Morgunblaðið - 01.08.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 59
FRÉTTIR
Kvöldgangan
og klaustursýn-
ingin í Viðey
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDGANGAN í
Viðey verður að þessu sinni um norð-
urströnd Heimaeyjarinnar. Farið
verður með Viðeyjarferjunni í kvöld
kl. 20. Gengið verður frá kirkjunni
austur fyrir gamla túngarðinn, með-
fram honum og yflr á norðurströnd-
ina. Hún verður gengin til vesturs,
yfir Eiðishólana, um Eiðið og yfir að
Nautahúsunum austast á Vestur-
eynni. Þar er „ástarsteinninn“ svo-
nefndi, steinn með áletrun frá 1821,
sem gæti geymt litla ástarsögu. Þar
skammt frá eru einu stríðsminjarnar
í eynni. Aðeins verður farið í fjöru og
útsýnis notið af Eiðishólunum. Eyj-
an sjálf og nágrenni hennar geyma
staði, sem eiga skemmtilega sögu og
fróðleik, sem reynt verður að draga
fram í dagsljósið.
Gangan tekur rúma tvo tíma.
Göngufólk er minnt á að vera búið
eftir veðri, ekki síst til fótanna. Gjald
er ekki annað en feijutollurinn,
400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr.
fyrir börn.
Klaustursýningin í Viðeyjarskóla
hefur fengið góða dóma. Álmennur
opnunartími hennar er frá kl. 13.20
til 16.10 virka daga, en til kl. 17.10
um helgar. Enginn aðgangseyrir er
tekinn, en falleg og fróðleg sýningar-
skrá er til sölu á 400 kr. Hópar geta
fengið sérstaka leiðsögn um sýning-
una.
Reiðhjól er hægt að fá lánuð end-
urgjaldslaust við bryggjusporðinn,
hestaleigan er að starfi og veitinga-
húsið í Viðeyjarstofu er opið.
Ari Páll Kristinsson
forstöðumaður
íslenskrar málstöðvar
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur skipað Ara Pál Kristinsson mál-
fræðing í embætti forstöðumanns Is-
lenskrar málstöðvar til fimm ára, frá
1. september næstkomandi. Islensk
málstöð er skrifstofa íslenskrar mál-
nefndar og er miðstöð þeirrar starf-
semi sem málnefndin hefur með
höndum.
Meginhlutverk íslenskrar mál-
nefndar er að vinna að eflingu ís-
lenskrar tungu og varðveislu hennar
í ræðu og riti. Ari Páll var eini um-
sækjandinn um embættið en lögum
samkvæmt gaf íslensk málnefnd álit
um umsókn hans og taldi hann vel
hæfan til að gegna embættinu.
Nordjamb 2000 haldið í ágúst
í BYRJUN ágúst verður haldið hér
á landi alþjóðlegt mót fyrir ungt fólk
á aldrinum 15 til 30 ára. Mótið heitir
Nordjamb 2000 og er það samnor-
rænt verkefni skáta.
Mótið hefst í Ráðhúsi Reykjavík-
ur þriðjudaginn 8. ágúst kl.10.
„Eftii’ athöfnina munu skátamir
stökkva upp í bíla, flugvélar, rútur,
jeppa, báta, kajaka eða fara í sína
eigin gönguskó og taka þátt í ævin-
týradögum sem fram fara víða um
land.
Meðal verkefna er að klífa
Hvannadalshnjúk, hestaferð á há-
lendinu, sjókajak á Breiðafirði, fall-
hlífastökk á Sandskeiði, klettaklifur
í Skaftafelli, gljúfrabrölt við Glym,
köfun á Reykjanesi, ísklifur í Gíg-
jökli og sólarhringsferð í Hraun-
helli.
I vikulok hittast allir hópamir á
Úlfljótsvatni og eyða helginni þar
saman. Mótinu er síðan slitið sunnu-
daginn 14. ágúst á Þingvöllum.
Þátttakendur koma víðs vegar að
úr heiminum og áætlað er að um 450
skátar taki þátt í mótinu. Erlendir
þátttakendur koma frá Austurríki,
Ástralíu, Englandi, Bandaríkjun-
um, Belgíu, Bretlandi, Danmörku,
Finnlandi, Færeyjum, Ghana, Kan-
ada, Kína, Ítalíu, Luxemborg, Nor-
egi, Pakistan, Sviss og Svíþjóð.
Mótið er haldið í tilefni þess að
aldarfjórðungur er síðan skátar
héldu saman alheimsmót skáta í
Noregi þar sem skátar á norður-
löndunum sýndu í verki hvers
megnugar þessar þjóðir em ef þær
standa saman að verkefnum. Með
því að sh'ta mótinu á Þingvöllum
fagna skátar um leið kristni á ís-
landi í 1000 ár. Einnig minnast ís-
lenskir skátar á þennan hátt landa-
funda Leifs heppna með því að
bjóða ungu fólki að „finna ísland,“
segir í frétt frá mótshaldara.
AFSLATTUR
Flymo Turbo Compact E380
Létt loftpúðavél með grassafnara. 1500 w rafmótor.
Flymo GT500
Létt loftpúðavél. Atvinnutæki fyrir brekkur, stórar
lóðir og erfiðar aðstæður. Sláttubreidd 50.5 sm.
AFSLÁTTUR
MTD GE45
3,75 hp B&S bensfnmótor.
Sláttubreidd 45 sm. 80 Iftra safnkassi.
Verð áður kr. 38.900
Husqvarna Rider R16H
Öflugt og vandað atvinnutæki. Liðstýrður sláttutraktor með
15,5 hp B&S mótor. Vökvaskiptur með 97 sm sláttubreidd.
MTDG185
Sláttutraktor með 20 hp B&S mótor. Fjórtán MJSTD
gfra með 117 sm sláttubreidd. Með háu og nlii
lágu drifi. Þriggja blaða sláttudekk.
AFSLÁTTUR
Husqvarna 245R vélorf
Atvinnutæki sem slær kanta, grasbrúska
og illgresi. 2.7 hp bensfnmótor, 8.6 kg.
Sláttuhaus og diskurfylgja.
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
Flymo L47
Létt loftpúðavél. Atvinnutæki fyrir brekkur, stórar
lóðir og erfiðar aðstæður. 4 hp tvígengismótor.
AFSLÁTTUR
MTD465A greinakurlari
Ji' Greinakurlari með 8 hp bensínmótor.
Faxafeni 14. Sími 568 5580. Opið mán. - fös. 9-18. Lau. 10-14
UTSÖLUSTAÐIR
REYKJAVÍK: HÚSASMIÐJAN. AKUREVRI: HUSASMIÐJAN, RADlÓNAUST. NESKAUPSTAÐUR: VlK. AKRANES: AXEL SVEINBJÖRNSSON.
SAUÐÁRKRÓKUR: HEGRI. VESTMANNAEYJAR: BRIMNES. HÖFN: KAUPFÉLAG A-SKAFTFELLINGA. EGILSSTAÐIR. KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA.
©Husqvarna
©Husqvarna
uvéíar - Traktorar - Hekkkíippur - Greinakuriarar - Sláttuorf - Keðjusagir - Aburðartíreifarar