Morgunblaðið - 01.08.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 67
MYNPBONP
Njótið daganna
Einn koss enn
(One More Kiss)
I) r a m a
★★★%
Leikstjóri: Vadim Jean. Hand-
ritshöfundur: Suzie Halewood. Að-
alhlutverk: Gerard Butler, Valerie
Edmonds, Valerie Gogan, James
Cosmo. (98 mín.) England. Bergvík,
1999. Myndin er ölium leyfð.
SARA kemur aftur til æskustöðv-
anna á Skotlandi þar sem hún til-
kynnir sínum nánustu að hún eigi
ekki langt eftir.
Það eru sjö ár síðan
hún yfírgaf heima-
hagana og fyrrver-
andi kærasti henn-
ar, Sam, er kominn
með konu og
blómstrandi at-
vinnurekstur, en
hann er ekki lengi
að fallast á beiðni
Söru um að eyða síðustu dögunum
hennar með henni. Faðir hennar,
Frank, sem er maður fárra orða,
kemst í tilfinningalegt uppnám við
fréttirnar og byrjar smám saman að
opna sig og tala við Söru um málefni
sem honum finnst óþægileg, jafnvel
fomar ástir. Leikstjórinn Vadim
Jean („Leon the Pig Farmer“) hefur
sent frá sér sína myndrænustu og
heilsteyptustu kvikmynd til þessa.
Það eru ótrúlega áhrifamiklar senur
í henni ásamt algjöru augnakonfekti.
Til dæmis má nefna senuna þegar
feðginin eru í bflaþvottastöð sem er
byggð upp eins og dans þar sem
þurrkurnar eru dansararnir og þau
sjá um tónlistina með samræðum
sínum. Samband Söru og Sams er
vel unnið en nálgast aldrei hina dá-
samlegu strauma sem myndast á
milli Franks (James Cosmo) og Söru
(Valerie Edmonds). Edmonds sinnir
erfiðu hlutverki af einskærri snilld,
því Sara er sjálfselsk, þrjósk en gíf-
urlega heillandi persóna. James Cos-
mo er ekki síðri sem Frank en breyt-
ingin frá hinum bragðdaufa einbúa í
manninn sem fer að lokaráðum dótt-
ur sinnar um að njóta lífsins er ein-
staklega vel unnin. Þótt þessi mynd
fjalli um dauðann er hún aldrei
þungbúin, þvert á móti er hún björt,
hugljúf og ekki síst mannleg.
Ottó Geir Borg
Buslað í baðkeri
Handan djúpsins
(Avalon: Beyond the Abyss)
Spennumynd
★%
Leikstjóri: Philip Sgriccia. Handrit:
Chris Ruppenthal. Aðalhlutverk:
Parker Stevenson og Krista Allen.
(85 mín.) Bandarikin, 1999. Sam-
myndbönd. Bönnuð innan 16 ára.
ÞAÐ ER alltaf hallærislegt að
horfa upp á sjónarvarpsmyndir með
takmörkuð fjárforráð ráðast í kvik-
myndun á umfjöllunarefni sem krefst
kostnaðarsamra
leikmynda og
tæknivinnslu. Upp-
hafsatriði Handan
djúpsins á t.d; að
eiga sér stað undir
yfirborði sjávar en
lítur út fyrir að hafa
verið tekið upp í
baðkerinu heima
hjá leikstjóranum.
Fleiri slík atriði koma fyrir reglulega
út í gegnum myndina og eru alltaf
jafnvandræðaleg. En burtséð frá
tæknilegu hliðinni er þetta nokkuð
grípandi spennusaga með dálítið
skemmtilegu vísindasagnaívafi. Far-
ið er vítt og breitt í atburðanna rás
þar sem jarðneskir vísindamenn tak-
ast á við óútskýranleg og dulræn fyr-
irbæri. Um kvikmyndina má segja
það sem á við um svo margar aðrar,
þ.e. að hún er léleg og einfeldnings-
leg en um leið sæmileg afþreying.
Heiða Jóhannsdóttir
MYNDASAGA
Hollywood frá heiðar-
legri enda símalínunnar
Fortune and Glory eftir Brian
Michael Bendis. Raunasaga um
samskipti höfundar við hinn harða
viðskiptaheim höfundar. Gefin út af
Oni Press árið 2000. Fæst í mynda-
söguverslun Nexus VI.
ÞAÐ ER mai-gt líkt með köldum ís-
lenskum vetrarhimni og borg engla,
kvikmyndastjarna og kjaftasagna.
