Morgunblaðið - 12.08.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.08.2000, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hagnaður Olíufé- lagsins jókst um 58% OLIUFELAGIÐ hf. - ESSO var rekið með 369 milljóna króna hagn- aði eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins en á sama tímabili var hagn- aðurinn 234 milljónir króna og jókst hagnaðurinn um 135 milljónir króna eða 58% á milli tímabila. Þess ber þó að geta aðsöluhagnaður af eignar- hlutum Olíufélagsins í öðrum félög- um á tímabilinu nam 165 milljónum króna en að sögn Bjama Bjarnason- ar hjá Olíufélaginu var ákveðið að flokka slíkar tekjur undir reglulega starfsemi, en tiltaka þær þó sérstak- lega, enda eðli og umfang þessara viðskipta orðið það mikið hjá Olíufé- laginu. Þá skal og tekið fram að hér í töflunni er söluhagnaðurinn ekki reiknaður inn í veltufé frá rekstri en sé það gert, sem að mörgu leyti er eðlilegt, væri veltufé frá rekstri á tímabilinu 632 milljónir í stað 467 milljóna eins og hér er gefið upp. Hafa ekki nýtt sér hátt heims- markaðsverð tii hækkunar Þá vekur athygli að rekstrargjöld félagsins aukast hlutfallslega meira en rekstrartekjur og aðspurður seg- ir Bjami að þetta sýni að Olíufélagið hafi ekki verið að nýta sér hátt verð á olíu á heimsmarkaði til þess að auka álagningu eins og margir hafi haldið fram. Vegna hækkunar á heimsmárk- aðsverði á olíuvörum jukust b'æði tekjur o g gjöld félagsins umtalsvert. Heildarsala á olíuvömm í magni tal- ið var nær óbreytt á milli tímabila en vemleg aukning varð í sölu á öðr- um vömm en olíuvöram. Rekstrar- tekjur Olíufélagsins og dótturfélaga þess á tímabilinu námu 6,73 millj- örðum króna og jukust um 30,7% á milli tímabila. Rekstrargjöldin námu 6,23 milljörðum króna og juk- ust um 33,3%. Rekstrahagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 499 milljónir króna á móti 475 milljónum í fyrra. Tækníval c*r leíöandí íyrir- tæki á sviði upplýúinga tækni á Íslantlí mod lausnir, þjónustu, ráögjoí og bunad íyrir kröíuhörö íyrirtæki og einstaklinyn. Styrkur Tæknivals liggur í þokkiníju starisrnanna og samningum við frarnút • skarantli etiend íyrírtæki eins og Cifíco, Compaq, NovoJI, Fujitsu Siemens, Microsoft og fleiri aöila. Tæknival náði nyveríö þeím áfanga að hljóta viðurkenninguna "Silver Partner” frá Cisco sern veitt er þeim samstarfs' fyrirtækjum sern skara fram úr i þekkingu, þjón ustu og rádgjöf á sviði tölvubúnaðar. Tíínnig er Tæknival “Stmior Partner” Micro.soft á Isiandi. Afskriftir hækkuðu um 10% í 153 milljónir og fjármagnsliðir voru já- kvæðir um 16 milljónir á móti 47 milljónum í fyrra. Miklar eignir í öðrum félögum Eigið fé Olíufélagsins nam 6,26 milljörðum króna og jókst um 6% á tímabilinu og eiginfjárhlutfall var 38,6%. Þess ber þó að geta að bók- fært verð hlutabréfa Olíufélagsins í öðram félögum var 5,8 milljarðar og þar af vora 2,7 milljarðar bréf í fé- lögum sem skráð era á hlutabréfa- markaði en markaðsverð bréfanna yar 1,743 milljarðar umfram bók- fært verð. Arðsemi eigin fjár á tíma- bilinu var 12,5% á ársgrandvelli á móti 9,2% í fyrra. Handbært fé frá rekstri var 650 milljónir á móti 426 milljónum í fyrra. I tilkynningu frá Olíufélaginu segir að vegna hás olíuverðs hafi fjárbinding í birgðum og viðskipta- kröfum aukist veralega en það muni hins vegar létta á rekstrinum ef olíuverð lækkar eins og spáð er. Af- koman ráðist hins vegar einnig af ytri þáttum eins og gengisþróun og þróun verðlags. Uppgjör raskar ekki verðmati Að sögn Ásmundar Tryggvasonar hjá Íslandsbanka-FBA aukast sölu- tekjur um 34,5% og kostnaðarverð seldra vara hækkar um 41% vegna