Morgunblaðið - 03.08.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000 29
ERLENT
Barátta stéttarfélaga gegn
forseta Zimbabwe
Mikil þátttaka í
allsherj arverkfalli
Harare. Reuters.
ATHAFNALÍF var lamað í
Zimbabwe í gær er stéttarfélög
landsins efndu til allsherjarverk-
falls í einn dag til að reyna að
þvinga Robert Mugabe forseta til
að stöðva ofbeldi gegn pólitískum
andstæðingum og töku búgarða í
eigu hvítra. Götur voru mannlaus-
ar í stærstu borgunum, Harare,
Bulawayo og Masvingo.
Opinberir starfsmenn mættu
samt í vinnu enda hafði þeim verið
hótað brottrekstri ella, að sögn
Isaacs Matongo, starfandi forseta
alþýðusambands landsins, ZCTU.
„Við teljum að milli 80 og 90 af
hundraði fólks hafi ekki mætt í
vinnu,“ sagði hann. Talsmaður
stjórnvalda sagði á hinn bóginn að
verkfallið hefði mistekist en eig-
endur einkafyrirtækja hefðu mein-
að starfsmönnum að vinna. Ekki
kom til umtalsverðra átaka í
tengslum við verkfallið en lög-
reglan sagðist þó hafa handtekið
nokkra unglinga sem hlaðið hefði
vígi við stúdentagarða í grennd við
Harare.
Bent hefur verið á að verkfallið
auki enn á efnahagsþrengingar
landsmanna en atvinnuleysi er um
50% og gjaldeyrisforði dugar að-
eins fyrir innflutningi í einn dag.
Gengi gjaldmiðilsins, Zimbabwe-
dollars, var fellt um 24% á þriðju-
dag.
Mugabe kom hvergi fram opin-
berlega í gær en hitti að máli Tha-
bo Mbeki, forseta Suður-Afríku,
REUTERS
Verslunareigandi í Harare lokar
búðardyrunum með keðju í gær.
sem er í heimsókn í Zimbabwe.
Hópur fyrrverandi liðsmanna
Mugabe úr stríðinu gegn hvíta
minnihlutanum fyrir tveim áratug-
um lagði í gær undir sig búgarð
hvíts manns og voru mennirnir
vopnaðir. Var fréttamönnum, sem
vildu ræða við starfsmenn á bú-
garðinum, hótað öllu illu. Hvítir
bændur leituðu í gær til dómstóla
til að reyna að fá töku þúsunda
búgarða lýsta ólöglega. Á mánudag
skýrði stjórn Mugabe frá áformum
sínum um að rúmlega 3.000 jörðum
hvítra yrði úthlutað jarðnæðislaus-
um svertingjum.
Mannskæð flóð á Indlandi
Amritsar, Shimla, Jammu. AP, AFP, Rcuters
ÓTTAST er að yfir 150 manns hafi
farist í flóðum í Himachal Pradesh-
fylki á Norður-Indlandi að því er
lögregla greindi frá í gær. Fyrri
fréttir höfðu sagt 73 hafa farist í
flóðunum og 19 til viðbótar væri
saknað eftir að áin Sutlej flæddi yf-
ir bakka sína.
„Talan 150 manns ... er ekki
lægri en búast má við,“ sagði A.K.
Puri, yfirmaður lögreglunnar, í
samtali við Reuters-fréttastofuna.
Áin sópaði með sér húsum og íbú-
um þeirra í vatnavöxtunum. Tekist
hafði að riá 22 líkum upp úr ánni í
gær en björgunarstörf gengu illa
vegna veðurs og unnu fiskimenn
við leit að fólki niður að Bhakra-
stíflunni.
Að sögn Puri vár eyðilegging í
kjölfar flóðanna mikil. Tugir brúa
höfðu sópast burt sem og verslanir
og a.m.k. 90 íbúðarhús. Pá hafði
flóðið alvarleg áhrif á samgöngur
og fjarskipti í fylkinu. „Fjarskipti
við flóðasvæðin einskorðast nú við
útvarp og gervihnetti," sagði Puri.
Það var í kjölfar harðra rigninga
sem hófust á þriðjudagsmorgun að
áin flæddi yfir bakka sína. Flóða-
svæðin liggja við rætur Himalaya-
fjallanna og telur fylkisstjóri
Himachal Pradesh, Prem Kumar
mbl.is
Dhumal, ekki ólíklegt að tala lát-
inna muni hækka enn frekar þar
sem fjölda manns sé enn saknað.
Samkvæmt fyrstu áætlunum
fylkisyfirvalda er tjónið sem flóðin
hafa valdið á þessu svæði metið á
10 milljarða rúpía, eða yfir 15 millj-
arða króna.
Fylkið hefur verið vinsæll
áfangastaður vestrænna ferða-
manna vegna þeirra fjölda göngu-
leiða sem um það liggja.
í rafhitunarkostnaði
með olíufylltu Wösab ofnunum
Olíufylltu WÖSAB rafmagnsofn- WÖSAB ofnarnir gefa jafnari
arnir geta lækkað hitakostnað. Ef hitun, þurrka ekki loftið og
valdir eru olíufylltir WÖSAB ofnar brenna ekki rykagnir. Þeir eru
með convektor og rafeindastýrðri með lágan yfirborðshita og taka
hitastillingu, getur sparnaðurinn lítið pláss. Hagstætt verð.
numið meira en 30%.
Reiknadu út hwað þetta þýðir fyrir þig!
Margar stærðir og gerðir. Áralöng frábær reynsla.
Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28-Sími 562 2901 og 562 2900
voru
Þeir sem kaupa gasgrifl
geta fengið það sent heim
samdægurs sér að
kostnaðarlausu.
Við tengjum gaskútinn,
kennum á grillið og
fjarlægjum það gamla
sé þess óskað.
••
Grillsteinar
495 kr.
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup