Morgunblaðið - 01.08.2000, Side 76

Morgunblaðið - 01.08.2000, Side 76
Eignaskipti uj7 Ráðgjöf ehf Gerð eignaskiptayfirlýsinga Sími5886944 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. n; Beðið á bekk Þessi systkini biðu eftir mömmu sinni á bekk fyrir utan pösthúsið í Austurstræti í gær; hún að setja upp í sig sælgæti og hann í feluleik. Bensín- verð lækkar OLÍUFÉLÖGIN þrjú; Olíu- verslun íslands hf., Olíufélagið hf. og Skeljungur hf., hafa lækkað lítraverð á 95 og 98 okt- ana bensíni um 3,30 kr. vegna hagstæðrar þróunar á heims- markaðsverði. Lækkunin tekur gildi frá og með deginum í dag. Eftir lækkunina kostar lítrinn af 95 oktana bensíni 95 krónur og 98 oktana bensíni 99,70 krónur. Gasolía hækkar um 80 aura og er lítraverðið nú 41,50 kr. Að sögn talsmanns Olíufé- lagsins hefði lækkunin á 95 okt- ana bensíni orðið 50 aurum meiri ef ekki hefði til komið óhagstæð gengisþróun. Morgunblaðið/Einar Falur Rústir átta húsa fundust við L’Anse aux Meadows við rann- söknir Helge Ingstad. Upplifðu siði norrænna sæfara Morgunblaðið/Ásdís For stj óraskipti tilumræðuí Eimskip Hörður Sigurgestsson Ingimundur Sigurpálsson Samkvæmt heimild- um, sem Morgun- blaðið telur öruggar, mun Hörður Sigur- gestsson, forstjóri Eimskipafélags Is- lands hf., hafa óskað eftir að láta af störf- um hjá félaginu í haust. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst má gera ráð fyrir, að fjallað verði um forstjóraskipti á stjórnarfundi í Eim- skipafélaginu nk. fimmtudag. Morgunblaðið hef- ur enn fremur heim- ildir fyrir því, að rætt sé um Ingi- mund Sigurpálsson, bæjarstjóra í Garðabæ, sem nýjan forstjóra Eimskipafélagsins og má þá gera ráð fyrir, að ráðning hans verði einn- ig til umræðu á fyrrnefndum stjórn- arfundi í Eimskip. I Morgunblaðinu í dag er skýrt frá umfangsmiklum breytingum á flutn- ingakerfí og skipakosti Eimskipafé- lagsins. Koma þessar breytingar til framkvæmda í októbermánuði nk. Félagið tekur þá í notkun tvö ný og stór skip með 1.457 gámaeininga burðargetu og munu þau leysa fjög- ur skip af hólmi, þar af þrjú leigu- skip. Eimskipafélagið hefur tryggt sér kauprétt á þessum nýju skipum og er kaupverð þeirra beggja um 3,5 milljarðar króna. ■ Eimskip/6 Útboð á húsnæði vegna skemmda í Suðurlandsskjálftum Utvega á um þrjátíu hús fyrir veturinn VERIÐ er að undirbúa útboð á veg- um Framkvæmdasýslu ríkisins á húsum íyrir þá einstaklinga á Suður- landi sem misstu húsnæði sitt 1 Suðurlandsskjálftunum og hafa ekki tök á að koma upp húsnæði fyrir vet- urinn. Verður útboðið væntanlega auglýst á allra næstu dögum sam- kvæmt upplýsingum Ólafs Davíðs- sonar ráðuneytisstjóra í forsætis- ráðuneytinu. „Við höfum verið í sambandi við sveitarstjórnarmenn á hverjum stað sem hafa veitt okkur upplýsingar um hvað það eru margir sem þurfa á slíku að halda. Það hefur verið lögð megináhersla á að ijúka þessu verk- efni,“ sagði Ólafur. Aðspurður sagði hann að útvega þyrfti samtals um 30 íbúðarhús og um væri að ræða heils- árshús af tiltekinni stærð skv. út- boðslýsingu. „Það er miðað við að all- ir þeir sem eru núna í bráðabirgðahúsnæði og hafa ekki tök á að koma sér upp varanlegu húsnæði í haust fái húsnæði fyrir veturinn,“ sagði Ólafur Davíðsson. Meiddist ábaki FRANSKUR ferðamaður féll