Morgunblaðið - 12.08.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 43
JÓHANN ÁSGEIR
JÓNSSON
+ Jóhann Ásgeir
Jónsson fæddist
á Isafirði 4. aprfl
1984. Hann lést á
Landspítalanum 30.
júlí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Isafjarðarkirkju
5. ágúst.
Elsku Jóhann.
Það er sárt að missa
þig. Þú varst svo góður
og skemmtilegur. Við
lékum okkur saman í
bflaleik þegar þú varst
hjá Signýju ömmu og
Sigga afa.
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín
Hafrún Huld.
Guð leiði þig, en líkni mér,
sem lengur má ei fylgja þér.
En eg vil fá þér engiavörð,
míns innsta hjarta bænargjörð.
Guð leiði þig.
Guð leiði þig. Hans lífsins vald
á lög og jörð og himintjald,
hans auga sér, hans armur nær
um allan geiminn nær og fjær.
Guð leiði þig.
(M. Joch.)
Við fengum fréttina
bæði sama daginn.
Samt vorum við ekki
tilbúin að trúa því að
Jóhann Ásgeir væri
látinn. í vor, þegar við
útskrifuðumst, vorum
við búin að vera skóla-
félagar í 10 ár. Við
vissum bæði að hann
ætti við erfið veikindi
að stríða en okkur
grunaði aldrei að
svona gæti farið.
Við munum aldrei
gleyma hvernig hon-
um einum var lagið að
lífga upp á bekkjarskemmtanirnar
með veðurfréttunum sínum. Hann
stóð upp við íslandskort, en samt
gat hann töfrað fram veðrið um all-
an heim með því að benda með priki
á kortið.
Það var sama hvernig hvernig lá
á liðinu, alltaf var stutt í brosið
þegar Jóhann var annars vegar.
Hann var alltaf í svo góðu skapi að
maður gat einfaldlega ekki annað.
Okkur fannst það því mjög leitt
þegar kennarnir sögðu okkur að Jó-
hann kæmi ekki með í skólaferða-
lagið.
Jóhann, þú munt alltaf lifa í
minningunni sem skemmtilegi og
duglegi strákurinn sem þú varst.
Við biðjum Guð að vaka yfir fjöl-
skyldu Jóhanns Ásgeirs. Kæri vin-
ur, okkur langar til að þakka þér
kærlega fyrir samveruna, þetta
hefði ekki verið eins án þín.
Friðþjófur og Svanhildur.
Elsku Jóhann!
Okkur langar til að kveðja þig
með því að setja niður á blað nokkr-
ar hugleiðingar um þær stundir
sem við áttum með þér. Tilgangur
lífsins hjá hverjum og einum er sér-
stakur. Þegar maður þarf á aðstoð
og umönnun að halda lærist fljótt að
nýta sem best þá hæfileika og getu
sem hverjum og einum er gefið.
Það sem stóð upp úr hjá þér, Jó-
hann, var jákvæðni og þolinmæði til
að takast á við lífið og tilveruna.
Gullkornin þín og tilvitnanir hjálp-
uðu mörgum til að takast á við dag-
inn. Þú varst einstakur herramaður
í þér og með framkomu þinni og
lífsgleði varst þú öðrum fyrirmynd.
Þú varst snillingur í að gera gott
úr hlutunum og láta aðdáun og
hrifningu þína gagnvart fólki og
hlutum í ljós. Allir sem kynntust
þér tengdust þér sérstökum bönd-
um, þar á meðal allt það unga fólk
sem var liðveislan þín. Þótt þau hafi
kennt þér ýmislegt þá lærðu þau
líka margt af þér.
Þú áttir þér stóra drauma og okk-
ur til gleði þá rættust flestir þeirra
nú í vor/sumar.
Við höfum verið þeirrar gæfu að-
njótandi að fá að fylgjast með þér
frá árinu 1987, og tekið þátt í lífi
þínu, átökum og sigrum. Þú varst
svo lánsamur að eiga góða að, fjöl-
skyldu og vini sem studdu þig í
gegnum lífið.
