem talið er að engir óundir-
búnir eða ófyrirsjáanlegir atburðir
verði.
Tíu ára stúlka frá Rómönsku
Ameríku söng bandaríska þjóðsöng-
inn við setninguna og rabbíni frá 111-
inois blessaði samkomuna. Með
þessu átti að senda þau skilaboð til
kjósenda að repúblikanaflokkurinn
væri ekki aðeins flokkur hvítra
Bandaríkjamanna og legði nú meiri
áherslu á hagsmuni minnihlutahópa
en í síðustu kosningum.
Auk eiginkonu Bush átti Colin
Powell, íyrrverandi formaður
bandaríska herráðsins, að flytja
ávarp í gærkvöld og umfjöllunarefni
hans var samfélagsþjónusta.
„Eg ætla að tala um George,
hvernig það er að alast upp í Vestur-
Texas þar sem við ólumst upp og
hvernig gildi okkar voru,“ sagði eig-
inkona Bush. „Síðan ætla ég að tala
um menntamál."
Dick Cheney, varaforsetaefni
repúblikana og fyrrverandi varnar-
málaráðherra, á að flytja ávarp ann-
að kvöld og Bush samþykki formlega
að verða forsetaefni flokksins á
fimmtudagskvöld.
Flokksþingið var skipulagt í sam-
ræmi við þá viðleitni Bush að koma
fram sem „hinn brjóstgóði íhalds-
maður“ til að tryggja sér atkvæði
miðjumanna líkt og Bill Clinton for-
seta tókst í síðustu kosningum. Með
því að mæta seint á þingið losnaði
hann við að taka þátt í hefðbundnum
árásum landsfundarmanna á demó-
krata. Hann hyggst nota þingið til að
lýsa repúblikönum sem hófsömum
flokki er vilji sætta ólík sjónarmið og
einskorðist ekki lengur við hug-
myndafræði íhaldssömustu aflanna.
„Verkefni mitt er að setja markið
hátt,“ sagði Bush á kosningafundi í
Ohio. „Verkefni mitt er að segja að
sameinuð þjóð getur afrekað allt sem
hún vill.“
Mótmælendur, sem ollu glundroða
í Seattle þegar fundur Heimsvið-
skiptastofnunarinnar var haldinn í
borginni í fyrra, skoruðu á stuðn-
ingsmenn sína að efna til mótmæla í
Fíladelfíu á sunnudag gegn hnatt-
væðingu, frjálsum viðskiptum og
stórfyrirtækjum. Aðeins um 5.000
manns tóku þátt í mótmælunum.
Cheney gagnrýndur
Demókratar hófu í gær auglýs-
ingaherferð í sautján ríkjum þar sem
þeir beina spjótum sínum að Dick
Cheney og íhaldssömum skoðunum
hans. Áætlað er að auglýsingarnar
kosti andvirði 280 milljóna króna.
Bill Clinton gagnrýndi einnig
íhaldssemi varaforsetaefnisins á
sunnudag og benti meðal annars á að
Cheney greiddi eitt sinn atkvæði
gegn ályktun á þinginu þar sem
hvatt var til þess að Nelson Mandela,
leiðtoga blökkumanna og síðar for-
seta Suður-Afríku, yrði sleppt úr
fangelsi.
A1 Gore, vai-aforseti og forsetaefni
demókrata, hefur ekki enn valið
varaforsetaefni sitt en hyggst til-
kynna 8. ágúst þver meðframbjóð-
andinn verður. Á meðal þeirra sem
einkum hafa verið nefndir sem hugs-
anlegt varaforsetaefni demókrata
eru Jim Hunt, ríkisstjóri Norður-
Karólínu, George Mitchell, fyrrver-
andi leiðtogi meirihluta öldunga-
deildarinnar, og öldungadeildar-
þingmennirnh- John Keny frá
Massachusetts, Bob Graham frá
Flórída, Evan Boyh frá Indiana og
Tom Harkin frá Iowa.
Rfkkvfylar í markflnklmm
Utboð þriðjudagiiui 1. ágúst
í dag, þriðjudaginn 1. ágúst kl. 11:00, mun fara fram útboð á rflásvíxlum hjá Lánasýslu
rfldsins. Að þessu sinni verður boðið upp á 21/z mánaða rfldsvíxil en að öðru leyti eru
skilmálar útboðsins í helstu atriðum þeir sömu og í síðustú útboðum.