í skriðu í Stóra-Hamragili á Landmannalaugasvæðinu seint í gærkvöldi og meiddist á baki. Maðurinn, sem var á ferð með félaga sínum, treysti sér ekki til þess að halda áfram göngu vegna verkja í mjóbaki. Þyrla Landhelgis- gæslunnar var því kölluð út og var maðurinn fluttur á bráðamóttöku Landspítalans við Fossvog um ellefuleytið í gærkvöldi. Hann er ekki tal- inn alvarlega slasaður. Nýtt fyrirtæki, Flughæfni ehf., sérhæfír sig í skipulagningu viðhaldseftirlits Hefur þegar gert samning við eitt flugfélag á íslandi ÞÚSUNDIR manna upplifðu siði og menningu norrænna sæfara sem sigldu að ströndum Nýfundnalands á hátið í Norstead sem er nýbyggð- ur víkingabær nyrst á landinu. Þangað var stefnt flota eftirlíkinga af víkingaskipum og var íslending- ur þar fremstur og stærstur. Víkingaþorpið Norstead var vígt fyrr á árinu og er tilurð þess hluti af viðleitni stjórnvalda til að beina athygli ferðamanna að þætti vfk- inga í sögu eyjarinnar. ■ Víkingarnir/48 FLUGREKSTRARAÐILAR íhuga nú í ríkari mæli en áður að láta aðra um að fylgjast með við- haldi á flugvélum sínum en fram að þessu hafa íslensk flugfélög sinnt þeirri vinnu sjálf. Fyrirtækið Flughæfni ehf., sem stofnað var fyrr á þessu ári, hyggst fara inn á þennan markað en hefð er fyrir því erlendis að flugfélög fái aðra til að veita þessa þjónustu, þ.e. skipuleggja, fylgjast með og tryggja að viðhald sé framkvæmt eftir þeim viðhaldskerfum sem framleiðendur flugvéla gefa út fyr- ir vélar sínar. Að sögn Andrésar Kjerúlf, fram- kvæmdastjóra og eiganda Flug- hæfni ehf., hefur fyrirtækið þegar tryggt sér samning við einn ís- lenskan flugrekstraraðila. Hann sagði að sú þjónusta sem Flug- hæfni kæmi til með að veita fæli í sér skipulagningu og reglubundið eftirlit sem unnið væri eftir tiltek- inni forskrift, fyrirtækið sinnti hins vegar ekki viðgerðavinnunni sjálfri. Flughæfni er í samvinnu við erlent fyrirtæki í sama geira og kaupir af því gagnagrunn sem síðan er notaður til að fylgjast með viðgerðum og viðhaldi á flugvélum. Geta sparað sér kostnað við rekstur eigin gagnagrunns „Flugfélögin hafa sjálf séð um þessa hluti en með breyttum markaði og JAA-samstarfi Evr- ópuríkjanna [samevrópskum flug- málayfirvöldum] opnast þarna möguleiki fyrir íslensk flugfélög að kaupa úti þjónustu sem þau hafa áður séð um sjálf. Inn á þann markað stefnum við og markaður- inn er í raun ótakmarkaður,“ sagði Andrés. Aðspurður um það hverju flug- félögin væru bættari með þessu sagði hann að þetta fyrirkomulag gæti sparað þeim kostnað við rekstur eigin gagnagrunns og síð- an væri til þess að líta að Flug- hæfni hefði gert samninga um gagnageymslu og kerfísleigu við Skýrr en í því faelist mikið rekstr- arlegt öryggi. Flugfélögin gætu því annars vegar látið Flughæfni alfarið um skipulagningu og eftirlit með viðhaldi en hinn möguleikinn væri síðan einnig fyrir hendi að Flughæfni leigði flugfélögunum aðgang að sínum gagnagrunni. Flughæfni auglýsti eftir starfs- fólki í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins en eins og er starfa tveir hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið er að fullu í eigu Andrésar en hann starfaði áður hjá flugfélaginu Atl- anta og Flugmálastjórn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.