Morgunblaðið - 01.08.2000, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ
^50 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
UMRÆÐAN
Sumarstarf
fyrir fötluð ungmenni
Kristinn Sverrir
Ingvarsson Óskarsson
ÞEGAR sumra tek-
ur skunda ungmenni
út úr skólum í önnur
verkefni. Þá gefst
þeim tækifæri á að
breyta til og takast á
við krefjandi hluti.
Sumarstarf unglinga
Rr mikilvægur þáttur í
þroska og sjálfstæðis-
þróun ungs fólks.
Sumarstarfið er einn
af þeim mörgu þáttum
sem byggja einstakl-
inginn upp til fram-
búðar.
Því miður hafa ekki
allir staðið jafnfætis
gagnvart möguleikum
á að þroskast og fá laun fyrir erfiði
sitt. Fatlaðir unglingar hafa minni
möguleika á sumarúrræðum en
jafnaldrar þeirra.
Að frumkvæði nokkurra aðila
ásamt góðum ábendingum foreldra
var sett í gang tilraunaverkefnið
Regnboginn sumarið 1999 og þvi
v framhaldið í sumar. Að Regnbog-
anum standa Vinnuskóli Reykja-
víkur, fþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur, Miðgarður fjölskyldu-
þjónusta í Grafarvogi, Félagsþjón-
ustan í Reykjavík og Svæðisskrif-
stofa málefna fatlaðra í Reykjavík.
Vegna alvarlegra fatlana, skertr-
ar vinnugetu, hegðunarþátta, veik-
inda eða annarra ástæðna hefur
sumum unglingum ekki boðist full
vinna eða tómstundir við sitt hæfi.
Þannig var búin til ný úrlausn sem
byggist á skapandi og frjósömum
krafti unglinganna sjálfra.
Regnboginn er tilboð um sumar-
starf og tómstundir fyrir hóp 14 til
16 ára fatlaða unglinga, þ.e. at-
vinnutengd tómstundaúrræði.
Þeim unglingum var boðin þátttaka
í starfinu sem ekki höfðu hæfni eða
getu til að starfa allan daginn í
verkefnum hjá Vinnuskóla Reykja-
víkur, þ.e. úrræði fyrir þá einstakl-
inga sem ekki höfðu möguleika á
almennu starfi eða tómstundum.
Markmiðið er þannig jafnt aðgengi
unglinga til vinnu og tómstunda,
heilsdagsúrræði í tvo mánuði yfir
sumarið og viðfangsefni við hæfi
hvers og eins.
Sumarið 1999 fór starfið fram
eftir hádegi. Þá unnu unglingarnir
hjá Vinnuskólanum á morgnana og
voru í Regnboganum eftir hádegi.
Þátttakendur voru 21 fyrsta
sumarið. I sumar hefur umfangið
aukist þannig að einn hópur er á
morgnana og annar hópur eftir há-
degi auk þess sem starfið stendur í
níu vikur. Nú taka 34 einstaklingar
þátt í verkefninu. Eins er ánægju-
leg þróun að nokkrir einstaklingar
sem höfðu ekki tækifæri síðasta
sumar, vegna veikinda og alvar-
legrar fötlunar, taka núna fullan
þátt í sumarstarfi.
Regnboginn
Regnboginn er tilboð,
segja þeir Kristinn
Ingvarsson og Sverrir
Oskarsson, um sumar-
starf og tómstundir
fyrir hóp 14 til 16 ára
fatlaða unglinga.
Dagleg skipulagning og umsjón
Regnbogans er í höndum verkefn-
isstjóra og aðstoðarmanns hans.
Einnig starfa þar liðsmenn sem
hjálpa til í daglegum verkefnum og
ungir stuðningsaðilar, þ.e. jafnaldr-
ar þátttakendanna, sem eru til að:
stoðar og sem félagsskapur. í
Regnbogann hefur tekist að fá gott
fólk til starfa, hæfileikaríka ein-
staklinga með óþrjótandi hug-
myndir og elju. Verkefnavalið er
fjölbreytt, háð getu og vilja ungl-
inganna auk utanaðkomandi þátta
eins og veðurfari. Helstu verkefnin
eru leiklist, myndlist, tónlist, fönd-
ur, sund, íþróttir, vísindaferðir,
fyrirtækjaheimsóknir, starfskynn-
ingar, lóðahreinsanir, leikir og
söngur.
Innra starf Regnbogans byggist
á jákvæðu og frjósömu andrúms-
lofti innan ramma eðlilegra vinnu-
reglna. Fundnir eru styrkleikar
hvers og eins og reynt að virkja þá
frekar. I starfinu á að felast hvatn-
ing til unglinganna að þroska færni
sína á jákvæðan og sanngjarnan
hátt.
Reynslan af starfi Regnbogans
hefur verið farsæl. Unglingar, for-
eldrar og aðrir sem standa að
verkefninu eru ánægðir með
árangurinn. Starfið er fólgið í því
að búa til verkefni við hæfi fatlaðra
unglinga í Reykjavík sem ekki geta
unnið daglangt í garðyrkju. Komið
er á fót launuðu starfsumhverfi
sem aðlagað er getu og hæfni ein-
staklinga hverju sinni. Samhljómur
stofnana í Reykjavík hefur skilað
árangursríku skrefi í átt að heild-
stæðari og samfelldari þjónustu við
fötluð börn og fjölskyldur þeirra.
Regnboginn sinnir fötluðum
unglingum í Reykjavík en því mið-
ur aðeins takmarkaðan tíma sum-
arsins. Nauðsynlegt er að halda
áfram á sömu braut og tryggja
aukna velferð barna og unglinga
sem glíma við fötlun.
Sverrir er félagsráðgjafí á Svæðis-
skrifstofu Reykjavíkur og Kristinn
verkefnisstjóri Regnbogans.