þessa og fjárbinding í birgðum og viðskiptakröfum hækkar veralega, sem hefur áhrif á fjármagnsliði. Aukning hagnaðar skýrist hins veg- ar af söluhagnaði á eignarhlutum í öðram félögum. Þá bendir Ásmundur á að efna- hagsreikningurinn stækki um ríf- lega fjórðung á fyrri árshelmingi. Skuldir hafi samtals aukist um rúma 3 milljarða króna og nemi nú 9,4 milljörðum króna, þar af hafi langtímalán aukist um tæpar 600 m.kr. Að öðra leyti skýrist hækkun- in að stærstu hluta af auknum er- lendum lánum vegna vörakaupa um tæpa 1,5 milljarða króna auk þess sem aðrar skammtímaskuldir hafi aukist um rúmlega einn milljarð króna. Fjármagnskostnaður sé hins vegar afar lágur og þannig nemi vaxtagjöld aðeins 262 m.kr. Fjár- festingar Olíufélagsins í öðram fé- lögum nema ríflega 700 m.kr. og nemi fjárfesting í Traustfangi ehf. þyngst. Verðmat Greiningar og útgáfu FBA á Olíufélaginu hljóði því upp á 12,4 milljarða króna, sem svarar til gengis í kringum 12,5, en þar vegi þungt miklar duldar eignir í öðram félögum. Fyrstu viðbrögð séu þau að þetta uppgjör raski forsendum verðmatsins ekki að ráði. Olíufélagið hf. Úr milliuppgjöri 2000 (ísso) Rekstrarreikningur jan.-júní 2000 1999 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 6.730 5.151 +31% Rekstrargjöld -6.231 -4.675 +33% Afskriftir -153 -139 +10% Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 16 47 -66% Aðrar tekiur oq qiöld 165 Hagnaður af reglulegri starfsemi 370 241 +54% Hagnaður ársins 369 234 +58% Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting Eignir samtals Milljónir króna 16.218 12.825 +27% Eigið fé 6.256 5.897 +6% Skuldir 9.962 6.928 +44% Skuldir og eigið fé samtals 16.218 12.825 +27% Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting Eiginfjárhlutfall 38,6% 46,0% Veltufjárhlutfall 1,00 1,25 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 467 486 -4% Aukinn hagnaður Verðbréfaþings Íslands Aukin alþjóðavæðing með aðildinni að NOREX HAGNAÐUR Verðbréfaþings ís- lands eftir skatta á fyrra helmingi ársins nam 13,1 milljón króna en hagnaður allt árið í fyrra var 11,5 milljónir en þá var ekki gerður árs- hlutareikningur. Rekstrargjöld tímabilsins námu 74 milljónum króna samanborið við 107,1 milljón króna allt árið í fyrra og er fýrst og fremst um aukinn launakostnað að ræða vegna fjölgunar starfs- manna. Rekstrartekjurnar fyrstu sex mánuði ársins námu 95,5 millj- ónum króna á móti 128,1 milljón króna allt árið í fyrra og því ljóst að tekjur þessa árs verða allmiklu meiri en í fyrra. í tilkynningu frá VÞÍ segir að hækkun rekstrartekna megi fyrst og fremst rekja til gjaldskrár- hækkunar sem tók gildi 1. mars í vor. Sú hækkun var talin nauðsyn- leg vegna fyrirsjáanlegra útgjalda vegna aðildar VÞÍ að samstarfi norrænna og baltneskra kauphalla innan NOREX. Hækkun rekstrar- tekna er þó einnig til komin vegna aukinna viðskipta með skráð verð- bréf. Samfara aðildinni að NOREX kaupir VÞI sænska viðskiptakerfið SAXESS sem allar kauphallir í samstarfinu verða að nota. Kostn- aður við nýja viðskiptakerfið fellur að langmestu leyti til á síðara hluta ársins og í rekstraráætlun VÞI er gert ráð fyrir tapi á síðara árs- helmingi og að hagnaður fyrir árið í heild verði á bilinu sjö til átta milljónir. í aðildinni að NOREX felst að VÞI eignast hlut í félaginu Nordic Exchange A/S sem er rekstrarfé; lag samstarfsins. í tilkynningu VÞÍ segir að SAXESS-viðskiptakerfið sé mjög öflugt og komi í stað eldra viðsldptakerfis sem ekki bjóði upp á alla þá kosti sem einkenna nú- tímaleg viðskiptakerfi. Þá muni að- ild að NOREX auðvelda íslenskum þingaðilum að gerast aðilar