Minning um góðan dreng lifir í
hjörtum okkar allra.
Elsku Erna og Öddi, Jón og fjöl-
skylda, sendum ykkur og öðrum
aðstandendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur
styrk og huggun í sorg ykkar.
F.h. Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra, Vestfjörðum,
Helga og Hrefna.
+ Anna Baldvina
Gottliebsdóttir
fæddist á Hom-
brekku í Ólafsfirði
12. maí 1924. Hún
lést á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 31. júlí síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Ólafsfjarðarkirkju 5.
ágúst.
Ég kynntist Önnu
þegar ég varð mág-
kona hennar árið 1957
og allt fram á síðasta
dag voru okkar kynni
traust og hlý. Hún var umhyggju-
söm og tilbúin til að gera allt fyrir
alla ef hún gat. Heimili þeirra hjóna
var eins og hótel, opið fyrir öllum
sem þangað komu.
Ætíð bar Anna umhyggju fyrir
mér nánast eins og ég væri dóttir
hennar. Minnist ég þeirra daga er
hún kom fram í
Burstabrekku til að
baða pabba sinn eftir
að hann varð rúmfast-
ur á gamals aldri og
létti þannig undir með
mér. Síðan tók hún
foreldra sína á heimili
sitt og hafði þau síð-
ustu árin sem þau
lifðu.
Mér er líka minnis-
stætt þegar Anna kom
á heimili mitt eftir að
við hjónin höfðum flutt
í bæinn 1988 og sagði
við okkur að nú væri
mál að við færum með þeim Munda
til útlanda. Hún hafði þá þegar
ákveðið að farið yrði til Norðurland-
anna í júlí það sumar og hafði með-
ferðis bækling um tilhögun ferðar-
innar. Áður en þau Mundi fóru
heim var ákveðið að umrædd ferð
yrði farin og hef ég alltaf sagt síðan
að ef drifkrafti Önnu hefði ekki ver-
ið fyrir að fara hefði þessi frábæra
ferð ekki verið farin og við ekki
upplifað þær góðu stundir sem við
áttum með þeim hjónum í ferðinni.
Einnig minnist ég margra góðra
stunda sem við hjónin höfum átt
með þeim Önnu og Munda í ferðum
okkar um landið.
Síðastliðinn vetur höfðum við
ákveðið að fara eitthvað saman um
landið í sumar en með vorinu bárust
þau sorglegu tíðindi að veikindi sem
Anna hafði átt við að stríða tóku sig
upp að nýju og þrátt fyrir hetjulega
baráttu hennar varð það henni of-
viða að berjast við þau. Anna tók
veikindunum með stakri ró og jafn-
aðargeði þótt hún vissi að hverju
stefndi.
Við hjónin munum sakna þess að
fá hana ekki í heimsókn til okkar og
tómarúmið er mikið við fráfall
hennar.
Við hjónin biðjum guð að gefa
eiginmanni hennar styrk á erfiðum
tímum og vottum börnum þeirra og
fjölskyldum okkar dýpstu samúð og
biðjum guð að taka hana Önnu í
arma sína og gefa henni frið.
Svava Friðþjófsdóttir.
ANNA BALDVINA
GOTTLIEBSDÓTTIR
GEORG MELLK
RÓBERTSSON
+ Georg Mellk Ró-
bertsson fæddist
28. nóvember 1981.
Hann lést af slysför-
um 22. júlí síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Dómkirkj-
unni 3. ágúst.
Ég kynntist Georgi
haustið 1997 þegar við
lentum saman í 3.
bekk E í Verzló. Við
sátum hlið við hlið
þann veturinn, mörg-
um kennaranum til
ómældrar gremju.