Austurbakki
Tilkynning um rafræna skráningu
hlutabréfa í Austurbakka hf.
Þann 3. nóvember 2000 verða hlutabréf í Austurbakka hf.
tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu Islands
hf. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf
félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hlutabréf félags-
ins, sem eru útgefin í pappírsformi í samræmi við heimild í
ákvæði til bráðabirgða nr. 2 í lögum nr. 131/1997 um raf-
ræna eignaskráningu verðbréfa, sbr. ó. gr. laga nr.
32/2000 um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu raf-
rænnar eignaskráningar á verðbréfum og reglugerð nr.
397/2000 um rafræna eignaskráningu verðbréfa í
verðbréfamiðstöð.
.> Skorað er því á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja
nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega
fært í hlutaskrá Austurbakka hf., að staðreyna skráninguna
með fyrirspurn til Ausfurbakka hf. á Köllunarklettsvegi 2, 104
Reykjavík, fyrir nefndan dag. Ennfremur er skorað á þá,
sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s.
veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reiknings-
stofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki).
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reiknings-
stofnun, sem hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskrán-
ingu islands hf., umsjón með eignarhlut sínum í félaginu.
Stjórn Austurbakka hf.
w
Listmeðferð -
nýleg starfsgrein
LISTMEÐFERÐ
er tiltölulega ný
starfsgrein á íslandi.
Vegna þess hversu
ung starfsgreinin er
hér á landi og til að
reyna að koma í veg
fyrir misskilning vill
stjórn Félags listmeð-
ferðarfræðinga á ís-
landi koma eftirfar-
andi á framfæri.
Listmeðferð er þýð-
ing á enska heitinu art
therapy. Heiti eins og
myndþerapía og list-
þjálfun hafa verið not-
uð síðustu árin bæði
innan og utan stofn-
ana og hefur það að vonum valdið
nokkrum ruglingi. Við undirbúning
að stofnun Félags listmeðferðar-
fræðinga á Islandi, skammstafað
FLIS, var í samvinnu við íslensku-
fræðinga valið heitið listmeðferð
yfir starfsgreinina og þar af leið-
andi varð til starfsheitið listmeð-
ferðarfræðingur. Félag listmeð-
ferðarfræðinga á íslandi var síðan
stofnað þann 12. september 1998.
Fyrsti íslenski listmeðferðar-
fræðingurinn kom úr námi 1980.
Undirstaða listmeðferðarnámsins
er myndlist og sálarfræði, síðan
tekur við 2ja ára framhaldsháskóla-
nám í listmeðferð þar
sem megináhersla er
lögð á að kenna beit-
ingu klíniskrar list-
meðferðar. I dag er
hægt að stunda viður-
kennt nám í t.d. Bret-
landi, Bandaríkjunum,
Finnlandi og Hollandi.
Fram að þessu hafa ís-
lenskir listmeðferðar-
fræðingar sótt nám til
Bretlands og Banda-
ríkjanna. Síðustu tvo
áratugi hafa listmeð-
ferðarfræðingar verið
að skapa sér starfs-
grundvöll innan ým-
issa stofnana og starfa
þeir aðallega á sjúkrahúsum og í
skólum. Einnig eru nú starfræktar
tvær einkastofur í Reykjavík.
Grundvöllur listmeðferðar er
myndsköpunarferlið og samband
skjólstæðings við listmeðferðar-
fræðinginn. Kjarni meðferðarinnar
felst í gildi þess að skapa, að mann-
eskjan er skapandi vera. Nauðsyn-
legt er að greina á milli meðferðar
annars vegar, þar sem unnið er
með viðkvæma tilfinningalega,
hugræna og sálræna þætti í innra
og ytra lífi skjólstæðingsins og hins
vegar myndlistarstarfa, mynd-
listarkennslu og námskeiða í sjálfs-
Meðferð
Grundvöllur listmeð-
ferðar, segir Halldóra
Halldórsdóttir, er
myndsköpunarferlið.
rækt af ýmsum toga. í listmeðferð,
sem og annarri meðferð, leggur
meðferðaraðilinn áherslu á með-
ferðar-rammann sem þarf að fela í
sér öruggan stað og aðstæður,
samfelldan tíma og kunnáttu til að
aðstoða skjólstæðinga við að vinna
úr tilfinningum, upplifunum og
reynslu í gegnum fjölbreyttan efn-
ivið eins og liti, pappír, málningu,
leir og gifs.
Meðferðir sem byggjast á mynd-
list, tónlist og leiklist eru í sívax-
andi mæli að taka sér stöðu við
hliðina á hefðbundinni samtalsmeð-
ferð, fyrir einstaklinga og hópa.
Hið talaða mál er aðeins eitt af
mörgum tungumálum eða tjáninga-
leiðum sem manneskjan hefur yfir
að ráða til að leita skilnings á sjálf-
um sér og aðstæðum sínum.
Höfundur er listmeðferðarfræðing-
urd Hvítabandi, Háskðlasjúkrahúsi.
Halldóra
Halldórsdóttir
Klikkiið ÉÍnUa!
'V
Verð áður Verðnú
adidas gallar ungbama 2.990,° 1.990,-
Nylon buxur barna stærðtr 134-164 2.990,- 1.990,- A
adidas hlaupaskór dömu og herra 5.990,- 3.990,- %
Fleece peysur stærðtrxs-xxxL 4.990,- 3.493,-
salomom gönguskór stærðtr 36-48 12.900,- 8.900,-
4^^aerobic skór stærðtr 36-41 6.720,- 3.990,- Ul
$t«kkun
SPAR SPORT
TOPPMERKt A LAGMARKSVERÐI
NÓATÚN 17
T
S. 511 4747