að öðr- um kauphöllum í NOREX-sam- starfinu og þingaðilum þeirra að gerast þingaðilar hér á landi. Tilkynning um rafræna skráningu hlutabréfa í Tæknivali Þann 13. nóvember 2000 verða hlutabróf Tæknivals hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf fólagsins þann dag. Frá þeim tima ógildast hlutabréf félagsins sem eru útgefin á pappírsformi í samxæmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. n í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gx. laga nr. 32/2000, um breytingax á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum, og reglugerð nr. 397/2000, um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verbréfa- miðstöð. Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkum vafa leika á þvi að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Tæknivals hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspum til skrifstofu Tæknivais hf. í Skeifunni 17, 108 Reykjavik fyrir nefndan dag. Ennfremur er skorað á þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki). Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reiknings- stofnun, sem hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf., að hafa umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthöfum félagsins verður nánax kynnt þetta bréfleiðis. Stjóm Tæknivals hf. Tæknival Barclays yfírtekur Woolwich BARCLAYS-bankinn hefur keypt keppinaut sinn, Woolwich-bankann, og nemur verðmæti samningsins liðlega 648 milljörðum íslenskra króna. Talið er að um eitt þúsund starfsmenn muni missa vinnuna í kjölfar sameiningar bankanna. Þá mun Barclays loka um 100 útibúum á þeim stöðum þar sem báðir bank- amir reka útibú og sameina önnur. Stjómendur Barclays segja þó að Woolwich-merkið muni verða til áfram en Woolwich verður hins vegar hluti af Barclays-samsteyp- unni. Stjórnarformaður Woolwich segir að í sameiningu geti bankam- ir haldið áfram að þróa og breyta ásýnd bankaþjónustu á Bretlandi. Stjórnir bankanna beggja hafa þegar samhljóða samþykkt kaup Barclays á Woolwich en eigendur Woolwich fá bæði greitt í reiðufé og með hlutabréfum í hinum sam- einaða banka. Fyrir hvert bréf í Woolwich fá þeir annars vegar 0,1175 bréf í Barclays og hins vegar 1,64 pund á bréf en það þýðir að hvert bréf í Barclays er metið á um 352 pens. Gengi bréfa í Woolwich hækkaði um tæp 27% í 341 pens þegar frétt- ist af sameiningunni en bréf í Barclays lækkuðu hins vegar um 2,9% þar sem fjárfestar óttast að Barclays hafi greitt yfirverð fyrir Woolwich. Leiðrétt frétt um Burnham í FRÉTT um afkomu Burnham International á Islandi hf. á fyrri hluta ársins sem birt var í við- skiptablaði Morgunblaðsins á fimmtudag kom ekki nægjanlega skýrt fram að um eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum væri að ræða. Beðist er velvirðingar á þessu og hluti fréttarinnar birtur hér aftur. Hagnaður Burnham Int- ernational á íslandi hf. á fyrri hluta ársins 2000 var 85,6 milljónir króna. Burnham International tók yfir verðbréfafyrirtækið Handsal hf. um mitt ár 1999 en á sama tíma í fyrra var tap þess upp á 32,3 milljónir króna sem að nær öllu leyti má rekja til þess tíma áður en Burnham keypti Handsal. Hér er því um að ræða viðsnúning upp á tæpar 118 milljónir króna. Eigið fé Bumham International var 177 milljónir króna, en eignir og skuldir námu samtals 461 millj- ónum króna. Eiginfjárhlutfall fé- lagsins reiknað samkvæmt CAD- reglum (32.gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti) er því 16,2%. hillukerfi-brettarekkar SINDRI Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindn.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.