Morgunblaðið - 03.08.2000, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000
FRETTIR
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Ýmis þjónusta við ferðalanga um verslunarmannahelgina
Upplýsingamiðstöð
og aukið eftirlit
BÚAST má við miklum umferðar-
þunga á vegum landsins um versl-
unarmannahelgina enda stór hluti
landsmanna á faraldsfæti. Þjónusta
við ökumenn og eftirlit með umferð-
inni verður aukið um helgina en lög-
regla og Umferðarráð munu taka
höndum saman í þeim efnum.
Einnig verður þjónusta í boði fyr-
ir fólk sem lendir í vanda á skipu-
lögðum hátíðum um landið. Öílugt
gæslulið er á flestum stöðum auk
þess sem læknar og hjúkrunarfræð-
ingar verða tiltækir þeim sem þurfa
á þess konar þjónustu að halda.
Upplýsing'amiðstöð umferðar-
mála
Umferðarráð mun starfrækja
upplýsingamiðstöð umferðarmála á
skrifstofu ráðsins um verslunar-
mannahelgina í samvinnu við lög-
reglu. Upplýsingamiðstöðin verður
opin frá föstudegi til mánudags en
þar verður safnað saman upplýsing-
um um umferðina, ástand vega og
annað sem gæti komið ökumönnum
að gagni. Umferðarráð mun einnig
eiga í samstarfí við Vegagerðina og
FIB. Upplýsingum verður komið á
framfæri til Vegagerðarinnar ef
lagfæra þarf vegi en FÍB verður
með sérmerktar bifreiðar víðsvegar
um landið þangað sem vegfarendur
geta leitað ef þeir þurfa aðstoð. Út-
varp Umferðarráðs verður auk þess
með útsendingar á öllum útvarps-
stöðvum um helgina eftir því sem
þurfa þykir.
Umferðarráð skorar á ökumenn
að draga úr hraða og koma þannig í
veg fyrir framúrakstur og minnka
streitu í umferðinni. Jafnframt eru
ökumenn beðnir um að virða yfir-
borðsmerkingar sem gefa til kynna
að ekki megi aka fram úr. Óli H.
Þórðarson, framkvæmdastjóri Um-
ferðarráðs, segir óhuggulega mikið
um að menn aki fram úr þar sem
línur á vegum eru heilar. „Þetta er
einsog rússnesk rúlletta enda hafa
mörg alvarleg slys orðið vegna
framúraksturs við þessar aðstæður
síðustu ár,“ segir Óli.
Hann segir fleiri bifreiðar vera
með fellihýsi eða tjaldvagna í eftir-
dragi en áður. Hámarkshraði slíkra
ökutækja er 80 km/klst. og segir Óli
mikilvægt að ökumenn séu meðvit-
aðir um að hleypa bílum fram úr sér
eins og kostur er. „Til þess þurfa
menn framlengingar á speglana hjá
sér. Annars sjá þeir ekki aftur fyrir
fellihýsin," segir Óli.
Aukið eftirlit lögreglu
Óli bendir á að 95 ökumenn hafi
verið staðnir að akstri undir áhrif-
um áfengis um verslunarmanna-
helgina á síðasta ári og beinir þeim
tilmælum til fólks að blanda ekki
saman akstri og áfengisneyslu.
Löggæsla verður mikil um allt
land um helgina og mun lögregla
meðal annars stöðva bifreiðar til
þess að mæla áfengismagn í blóði
ökumanna.
Lögregla mun einnig nota hraða-
myndavélar til þess að fylgjast með
ökumönnum auk þess sem allt eftir-
lit með umferð verður hert. Starfs-
menn Ríkislögreglustjóra ganga til
liðs við starfssystkini sín í öðrum
lögregluembættum í þessu skyni.
Stígamót hafa sent bréf til allra
þeirra sem standa að skipulögðum
útihátíðum þar sem minnt er á
hvaða hættur geti verið samfara
slíkum samkomum. Skorað er á
skipuleggjendur að sýna fyrir-
hyggju, koma upp áfallahjálpar-
teymi og jafnframt bjóða Stíga-
mótakonur fram aðstoð sína. „Við
höfum ennþá ekki fengið nein við-
brögð. Ég á því ekki von á því að við
verðum á þessum stöðum. Við von-
um að skipuleggjendur hafi sinnt
erindi okkar og gert viðeigandi ráð-
stafanir en við höfum engar upp-
lýsingar fengið um það,“ segir Rúna
Jónsdóttir, starfskona Stígamóta.