I boði verður eftirfarandi flokkur rfldsvíxla í markflokkum:
Núverandi Áætlað liámark
Flokkur Gjalddagi Lánstími staða* tekiima tilboða*
RV00-1018 18. október 2000 2'ð mónuður 1.1 SS S.000.-
*Milljónir króna
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvíxlamir verða seldir með tilboðs-
fyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða í
ríkisvíxla að því tilskildu að lágmarksíjárhæð
tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum,
fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum,
verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og trygginga-
félögum er heimiit að gera tilboð í
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
www.lanasysla.is • utbod@lanasysla.is
meðalverð samþykktra tilboða að lágmarki
S00.000 krónur. Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 11:00 í dag,
þriðjudaginn 1. ágúst 2000. Utboðsskilmálar,
önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6
og í síma 562 4070.
Reyndu að „lækna“
samkynhneigða
Jóhannesarborg. AFP.
AÐSKILNAÐARSTJORNIN í
Suður-Afríku lét á sínum tíma
framkvæma kynskiptiaðgerðir á
samkynhneigðum mönnum sem
gegndu herþjónustu og beittu
hormónalyfjum, raflosti og vönun
í því augnamiði að „lækna“ þá.
Kemur þetta fram í suður-afríska
dagblaðinu Maíl and Guardian.
Var verkefnið afar leynilegt og
nutu hermálayfirvöld aðstoðar
geðlækna og presta sem störfuðu
innan hersins við að benda á þá
nýliða sem grunaðir voru um að
vera samkynhneigðir, að því er
blaðið segir. „Þeir voru sendir á
Voortrekkerhoogte-hersjúkra-
húsið í Pretóríu til rannsókna og
„endurhæfingaraðgerða". Þeir
hermenn, sem ekki var unnt að
„lækna“ með lyfjagjöf eða geð-
lækningum, undh-gengust kyn-
skiptiaðgerðir eða voru vanaðir
með Ivfjum. Er fullyrt að á tíma-
bilinu 1971-1989 hafi 50 slíkar að-
gerðir verið gerðar árlega. Her-
læknir sem viðriðinn var þessa
svokölluðu „fráhvarfsmeðferð“,
Aubrey Levine, segir alla sem
undirgengust hana hafa gert það
af frjálsum vilja. Levine flutti til
Kanada árið 1990.
Starfsnám fyrir
leiðsögumenn
ferðafólks
Innritun í Leiðsöguskóla íslands fer fram 1.-9. ágúst
nk. Leiðsögustarf er skemmtilegt og fjölbreytilegt starf
sem krefst góðrar tungumálakunnáttu og þekkingar á
náttúru landsins, sögu og þjóðlífi. Leiðsögumenn þurfa
að vera þjónustuliprir og jákvæðir í mannlegum
samskiptum. Leiðsögunemar eru búnir undir að geta
frætt farþega um hin margvíslegustu efni sem fyrir
augu ber og upp koma í ferðum vítt og breitt um landið.
Námið er bæði bóklegt og verklegt.
* Umsækjendur skulu vera orðnir 21 árs og hafa
stúdentspróf eða sambærilega menntun. Þeir
skulu, auk íslensku, hafa gott vald á a.m.k. einu
erlendu tungumáli.
* Umsækjendur skili umsóknum eigi síðar en 9. ágúst
nk. og skrái sig í viðtal og inntökupróf á sama tíma.
Inntökuprófið er munnlegt og fer fram á því erlenda
tungumáli sem umsækjandi velur.
* Heimilt er að takmarka fjölda nemenda ef umsóknir
verða fleiri en skólinn annar.
* Kennsla fer fram tvö kvöld í viku og flesta laugar-
daga frá september 2000 til maíloka 2001. Námið er
lánshæft hjá LÍN
Umsóknareydublöð liggja frammi á
skrifstofu skólans frá
kl. 10.00-12.00 til 9. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður skólans á
sama tíma í síma 544 5520. Sjá einnig vefsíðu skólans:
mkismenntis.
Leiðsöguskóli íslands
MENNTASKÓLANUM í KÓPAVOGI
Digranesvegi 51, Kópavogi.