Það var nefnilega þannig að við
vorum báðir málóðir. Við skröfuð-
um endalaust um hitt og þetta, og
sjaldan vorum við á sama máli um
hlutina. Það kom þó ekki í veg fyrir
það að við yrðum góðir félagar. Við
rifumst aldrei heldur rökræddum,
og yfirleitt kom Goggi
með skotheld rök fyrir
máli sínu. Ég er þess
fullviss að honum
hefði gengið vel í
ræðumennsku ef hann
hefði farið út í hana.
Fljótlega fórum við að
hittast utan skóla, og
enduðum við sem
vinnufélagar líka. Oft
ef mér leiddist á
kvöldin þá sló ég á
þráðinn til Gogga, og
áður en við vissum af
höfðum við spjallað í
tvær klukkustundir.
Goggi var mörgum mannkostum
gæddur. Hann var algerlega laus
við alla fordóma og yfirleitt þurfti
mikið til þess að hann reiddist.
Hann hafði mikið dálæti á kvik-
myndum og tónlist og talaði hann
oft um það að við yrðum að stofna
hljómsveit. Hann var líka mjög
greiðvikinn. Á föstudagskvöldinu
áður en hann lést hringdi ég í hann
og bað hann um að gera mér
greiða. Eins og vanalega var hann
meira en tilbúinn til þess. Við hitt-
umst rétt fyrir miðnætti og grun-
aði mig aldrei að það ætti eftir að
verða síðasta skiptið sem ég hitti
hann. Tveimur klukkustundum síð-
ar var hann látinn. Með þessum fá-
tæklegu orðum kveð ég þig nú. Það
var heiður að fá að þekkja þig og
hefði ég gefið mikið fyrir að fá að
þekkja þig lengur. Eg vil einnig
votta aðstandendum og vinum
Georgs mína dýpstu samúð. Hvíl í
friði, félagi. Þinn vinur,
Haukur Viðar Alfreðsson.
öa^ðsKom
v/ Possvo0sUi»*i<jMgcu*ð
Sími: 554 0500
ÁSTA
BJÖRNSDÓTTIR
+ Ásta Bjömsdótt-
ir fæddist á Vík-
ingavatni 17.
1927. Hún lést á
heimili sínu 17. júlí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Dómkirkjunni 27.
júlí.
Elsku amma mín.
Mér finnst svo leið-
inlegt að þú skulir
vera farin svona
snemma til Guðs. Við
áttum eftir að gera svo
margt skemmtilegt
saman. Okkur sem þótti svo gaman
að prjóna og spila á spil. Þú varst
alltaf mjög þolinmóð þegar þú
kenndir mér nú spil, t.d. Hjónakap-
al og Löngu-vitleysu.
Stundum fékk ég að gista hjá þér
og þá kúrðum við saman í rúminu
þínu og þú sagðir mér sögur af
pabba mínum þegar
hann var lítill og líka
sögur frá því í gamla
daga.
Þú gafst þér líka
tíma til að kenna mér
bænirnar og við rædd-
um oft saman um Guð
og hvert við færum
þegar Hann kallaði
okkur til sín. Nú líður
þér vel, elsku amma
mín, og hittir afa
Björn og mömmu þína»„
Guðrúnu.
Tveimur dögum áð-
ur en þú fórst fékk ég
að vera hjá þér og við fórum saman
út á leikvöll og áttum góðan dag
saman.
Veistu amma mín, að þú varst
besta vinkonan mín og ég á eftir að
sakna þín óskaplega mikið.
Þín
Gunnhildur Eva.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Elskulegur bróðir okkar, frændi og vinur,
MOHAMED JOSEF DAGHLAS
flugmaður,
Ásvallagötu 63,
Reykjavík,
sem lést af slysförum mánudaginn 7. ágúst,
verður jarðsettur frá Fossvogskapellu í dag,
laugardaginn 12. ágúst, kl. 14.30.
Fyrir hönd bræðra hins látna,
Salmann Tamimi.
r
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útf ararþ j ónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarssott
útfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sfmi 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
7
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
\
^'JOhVS^
J
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.