Að sögn Rúnu hafa mörg nauðgun-
armál frá verslunarmannahelgum
borist til Stígamóta. „Því miður
koma slík mál alltaf upp. Oft koma
þau til okkar að löngum tíma liðn-
um, jafnvel mörgum mánuðum eða
árum eftir að nauðgunin á sér stað,“
segir Rúna.
Byrgið mun aðstoða
fólk í vanda
Kristilega líknarfélagið Byrgið
mun verða með ráðgjafa á sínum
snærum um verslunarmannahelg-
ina. Þeir munu aðstoða fólk sem
lendir í vanda vegna neyslu vímu-
efna. Ráðgjafarnir verða í Vest-
mannaeyjum, Þjórsárdal, Þórs-
mörk, Húsafelli, Galtalæk og á
Akureyri. Þeir verða á sérmerktum
bifreiðum og í merktum fötum. I til-
kynningu frá Byrginu segir að ætl-
unin sé ekki að reka áróður gegn því
að fólk skemmti sér heldur vilji
Byrgismenn vera sýnilegir og til-
tækir fólki sem þarfnist hjálpar auk
þess að vera stuðningur við lögreglu
og annað gæslufólk á hátíðunum.
íviurgunoiaoio/ttunar r*or
Alltaf á hestbaki
STÖLLURNAR Ragnhildur og Erla
notuðu góða veðrið til að þeysa á
fákum sínum en Ijósmyndari hitti
þær í hesthúsahverfinu Breiðholti
ofan Akureyrar í gær. Þessar dug-
miklu stúlkur nota hvert tækifæri
sem gefst til að viðra sig og hesta
sína. Ragnhildur var um liðna helgi
á hestadögum sem haldnir voru á
Melgerðismelum en hafði Iangt í
frá fengið nóg af hrossum og fór
því í útreiðartúr með vinkonu sinni.
Heitur fímmtudagur í Deiglunni
• •
Okunemar fá ókeyp-
is í Hvalfj arðargöng
ÖKUNEMAR geta nú ekið eina
ferð um Hvalfjarðargöng í æfínga-
skyni án endurgjalds. Frá og með
deginum í dag mun Spölur hf. ekki
rukka þá ökunema sem eru í fylgd
með ökukennara um veggjald.
Óli H. Þórðarson, framkvæmda-
stjóri umferðarráðs, segist ekki
vita þess önnur dæmi að ökunem-
um hafí verið gefinn kostur á
ókeypis æfingaakstri í jarðgöngum
þar sem gjald er tekið fyrir um-
ferð. í vetur tók gildi ný námskrá
fyrir ökunema þar sem m.a. er
kveðið á um að þeir þurfi að kunna
skil á akstri í jarðgöngum. Um-
ferðarráð kannaði í vetur hvort
Spölur gæti komið til móts við öku-
nema. Óli segir að Spölur hafi
strax tekið vel í erindið og nú sé
ökunemum sem eru í námi hjá öku-
kennara gert kleift að æfa sig í
akstri um jarðgöng án endurgjalds.
°g
sunnudagskvöld
Hljómsveítín
1&70
Góða helgí!
Kolbeinn Þór Þorgeirsson var fyrstur til að nýta sér ókeypis æfingaferð
um Hvalfjarðargöng. Við hlið hans er Stefán Reynir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Spalar hf., Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennara-
félags Islands stendur lengst til vinstri.
„I mínum huga er þetta stórmál,"
segir Óli. Ekki sé nóg með að öku-
nemar fái æfingu í akstri um jarð-
göng heldur kynnist þeir í auknum
mæli akstri um þjóðvegi landsins.
Óli telur að framlag Spalar til öku-
kennslu megi meta á 6 milljónir.