Inn á milli glitrandi stjarnanna
leynist eitthvað óþekkt og óskil-
greint sem skilningarvit okkar geta
á engan hátt gripið vegna órafjar:
lægðar þeirra frá okkar veruleika. í
myrkrinu á milli kvikmynda-
stjarnanna í Hollywood er eflaust
að finna leifar þúsunda brotinna
drauma sem halda enn í þá von að
einhver stjarnfræðingur eða áhuga-
maður beini sjónauka sínum að sér.
Brian Michael Bendis er lfldegast
ein skærasta stjarnan á mynda-
sögunæturhimninum um þessar
mundir en hann hefur einnig verið
að reyna ítrekað að láta ljós sitt
skína sem kvikmyndahandritshöf-
undur. Útlitið hjá honum um þessar
mundir er nokkuð bjart og hann er
kominn langleiðina með að takast
áætlunarverk sitt. Einnig hefur
hann nýlega tekið að sér að skrifa
nýtt upphaf í nýrri blaðaseríu um
Spiderman sem á að gjörbylta
teiknimyndasögumarkaðinum. En
það er eins með undrabarnið Bend-
is, eins og alla aðra sem hafa reynt
fyrir sér í Hollywood, að hann hefur
þurft að þola hámarksskammt til-
gerðar og asnaeyrnatogs. Bendis
hefur alltaf verið lofaður fyrir ein-
staka leikni sína að gera öll samtöl
milli myndasögupers-
óna sinna trúverðug og
tilgerðarlaus. Því er
sérstaklega skemmti-
legt að lesa nýjustu bók
hans, „Fortune and
Glory“ sem er rauna-
saga hans af samskipt-
um sínum og ævintýr-
um í Hollywood, og
bera hana saman við
önnur skáldverk hans.
Það er líka sérstaklega
gaman að sjá hve
ófeiminn pilturinn er í
því að gera grín að
sjálfum sér.
Það þykir eflaust
ekki mjög heillandi að
lesa eftirfarandi lýs-
ingu ó prenti en stað-
reyndin er samt sú að
rúmlega helmingur
bókarinnar er endur-
flutningur af símtölum
sem höfundurinn hefur
átt við hina og þessa
viðskiptaaðila. Sum
samtölin eru hreint og
beint stórkostleg og ef
þau eru eins sönn og höfundurinn
heldur fram og þetta eru mennirnir
sem standa á bak við bíótjöldin þá
er engin furða að myndir eins og
„Armageddon“, „End of Days“ eða
„Battlefield Earth“ verða til. Þetta
FORTUHE
and
glory
A TRUE HOLLYWOOD CQMIC BOOK ST0RY
eru allt myndir sem áttu að enda
sem enn einn molinn í safni gull-
gerðarmanna Hollywoodhæða en
reyndust á endanum vera glópa-
gull. Að maður tali nú ekki um
myndirnar „Batman & Robin“ og
„Spawn“ og það óorð sem þær
komu á myndasöguna. Eftir brot af
þeim myndum er ekkert undarlegt
að hinn almenni kvikmyndaáhuga-
maður skuli hugsa sig um tvisvar
áður en hann kaupir sér aðgöngu- ★
miða á mynd þar sem orðið
„myndasaga“ kemur fram einhvers
staðar á framleiðslustiginu.
Nú þegar næsta bylgja kvik-
mynda sem gerðar eru eftir teikni-
myndasöguhetjum er að skella á er
fátt annað hægt að gera en að bíða
og vona að þær myndir sem eru á
leiðinni verði bókmenntagreininni
ekki til skammar.
Birgir Orn Steinarsson
safakanna m/2g!oMliH
kœiitaska
mebus kiukka biá/ví_.ur
rasta! gias grsent
rastai glas guit
mstai gias rautt
rastai dr.gias rautt
rastai dr. gias bíátt
rasta! dr. g!as grœnt
rastai dr, gias guit
Kúsdiskar
Btstö zebra
jlldhúsrúlíustatif
sítrónukanna
tertöfiukarfa
kanna mouse-sand tuiíp
kanna sand-iichen tulip
kanna íichen-sand tuiip
kökudtskur 32cm
diskur garcía
Afsláttur allt að
ská! garaj
sfcáíar^
Hpf
rast^H
glös 6stk
testal tják
Utsalan í Byggt og búið er engri lík.
Þar er fjöldi góðra muna fyrir heimilið á frábæru verði
þvottasnura
ruslafata hvít 57!
rusJafata hvítsoi A
vökunarkanKrí
garðúóari 220 m2
garðúðari 240fm
garðúðari 435 fm
úðabyssa piast
úðarasstt _
í
i