Morgunblaðið - 03.08.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000 37
LISTIR
tír ýmsu efni
MYJVPLIST
Listhús 0 f e í g s
JOUNI JÁPPINEN
Blandað efni. Sýningin
er opin á verslunartíma og
stendur til 9. ágúst.
Erótík í Grafík
FINNSKI málmlistamaðurinn
Jouni Jáppinen er vel þekktur í
heimalandi sínu og þar hafa dag-
blöð þegar sagt frá sýningu hans
hér í Reykjavík í Listhúsi Ófeigs.
Þetta er reyndar fjórða sýning
hans hér, en hann hefur áður sýnt
hjá Ófeigi og einnig á Mokka og í
Gallerí Grjóti árið 1989. Jouni titlar
sig málmlistamann en á að baki
fjölbreytt nám og feril. Hann lærði
fyrst járnsmíði, þá gullsmíði og loks
gekk hann í listaháskólann í Hels-
inki þar sem hann lærði málmlist.
Hann hefur unnið að þessum fögum
á ýmsum tímum, bæði við hönnun
og framleiðslu, og hefur haldið
fjölmargar sýningar. Þá hefur hann
unnið að gerð heimildamynda og
hlotið verðlaun fyrir myndir sínar.
Verk Jounis eru ekki síður fjöl-
breytt en bakgrunnur hans og hann
takmarkar sig engan veginn við
málm í útfærslu þeirra. Þvert á
móti notar hann gjarnan alls kyns
dót sem hann finnur á leið sinni,
gleymda muni og smáhluti sem
hann umbreytir eða setur í nýtt
samhengi svo úr verður listaverk
eða skartgripur. Stundum eru þess-
ir hlutir tengdir honum sjálfum eða
fjölskyldu hans, til dæmis í verkinu
,Afi minn“ þar sem keip af báti afa
hans hefur verið komið fyrir í köku-
kefli ömmu hans. Líkt og í því verki
er gjarnan gamansamur og jafnvel
mm
Ljósmynd/Jón Proppé
Eitt verkanna á sýningu Jouni
Jáppinen í Listhúsi Ófeigs við
Skólavörðustíg.
ögn kaldhæðinn tónn í verkunum
þegar Jouni raðar saman ólíkum
hlutum. Á sýningunni er líka að
finna verk úr málmi, ferningslaga
veggmyndir þar sem stálumgjörð
umlykur koparplötu sem Jouni hef-
ur unnið í með ýmsum hætti. Þessi
verk sameina á skemmtilegan hátt
frekar grófa áferð að hætti jám-
smiðsins og fínlega úrvinnslu gull-
smíðinnar.
Það sem áhorfandinn tekur einna
fyrst eftir er að verkin bera vitni
um mjög þróttmikinn listamann
sem hikar ekki við að tjá hugmynd-
ir sínar í það efni sem hendi er
næst. Verkin eru jafnframt á ýms-
an hátt mjög tengd því umhverfi
sem hann er sprottinn úr, finnskri
menningu og verkhefð. Undanfarið
höfum við séð ýmsar hliðar á
finnskri nýlist og ljósmyndun og
því er gaman að sjá hér enn einn
finnskan listamann sem þó fer sínar
eigin slóðir í sköpun sinni.
Jón Proppé
MYIVDLIST
Listasalurinn M A N
HELGI SNÆR SIGURÐS-
SON OG SÍRNIR H. EIN-
ARSSON GRAFÍK
Sýningin er opin á verslunartíma
og stendur til 10. ágúst.
FURÐU lítið hefur borið á erótík á
myndlistarsýningum undanfarið og
mætti jafnvel halda að íslenskir lista-
menn hafi engan áhuga á þeirri hlið
tilverunnar. Tveir ungir grafíklista-
menn, Helgi Snær Sigurðsson og
Símir H. Einarsson, hafa hins vegar
ráðist til atlögu við efnið á sýningu í
Listasalnum MAN við Skólavörðu-
stíg. Þeir vinna myndir sínar með
Til minn-
ingar
um ömmu
KRISTÍN Hauksdóttir hefur opn-
að sýningu á myndaseríum í
Norska húsinu í Stykkishólmi.
„Móðir mín er úr Hólminum og
ég dvaldi þar oft á sumrin sem
krakki hjá ömmu minni, Kristínu
Pálsdóttur. Amma var saumakona í
Norska húsinu í 25 ár og er þessi
sýning í minningu hennar,“ segir
Kristín.
Kristín segist hafa byrjað
myndaseríurnar sínar í Bandaríkj-
unum, en þar hafi hún litið til ís-
lands og málað myndir af ýmsum
auðkennum landsins.
Kristín var við Mastersnám í
ýmsum aðferðum, tölvugrafík, ljós-
myndaætingu og þurrnál, elstu og
yngstu aðferðum grafíklistarinnar.
Sýningin er helguð konum en Helgi
og Símir taka nokkuð ólíkt á því við-
fangsefni. Sírnir vinnur stórar
myndir í sterkum litum þar sem kon-
ur birtast í ýmsu samhengi með körl-
um og jafnvel dýrum. Helgi vinnur
hins vegar út frá ljósmyndum líkt og
hann gerði á vel heppnaðri sýningu í
Listhúsi Ófeigs fyrir skömmu.
Myndir hans sýna dularfullar nær-
myndir af konulíkama og ná að vekja
sterka tilfinningu fyrir munúð og
losta, hreinni erótík. Báðar mynd-
raðimar, Helga og Sírnis, ganga þó
vel upp á þeim forsendum sem þeir
hafa gefið sér og sýningin er þeim til
sóma.
Jón Proppé
Verk eftir Kristínu Hauks-
dóttur.
Pratt Institute í Brooklyn, New
York og lagði áherslu á málverk og
ljósmyndun. Hún býr nú í Reykja-
vík.
Sýningin í Norska húsinu stend-
ur til ágústloka.
Ljósmynd/Jón Proppé
Erótísk ljósmyndaæting eftir
Helga Snæ Sigurðsson af sýn-
ingu hans og Sírnis H. Einars-
sonar í Listasalnum MAN við
Skólavörðustíg.
Sýningum lýkur
i8, Ingólfsstræti 8
SÝNINGU finnska listamannsins
Elinu Brothems í i8 lýkur nú á laug-
ardag. Elina Brotherus er fædd í
Helsinki 1972. Á sýningunni em ljós-
myndir unnar á síðustu tveimur ár-
um. i8 er opið fimmtudaga til sunnu-
daga frá kl. 14-18. Lokað
sunnudaginn 6. ágúst.
Hafnarborg
Sýningunni Island með augum
Fransmanna lýkur mánudaginn 7.
ágúst. Um er að ræða franskar ljós-
myndir frá Islandi teknar á árunum
1845-1900, þ.á m. en elstu ljósmynd-
ir teknar utan dyra á Islandi sem
varðveist hafa og hafa þær aldrei
verið sýndar opinberlega áður á ís-
landi.Sýningin er opin frá kl. 12-18
þá daga sem eftir em af sýningunni.
Allt að 70% afsláttur
I
Wm
m
REIÐHJOL
SPEEDO
SPORTFATNAÐUR
f Wgf
UTIVISTARFATNAÐUR
GOLFFATNAÐUR
OG KYLFUR
SUNDFATNAÐUR
IÞROTTASKOR
r-IL4
£1
Reebok
1 ■ f|
8
GONGUSKOR
jua
i iý-'í-í
JtL'i • i
ROLUR
adidas
8Houison
Ármúla 40,
símar 553 5320 og
568 8860.
Iferslunin
s^^HjRKID