Eykur umferðaröryggi
Stefán Reynir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Spalar hf., segir að
með því að gera ökunemum kleift
að æfa sig í akstri um Hvalfjarðar-
göng sé verið að auka öryggi allra
vegfarenda sem um göngin fara.
Reyndar sýni norsk rannsókn að
neðansjávargöng séu öruggasti
hluti vegakerfisins. Engu að síður
sé brýnt að ökumenn hafi í huga að
aka verði með gát um jarðgöng.
Guðbrandur Bogason, formaður
Ökukennarafélags íslands segir
það afar mikilvægt að ökunemum
sé gefinn kostur á æfingaakstri um
jarðgöng. Áreitin sem ökumenn
verða fyrir í jarðgöngum séu frá-
brugðin þeim sem þeir verða fyrir
ofanjarðar. „Þetta er stórt spor í
átt að bættri ökukennslu í land-
inu,“ segir Guðbrandur.
Miles Davis djass
A TUBORGDJASSI á heitum
fimmtudegi sem verður í Deiglunni
3. ágúst kl. 21.30 verður boðið upp á
Miles Davis djass. Það er einvalalið
djassleikara, kvintett sem leikur en
hann skipa þeir Sigurður Flosason
og Ólafur Jónsson á saxófóna, Kjart-
an Valdemarsson á píanó, Tómas R.
Einarsson á kontrabassa og Matt-
hías Hemstock á trommur.
Efnisskráin er byggð upp á efni
sem er að finna á ýmsum hljóðritun-
um með Miles Davis frá tímabilinu
1950 til 1954, ekki síst hinum frá-
bæru Blue Note plötum sem eru að-
eins tvær. Flest laganna heyrast
ekki oft flutt á tónleikum nú en þurfti
að upprita flest þeirra vegna þess að
þau er ekki að finna í hinum hefð-
bundnu bókum djassleikara.
Aðgangur er ókeypis á tónleikana,
sem þakka ber þeim fyrirtækjum
sem styi’kja og kosta þessa stai’f-
semi, sem eru: Ölgerð Égils Skalla-
grímssonar, Karolína-restaurant,
Akureyrarbær, KEA, Sparisjóður
Norðlendinga, VSÓ-ráðgjöf á Akur-
eyri og Kristján Víkingsson.
Fólki er bent á að koma tímanlega
til að ná sér í sæti.
Ágústspá Veðurklúbbsins
Búast við
góðu veðri
VEÐURKLÚBBURINN á Dalbæ,
Dalvík, hefur sent frá sér spá fyr-
ir ágústmánuð. Búast félagar í
klúbbnum við að veðrið verði gott
fram að 23. mánaðarins en sumir
telja að mánuðurinn verði örlítið
vætusamari en síðasti mánuður.
Þeir telja einnig líklegt að
sólskinsstundum fækki og óttast
að þokuloftið sem strítt hefur
Norðlendingum að undanförnu
muni gera það eitthvað áfram.
Varðandi vætuna vilja sumir
halda því fram að síðasta vika
mánaðarins verði vætusöm, þá
verði einn dagur með góðu sunn-
anroki og jafnvel rigningu. Höf-
uðdagurinn 29. ágúst ræður
miklu um veðráttu og getur veðr-
ið haldist svipað næstu 20 daga á
eftir. Einnig skiptir miklu máli að
veðrið sé gott á Egidiusmessu,
hinn 1. september, því þá verður
haustið gott.
Veðurklúbburinn telur að
berjaspretta verði vel yfir meðal-
lagi, en helst vantar vætuna. Þeir
segja að ef úr rætist með úrkom-
una verði seinni hluti berjatíma-
bilsins mjög góður.
Til gamans hefur veður-
klúbburinn spáð aðeins í veðrið
fyrir verslunarmannahelgina á
landinu. Samkvæmt þeirri spá
verður veðrið köflótt um helgina,
skiptast munu á skin og skúrir.
Veðrið verður mjög gott; seinni
hluta helgarinnar á Norðurlandi,
og þá sérstaklega á Dalvík. Einn-
ig mun veðrið verða gott suðaust-
anlands, austast á Austurlandi og
allra vestast á Vestfjörðum.