Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 70
ÍSLENSKA AUCLÝSINCASTOFAN HF
70 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
NÝTT
ALOE VERA PLUS +
Sérstaklega hannað fyrir
íslenskt veðurfar
og víðkvæma húð
pianta full af næringu
Gæðavottað Aloe Vera
300% öflugra
ALOE VERA PLUS+
- margfalt öflugra en áður
Fæst f stórmörkuðum og apótekum • Niko heildverslun hf, sími 568 0945
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
The Whole Nine Yards á topp myndbandalistans
V erðlaunavertíð
á leigunum
ÞAÐ ER margt góðra mynda á leig-
unum þessa dagana og má eiginlega
segja að nú standi yfir vertíð verð-
launamyndanna sem tínast á leig-
urnar hver af annarri - þar á meðal
þær sem riðu feitum hesti frá síðustu
Óskarsverðlaunaafhendingu.
The Whole Nine Yards, sem fer
beint á toppinn, hefur þó ekkert ver-
ið að sópa að sér verðlaununum enda
var það vart markmiðið. Þetta er létt
og hressileg gamanmynd með Bruce
Willis og Matthew Perry sem urðu
víst bestu vinir við tökurnar. Sagan
segir að þeir hafi orðið svo góðir vin-
ir að Willis hafi endilega viljað um-
gangast Perry og vini hans áfram
með því að taka að sér lítið hlutverk í
þáttunum vinsælu um vinina, sem
hann gerði með góðum árangri. The
Whole Nine Yards segir frá því er al-
ræmdi leigumorðinginn Willis flytur
í rólegt og friðsamlegt úthverfi og
gerist nágranni Perrys. Vitanlega
grípur örvænting íbúa hverfisins en
þó mest af öllum Perry vegna þess
að kona hans fellur fyrir Willis. Þar
með er sagan ekki að öllu sögð því
eiginkona Willis fellur síðan einnig
fyrir Perry þannig að úr verður þessi
fínasta flækja. Aðdráttarafl myndar-
innar þarf fáum að koma á óvart;
Willis hefur löngum laðað landann að
og Perry hefur glatt margan sem sí-
sprellandi en óöruggur Chandler
Bing í Vinunum vinsælu.
Nýja Martin Scorsese-myndin
Bringing Out the Dead kemur ný inn
í sjötta sætið en í þessari myrku
spennumynd leikur Nicholas Cage
sjúkraflutningamann á ystu nöf.
Tvær aðrar myndir koma síðan nýj-
ar inn. Vélmennarómansinn Bicent-
ennial Man með Robin Williams og
Flawless með þeim Robert De Niro
og Phillip Seymour Hoffman þar
sem hinn síðarnefndi þykir fara á
kostum sem samkynhneigður klæð-
skiptingur er fær það starf að að-
stoða íhaldssaman og fordómafullan
De Niro við að ná sér eftir heilablóð-
fall.
Brúsi er að vanda ofursvalur
í Whole Nine Yards.
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
A ISLANDI
Nr. var vikur Mynd Útgefandi ; Tegund
1. NY 1 The Whole Nine Yards Myndform ; Gaman
2. 4. 2 The Green Mile Hóskólabíó : Drama
3. 1. 3 Double Jeopardy Sam myndbönd ; Spenna
4. 2. 3 Dogma Skífan : Gaman
5. 3. 5 The Bone Collector Skífan : Spenna
6. NÝ 1 Bringing Out the Dead Sam myndbönd l Spenna
7. 6. 2 Mugnolio Myndform ! Drama
8. 5. 3 The Insider Myndform ■ Drama
9. 8. 2 Anno and the King Skífan ; Drama
10. NÝ 1 Bicentennial Man Sam myndbönd : Gaman
11. NY 1 Flawless Góðar stundir i Gaman
12. 12. 6 Fucking Ámðl Hóskólabíó : Drama
13. 16. 2 Friends 6 (21-24) Sam myndbönd : Gaman
14. 7. 6 End of Days Sam myndbönd ! Spenna
15. 10. 9 Fight Club Skífan ! Spenna
16. 13. 2 Friends 6 (13-16) Sam myndbönd ; Gaman
17. 14. 2 Friends 6 (17-20) Sam myndbönd ; Gaman
18. 15. 10 Random Hearts Skífan ; Drama
19. 17. 3 Two Hands Bergvík : Spenno
20. 9. 8 The World is Not Enough Skífan : Spenna
g í 1
Brad Pitt og Jennifer Aniston giftast
Tjaldið sem brúðkaupið
fór fram í.
Courtney Cox-Arquette kemur
til brúðkaupsins.
Brriðka
aldarin
ÞAR KOM loksins að því, fallegasta
par Hollywood er gengið í heilagt
hjónaband.
Athöfnin fór fram síðla kvölds á
laugardag í risastóru fannhvítu
tjaldi við ströndina á Malibu og síð-
ustu geislar kvöldsólarinnar brugðu
gullnum lit á fagurt andlit brúðar-
innar. Jennifer keppti sjálf við feg-
urð sólarinnar í drifhvítum silkikjól
hönnuðum af Lawrence Steele og
með slör yfir síðu hárinu. Brad, sem
er ávallt jafn myndarlegur, beið
brúðarinnar uppi við altarið og þótti
sumum sem tár gægðust fram í
augnhvarmana þegar brúður hans
var leidd upp að altarinu, svo stoltur
var hann af stúlkunni sinni.
Allir bestu vinir brúðhjónanna,
um 200 talsins, voru viðstaddir at-
höfnina. Þar á meðal voru allir
sjónvarpsvinimir hennar Jennifer,
þau Lisa Kudrow, Courtney Cox
Arquette, David Schwimmer, Matt
Sæl og glöð á brúðkaupsdaginn, hr. og frú Pitt.
Reuters
LeBlanc og Matthew Perry. Þrátt
fyrir þennan mikla gestafjölda var
einum haldið úti fyrir dýrðina. Það
var Nancy, móðir brúðarinnar, sem
var ekki boðið til að vera viðstödd
þennan stóra dag í lífi dóttur sinnar.
Þeim mæðgum var sundurorða fyrir
nokkrum árum og hefur ekki gróið
um heilt á milli þeirra síðan.
Heill her af gæslumönnum, vopn-
uðum vélbyssum, sá til þess að eng-
ir óboðnir gestir, þar með taldir
fjölmiðlamenn, kæmust inn í veisl-
una og lögregluþyrla flaug yfir
svæðið til að ógna frá fljúgandi boð-
flennum.
Öll gæslan var vel þess virði því
gestirnir gátu skemmt sér konung-
lega inni fyrir í grískum dansi. Það
var hugmynd Jennifer að hafa veisl-
una í grískum stfl sem virðingarvott
við grískan uppruna sinn. Gestimir
tóku vel í þetta og bmtu diskana
sína í þúsund mola til að óska brúð-
hjónunum velfarnaðar að grískum
sið. Hvað annað?